Morgunblaðið - 08.05.1994, Qupperneq 22
22 SUNNUDAGUR 8. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
KVIKMYNDIR/SAMBÍÓIN hafa tekið til sýninga kvikmyndina Ace Ventura —
Pet Detective, gamanmynd sem Qallar um spæjarann Ace Centura sem sérhæfir sig
að leita að týndum gæludýrum. í titilhlutverkinu er Jim Carrey. Myndinni hef-
ur verið forkunnarvel tekið í Bandaríkjunum.
Íim Carrey er 32 ára gamall
frá Ontario í •. Kanada
Am, að
árum
var
hann
farinn
að
troða upp til að fá
félaga sína og vini til að
hlæja. Hann var aðeins 15 ára
gamall þegar hann var farinn
að koma fram reglulega í
klúbbi í Kanada og í fjögur
ár fór hann um landið þvert
og endilengt til að skemmta.
Þegar Jim Carrey var orð-
inn 19 ára hafði hann
EkJki stirni
heldur stjarna
FRAMTÍÐIN
Jbrosir við Jim
Carrey eftir
velggengni
myndarinnar
um Ace Vent-
ura gæludýra-
spæjara.
fengið nóg af flökkulífinu og
ákvað að slá sér niður í Los Angel-
es. Þar fékk hann fljótlega vinnu
hjá gamanleikaranum Rodney
Dangerfield (Back to School o.fl.),
sem hafði álit á stráknum og tók
hann með sér á leikferð um
Bandaríkin. Allt frá því hefur fer-
ill Jim Carreys legið stöðugt upp
á við og auk fyrrgreindra kvik-
mynda og leiksins í In Living
Color, sem gerði hann að sjón-
varpsstirni, hefur hann verið með
gamanþætti í sjónvarpi sem
kenndir eru við hann sjálfan.
Myndin um Ace Ventura gælu-
dýraspæjara breytir hins vegar
öllu fyrir Jim Carrey. Fyrir leik
sinn í myndinni hlaut hann 22
milljónir króna í laun og þætti
- sjálfsagt flestumnóg um en í kjöl-
farvinsælda myndarinrtar er hann
orðinn einn eftirsóttasti gaman-
- Ieikári Bandaríkjanna og láunakr-
öfur kapþans hafa tuttugufaldast
og rúmlega það því fyrir næstu
kvikmynd sem hann hefur gert
samning um að leika í mun hann
fá greiddar rúmlega 500 milljónir
íslenskra króna. Slík tilboð fá
aðeins þeir sem menn í Hollywood
eru öruggir um að fólk muni
flykkjastí bíóhúsin til að horfa á
um ókontna íramtíð.
Spæjari dýraríkisins
MYNDIN um Ace Ventura gæludýra-
spæjara er fyrsta kvik-
myndin í fullri lengd ' i
þar sem Jim Carrey fer
með aðalhlutverk en
áreiðanlega ekki sú
síðasta ef marka
má viðtökur áhorf-
yndinni því menn ke- ppast um að bera lof
á drenginn og líkja honum við ýmsa þekkta gaman-
leikara. Vinsælagt virðist að kalla hann blöndu af
Robin Willia-ms. óg- Jerrý Lewis. Til þessa hefjir Jim
Carrey verið þekktastur-fyrir að leik sinn í vinsælum
sjónvarpsþáttum vestanhafs sem heifa In Living
Color og auk þess hefur hann komið við sögu í
aukahlutverkufn í myndum á borð við Pegg Sue
Got Married, með Kathleen Turner og Nicolas
Cage í aðalhlutverkum, Éarth Girls Are Easy með
Geena Davis og 'Dead Pool með Clint Eastwood,
svo og í Once Bitten með Lauren Hutton og
Clevon Littte.
