Morgunblaðið - 31.05.1994, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 1994 7
FRÉTTIR
Hvammsá í Svartárdal flæddi að bænum í Hvammi
Ótrúlegt hvað þessi
litla spræna breyttist
ÍBÚÐARHÚSIÐ að Hvammi í
Svartárdal var um tíma í hættu
vegna mikilla vatnavaxta í
Hvammsá á sunnudag. Skemmdum
á húsinu tókst að afstýra með því
að beina ánni frá því, en girðingar
eyðilögðust og tíundi hluti jarðar-
innar er undir sandi, aur og gijóti.
„Það er ótrúlegt hvað þessi iitla
spræna breyttist,“ sagði Sigríður
Þorleifsdóttir í Hvammi, en engan
þar sakaði.
Sigríður sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gær að um kl. 19 á sunnu-
dag hefði verið farið að vaxa tölu-
vert í Hvammsá. „Um kiukkan 20
var áin farin að renna heim að
húsinu,“ sagði hún. „Vi_ð fengum
nágranna okkar, Óskar Ólafsson á
Steiná, til að koma hingað á gröfu.
Hann reyndi að beina farvegi árinn-
ar frá húsinu og láta hana grafa
sig niður sunnan við það. Þó það
hafi gengið erfiðlega og okkur þótt
við vanmáttug, þá er ég sannfærð
um að hann bjargaði húsinu.“
Sex eru í heimiii í Hvammi, en
Sigríður sagði að hún hefði verið
við annan mann í húsinu, en aðrir
gist á Leifsstöðum. „Það fór vatn
inn í þvottahúsið, en niðurfallið þar
hafði undan. Áin hætti að renna
að húsinu síðar um kvöldið, en braut
sig aftur upp að því um klukkan
23. Óskar reyndi enn að beina henni
frá og í réttan farveg og um hálf
tvö um nóttina hætti aftur að flæða
að húsinu. Þá kom stórvirkari vél,
sem byggði upp garð svo áin kæm-
ist ekki hér upp að.“
Fleiri hundruð tonn af grjóti
Áin skildi eftir breitt gat í vegin-
um við Hvamm. „Áin bar með sér
fleiri hundruð tonn af grjóti,“ sagði
Sigríður. „Hún rann milli íbúðar-
hússins og fjárhúsanna og þar er
allt undir sandi, aur og gijóti, lík-
lega tveir hektarar af þeim tuttugu
sem jörðin telur. Það verður mikið
verk að ryðja af túnunum og ég sé
ekki að það verði heyjað þarna í
sumar. Þá eyðilagði hún allar girð-
ingar sem fyrir henni urðu.“
Sigríður sagði að móðir hennar
hefði búið í Hvammi í 41 ár og aldrei
orðið vitni að svo miklum vexti í
ánni. „Hvammsá hefur flætt yfir
bakka sina áður, en ekkert í líkingu
A hlaðinu við Hvamm
Morgunblaðið/RAX
SIGRÍÐUR Þorleifsdóttir með dóttur sína, Svandísi Þóru Krist-
insdóttur á hlaðinu við Hvamm. Til vinstri eru hin börn henn-
ar, Baldur Sigurðsson og Elísabet Sigurðardóttir, en til hægri
Inga Skagfjörð Helgadóttir, bróðurdóttir hennar, og Þóra Sig-
urðardóttir, móðir Sigríðar. Einnig má sjá hundinn Smala.
Morgunblaðið/RAX
Unnið að lagfæringum
JAKOB Þór Guðmundsson, símvirki, í óða önn við að koma síma-
sambandi aftur á við Hvamm í Svartárdal í gær. Hjá honum
stendur Kristinn Sverrisson, bóndi á bænum. A neðri myndinni
eru vegagerðarmenn að störfum við að setja upp bráðabirgða-
brú við Stóru-Giljá, skammt innan Blönduóss.
við þetta. Það rigndi auðvitað mjög
mikið á sunnudag og uppi í fjalli
eru miklar flár, þar sem enn er
snjór. Það er ótrúlegt hvað þessi
litla spræna breyttist og hávaðinn,
þegar hún beljaði áfram og ruddi
með sér grjóti, var með ólíkindum.
