Morgunblaðið - 08.05.1994, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 8. MAÍ1994 35
Hinn 18. desember 1937 kvænt-
ist Einar á Siglufirði eftirlifandi
konu sinni Kristjönu Friðjónsdótt-
ur frá Langhúsum í Fljótum, þá
búsettri á Siglufirði.
Börn þeirra eru tvö: Hjalti,
fæddur á Siglufirði 23. júní 1938,
og Margrét, fædd í Vestmannaeyj-
um 16. september 1942, húsfrú,
nú búsett í Stóragerði 26 í Reykja-
vík. Maður hennar er Guðbrandur
Geirsson, börn eru fimm uppkom-
in.
Foreldrar Margrétar hafa alið
upp son hennar, Einar Kristján
Hermannsson, hann er fæddur 5.
desember 1960, verslunarmaður,
kvæntur og býr í Hafnarfirði.
Hjalti er landsþekktur íþrótta-
maður, starfaði áður í fríhöfninni
á Keflavíkurflugvelli og síðar hjá
ÁTVR í Reykjavík þar til hann
missti heilsu fyrir nokkrum árum.
Hann er trésmiður að mennt. Kona
hans er Jóhanna Helgadóttir kaup-
kona og eru þau búsett í Hafnar-
firði og eiga þau tvö börn uppkom-
in.
Einar var í siglingu öll stríðsár-
in og lenti þá í ýmsum hremming-
um.
Til Hafnarfjarðar flytur Einar
með fjölskyldu sína 1950. Hann
fer fyrst á togara en síðar til starfa
hjá varnarliðinu á Keflavíkurvelli.
Hann verður fastur starfsmaður
í tollgæslunni á Keflavíkurflug-
velli og er það í 23 ár, en hann
lætur þá af störfum fyrir aldurs
sakir. Hann hafði góða þekkingu
og menntun til slíkra starfa.
Ég þekkti vel til Einars frá
Siglufírði en ég og bróðir hans,
Björgvin, vorum skólabræður frá
Menntaskólanum á Akureyri.
Á yngri árum var Einar góður
íþróttamaður í glímu og knatt-
spyrnu en mest var hann lofaður
fyrir hreysti sína og sjómennsku.
Sem skipstjóri óvílinn, traustur og
úrræðagóður. Hann var sérstak-
lega heiðraður á sjómannadegin-
um í Hafnarfirði 1984 fyrir störf
sín á sjó.
Líf hans var hörð barátta en
vilji til sjálfsbjargar mikill.
Hann kvartaði ekki þó að mikil
veikindi legðust á ástvini hans en
stóð keikur, hreinn og beinn hvað
sem á daga hans deif.
Frá 8. desember varð Einar
vegna sjúkdóms þess er hafði hel-
tekið hann og ekki varð við gert
að dvelja á sjúkrahúsi, oft sárþjáð-
ur. Hann gerði sér full ljóst hvert
stefndi. Kona hans er lengi var
sjúk var komin til dóttur sinnar,
Margrétar, er annaðist hana og
fyrir það var hann þakklátur. En
Margrét annaðist hann einnig sem
hún mátti og var yfír honum er
yfir lauk.
Ég votta eiginkonu hans, böm-
um og barnabörnum og öðrum
ástvinum hans dýpstu samúð.
Björn Ingvarsson.
62 55 30
STÓRAGERÐI M. BÍLSKÚR.
Höfum til sölu rúmgóða 4ra herb. íb.
á 1. hæð 102 fm m. 22 fm bílskúr. íb.
er í góðu standi og laus strax. Hag-
stætt verð.
BARMAHLÍÐ - 3JA. Vorum
að fá í einkasölu rúmgóða 3ja herb.
íb. á jarðhæö. Parket. Áhv. veðdeild
3,0 millj. Verð 6,3 millj.
BUGÐUTANGI - MOS. Fal-
legt endaraðhús 65 fm. Nýjar innr.
Sérinng. og -garður. Áhv. 4,3 millj.
Verð 6,2 millj.