ÞAÐ er búið að ræna höfrungnum
Snowflake, gæludýri Miami Dolphin-
ruðningsliðsins. Niðurstaða markaðsde-
ildar fótboltaliðsins er sú að aðeins einn
maður geti leyst málið; maður sem sér-
hæfir sig í að hafa upp á horfnum
gæludýrum og þekkir í sundur höfrung
og hnísu. Einkaspæjarinn Ace Ventura
er maðurinn. Hann er sá alfærasti á
þessu sviði og raunar sá eini svo vitað
sé. Höfrungsrán eru alvörumál og
markaðsstjóra Miami Dolphins fínnst
spæjarinn ekki mjög traustvekjandi
loksins þegar hún hefur upp á honum.
Maðurinn lifir á fuglafóðri, er greiddur
eins og páfagaukur og lítur út eins og
hann klæði sig með lokuð augun. En
hann er sá eini sem völ er á og því fær
hann starfið.
Ace hefst handa og árangurinn
lætur ekki á sér standa. Hann fínn-
ur strax sönnunargagn sem lög-
reglunni hafði yfirsést; stein úr
hring sem aðeins leikmenn meist-
araliðs Miami Dolphins bera. En
hann gerir sig og markaðsstjórann
Melissu Robinson (Courtney Cox)
jafnharðan að fífli þegar hann
reynir árangurslaust að bendla
frægan milljónamæring við ránið.
Rannsóknaraðferðir Ace Vent-
ura eru óvenjulegar. Þegar forseti
ruðningsliðsins er myrtur mætir
hann á svæðið til að leita að vís-
bendingum og hleypur hnusandi
eins og blóðhundur um svæðið.
Fólk er farið að halda að hann sé
ekki í lagi og ekki batnar það þeg-
ar hann eltir leikmennina út um
allan bæ og inn í sturtu til þess
að reyna að sjá út hver þeirra
hafí tapað steininum úr hringnum
sínum.
Málið verður dularfyllra og
dularfyllra og ekki batnar það þeg-
ar stjörnu Miami Dolphin-liðsins
Dan Marino (sem leikur sjálfan
sig) er rænt. Nú vandast málið því
runa.
nú eru það
tvö spendýr
sem Ace
Ventura þarf
að fínna,
tíminn líður
og úrslita-
leikurinn
nálgast.
Að lokum kemur þó í ljós að
Ace Ventura var réttur maður á
réttum stað og að það er engin
goðgá að nefna hann í sömu setn-
ingu og spæjara á borð við
Sherlock Holmes og Inspector Clo-
usseau. Enginn annar en hann
komst að því að höfrungsránið
tengdist úrslitaleiknum árið 1984
og enginn annar en hann gat upp-
götvaði að ýmsir þeir sem reyndu
að leggja stein í götu rannsóknar
hans höfðu óhreint mjöl í poka-
horninu. Enginn annar en Ace
Ventura gæludýraspæjari reynist
að lokum fær um að upplýsa morð-
ið, bjarga höfrungnum, finna Dan
Marino og koma honum heilum á
völlinn áður en úrslitaleikurinn er
búinn. Þegar allt kemur til alls
Heima í dýragarðinum
EINS og sönnum gæludýraspæjara hæfir
býr Ace Ventura ekki einn. Hann heldur
heimili með 20 gæludýrum af ólíkum upp-
stendur Ace Ventura uppi sem sig-
urvegari, með pálmann í höndun-
um og markaðsstjórann í fanginu.
Sagan um Ace Ventura gælu-
dýraspæjara er hugarsmíð hand-
ritshöfundarins Jack Bernstein en
hann vissi frá upphafi að þrátt
fyrir að hugmyndin um gæludýra-
spæjarann væri góð og handritið
væri sniðugt og gæfi mikla mögu-
leika þá myndi útkoman velta á
því að réttu mennirnir fyndust til
leika aðaihlutverkið og leikstýra
myndinni.
Jim Robin-
son framleið-
andi tók að
að sér að
gera mynd-
ina og var
sömu skoðunar. Sem leikstjóra
valdi hann Tom Shadyac, sem hér
leikstýrir sinni fyrstu kvikmynd,
en hafði áður vakið athygli fyrir
stuttmyndir og hafði
starfað sem handrits-
höfundur hjá Fox-
sjónvarpsstöðinni.
