Morgunblaðið - 31.05.1994, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 31.05.1994, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ Hjúkrunar- fræðingar semja KJARASAMNINGUR milli Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og viðsemjenda þeirra var undirritaður í gærmorgun með fyrirvara um samþykki hjúkrunarfræðinga og stjórna viðkomandi stofnana. Samningaviðræður hafa staðið yfir frá því Félag íslenskra hjúkrun- arfræðinga var stofnað í janúar sl. Samningafundur hófst á sunnudag- inn sem stóð fram á mánudags- morgun og lauk með undirskrift samningsins. Á næstunni verður samningurinn kynntur í svæðisdeildum félagsins um land allt og borinn undir at- kvæði hjúkrunarfræðinga. Ásta Möller, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, segist vera þokkalega ánægð með samn- inginn miðað við aðstæður. Hún segir að nýr kjarasamningur hafi verið gerður sem taki m.a. mið af kjarasamningum Félags háskóia- menntaðra hjúkrunarfræðinga og Hjúkrunarfélags íslands. Einnig segir hún samninginn fela í sér staðfestingu á þeim ráðningarkjör- um sem tíðkast hafa um nokkurt skejð. Ásta segist ekki meta samning- Indriði H. Þorláksson frá samninganefnd ríkisins og Ásta Möller, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, undirrita nýjan kjarasamning. inn til prósentuhækkunar en að ákveðnar leiðréttingar hafi náðst, t.d. um greiðslur í vísindasjóð fyrir alla hjúkrunarfræðinga, eingreiðsl- una og orlofsuppbót eins og fyrir aðra opinbera starfsmenn. Hildur Einarsdóttir, formaður kjaranefndar, segir að góður andi, gagnkvæm hreinskilni og heiðar- leiki hafí einkennt þessar kjaravið- ræður frá upphafi. Hún segir að mikil vinna hafi farið í að samræma samninga gömlu félaganna og að gæta hafi þurft að mörgum smáat- riðum. Það hafi verið tímafrek ná- kvæmnisvinna. Hún segist vona að hjúkrunar- fræðingar muni sætta sig við samn- inginn eftir að hann hefur verið kynntur fyrir þeim. Greiddi atkvæði á tveimur stöðum UNGUR maður, sem býr á Blönduósi en sækir atvinnu til Sauðárkróks og hafði skráð sig til heimilis þar af þeim sökum, kaus á báðum stöðum við sveitarstjórnarkosningarnar á laugardag, utan kjörfundar á Sauðár- króki, en á kjörfundi á Blönduósi. Að sögn Stefáns Ólafssonar, sýslufulltrúa á Blönduósi, gæti maðurinn með þessu hafa gerst brotlegur gegn ákvæðum kosninga- laga með refsiverðum hætti en opin- ber rannsókn á málinu var ekki hafin i gær og ákvörðun um hana hafði ekki verið tekin. Stefán Ólafsson sagði ljóst að Snjóflóð féll á bíl SNJÓFLÓÐ féll á fólksbíl á Kinn á Breiðadalsheiði um klukkan 19 í gærkvöldi og færði bílinn til út að vegarbrún þar sem þverhnípt er niður. Ökumanninn, sem var einn í bílnum, sakaði ekki. Vegfarendur sem komu að eftir atvikið drógu bílinn úr flóðinu. Hann var nokkuð skemmdur. Að sögn lögreglu á Isafirði hafa nokkur smáflóð, spýjur, fallið á þessum slóðum undanfama daga eins og jafnan á þessum árstíma en þetta var hið fyrsta sem olli tjóni. Menn frá vegagerðinni komu upp á Breiðadalsheiði skömmu eftir að flóðið féll og opnuðu veginn að nýju. það að maðurinn kaus á báðum stöðum hafi ekki haft áhrif á úrslit kosninganna, hvorki á Blönduósi né á Sauðárkróki, og því væm ekki líkur á að kosningin yrði lýst ógild vegna þessa. Hann sagði að ekki hefði verið tekin