Morgunblaðið - 08.05.1994, Síða 47
MORGUNBLAJÐIÐ
heilabrotum að setja bílinn rétt upp
fyrir brautina. Bíllinn er viðkvæm-
ur á þvt undirlagi sem er á Imola-
brautinni. Vikuna á undan gerðum
við nokkrar tilraunir með uppsetn-
ingu á bílnum,“ sagði Senna m.a.
í greininni og bætti við: „Áhyggjur
mínar varðandi það hve margir
nýir ökumenn eru í Formula 1
urðu að sorglegri staðreynd, þegar
Roland Ratzenberger fór útaf á
hraðasta kafla brautarinnar. Dag-
inn áður hafði Rubens Barrichello
lent á öryggisgirðingu á fullri ferð.
Ég þekki það af eigin reynslu að
ungir ökumenn fara með allt öðru
hugarfari en þeir reyndari. Taka
áhættu sem menn hrista hausinn
yfír stðar. í dag er mikið af ungum
ökumönnum, sem skapar meiri
hættu en ella.“ Sólarhring eftir að
þessi orð voru rituð var Senna all-
ur.
Ekki hugsað mikið um öryggi
Þeirri spurningu, hvort hann
féll sjálfur í þá gryfju að aka hrað-
ar en burðir bílsins leyfðu, verður
sjálfsagt seint svarað. En miðað
við það hvernig bíll hans fór beina
leið útaf gæti skýringarinnar verið
að leita í tæknilegri bilun. Það vill
heimsmeistarinn fyrrverandi,
á brautina aftur. Verði óhapp á
þessum stað eru hundruð manna
t hættu. Á Imola slasaðist viðgerð-
armaður Ferrari alvarlega þegar
hjól fór undan keppnisbíl Michels
Alboretos á leið úr viðgerðarhléi.
Nú er rætt um að takmarka að-
gang viðgerðarmanna á þetta
svæði og skipuleggja fýrirfram
hvaða möguleika liðin hafa til
bensínáfyllingar og dekkjaskipta í
hverri keppni.
Allir áttu von á óhappi
Bretinn Max Mosley er forseti
Alþjóða bílaíþróttasambandsins og
hefur sínar skoðanir á atburðum
síðustu helgar. „Það er ekki hægt
að halda kappaksturskeppni þann-
ig að enginn hætta sé á ferðinni,
ekki þannig að keppnin verði
spennandi fyrir góða ökumenn og
áhorfendur. Við munum skoða
gaumgæfilega það sem hefur gerst
og það bjargar vonandi mannslíf-
um í framttðinni. En slys munu
verða, það fylgir þessari iðju og
hefur alltaf gert. Það áttu allir von
á óhappi, fyrr eða síðar. En tvö
dauðaslys sömu helgi er eitthvað
sem engan grunaði að gæti gerst.
Þess vegna er áfallið og athyglin
enn meiri en ella. Við verðum hins
SAN MARINO KAPPAKSTURINN
Austurríkismaðurinn Niki Lauda,
meina: „Ég er sannfærður um að
bæði útafakstur Ratzenbergers og
Senna urðu vegna tæknilegra örð-
ugleika. Hvorugur þeirra hafði
stjóm á bílunum þegar slysin
verða. Vandamálið er það að braut-
in í Imola er gífurlega hröð, mis-
hæðótt og gífurlegt álag er á bílun-
um. Ökumenn síðustu ára hafa lít-
ið hugsað um eigið öryggi eða
brautanna, sem ekið er á, sökum
þess að ökumannsklefarnir eru
orðnir mjög öruggir. En það er
gífurlega hættulegt að aka Form-
ula 1 bíl og það þarf sífellt að vinna
að öryggismálum," sagði Lauda.
Heimsmeistari síðasta árs,
Frakkinn Alain Prost, var ómyrkur
í máli eftir Imola-kappaksturinn.
„Ég reyndi í mörg ár að fá öku-
menn til að ræða öryggismál, en
jafnvel toppökumenn léðu því ekki
eyra. En það verður að gera eitt-
hvað, slysin um helgina sýna það
svart á hvítu. Stjómendur mótanna
og keppnisliðin hafa hugsað of
mikið um peninga, ekki íþróttina
eða ökumenn sem slíka. Mitt líf
hefur breyst mikið eftir að ég
ákvað að hætta kappakstri. Ég
þarf ekki sífellt að hugsa um ljá
dauðans, sem ökumenn hafa sífellt
yfir höfði sér. Þegar kappaksturs-
bíll, sama hve öruggur hann á að
vera, ekur útaf á 300 km hraða,
þá er það aðeins lukka sem varnar
því að stórslys verði.“
Umræðan í dag snýst um það
hvort keppnisbílarnir séu orðnir of
hraðskreiðir og kraftmiklir. Einnig
þykir reglubreyting, sem leyfir
bensínáfyllingu á viðgerðarsvæði
varasöm. í hverri keppni eru 26
keppnisbílar og í kringum hvern
bíl á viðgerðarsvæði hafa verið
allt að sextán manns. Bílarnir
koma á mikilli ferð inn til viðgerða
og æða á yfir 100 km hraða gegn-
um afmarkað viðgerðarsvæðið út
vegar að gæta stillingar og skoða
málið með rökum, ekki láta tilfinn-
ingar hlaupa með okkur í gönur.
