Morgunblaðið - 08.05.1994, Qupperneq 46
46 SUNNUDAGUR 8. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
KAPPAKSTUR
Ayrton Senna var fjölmiðlamatur, hvert sem hann kom. Hér svarar hann
spumingum blaðamanna á Silverstone-kappakstursbrautinni í Englandi.
Dekkjahitarar eru notaðir fyrir ræsingu keppni. Vegna endurræsingar í San
Marínó voru dekkin ekki við kjörhita, þegar bílarnir æddu af stað að nýju.
TVÖ DAUÐASLYS íFormula 1 um síðustu helgi
hafa minnt menn á af hverju kappakstur var kallað-
ur leikur dauðans á árum áður. Mörgum er spurn
hvort Formula 1 kappakstur sé á ný orðinn of
hættuleg íþrótt. Slysin tvö, fyrst lát Austurríkis-
mannsins Rolands Ratzenbergers og síðan Brasil-
íumannsins Ayrtons Senna á Imola-brautinni, hafa
valdið miklum viðbrögðum um allan heim. Senna
var án vafa einn besti kappakstursökumaður sem
uppi hefur verið, vann heimsmeistaratitilinn þrí-
vegis á ferlinum. Hann lét lifið þegar Williams-
keppnisbíll hans skall á steinvegg á 320 km hraða.
Enn er óljóst hvort tæknileg bilun, mistök öku-
manns eða aðrar ástæður liggja að baki því að
Senna fór útaf og endaði á veggnum. Lát Senna
og Ratzenbergers eru fyrstu dauðaslysin i Form-
ula 1 ítólf ár. Ratzenberg lést þegar bíll hans fór
útaf ítímatöku daginn fyrir keppni.
>
i -
I
Eftir
Gunnlaug
Rögnvaldsson
Ayrton Senna var þjóðhetja í
heimalandi sínu og 1,2 millj-
ónir manna mættu á götur heima-
bæjar hans, Sao
Paulo, þegar hann
var borinn til grafar
á fimmtudaginn.
Um allan heim
minnast milljónir áhangenda þessa
frækna kappa, sem lét lífið við þá
iðju sem hann ólst upp við frá blautu
bamsbeini. Margar vangaveltur em
uppi um hvað hefur gerst hjá Senna
á Imola-brautinni. Svartur kassi úr
bíl Senna, svipaður og er skoðaður
þegar flugvélar farast, er í skoðun
hjá yfírvöldum á Ítalíu, en keppnin
fór fram í San Marino. í upphafi
keppninnar, í rásmarkinu, ók Pedro
Lamy aftan á bíl J.J. Letho á mik-
iili ferð og bílarnir splundmðust,
þannig að endurræsa þurfti keppn-
ina. A meðan brautin var hreinsuð
óku keppendur í halarófu á eftir
undanfara mótsstjórnar, tæpa fímm
hringi.
Olli biðin slysinu?
Ökumenn reyndu að halda
dekkjunum heitum, með því að
sveigja annað slagið til hliðanna.
Ein hugmynd sem kastað hefur
verið fram er sú hvort þetta hlé
hafí valdið því að dekkin hafi ekki
verið nægilega heit fyrir þann
hörkuakstur, sem tók við um leið
og keppnin var ræst að nýju. Senna
komst aðeins einn hring áður en
hann fór útaf á fullri ferð. Fyrir
venjulega ræsingu er dekkjunum
haldið heitum með sérstökum hita-
pokum, þannig að gripið er eins
gott og hugsast getur. Biðin eftir
endurræsingu hefur öragglega
kælt dekkin niður. Þá er sá mögu-
leiki fyrir hendi að ekki hafi tekist
að hreinsa brautina af öllum leifum
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Senna í Williams-bílnum
AYRTON Senna um borð í Williams-bílnum, á æfingu í Estoril í Portúgal í mars síðastliðnum, skömmu áður en Formula
1 keppnistímabilið hófst. Þessi frábæri brasilíski kappakstursmaður var aðeins 34 ára gamall þegar hann lést.
klesstra bílanna, þær hafi komist
í dekkin og gert þau viðsjárverð,
eða jafnvel sprengt dekk hjá
Senna. Þetta era þó aðeins getgát-
ur.
Brautin í Imola er mjög mishæð-
ótt og nokkram sekúndubrotum
áður en Senna fer útaf sést á
myndbandsupptöku úr bíl Michaels
Schumachers, sem var á eftir, að
Williams-bíll Senna tekur harka-
lega niður á ójöfnu í tvígang. Skildi
eftir stóra skellu á brautinni.
Hugsast getur að uppsetning fjöðr-
unar og vindskeiða hafi verið of
tæp fyrir braut sem ekki var slétt.
Senna ritaði sjálfur grein í dag-
blaðið Welt Am Sonntag, sem birt-
ist sama dag og keppnin fór fram
í San Marino, þar sem hann sagð-
ist eiga í erfiðleikum með bílinn
og væri að gera tilraunir með upp-
setningu til að laða fram það besta
í bflnum. „Það hefur valdið mér
Ayrton
Senna
Ayrton Senna Da Silva fæddist
27. mars 1960 og var því 34 ára
er hann lést, 1. maí sl.
Fyrstu kynni Sennas af kapp-
akstri vora þau að faðir hans
smíðaði handa honum „go kart“-
kappakstursbíl er Senna var að-
eins fjögurra ára, en hann var
orðinn þrettán þegar hann vann
fyrstu kartkeppnina.
Senna ók lOOcc kart-bílum í
nokkur ár með góðum árangri.
Ferill hans stórt stökk eftir að
hann flutti tit Englands 1981, og
hóf að aka Formula Ford kapp-
akstursbíl. Hann vann 22 sigra
1982 og vakti strax athygli
Formula 1 liða. Fékk mörg til-
boð, en ákvað að fara sér hægt
og fór til Formula 3 liðs. í júlí
1983 prófaði hann Williams
Formula 1 bíl fyrsta sinni, nokkur
lið buðu honum samning í árslok
og hann fór til Toleman.
Árið 1985 gekk hann til liðs
við Lotus og vann fyrsta Formula
1 sigurinn i Portúgal 21. apríl.
Sigramir urðu tveir það ár og
sömuleiðis næstu tvö ár á eftir.
Hann fór frá Lotus til McLaren
haustið 1987 og sló í gegn á
fyrsta ári með nýja liðinu, vann
átta mót af sextán og varð heims-
meistari, en hann ók með Frakk-
anum Alain Prost í liði. Prost
fagnaði sigri næsta ár, þótt
Senna ynni sex glæsta sigra.
1990 vann Senna sex sinnum og
varð heimsmeistari að nýju, og
árið eftir, er Prost var hjá Ferr-
ari, varði hann titilinn.
1992 var ár Nigels Mansells,
en Senna vann engu að síður
þrjú mót. Á siðasta ári atti hann
kappi við Prost um meistaratign-
ina og varð annar. Senna fór svo
til Williams fyrir nýhafíð keppn-
istímabil og byrjaði ekki vel því
hann varð að hætta keppni, bæði
í Brasilíu og Mónakó. Þriðja
keppni ársins var svo i San Mar-
ínó. Þar lauk á sviplegan hátt
glæsilegum ferli Brasilíumanns-
ins, sem hafði unnið 41 sigur í
Formula 1 keppni.