Sæberg Þórðarson,
löggiltur fasteigna- og skipasali,
■■ Skúlatúni 6, s. 625530.
ríTor.iitr illl ,
m FASTEIGNAMIÐSTOÐIMP M
SKIPHOLTI SOB ■ SÍMI 62 20 30 ■ FAX 62 22 90
Opið hús
Hlíðarhjalli 39A
Til sölu stórglæsileg 160 fm efri sérhæð ásamt bílskýii í nýlegu
húsi. Fallegar, sérsmíðaðar innréttingar, parket og marmari.
Frábært útsýni.
Allir velkomnir frá kl. 14-17 í dag, sunnudag.
Til sölu eru 5 íbúðir í 3ja hæða fjölbýlishúsi við Arnar-
smára 2 í Kópavogi. Um er að ræða þrjár 4ra herb.
íb. 99,6 fm nettó á 2. og 3. hæð - og tvær 3ja herb.
íbúðir 86,6 fm nettó á jarðhæð.
íbúðirnar seljast fullfrágengnar með innréttingum en
án gólfefna. Sameign fullfrágengin. Afhending í ágúst
1994. Verð á 4ra herb. íbúð kr. 8.600.000,- og 3ja
herb. íbúð kr. 7.800.000,-. Byggingaraðili Húsaafl sf.
Ásbyrgi - fasteignasala
sími 682444
INGILEIFUR EINARSSON, löggiltur fasteignasali.
SÖLUMENN: Þórður Ingvarsson og Lárus Hauksson.
Á besta útsýnisstað á
Nónhæð
FASTEIGNA & SKIPASALA
BÆJARHRAUNI 22 H AFN ARFIRDI' SÍMI 65 45 11
Opið hús
Fagrakinn 8
Opið hús frá kl. 13-15. í einkasölu sérl. falleg ca. 85 fm 3ja-4ra herb.
efri hæð, (ris) í nýklæddu tvíb. Parket, hagstæð áhv. lán. ca 3,2 millj.
Verð 6,5 millj.
Miðvangur 41 - íbúð 306
Opið hús frá kl. 13-17. í einkasölu glæsil. ca 60 fm 2ja herb. íb. á
3. hæð. Sérinng. Suðursv. Áhv. veðd. 2,9 millj. Verð 5,3 millj.
Álfaskeið 90 - m. bflskúr
Opið hús frá kl. 13-15. Falleg 107 fm 4ra herb. íb. á 4. hæð ásamt
bílskúr. Suðursv. Hús og sameign nýviðg. Verö aðeins 7,9 millj.
Logafold 22
Opið hús frá kl. 13-15.1 einkasölu sérl. falleg og rúmg. 100 fm lúxusíb.
á 2. hæð í fallegu litlu fjölb. Vandaðar innr. Parket, útsýni, bílskýli.
Áhv. byggingarsj. ca 5 millj. Verð 9,3 millj.
Dalsel 38
Opið hús frá kl. 14-17. í einkasölu falleg ca 55 fm íb. á jarðh í góðu
fjölb. Áhv. 3 millj. hagstæð lán. Verð 4,9 millj.
Sauðárkrókur - skipti
Vorum að fá í sölu mjög gott ca 170 fm raðhús m. innb. bílslgjr. Hag-
stæð áhv. lán. Verð 10 millj. Skipti mögul. á eign á Stór-Reykjavíkursv.
Atvinnuhúsnæði í Hafnarfirði
Dalshraun 420 fm
Kaplahraun 727 fm
Drangahraun 200 fm
Drangahraun 650 fm
Drangahraun 120 fm
Hvaleyrarbraut 60 fm
Dalshraun 130 fm
verslunarpláss
Dalshraun 80 fm kj.
Dalshraun 100 fm kj.
Dalshraun 300 fm
verslunarh.
Opið hús
Eftirtaldar eignir eru til sýnis milli
kl. 14 og 16 í dag.
Stelkshólar 10 - 3ja herb.
- Laus
Björt og góð íbúð á 3. hæð til hægri. Búið að gera v.
blokkina að utan. Verður máluð í sumar. Bílskúr getur
fylgt. Heimsækið Grétar og frú og gerið góð kaup.
