Morgunblaðið - 31.05.1994, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 1994 39
i
I
I
I
I
Fyrirlestur
í Norræna
húsinu um
bækur á auð-
lesnu máli
HALDINN verður fyrirlestur í
Norræna húsinu 2. júní nk. kl.
17 um efni á auðlesnu máli.
Fyrirlesari er Inger Fredriks-
son, ritstjóri LL-forlagsins í
Stokkhólmi en forlagið hefur
sérhæft sig í útgáfu á bókum
á auðlesnu máli fyrir unglinga
og fullorðna og gefið út 300
slík verk. í erindinu mun hún
gera gerin fyrir útgáfunni og
ijalla m.a. um gerð slíkra bóka
og hvernig mynd og texti vinna
saman.
Hér á landi hefur ekki verið
gefið út efni af þessu tagi fyrir
fullorðið fólk sem hefur tak-
markaðan málþroska og mál-
skilning. Landssamtökin
Þroskahjálp og Námsgagna-
stofnun hafa unnið lýsingu á
auðlesnum texta hvað varðar
efni, mál, framsetningu og útlit
sem fáanleg eru í íjórblöðungi.
Aðstandendur fyrirlesturs-
ins, Landssamtökin Þroska-
hjálp og Námsgagnastofnun
hvetja rithöfunda, teiknara, út-
litshönnuði og aðra er vinna
að bókaútgáfu til að fjölmenna
á fyrirlesturinn sem á einnig
erindi til allra þeirra sem vinna
með þroskaheftum svo og bóka-
safnfræðinga.
■ SKÓLA GARÐAR borgar-
innar starfa á sjö stöðum í sum-
ar: við Holtaveg, í Laugar-
dal, í Árbæ vestan Árbæjar-
safns, við Ásenda, við Jaðars-
el og Stekkjarbakka í Breið-
holti, í Skildinganesi við
Skerjafjörð og í Foldahverfi
(Kotmýri) fyrir austan Loga-
fold. Innritun í þessa garða
verður dagana 1., 2. og 3. júní
og hefst kl. 8 í hverjum garði.
Skólagarðarnir eru ætlaðir
bömum fæddum árið 1982 til
1986. Eldri borgarar innrita sig
6. júní á sömu stöðum. Innrit-
unargjald er 600 kr.
■ LÖGREGLAN í Reykja-
vík óskar upplýsinga um
árekstur, sem varð á Vestur-
landsvegi við Hestháls þriðju-
daginn 3. mai sl. Áreksturinn
varð um kl. 23.20. Toyota-
fólksbíl var ekið vestur Vestur-
landsveg, þegar rauðum bíl
var ekið af Hesthálsi í veg fyr-
ir hann. Ökumaður Toyotunnar
varð að beygja til að forðast
árekstur, en þá skall bíll hans
á Golf, sem kom á móti, austur
Vesturlandsveg. Slysarann-
sóknardeild lögreglunnar í
Reykjavík óskar eftir að hafa
tal af ökumanni rauða bílsins,
sem og vitnum að árekstrinum.
■ SIGLINGAKL ÚBBUR-
INN Kópanes heldur kynning-
ardag í Vesturvörð, Kópa-
vogi, fimmtudaginn 2. júní.
Opið verður frá kl. 9-22 og
ókeypis allan daginn. Leiðbein-
endur verða á staðnum.
■ STUÐNINGSHÓPUR
/BK Brottfluttir Vest-
mannaeyingar hafa stofnað
með sér félagsskap í _þeim til-
gangi að styðja við lið IBV jafnt
innan vallar sem utan. Hópur-
inn mun hittast tveimur klst.
fyrir útileiki Eyjaliðsins á
Tveimur vinum, Laugavegi
45. Miðvikudaginn 1. júní leika
Eyjamenn við Breiðablik í
Kópavogi og verður hist á
Tveimur vinum kl. 18. Snorri
Rútsson, þjálfari ÍBV, kemur
í heimsókn og ræðir málin.
FRETTIR
Klattar og kleinur
í Snælandsskóla
NEMENDUR skólans sem sýndu þjóðbúninga undir stjórn og
kynningu Ástu Björnsdóttur, kennara.