Shadyac var strax
með á hreinu hvern
hann ætlaði sér að
velja í aðalhlutverkið.
Jim Carrey skyldi
það vera, náunginn
sem lék í sjónvarps-
þáttunum In Living
Color og hafði þar
skapað marga
óvenjulega karakt-
era. Jim gekk í liðið
og í framhaldi af því
var ákveðið að gera
breytingar á sögunni
og gefa aðalleikaran-
um mikil völd um
persónu Ace Vent-
ura. Við þær breyt-
ingar hafði Jim Car-
rey fyrst og fremst
eitt í huga: „Fólkið
sem horfir á mig í
Living Color býst við
einhverju stórfurðu-
legu. Ég var viss um
að ef okkur tækist
að koma einhverju
slíku til skila með
Ace Ventura þá vær-
um við í góðum mál-
um.“
í dag efast enginn
um að Jim Carrey
hafi verið rétti mað-
urinn í hlutverkið og
samstarfsmenn hans
segja að hann sé
meiriháttar gam-
anleikari, eins konar
blanda af Robin Will-
iarns og Jerrý Lewis.
Jim bjó til hlutverk
Ace Ventura nánast
frá grunni og skilaði
því af sér með sínum
persónulega stíl, á
hátt sem enginn annar hefði get-
að. Hlutur hans er talinn stór í því
að myndin um Ace Ventura gælu-
dýraspæjara er um þessar mundir
ein mest sótta kvikmyndin í
Bandaríkjunum.
Án gæludýra væri mynd um
gæludýraspæjara ekki mikið fyrir
augað og auk höfrungsins sem
rænt er í upphafí koma við sögu
í myndinni 25 dýr, flest þeirra búa
í dýragarðinum sem
spæjarinn kallar
heimili sitt. Þar
ægir saman páfa-
gaukum, páfuglum,
skunkum, mörgæs-
um, íkornum og
apaköttum auk fjöl-
margra hunda og
katta. Dýrin leika
talsvert hlutverk
eins og eðlilegt er
og í nokkrum atrið-
um koma þau öll
við sögu samstund-
is.
Myndin um Ace
Ventura var að öllu
leyti tekin í og við
Miami og Fort
Lauderdale í
Flórída og mest
gekk á dagana tvo
þegar ein mesta
íþróttastjarna fylk-
isins, Dan Marino,
leikstjómandi
Miami Dolphins-
liðsins, var að leika
í myndinni í
heimabæ sínum
Coral Gables. Það
var heldur ekkert
smámál að fylla
leikvöll Miami
Dolphin-liðsins af
fólki til að endur-
skapa stemmning-
una sem ríkir á
Super Bowl, úr-
slitaleiknum í am-
erísku atvinnu-
mannadeildinni,
þar sem við sögu
koma m.a. klapp-
stýrur liðsins og
100 manna lúðra-
sveit.
En allt gekk upp
og aðstandendur
Ace Ventura — Pet
Detective eru sannfærðir um að
myndin sem þeir gerðu saman sé
alveg einstök. „Það er útilokað að
gera betur,“ segir leikstjórinn,
Tom Shadyac. „Til að gera betur
þyrfti að slá Jim Carrey út og það
er einfaldlega ekki hægt.“
Alvöru íþrótta-
stjarna
EINN vinsælasti
iþróttamaður Banda-
ríkjanna, Dan Mar-
ino, leikstjórnandi
Miami Dolphin-ruðn-
ingsliðsins, leikur
sjálfan sig í myndinni
um Ace Ventura
gæludýraspæjara.
í leikslok
MARKAÐSSTJÓR-
INN Melinda fagnar
innilega árangri Ace
Ventura við að
bjarga málunum.
Aha
SPÆJARINN Ace
Ventura beitir
óvenjulegum rann-
sóknaraðferðum sem
skila óvæntum
árangri.
Á hraðri
uppleið