Jöklasel 21 - 2ja-3ja herb.
Góð íb ái 1. hæð til vinstri 2 svefnherb. Þvottah. í íb.
Parket. Áhv. 2 millj. langtímal. Húseigandi heitir Sig-
urður og hann býður ykkur velkomin.
Blöndubakki 18 - 4ra herb.
Góð íbúð á 3. hæð til hægri. Blokkin er nýtekin í gegn
og er í fínu ástandi. Mögul. að hafa þvottaherb. í íb.
12 fm herb. í kj. Hagstætt verð - gerið tilboð.
Sigurður og frú taka vel á móti ykkur.
Sími 882030 - Opið í dag kl. 13-16.
iIÓLl
FASTEIGN ASALA
® 10090
SKIPHOLTI 50B,
2. hæð til vinstri
Tvöföld miðlun
- einföld lausn
LEIGUMIÐLUN
EIGULISTINN
Guðlaugur Örn Þorsteinsson,
rekstrarverkfræðingur, sölumaður,
veitir allar upplýsingar um
neðangreind húsnæði.
ATVINNUHÚSNÆÐI
Til sölu
Bíldshöfði
Prýðis 336 fm iðnaðarhúsn. með innk-
dyrum. Auðvelt er að skipta húsnæðinu
í tvær 168 fm einingar og selja einung-
is aðra eininguna. Heildarverð 11,3
millj. Áhv. 4 millj.
Skipholt
Nyetands. skrifstofuhúsnæði á 2
hæðum, samt. 510 fm. Nýtt gler,
rafm., nýir ofnar, nýmálað. Afh.
m. fullklár. sameign. m. nýjum
hurðum en óinnr. að öðru leytí.
Verð 23 millj. Áhv. 18,3 millj.
verslunarmiðstöð
Við Völvu-/Drafnarfell er hentugt 47 fm
verslunarpláss. Tilvalið fyrir þá sem eru
að færa út kvíarnar eða byrja verslunar-
rekstur. Verð 2,4 millj. Ahv. 300 þús.
Iðnaðarhúsnæði 200 fm
Fullbúið iðnaðarhúsnæði í Kópavogi
með innkeyrsludyrum (3,5 x 3,5m),
gryfju og hlaupaketti sem fylgir með í
kaupunum. Verð 5,6 millj. Áhv. 3,3 millj.
Inaðarhúsnæði og íbúð
Iðnaðarhúsnæði á tveimur hæðum
samtals 180 fm með ósamþ. 3ja herb.
íbúð á efri hæðinni. Á jaröhæðinni er
90 fm iðnaðarpláss með innkeyrsludyr-
um (3,0 x 4,5m) (hxb), tveimur niðurföll-
um og gryfju. Verð 5,7 millj.
Til leigu
Skutuvogur
Nýtt 185 fm (370 fm) atvlnnu-
húsn. á jarðh. m. innkeyrsludyr-
um. Húsnæðíð er bjart m. frá-
bærri útiaöst. Manaðarleiga 85
þús.
100 fm verslhúsnæði
við hinn fjölfarna Nýbýlaveg sem hefur
gott auglýsingagildi og er með nægum
bílastæðum. Mánaðarleiga 50 þús. kr.
Viðarhöfði
Óinnróttað 340 fm súlulaust húsnæði
á 3. hæð með 170 fm svölum og fró-
bæru útsýni yfir borgina. Sala kemur
einnig til greina. Leiguverð 330 kr./fm.
Höfðatún
277 fm iðnaðar - og lagerhúsn. á jarðh.
m. afgreiðsludyrum. Hentar vel sem
viðgerðar og lagereining. Mánaðarleiga
83 þús.
Hringdu núna! - við skoðum strax
Nýbýlavegur - gott skrifstofuhúsnæði
848 fm húsnæði fullinnr. með lyftu. Tvær efri hæðirnar eru tvískiptar með
eldhúsaðstöðu, fjölmörgum skrifstherb. og góðum innréttingum. Húsnæðið
selst í einu lagi eða smærri einingum. Leiga kemur einnig til greina. Nánari
upplýsingar veitir G.Þ. á Hóli.