ákvörðun um að hefja opinbera rannsókn á atvikinu en engin kæra hefði borist vegna þess. Atvik málsins virtust hins vegar liggja ljós fyrir. Lét undan þrýstingi Stefán sagði að svo virtist sem pilturinn hefði látið undan þrýstingi um að kjósa á Sauðárkróki þrátt fyrir að hann hefði þá fyrir milli- göngu F-listans á Blönduósi, verið kærður inn á kjörskrá á Blönduósi. Þar hafði beiðni hans um að vera tekinn á kjörskrá fengið venjulega meðferð fyrir bæjarstjórn innan til- skilins kæmfrests. Stefán sagði aðspurður að svo virtist sem málið hefði verið á vit- orði manna í bænum einhvern tím- ann á kjördag að pilturinn hefði kosið á Sauðárkróki en ekki hefði tekist að fá manninn dæmdan út af kjörskrá á Blönduósi, vegna þess hve naumur tímijvar til stefnu þeg- ar slíkt kom til tals en ekkert bendi til að það hafi legið fyrir þegar maðurinn mætti á kjörstað á Blönduósi. Utanríkisráðherra boðið til Moskvu UTANRÍKISRÁÐHERRA Rúss- lands, Andrei Kozyrev, hefur boðið utanríkisráðherra, Jóni Baldvin Hannibalssyni, til viðræðna í Moskvu á hausti komanda. Utanríkisráðherra barst 21. maí sl. bréf frá rússneska utanríkisráð- herranum, þar sem hann óskar ís- lendingum velfarnaðar og farsældar í tilefni af fimmtíu ára afmæli ís- lenska lýðveldisins. í bréfinu lætur Kozyrev jafnframt í ijós ósk um frek- ari eflingu samskipta og samstarfs Rússlands og Íslands, m.a. með áframhaldandi fundum ráðherra og háttsettra embættismanna. í því sambandi lýsir hann áhuga á að þiggja boð utanríkisráðherra frá í febrúar sl. um að koma í heimsókn til íslands við fyrsta tækifæri, en kveðst fyrst um sinn vilja bjóða utan- ríkisráðherra til Moskvu. FRÉTTIR Fiskifræðingar leggja til 130.000 tonna þorskafla Tekjur gætu rýrnað um 6 milljarða króna FISKIFRÆÐINGAR Hafrann- sóknastofnunar leggja til að þorsk- aflinn fari ekki yfir 130 þús. tonn á næsta fiskveiðiári. Aldrei fyrr hefur verið lagt til að svo lítið verði veitt af þorski á íslandsmiðum. Á yfirstandandi þorskveiðiári er áætlað að þorskaflinn fari í 190 þúsund tonn. Þarf að fara aftur til fyrri heimsstyijaldar til að fínna tíma þar sem jafn lítið veiddist. Verði farið að tillögunum þýðir það um sex milljarða tekjumissi við þorskveiðar, vinnslu og útflutning miðað við 60 þús. tonna niðurskurð. í tillögunum er gert ráð fyrir auk- inni veiði á síld og loðnu og bætir það nokkuð stöðuna. Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs- ráðherra segir að ákvörðun um heild- arafla liggi ekki fyrir en að hann stefni að því að henni verði hraðað. Segist hann ekkert geta sagt um líkur á því að einungis verði heimilað að veiða 130.000 tonn á næsta ári. Það væri vissulega erfitt að skera niður en það væri mikil áhætta fólg- in í að horfa framhjá staðreyndum. Kristján Ragnarsson, fram- kvæmdastjóri Landssambans ís- lenskra útvegsmanna, segir ástandið vera mjög alvarlegt og að taka verði tillit til þess. Þetta kæmi þeim ekki á óvart sem fylgst hafa með þar sem árgangar í þorski undanfarin átta ár hefðu verið langt undir meðaltali áranna á undan. Loðnuaflinn á síðasta ári var SIGURJÓN Sighvatsson kvikmynda- gerðarmaður í Los Angeles er kaup- andi hlutabréfanna í Stöð 2, sem seld voru fyrir um 140 milljónir í lið- inni viku. Þar með er Siguijón orðinn stærsti hluthafinn með 18% hlutafjár í stað 