Bróðir minn kom hingað að húsinu
á sunnudag og aftur í gær og hann
ætlaði varla að þekkja sig aftur,
svo mjög hafði landslagið breyst
við þessi átök. Það trúir þessu eng-
inn sem ekki hefur orðið vitni að
þessu.“
Sigríður játti því að hún væri
nokkuð þreytt eftir þessa átaka-
miklu nótt. j,Þetta er hins vegar
allt í lagi. Eg hef fengið ágæta
æfingu í andvökunóttum, því sauð-
burði er rétt að ljúka.“
Þegar sjatnað hefur í Hvammsá
á að ýta upp úr henni og setja upp
varnargarð. „Það er ekki hægt að
búa við að þetta gerist aftur,“ sagði
Sigríður Þorleifsdóttir í Hvammi í
Svartárdal.
Aur og* grjót yfir jarðir
VEGAGERÐIN í Skagafirði hafði í nógu að snúast á sunnudag og í gær
vegna mikilla vatnavaxta. Hlýtt var í veðri, töluverður snjór í fjöllum og
rigndi eins og hellt væri úr fötu. Ræsi í vegum höfðu ekki undan, svo
víða grófst undan þeim.
Mikill vatnsflaumur bar með sér
aur og gijót niður yfir jarðirnar
Nautabú og Kjarvalsstaði í Hjalta-
dal í gærmorgun. Gísli Felixson,
rekstrarstjóri Vegagerðarinnar í
Skagafirði, sagði að Nautabúsá
hefði stíflast þegar skriða féll þvert
yfir hana í dalnum ofan við bæinn.
Þegar stíflan brast æddi flóðbylgja
úr dalkjaftinum, rann yfir tún
Nautabúsins og Kjai'valsstaða, tók
í sundur veginn að Nautabúi, yfir
Hólaveg og tók í sundur Hjaltadals-
veg við vegamótin við Hólaveg.
Gijót og aur er yfir túnum og Hóla-
vegur var ófær, en var opnaður
aftur í gærmorgun.
Aurskriður á vegi
Þá fór vegur í Norðurárdal í
sundur, milli bæjarins Fremra-Kots
og eyðibýlisins Ytra-Kots. Fjórar
aurskriður féllu úr giljum í fjallinu
og vann Vegagerðin frá því síðdeg-
is og fram á nótt við að ryðja veg-
inn og veita vatninu í ræsi. Um kl.
3 um nóttina varð hins vegar ekki
við neitt ráðið, vatnið gróf undan
ræsi, sem féll niður, svo stórt skarð
myndaðist í veginn. Gísli Felixson
sagði að ekki hefðu verið meiri
vatnavextir á þessu svæði frá 1954,
þegar stórar skriður féllu á sama
stað. Gísli sagði að á Vatnsskarði
hefði þurft að bjarga tveimur brúm.
„Mesta hættan á skemmdum var
við brú á Valadalsá, en þar tókst
að keyra gijót að brúarendunum,
svo áin náði ekki að grafa frá
brúnni. Hins vegar grófst frá brú
á jörð Stóra-Vatnsskarðs, en hún
liggur á vegi milli bæjar og úti-
húsa. Þá fór úr veginum við Vatns-
hlíð, þar sem ræsi hafði ekki undan
vatnsflaumnum. Menn muna ekki
eftir öðru eins flóði í Valadalsá.“
Efribyggðarvegur í Lýtings-
staðahreppi fór í sundur milli bæj-.
anna Mælifellsár og Syðra-Vatns
og í Hólminum fór vegur að bænum
Húsey einnig í sundur.
Síðdegis í gær fór að grafa frá
brúarendum Skálárbrúar í Sléttu-
hlíð og héldu vegagerðarmenn á
staðinn til að hlaða gijóti að brúnni.
á manninn í tvíbýli í 4 daga og 3 nætur á Hospitality Inn
Hafðu samband við söluskrifstofur okkar,
uinboðsim nn um allt land, fcrða.skrii'stolur
í síma 690300 (svarað mánud. - föstud.,
Náðu þér í ferðabækliaga Flugleiða, frá kl. 8 -19 og á laugard. frá kl. 8 -16.)
Ut í heim og Ut í sól. __ _ ___
rLUGLtlDli
* Flugvallarskattar innifáldir. 14 daga bókunarfyrirvari. „ , . r + r.t
** Flugvallarskattar ckki innifaldir. 21 dags tókunarfyrirvari. rans. ur ts ens tir fer af agt
a mannmn i viku m.v. 4
(2 fuiloröna og 2 börn, 2 - 11 ára) í bil í A-ílokki.
35.140 kr.* á manninn í viku m.v. 2 í bíl í A-flokki.