Við vissum sömu staðreyndir fyrir
hálfum mánuði og í dag. Formula
1 er hættulegur leikur. Atvikið sem
henti Senna verður skoðað og
sömuleiðis slys Ratzenbergers. Það
verður skoðað af festu og yfirveg-
un,“ sagði Mosley.
Keppendur í Formula 1 leggja
lífið að veði í hverri keppni. Alvar-
leg slys hafa orðið síðustu ár, en
ekki dauðaslys. Menn hrökkva því
enn frekar upp við vondan draum
þegar maður eins og Senna fellur
í valinn. Orð Senna um þátttöku
manna í kappakstri segja meira
en mörg orð hvaða hugarfar þarf
til að ná árangri í þessari íþrótt:
„Til að ná árangri þarf maður að
vera hræddur, það er mjög mikil-
vægt. Það heldur í manni lífinu
að keyra ekki frá sér allt vit. Menn
annaðhvort hafa hæfileikana til að
stýra svona bílum eða ekki. Síðan
er það undir pesónuleikanum kom-
ið hvaða leiðir eru farnar að settu
marki, hvernig maður lætur
drauminn rætast,“ sagði Senna
einhverju sinni. Hann náði tak-
marki sínu þrisvar, varð heims:
meistari 1988, 1990 og 1991. í
dag er hann allur, en hans verður
minnst sem eins fljótasta öku-
manns, sem komið hefur fram á
sjónarsviðið. Næstu vikur verða
viðræður milli ökumanna, keppn-
isliða og Alþjóða bílaíþróttasam-
bandsins um hvernig bregðast
skuli við óhappinnu. Eitt er þó víst,
ekki verður haldin Formula 1
keppni á Imola-brautinni nema
gagngerar endurbætur verði gerð-
ar á henni. Bæði þarfnast sjálf
akstursbrautin lagfæringar og
varnarveggir eru taldir of nálægt
brautinni og of harðgerir. Það
sannaðist í óhöppum síðustu helg-
iöni Giblfiv lutofl .muiilld i
SUNNUDAGUR 8. MAÍ 1994 47 -
STÚDENTAFAGNAÐUR
Nemendasambands Menntaskólans í Reykjavík
verður haldinn föstudaginn 27. maí á Hótel íslandi og hefst kl. 19.00. Nýstúdentar og allir
afmælisárgangar eru hvattir til þess að fjölmenna. Miðasala verður í anddyri Hótels íslands,
miðvikudaginn 25. og fimmtudaginn 26. maí, kl. 16-19 báða dagana.
JE
Samkvæmisklæðnaður
Stjórnin.
Með
einkaþotu
)urocard til
fyrir aðeins
25.820 kr.
eða minna á mann!
3.-5. júní
Nu cr rctti tíminn til að fá scr
Eurocard!
4000 kr. afsláttarávísun
fylgir hverju /Vl'I AS og gullkorti
Nú átt þú kost á að
slást í för með glað-
beittum handhöfum
Eurocard til Hamborgar í þotu á vegum Samvinnuferða-Landsýnar.
Og þú hefur sannarlega ástæðu til að hlakka tíl: Pramundan eru þrír
heilir dagar í hinni gróðursælu og fögru Hamborg þar sem færi
gefst á að njóta alls þess sem hin fjöruga borg hefur upp á að bjóða.
Og verðið er frábært: Aðeins 25.820 kr. á mann.
Ef þú ert handhafi ATLAS- eða gullkorts frá
Eurocard faerðu þar að auki 4000 kr. afslátt því
afsláttarávísunin gildir einnig fyrir þessa ferð.*
Hamborg býður upp á ótal möguleika: Sigling á Alstervatninu
eða gönguferð um þröng strætí gamla borgarhlutans þar sem
ilminn leggur frá notalegum veitingahúsum og ævafornar bjórkrár
eru á hveiju strái. Það er gott að versla í Hamborg. I nýju,
fjölbreyttu verslanahverfi sem tengist aðaljárnbrautarstöðinni,
skammt frá hótelinu, er hægt að versla fram á kvöld bæði
laugardag og sunnudag.
♦ Flogið verður frá Keflavík kl. 6.45 á föstudagsmorgni og til baka
frá Hamborg kl. 20.00 á sunnudagskvöldi. Gist verður á fyrsta
flokks hóteli, Holiday Inn Crowne Plaza, morgunverður innifalinn
og íslenskur fararstjóri verður með hópnum.
Innifolið í verði: Flug, gisdng, morgunverður, foi-arstjórn, akstur til og frá
flugvelli erlendis, skattar og gjöld.
Hafðu strax samband við Samvinnuferðir-Landsýn
og tryggðu þér sæti í þessa einstöku ferð.
Samvinniiferliir
Landsýn
SIMI: 91- 69 10 10