9%. Siguijón segir í samtali við Morg- unblaðið að fyrir honum vaki fyrst og fremst að auka ítök í fyrirtækinu og hafa meira um stefnu þess að segja en ekki að taka það yfir og breyta þar öllu. Sagðist hann ekki vera viss um að aukinn styrkur sinn táknaði miklar breytingar innan fyr- 1.180.000 tonn en leyfilegur afli var 1.250.000 tonn. í tillögum fiskifræð- inga er gert ráð fyrir að hann verði 1.400.000 til 1.450.000 tonn. ■ TilIögurnar/4 irtækisins, hins vegar væri hann vissulega kominn í lykilstöðu og ekki óeðlilegt að hann eða fulltrúi hans tæki sæti í stjórninni. Siguijón segist ekki líta á kaupin sem valdatafl og á ekkert frekar von á því að miklar breytingar verði í stjórn eða yfirstjórn fyrirtækisins þó að hann hafi treyst stöðu sína. Sagði hann fyrirsjáanlegt að hann þyrfti að eyða meiri tíma hér á landi en að hann væri ekki á heimleið fyrst um sinn. ■ Sterkari rödd/27 Sala hlutabréfa í Stöð 2 Signrjón Sighvatsson stærsti hluthafinn 50 ára gömul DC-3 á leið til Normandí í Frakklandi Morgunblaðið/Kristinn DC-3 flugvélin sem tók þátt í innrásinni í Normandí í Frakklandi fyrir 50 árum á flugi yfir Perlunni. Hún hefur nú verið máluð aftur einkennislitum breska flughersins. Á myndinni fyr- ir neðan eru Bob Harless, t.v., og Pat Epps, um borð í flugvélinni. 26 aldnir fall- hlífarhermenn stökkva út HINN 5. júní munu 26 fyrrverandi fallhlífarher- menn á aldrinum 68 til 84 ára stökkva í fallhlíf úr DC-3 flugvél yfir Saint Mere Egilse í Frakk- landi, en vélin hafði viðdvöl í Reykjavík á leið sinni yfir hafið frá Bandaríkjunum til Normandí. Menn þessir tóku þátt í innrás bandamanna inn í Frakkland 6. júni 1944, en innrásarinnar verður minnst í Frakklandi um næstu helgi. Vélin er lík- lega eina DC-3 flugvélin, eða C-47 Dakota, eins og hún var kölluð, sem flaug í innrásinni fyrir 50 árum og er enn í notkun. Mun hún taka þátt í hátíðarhöldum í Frakklandi. Eigandi vélarinnar er Bandaríkjamaðurinn Don Brooks og er hann ásamt sjö öðrum í leiðangrin- um. Hann keypti vélina árið 1984 en segir að þá hafi hann enga hugmynd haft um uppruna henn- ar. Vélin var smíðuð árið 1944 í Bandaríkjunum og send til breska flughersins. Brooks keypti vélina til að nota hana sem birgðaflutningavél leiðangurs sem bjargaði sex Lockheed Lightning P-38 orrustuflugvélum, sem notaðar voru í heimsstyrjöldinni síðari, af Græn- landsjökli á árunum 1989-92. Brooks segist ekki hafa miklar áhyggjur af þessum fyrrverandi fallhlífarhermönnum sem hyggjast stökkva út úr vélinni. Þeir hafi þurft framvísa læknisvottorði áður en þeir fengu að fara með, auk þess sem þeir hafi þurft að stökkva þrisvar sinnum úr flugvél á síðustu þremur mán- uðum. Mennirnir væru þrátt fyrir aldurinn í góðu líkamlegu ásigkomulagi. Ferðin frá Bandaríkjunum hefur ekki gengið áfallalaust fyrir sig. Vélin lagði af stað frá Atl- anta í Georgíuríki á þriðjudag í síðustu viku, flaug til Quebec í Kanada og þaðan til Goose Bay. Þeg- ar lagt var af stað að nýju missti vélin annan hreyfilinn og þurftu þeir að snúa við. Leiðangurs- mönnum tókst að útvega nýjan hreyfil á skömm- um tíma og unnið var dag og nótt við að skipta um. Héðan kom vélin svo frá Grænlandi. Mjög kalt er um borð í vélinni því afturhluti hennar er ekki upphitaður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.