Morgunblaðið - 31.05.1994, Blaðsíða 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Mannfagnaður
N iflungahr ingurinn frumsýndur
NIFLUNGAHRINGURINN var frum-
sýndur sl. föstudag í Þjóðleikhúsinu.
Verkið, sem er langt og strangt, þótti
vel setunnar virði og góður rómur var
gerður að sýningunni. Einn af aðstand-
endum sýningarinnar, Þorsteinn Gylfa-
son prófessor, sagðist vera þakklátur
fyrir samstarfið og mjög ánægður með
árangurinn.
Morgunblaðið/Halldór
ÞORSTEINN Gylfason, Lia Frey-Rabine, Max Wittges, David Shaw,Vig-
dís Finnbogadóttir, Wolfgang Wagner og Gudrun Wagner.
KRISTINN E. Hrafnsson, Sjón, Björn Ingi Hilmars-
son og Kristján Steingrímur.
Paul Hogan bregður á leik
► ÁSTRALSKI leikarinn Paul Hogan hlaut mikla at-
hygli um allan heim fyrir hlutverk sitt í kvikmyndunum
uin Krókódíla Dundee. Hann þykir afar líflegur í fram-
komu og sumir segja að í raunveruleikanum sé hann
ejkkert frábrugðinn kvikmyndahetjunni sjálfri. Á með-
fylgjandi mynd sést Paul Hogan beita svipu til að slá
sígarettu úr munni Thomas Gottschalk, umsjónarmanns
þýsku sjónvarpsþáttanna „Wetten Dass“. Gottschalk er
klæddur upp í þýska knattspyrnulandsliðsbúninginn,
hvað sem það á að þýða.
FOLK
mg *llf^ ^ 1
t m 'm é* iB J m, ■ m. 1
i M S * liyÉ ijm % Æ
1 w &mm. f-y m
háskolabió
SÍMI22140
Háskólabíó
Aðgöngumiði að Backbeat gildir sem 300 kr. afsláttur
af geislaplötunni með rokktónlistinni dúndrandi
úr myndinni í verslunum Skífunnar.
ALZIRE Dionne ásamt börnum sínum. Efri myndin er af fimm-
burunum á fjórða aldursári.
Kvikmynd um líf
fimmburanna væntanleg
FRÚ Alzire Dionne ásamt fimm-
burunum sem hún átti í Ontario
í Kanada, 28. maí árið 1934. Þrír
af fimmburunum eru eftirlifandi
og héldu upp á sextugsafmæli sitt
28. maí sl. Þegar þeir komu í
heiminn á sínum tíma vöktu þeir
heimsathygli og talið er að versl-
unin sein skapaðist í kringum þá
hafi velt um 35 milljörðum ísl.
króna. Stjórn Ontario tók fimm-
burana af foreldrum sínum
skömmu eftir fæðingu og gaf út
þá yfirlýsingu að foreldrarnir
hefðu ekki ráð á að sjá fyrir þeim.
Ráðist hefur verið í gerð kvik-
myndar um líf fimmburanna.
105 millj-
arðar ísl.
króna í
málsókn
VEITINGAHÚSAKEÐJAN Pla-
net Holly wood teygir anga sína
um allan heim. Föstudaginn 27.
mars var opnaður veitingastaður
i Phoenix í Arizona. Þegar um
siíkar opnanir er að ræða mæta
gjarnan frægir leikarar, enda eru
Arnold Schwarzenegger, Don
Johnson, Bruce Willis og Sylvest-
er Stallone meðal eigenda veit-
ingahúsakeðjunnar. Sunnudaginn
29. mars var svo opnaður veit-
ingastaður í Hong Kong. Það er
fyrsti veitingastaðurinn af átta
sem opnaðir verða í Asíu. Planet
Hollywood veitingastaðina prýða
Sylvester Stallone á opnun
Planet Hollywood í Hong
Kong.
alls kyns myndir og hljóðfæri úr
sögu dægurtónlistarinnar.
Margir kannast ugglaust við
þessa hugmynd. Veggi veitinga-
húsakeðjunnar Hard Rock fylla
einmitt alls kyns munir úr sögu
dægurtónlistarinnar. Hard Rock
hefur farið í mál við „Planet
Hollywood" fyrir að stela hug-
myndinni og mun leggja hvorki
meira né minna en um 105 millj-
arða ísl. króna í málsóknina. Eins
og við er að búast þegar slíkir
fjármunir eru í húfi, eru hlaupin
illindi í deilurnar. Peter Morton
eigandi Hard Rock segir að þær
stjörnur sem standi að „Planet
Holly wood“ eigi ekkert í veitinga-
húsakeðjunni. Aðeins sé um aug-
lýsingabragð að ræða. Leikararn-
ir fái borgað fyrir að titla sig eig-
endur. Sylvester Stallone svarar
þessum ásökunum þannig: „Við
eigum allir næga peninga svo við
þurfum ekki á ölmusu að halda
fyrir hamborgara og kók. Við
göngum ekki í gegnum alla þessa
vinnu og ferðalög aðeins fyrir
ókeypis máltíð. Það er augljóst
að við eigum hagsmuna að gæta.“
Þess má geta að meðal eigenda
Hard Rock eru einnig frægir leik-
arar. Meðal þeirra er leikarinn
Tom Cruise.
Don Johnson og Whoopi Gold-
berg á opnun Planet Holly-
wood í Phoenix.