FJÖLSKYLDUHATIÐ var haldin
fyrir skömmu í Snælandsskóla í
Kópavogi þar sem haldið var upp
á 50 ára afmæli íslenska lýðveld-
isins. Nemendur höfðu æft fjöl-
breytta dagskrá í tilefni dagsins
með söng, þjóðdönsum, leikþætti
og sýningu á þjóðbúningum.
Starfsfólk og velunnarar skól-
ans höfðu safnað saman ýmsum
merkum gripum frá árunum í
kringum 1944 og útbúið með
þeim sýningarbás sem vakti
óskipta athygli sýningargesta
sem fylltu hvern krók og kima í
skólanum báða dagana. For-
Leiðin til lýðveldisins
í Aðalstræti 6
SÝNINGIN Leiðin til lýðveldisins, sem haldin er á vegum Þjóðminjasafns
og Þjóðskjalasafns íslands í Aðalstræti 6 við Ingólfstorg í Reykjavík,
verður opnuð almenningi á morgun, miðvikudag.
í tilefni 50 ára afmælis lýðveldis-
ins ákváðu Þjóðminjasafn íslands
og Þjóðskjalasafn Islands að efna
til sameiginlegrar sýningar sem
hlaut heitið Leiðin til lýðveldis. Sýn-
ingin fjallar um tímabilið 1830 til
1944. Má þar sjá skjól, muni og
myndir, bæði alþekkt og lítt eða
ekki kunn gögn. Sum vekja upp lif-
andi minningar, t.d. þeirra, sem
muna lýðveldishátíðina 1944, en
fyrst og fremst er ætlunin að kynna
almenningi þjóðlíf og aðdraganda
að stofnun lýðveldis á íslandi 17.
júní 1944.
Sýningarefnið er sett fram í af-
mörkuðum efnisþáttum sem komið
er fyrir í aðalsýningarsölunum en
að auki verður kaffistofa á annarri
hæð með safngripum. Á fyrstu hæð
verður miðasala og sölubúð og sýn-
ingarbás með munum og minjum á
19. öld. Gefin verður út sýningar-
skrá á íslensku þar sem hveijum
efnisþætti sýningarinnar eru gerð
skil.
Sýningin Leiðin til lýðveldis er
haldin í Aðalstræti 6 við Ingólfs-
torg. Hún verður opin frá 1. júní
alla daga nema mánudaga kl.
11-17. I september verður sýning-
artíma breytt og hann þá auglýstur
sérstaklega en sýningin stendur til
1. desember 1994.
Ur dagbók lögreglunnar
77 ölvunartilvik
um helgina
27-30. maí
í DAGBÓKINNI eru af 482 bók-
unum m.a. 77 ölvunartilvik, 25
árekstrar, 1 umferðarslys, 12
innbrot, 12 þjófnaðir, 1 rán, 7
skemmdarverk, 9 rúðubrot og 4
líkamsmeiðsl. Þá eru 11 ökumenn
grunaðir um að hafa ekið undir
áhrifum áfengis. Tveir þeirra
höfðu lent í umferðaróhöppum
áður en til þeirra náðist. Ástæða
þótti til að kæra 54 ökumenn
fyrir að aka of hratt, 4 reyndust
réttindalausir í umferðinni, 6
virtu ekki rautt ljós við gatnamót
og rétt þótti að kæra 16 aðra
ökumenn fyrir önnur umferðar-
lagabrot. Auk þeirra var 51 öku-
manni gefin skrifleg áminning
fyrir ýmis umferðarlagabrot.
Föstudagsnóttin var annasöm
en að mestu áfallalaus þrátt fyr-
ir mikinn mannfjölda í miðborg-
inni. Flytja þurfti 16 unglinga í
athvarf íþrótta- og tómstundar-
áðs og þangað voru þeir sóttir
af foreldrum sínum. I fórum
tveggja stúlkna, sem handteknar
voru, fundust hnífur og hnúajárn.
Undir morgun var eitthvað um
það að flytja þurfti fólk á slysa-
deild eftir barsmíðar, en þá var
margur ölvaður orðinn slæptur
og ergilegur.
Á föstudagskvöld stálu tveir
piltar peningum úr afgreiðslu-
kassa söluturns við Snorrabraut.
Á laugardagsmorgun voru
tveir menn handteknir eftir að
hafa brotist inn í matvöruverslun
í Austurstræti. Þeir voru færðir
á lögreglustöðina.
