Morgunblaðið - 31.05.1994, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 1994 17
Opel krefst
handtöku
Lopez
Frankfurt. Reuter.
SYSTURFYRIRTÆKI Gener-
al Motors í Þýskalandi, Adam
Opel AG, krafðist þess í gær
að framleiðslustjóri Volkswag-
en, Jose Ignacio Lopez de Arri-
ortua, yrði handtekinn.
Talsmaður Opel sagði að
fyrirtækið myndi í næstu viku
leggja fram gögn sem sönnuðu
afdráttarlaust að Lopez hefði
stolið leynilegum upplýsingum
frá General Motors. Hann
sagði hættu á því að Lopez flýði
land og því yrði að handtaka
hann.
Þýskir saksóknarar
kanna málið
Þýskir saksóknarar eru að
rannsaka ásakanir um að
Lopez og nokkrir samstarfs-
menn hans hafi tekið með sér
leynileg gögn þegar þeir hættu
störfum fyrir General Motors
og gengu til liðs við Volkswag-
en fyrir fjórtán mánuðum.
Lopez hefur vísað því á bug
að hann hafi stolið iðnaðar-
leyndarmálum frá General
Motors.
Volkswagen hefur einnig
vísað þessum ásökunum á bug
og sagði í gær að Opel væri
að reyna að hafa áhrif á al-
menningsálitið og áháð rann-
sókn í fyrra hefði leitt í ljós
að Volkswagen hefði ekki not-
að nein leynileg gögn frá Gen-
eral Motors.
Samkvæmt frétt sem birtist
í nýjasta hefti þýska frétta-
tímaritsins Focus hafa þó sak-
sóknararnir fundið leyniieg
gögn frá Opel í tölvudiskum
sem lagt var hald á úr skrif-
stofum og heimilum nokkurra
stjórnenda Volkswagen í fyrra.
Tímaritið segir að saksóknur-
unum hafi tekist að endur-
heimta leynileg gögn sem eytt
var af diskunum. Þar hefðu
verið kostnaðarútreikningar,
áætlanir um nýjar bifreiðar og
samningar við birgja Opel.
Nýir
tölvukubb-
ar í þróun
Bonn. Reuter.
Þrjú af helztu rafeindafyrir-
tækjum heims, Siemens í
Þýzkalandi, Toshiba í Japan
og IBM í Bandaríkjunum, hafa
ákveðið að vinna saman að
nýrri kynslóð öflugra
tölvukubba.
Fyrirtækin munu skipta á
milli sín kostnaði af þróun 64
megabita DRAM-kubba (Dyn-
amic Random Access Memory),
sem verða framleiddir í verk-
smiðjum IBM í New York og
Vermont. Frumgerð kubbanna,
sem munu auka minni tölvu í
verulegum mæli, verða kynntir
1996 og settir á markað 1997.
Að sögn Siemens munu
fyrirtækin byggja á núverandi
samstarfi á þessu sviði. Sér-
fræðingar segja samkomulagið
nauðsynlega varnarráðstöfun,
sem muni gera fyrirtækjunum
kleift að ná fótfestu á mark-
aði, þar sem samkeppni sé
hörð. Helztu keppinautarnir
verða Intel Corp og Motorola
Inc í Bandaríkjunum og NEC
í Japan.
Starfsmenn Siemens hafa
áætlað að þróun kubbanna
muni kosta um 800 milljónir
dollara og framleiðsla þeirra
allt að 1,8 milljörðum dollara.
VIÐSKIPTI
Olía
*
Obreyttir skattar
Stavanger. Reuter.
NORSKA stjórnin hefur ákveðið að
hætta við fýrirhugaða skattahækkun
á olíufyrirtæki og vonast til, að það
muni auka áhuga þeirra á olíu-
vinnslu á landgrunninu.
Olíufélögin hafa lengi kvartað yfír
háum sköttum í Noregi og jafnvel
hótað að hætta vinnslu þar af þeim
sökum. Gro Harlem Brundtland, for-
sætisráðherra Noregs, gerði þessi
mál að umtalsefni á ráðstefnu helstu
olíufélaganna í Stavanger um helg-
ina og sagði, að umkvartanir olíufé-
laganna yrðu teknar alvarlega. Tals-
menn olíufélaganna fógnuðu yfír-
lýsngu norsku stjórnarinnar en vör-
uðu hins vegar við hugmyndum um
nýjar og óbeinar reglur um gjaldeyri-
sviðskipti.
C/fttrf afítmsó/a/'/vHtwmn
Renault 19 RN, 4 dyra ó aðeins 1.095.900,*
lferð áður 1.175.900,-
Þú sparar
fer. 80.000,-
Reynslu-
akstur
er vei t»ess
vlréit
Staðalbúnaður innifalinn:
• 1400 cc vél - bein innspýting
• 80 hö.din
• Eyðsla 8,1/100 km, innanbæjar
• Rafdrifnar rúðuvindur framan
• Vökvastýri
• Olíuhæðarmælir í mælaborði
• 460 lítra farangursrými
• Ryðvörn, skráning
• Fjarstýrðar samlæsingar
• Fjarstýrðir útispeglar
• Öryggisbitar í hurðum
• Vönduð innrétting
• Snúningshraðamælir
• Málmlitur
• veghæð 17 cm
• Blaupunkt útvarp/segulband
Tilboð 2
Krókhálsi 1, Reykjavík
V
RENAULT
Fer á kostum