Morgunblaðið - 31.05.1994, Page 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Smáfólk
reglulega góiiir dagur.
Ég gerði allt rétt.
að mínu áliti.
BREF
HL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 691100 • Símbréf 691329
Um starfprests
við lögregluna
íReykjavík
ÞAÐ var ánægjuleg og minnisstæð
stund í Bústaðakirkju 1. maí sl. þeg-
ar lögreglumessa var þar sungin.
Hún var prestunum þremur stjórn
Landssambands lögreglumanna
(LL), Lögreglukór' Reykjavíkur og
öilum sem komu nærri messunni til
mikils sóma.
Eftir messuna hef ég verið spurð-
ur um tilkomu starfs prests við
embætti lögreglustjórans í Reykja-
vík og daglegrar þjónustu hans við
lögreglumenn.
Hraust sál í hraustum líkama
Þegar ég hóf störf sem starfs-
mannastjóri haustið 1987 hafði því
verið komið á að embættið styrkti
lögreglumennina til að sækja líkams-
ræktarstöðvar og auðvelda þeim að
halda sér í góðu formi með því að
sækja slíkar stöðvar. Þegar fram liðu
stundir sá ég að ekki mátti einungis
líta á líkamlegt atgervi manna það
þyrfti einnig að hlúa að andlegri
velferð þeirra og veita þeim þjónustu
varðandi persónuleg vandamál og
álag sem starfinu fylgir. Það sem
kallað er álags- og áfallahjálp. Þegar
álagið er orðið mikið eða lögreglu-
menn lenda í erfiðum útköllum þar
sem reynir gífurlega á andlegt jafn-
vægi þeirra er nauðsynlegt að þeir
geti rætt sín mál - létt á sér.
Æskilegt væri að þeir færu ekki
af vaktinni eftir slík útköll nema að
hafa rætt málið til þess að koma í
veg fyrir að þeir tækju vandamálin
með heim.
Lögreglumannsstarfíð er álags-
starf og karlmennskuímyndin gengur
ekki endalaust, eins og fram kom í
máli formanns LL í sjónvarpsviðtali.
Ekki er hægt að ætlast til þess
að makar lögreglumanna eða aðrir
ættingjar taki að sér að vera sálu-
sorgarar. Vinnuveitandinn ber þar
ábyrgð og á að koma til skjalanna
og gæta þess eftir megni að menn
fari ekki með vinnuna heim. Eftir
talsverðar vangaveltur hvernig best
væri að standa að málinu var niður-
staða mín sú að heppilegast væri
að ráða prest til starfans.
Lögreglustjóri og skrifstofustjóri
sýndu báðir málinu mikinn áhuga
og vildu að því yrði fram haldið.
Formaður Lögreglufélags Reykja-
víkur taldi heldur ekki vanþörf á að
vinna að heill lögreglumanna á þenn-
an hátt. Sömuleiðis hefur verið með
formann LL, Jónas S. Magnússon.
Kjartan E. Sigurbjörnsson
ráðinn
Þegar rætt hafði verið við lækna
og fleiri um störf presta á sjúkrahús-
um beindist athygli mín að Kjartani
Gagnasafn
Morgunblaðsins
Allt efni sem birtist í Morgun-
blaðinu og Lesbók verður fram-
vegis varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskil-
ur sér rétt til að ráðstafa efninu
þaðan, hvort sem er með endur-
birtingu eða á annan hátt. Þeir
sem afhenda blaðinu efni til
birtingar teljast samþykkja
þetta, ef ekki fylgir fyrirvari
hér afl liitandi.
E. Sigurbjörnssyni, sjúkrahúspresti
á Landakoti. Kjartan er fæddur á
Siglufirði 23. október 1948. Hann
lauk námi frá guðfræðideild Háskóla
íslands 1974, árið eftir að hann út-
skrifaðist, var hann kennari við
Gagnfræðaskólann á Akranesi.
Kjartan var vígður til Vestmanna-
eyjaprestakalls 1975. Þar þjónaði
séra Kjartan sem sóknarprestur til
ársins 1991, að undanskildu er hann
var við framhaldsnám í Bandaríkjun-
um í sálgæslu 1988 til 1989.
Séra Kjartan var ráðinn sjúkra-
húsprestur á Landakotsspítala 1991.
Það var síðla árs 1992 sem ég
ræddi við séra Kjartan um það hvort
hann væri fáanlegur að veita lög-
reglunni í Reykjavík þjónustu sína.
Séra Kjartan var fús að taka málið
að sér og hóf hann störf í byijun
árs 1993.
Þar sem þjónustan var nýmæli
varð hann að leggja grunn að starf-
inu. Hann kemur á lögreglustöðina
tvisvar í viku og er þá í hinum ýmsu
deildum. Hann hefur gert sér far
um að kynnast starfínu, lögreglu-
mönnum og öðrum starfsmönnum.
Ræðir hann við starfsmenn í hópi
eða einslega. Menn geta leitað til
hans hvort sem er innan veggja lög-
reglustöðvarinnar eða utan. Lög-
reglumenn geta einnig notið þjón-
ustu hans að öðru leyti varðandi
starfíð eftir því sem þörf er á.
Starfið hefur gefið góða raun
Starf séra Kjartans hefur gefið
mjög góða raun og hafa önnur emb-
ætti sýnt starfí hans áhuga og
reyndar notið þjónustu hans.
Það er von mín og fullvissa eftir
þá reynslu sem komin er að þessi
þjónusta við starfsmenn og fjölskyld-
ur þeirra sé til góðs í hinu vanda-
sama og álagsmikla starfí lögreglu-
mannsins.
Að lokum ítreka ég þakklæti til
stjórnar LL og þeirra sem stóðu að
og komu fram í messunni og ber
fram þá ósk sem margir töluðu um
í Bústaðakirkju hinn 1. maí sl. að
slík messa yrði gerð að árlegum við-
burði.
GUÐMUNDUR M.
GUÐMUNDSSON,
starfsmannastjóri við embætti
lögreglustjóráiis í Reykjávík.