Morgunblaðið - 31.05.1994, Blaðsíða 49
ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 1994 49
1 •
MORGUNBLAÐIÐ _____________________________________
UNGLINGAR
PRESTSHJÓNIN ásamt íslendingunum í High Caratynekirkju.
enda, forstöðukonur Æskulýðsfé-
lagsins og hluti safnaðarráðsins
auk unglinganna. Við dvöldum hjá
þeim fram eftir kvöldi og var mik-
ið spurt, spjallað og hlegið, enda
skemmtu allir sér hið besta.
Við getum með sanni sagt, að
annarri eins gestrisni höfum við
aldrei kynnst. Borðin bókstaflega
svignuðu undan kræsingunum og
gestgjafarnir geisluðu hreint og
beint af hlýju.
Messa í High Carntynekirkju
A sunnudagsmorgni kl. 11 fór-
um við í messu í High Carntyne-
kirkju, sem er í austurhluta
borgarinnar. Sr. Hegarty messaði
í þéttsetinni kirkjunni, sem tekur
rúmlega 400 manns í sæti. Hann
sagði okkur seinna að þetta væri
ósköp venjuleg kirkjusókn sem er
stórmerkilegt með tilliti til þess
að söfnuðurinn telur rúmlega eitt
þúsund manns.
Messan sjálf var nokkuð-frá-
brugðin hinni íslensku og okkur
þótti eftirtektarvert hversu vel
söfnuðurinn tók undir sálmasöng-
inn. Léttleiki ríkti í athöfninni og
þess má geta að sr. Hegarty gerði
góðlátlegt grín að konu sinni í
prédikuninni fyrir hennar „miklu
íslenskukunnáttu", sem hún gæti
að vísu aðeins notað eftir klukkan
sex á kvöldin, því hún kunni að-
eins að segja „gott kvöld".
í messunni sungu börnin í
sunnudagaskólanum létta kóra.
Og þar sem mæðradaginn bar ein-
mitt upp á þennan sunnudag,
dreifðu þau fallegum páskaliljum
til allra kvenna í kirkjunni. Þetta
fannst okkur vera falleg venja.
Skoðunarferð um borgina
Eftir messuna héldum við í
skoðunarferð um borgina í fylgd
með sr. Terry Moran. Við skoðuð-
um Dómkirkjuna, sem stofnuð var
af heilögum Mungo, verndardýrl-
ingi Glasgowborgar. Kirkjan er
að hluta til frá 12. öld og er stór-
kostlegt dæmi um gotneskan
byggingarstíl. Þá skoðuðum við
St. Mungo Museum og Religious
Life and Art, en þar eru m.a. til
sýnis fallegir listmunir sem tengj-
ast ýmsum trúarbrögðum. Einnig
skoðuðum við Provands Lordship,
sem er elsta húsið í borginni, byggt
árið 1471 og ekki megum við
gleyma Museum of Transport sem
sýnir samgöngutæki fyrr og síðar.
Um kvöldið fórum við ásamt
prestshjónunum og fyrrnefndum
sr. Morgan út að borða á The Fire
Station Restaurant, sem er gömul
slökkvistöð.
Hyómsveitin Saint Etienne
Við höfðum ákveðið að mánu-
dagurinn yrði algjörlega fijáls og
þá gerðum við okkur margt til
skemmtunar. Flestir fóru að versla
og fékk setningin „Shop till you
drop“ nýja og mjög bókstaflega
merkingu. Tveir úr hópnum fóru
um kvöldið á tónleika með hljóm-
sveitinni Saint Etienne, en það
vildi svo skemmtilega til að þeir
rákust á hljómsveitarmeðlimi á
kaffihúsi í hádeginu og eyddu með
þeim deginum. Óhætt er að full-
yrða að þessir tveir heiðursmenn
séu ekki en komnir niður úr sjö-
unda himninum.
Þriðjudaginn 15. mars héldum
við heim til íslands eftir einstak-
lega vel heppnaða og minnisstæða
ferð.
Að lokum
Við Glasgowfarar viljum koma
á framfæri alveg sérstöku þakk-
læti til sr. Braga Friðrikssonar,
prófasts og sóknarprests í Garða-
prestakalli. Þá viljum við þakka
sóknarnefnd Garðasóknar, héraðs-
nefnd Kjalarnessprófastsdæmis og
bæjaryfirvöldum í Garðabæ fyrir
veittan stuðning. Einnig viljum við
þakka fyrir hönd hópsins farar-
stjórunum okkar, þeim sr. Bjama
Þór Bjamasyni, héraðspresti, og
Oddi Bragasyni, fyrir einstakan
dugnað þeirra og fómfýsi til það
gera þessa ferð að veruleika.
II
Helena, 13 ára:
„Nei.“
Anna, 15 ára:
„Svolítið."
Vil fá Sólina aftur
Nafn: Maggý Helga Jóhannsdóttir
Heima: Reykjavík
Aldur: 14 ára
Skóli: Hvassaleitisskóli
Helstu áhugamál: Teikna og ríða
út.
Uppáhalds hljómsveit: Þær eru
margar. Ef ég á að nefna eina sér-
staka þá er það hljómsveitin Blur.
Uppáhalds kvikmynd:
Þessi er erfið. Ace
Ventura er hryllilega
fyndin, hún er í bíó núna. Ég
man ekki eftir fleirum í augna
blikinu.
Uppáhalds sjónvarpsefni:
Bara góðar bíómyndir. Ég
hef eiginlega gaman af
flestum bíómyndum,
nema væmnum mynd-
um og svart-hvítum. ,
Svo eru Ná- A
grannar
fínir.
Besta bókin: Color Purple.
Hver myndir þú vilja vera
ef þú værir ekki þú?
María Caré.
W Hvemig er að
r vera unglingur í
dag? Það fer eftir
ýmsu. Það er ágætt
stundum en hræðilegt
stundum. Það er fínt að
vera með vinum sínum en
skólinn er hræðilegur.
Hverju myndir þú vilja
breyta í þjóðfélaginu? Engu.
Það er fínt eins og það er. Og ,
þó, ég vil fá útvarpsstöðina Sólina'*
aftur.
Hvernig eiga fullorðnir að koma
fram við unglinga? Bara venju-
lega, eða næstum því eins og jafn-
ingja. Þeir umgangast okkur oft
eins og við séum böm og ekki hæf
til að gera neitt.
Hvað er það skemmtilegasta sem
þú gerir? Fara út með vinum mín-
um, fara í bíó og skemmta mér.
Hvað er það leiðinlegasta sem
þú gerir? Taka til og læra undir
próf.
Hvað ætlar þú að verða þegar
þú verður stór? Dýralæknir eða
fatahönnuður.
Yiltu segja eitthvað að lokum?
Ég bið að heilsa öllum sem þekkja
mig.
Heimilistækjadeild Fálkans •
Sængur
og koddar
Umboðsmenn um land allt
Góöa
nótt og
soföu rótt
Þekking Reynsla Þjónusta
FÁLKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8 • S: 91-814670
ÞARABAKKA - MJÓDD • S: 91-670100
' Heimiiistækjadeiid ráikans • Heiiniiislækiaueiid Fáikans •