Á sunnudagsmorgun þurfti að
flytja ökumann á slysadeild eftir
árekstur tveggja bifreiða á
gatnamótum Borgartúns og
Kringlumýrarbrautar. Um minni-
háttar meiðsli virtist vera um að
ræða.
Með loftriffil, hníf og
sveðju í bílnum
Á sunnudagsmorgun var til-
kynnt um að bifreið hefði verið
ekið á mann við hús í Álftamýri
og síðan á brott af vettvangi eft-
ir að hinn slasaði hafði verið
dreginn inn í bílinn. Eftir að lög-
reglan fann bifreiðina og hafði
veitt henni eftirför náðist að
handtaka þrjá pilta. Ökumaður-
inn er grunaður um að hafa ver-
ið undir áhrifum áfengis. „Hinn
slasaði“ var einn af þeim, en sá
hafði fallið út úr bifreiðinni við
Álftamýri. I bifreiðinni fannst
loftriffill, hnífur og sveðja. Pilt-
arnir voru allir færðir á lögreglu-
stöðina til skýrslutöku.
VinningstölUr
laugardaginn
VINNINGAR . FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5al5 0 1.858.784
2. 4al5Í| p2 161.614
3. 4al5 96 5.808
4. 3al5 2.762 471
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
4.040.482 kr.
upplýsingarsImsvari91 -681511 lukkulIna991002
Skjótvirkur stíflueyóir
Eyðir stíflum
fljótt
• Tuskur
• Feiti
• Lífræn efni
• Hár
• Dömubindi
• Sótthreinsar
einnig lagnir
One Shot fer
fljótt að stíflunni
af því að það er
tvisvar sinnum
þyngra en vatn.
Útsölustaðir:
Bensínstöðvar
og helstu
byggingavöruverslanir.
Dreifing: Hringás hf.,
sími 677878-fax 677022
Tilbúinn
stíflu
eyðii
eldrafélagið bauð öllum upp á
þjóðlega hressingu, kaffi, ný-
mjólk og kleinur eða klatta
steikta á staðnum. Einnig var
sýndur afrakstur þemavinnu
nemenda um þróun ýmissa mála-
flokka frá 1944 til 1994.
Dags.31.5.1994. NR. 158
5414 8300 0310 5102
5414 8300 3163 0113
5414 8300 3164 7117
5414 8301 0494 0100
5422 4129 7979 7650
5221 0010 9115 1423
5413 0312 3386 5018
Ofangreind kort eru vákort,
sem taka ber úr umferð.
VERÐLAUN kr. 5000.-
fyrir þann, sem nær korti
og sendir sundurklippt til
Eurocards.
KREDITKORT HF.,
Ármúla 28,
108 Reykjavík,
sími 685499
VISA
31.5. 1994
Nr
385
VAKORT
Eftirlýst kort nr.:
4507 4500 0021 1919
4507 4500 0022 0316
4543 3700 0009 7116
4543 3700 0008 7588
4543 3718 0006 3233
4546 3912 3256 0090
4842 0308 1995 3028
ÖLL ERLEND KORT
SEM BYRJA Á:
4550 50** 4560 60**
4552 57** 4941 32**
Atgreiftslufólk vinsamlegaS takið ofangreind
korf úr umferð og sendið VISA islandi
sundurklippt.
VERÐUUN kr. 5000,-
tyrir að klófesta kort og visa á vágest.
ajwttiwwja
Álfabakka 16 - 109 Reykjavík
Sími 91-671700
21. leikvika , 28-29. maf 1994
Nr. Leiktir: Röðin:
1. Degcrfors - Norrköping - X -
2. Hammarby - Göteborg - X -
3. Landskrona - Hacken - X -
4. Frölunda - Helsingborg 1 -
5. Öster - AIK - X
6. Brommapoj. - Vasterás 1 -
7. Kiruna FF - Djurgárden - - 2
8. Sirius - Brage 1 - -
9. Spársvágcn - Sundsvail - - 2
10. Vasalund - UMEÁ 1 - -
11. Visby-Gefle 1 - -
12. Forward - Karlskrona - X -
13. Kalmar FF - GAIS -X-
Hcildarvinningsupphœðin:
83 milljón krónur
13 réttlr:
12 réttir:
11 réttir:
10 rcttir:
2.448.710 1
42.430 1
3.240 1
770 J
j kr.
jkr.
kr.