Morgunblaðið - 31.05.1994, Side 9

Morgunblaðið - 31.05.1994, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 1994 9 mwuNm ELFA-LVI Einfaldir eða tvöfaldir olíufylltir rafmagnsofnar350 - 2000w. Hæð 30, 50 eða 59 cm. ELFA-OSO Hitakútar úr ryðfríu stáli. Stærðir 30- 300 lítra, útvegum aðrar stærðir frá 400-10.000 lítra. ELFA-VARMEBARONEN Hitatúba/ rafketill 12kw, 230v. 1 fasa. Útvegum aðrar stærðir allt að 1200kw. ELFA-VORTICE Rafmagnsþilofnar, 600 - 2000w. Elfa rafhitunarbúnaðurinn er þraut- reyndur við íslenskar aðstæður. Einar Farestveit & Co. hf. Borgartúni 28 - S 622901 og 622900 HAGSTÆTT VERÐ OG GREIÐSLUSKILMÁLAR. Íli/iíiililííiíiililil v-.H = B FRÉTTIR Fjölbrautaskólinn á Akranesi Biðskýli fyrir farþega leigubíla 30 stúdentar brautskráðir Morgunblaðið/Sverrir Nú fyrir helgi var lokið við að setja upp biðskýli fyrir farþega leigubíia lijá Mæðragarðinum við Lækjargötu. Borgarráð sam- þykkti uppsetningu skýlisins fyrr í vor og gert er ráð fyrir að kostnaðurinn verði um 1,2 milljónir króna. Hugmyndin er sú, að þarna geti fólk náð sér í leigubíla, til dæmis eftir lokun skemmtistaða um helgar. Skýlið er hannað með það fyrir augum, að fólki bíði þar í biðröð eftir leigubílunum þegar mikið er að gera. Jafnframt er gert ráð fyr- ir að bílarnir komi þangað til að sækja farþega í stað þess að taka þá upp í hér og þar í mið- borginni. Útbob ríkisvíxla til 3, 6 og 12 mánaba fer fram mibvikudaginn 1. júní. f,M mmm ÁRVÍK ÁRMÚL11 • REYKJAVlK • SÍMI 687222 • MYNDRITI 687295 Akranesi. Morgunblaðið. FJÖLBRAUTASKÓLA Vesturlands á Akranesi var slitið laugardaginn 21. maí. Þá voru brautskráðir 50 nemendur frá skólanum. Þar af luku þrjátíu stúdentsprófi, átta prófum á tæknisviði, þrír útskrifuðust sem sjúkraliðar, þrír luku verslunarprófi og sex nemendur luku burtfarar- prófi á uppeldisbraut. Átta nemendur hlutu viðurkenn- ingu fyrir námsárangur á ýmsum sviðum. Flest þeirra hlaut nýstúdent- inn Albert P. Einarsson sem lauk prófi á eðlisfræðibraut. Auk viður- kenninga fyrir ágætan árangur í ýmsum greinum hlaut Albert viður- kenningu fyrir bestan árangur stúd- enta að þessu sinni og verðlauna úr minningarsjóði Þorvalds Þorvalds- sonar fyrir frábæran árangur í eðlis- og stærðfræði. Nýstúdentarnir Kári Steinn Reynisson og Þórður Emil Ólafsson fengu viðurkenningar Rót- arýklúbbs Akraness fyrir góð störf að félagsmálum nemenda. Steinn Arnar Jónsson lauk stúdentsprófi á tæknibraut samhliða burtfararprófi í húsasmíði og alls 231 námseiningu sem er það mesta sem einn nemandi hefur lokið í skólanum. Steinn Arnar hlaut verðlaun frá Hárhúsi Kötlu fyrir árangur sinn. Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson 30 STÚDENTAR útskrifuðust frá Fjölbrautaskóla Akraness. í skólaslitaræðu Þóris Ólafssonar kom fram að 720 nemendur stund- uðu nám í dagskóla á skólaárinu og 55 í öldungadeild og meistaraskóla. Kennt var á Akranesi, Ólafsvík og í Stykkishólmi. Fimm skiptinemar stunduðu nám í skólanum frá Ástral- íu, Frakklandi, Costa Rica, Ítalíu og Noregi. Lagði skólameistari áherslu á mikilvægi þess að .Vestlendingar stæðu saman um skólann, með því móti yrðu möguleikar hans mestir til að veita íbúum svæðisins sem besta þjónustu. Niðurskurður á fjár- veitingum’ til kennslu hefur dregið úr fjölbreytni námsframboðsins jafnt og þétt á undanförnum árum og brýnt orðið að þeirri þróun verði snúið við. Kór skólans söng við athöfnina undir stjórn Gunnars Kristmanns- sonar og Erlingur Viðarsson og Davíð Þór Jónsson léku fyrir gesti á básúnu og píanó. Þá var flutt les- in dagskrá um lýðveldisstofnunina. Kveðjuávarp fyrir hönd útskriftar- nema flutti Kári Steinn Reynisson nýstúdent. m m Nýtt útboö á ríkisvíxlum fer fram á morgun. Um er að ræða 11. fl. 1994 A, B og C í eftirfarandi verðgildum: Kr. 1.000.000 Kr. 50.000.000 Kr. 10.000.000 Kr. 100.000.000 Ríkisvíxlarnir eru til 3, 6 og 12 nránaða með gjalddaga 2. september 1994, 2. desember 1994 og 2. júní 1995. Þessi flokkur verður skráður á Verðbréfaþingi íslands og er Seðlabanki íslands viðskiptavaki ríkisvíxlanna. Ríkisvíxlarnir verða seldir með tilboðsfyrirkomulagi. Lágmarkstilboð samkvæmt tiltekinni ávöxtunarkröfu er 5 millj. kr. og lágmarkstilboð í mebalverð samþykktra tilboða er 1 millj. kr. Löggiltum verðbréfafyrirtækjum, veröbréfamiðlurum, bönkum og sparisjóðum gefst einum kostur á að gera tilboð í ríkisvíxlana samkvæmt tiltekinni ávöxtunarkröfu. Aðrir sem óska eftir að gera tilboð í ríkisvíxla eru hvattir til að hafa samband við framangreinda aðila, sem munu annast tilboðsgerð fyrir þá og veita nánari upplýsingar. Jafnframt er þeim sjálfum heimilt að bjóða í vegið meðalverð samþykktra tilboða (meðalávöxtun vegin með fjárhæð). Öll tilboð í ríkisvíxlana þurfa að hafa borist Lánasýslu ríkisins fyrir kl. 14, miðvikudaginn 1. júní. Tilboðsgögn og allar nánari upplýsingar etu veittar hjá Lánasýslu ríkisins, Hverfisgötu 6, í síma 62 40 70. Athygli er vakin á því að 3. júní er gjalddagi á 5. fl. ríkisvíxla sem gefinn var út 4. mars 1994 og 23. fl. ríkisvíxla sem gefinn var út 3. desember 1993. LANASYSLA RIKISINS Hverfisgötu 6, 2. hæð, 150 Reykjavík, sími 91- 62 40 70. MOULINEX ELDHUSMEISTARINN ótrúlega fjölhæfur, hrærir, hnoðar, sker og rífur. MOULINEX fyrir matgæðinga. Fsest t naestu raftækjaverslun I. GUÐMUNDSSON & Co. hf. UMBOÐS OG HEILDVERSLUN SIMI 91-24020 FAX 91-623145 Frá Ítalíu: Goretex jakkar kr. 18.900,-. Bómullargallar kr. 6.920,-. Sportbúð Kópavogs Hamraborg 20A - sími 641000 ÓP

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.