Morgunblaðið - 09.06.1994, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 1994
ERLEIMT
MORGUNBLAÐIÐ
'4
Tvísýnar kosningar um ESB-aðild Austurríkismanna
Urslitin gætu haft
áhrif víða í Evrópu
Vín. Reuter.
ENN er allt á huldu um hver verða úrslit í þjóðaratkvæðagreiðslu
um aðild að Evrópusambandinu (ESB), sem haldin verður í Austur-
ríki á sunnudag. Talið er að hafni Austurríkismenn aðild muni það
hafa mikil áhrif á væntanlegar atkvæðagreiðslur um sama efni sem
haldnar verða í Svíþjóð, Finnlandi og Noregi í haust. Einnig er
talið líklegt að slík niðurstaða geti gert Austur-Evrópuþjóðum erf-
itt um vik að ganga í sambandið árið 2000. ■
Fjármálaskýrendur telja ólík-
legt að úrslitin muni hafa áhrif á
stöðu austurríska schillingsins, en
hins vegar geti svo farið að ef
aðild verður hafnað í Austurríki
geti það haft slæm áhrif á gengi
gjaldmiðla í Noregi, Finnlandi og
Svíþjóð.
Samkvæmt niðurstöðum skoð-
anakönnunar sem gerð var í Aust-
urríki í síðustu viku eru 48 pró-
sent landsmanna hlynnt aðild, en
46 prósent andvíg. Niðurstöðurnar
komu stjórn Franz Vranitzkys,
kansiara, í opna skjöldu. Sagði
Alois Mock, utanríkisráðherra, að
ef aðild yrði hafnað gæti það gert
Austurríki að annarsflokks ríki.
Aðrir fylgjast með
Finnar, Svíar og Norðmenn
munu fylgjast grannt með at-
kvæðagreiðslunni í Austurríki á
sunnudag. Fréttaskýrendur telja
líklegt að neikvæð niðurstaða yrði
vatn á myllu andstæðinga ESB
aðildar í löndunum þrem.
Olof Ruin, prófessor í stjórn-
málafræði við Stokkhólmsháskóla,
segir að slík niðurstaða í Austur-
ríki myndi að líkindum hafa nokk-
ur áhrif í Svíþjóð. „Það yrði and-
stæðingum hér væntanlega nokk-
ur hvatning, en áhrifin yrðu þó
ekki djúpstæð þar eð Austurríki
er langt í burtu.“
Áhrif í A-Evrópu
Niðurstaðan í Austurríki verður
þó enn áhrifameiri í Austur-Evr-
ópu, þar sem Austurríkismenn
hafa heitið að verða Póllandi,
Tékklandi, Ungveijalandi og Slóv-
eníu innan handar við að fá inn-
göngu í ESB. Talsmaður tékk-
nenska utanríkisráðuneytisins
sagði að atkvæðagreiðslan í Aust-
urríki væri að sjálfsögðu mikilvæg
fyrir Tékkland. „Þó er ekki þar
með sagt að niðurstaðan þar muni
ráða því hvernig Tékkar greiða
atkvæði, en hún verður engu að
síður tekin með í reikninginn."
Jemenar
flýja
stríðið
LAKDAR al-Ibrahimi, sérlegur
sendifulltrúi Sameinuðu þjóð-
anna (SÞ) kom í gær til Sanaa
til þess að reyna að fá stríð-
andi fylkingar til að senya um
vopnahlé. Nokkuð virtist hafa
dregið úr átökunum um hafn-
arborgina Aden í suðurhlutan-
um eftir harða árás árás norð-
anmanna á þriðjudag. Enn var
þó barist skammt frá úthverf-
um borgarinnar og flýðu skelf-
ingu lostnir íbúar nágranna-
bæja Aden til borgarinnar und-
an sprengjuregninu, meðal
þeirra fjölskyldan á myndinni.
Ali Abdullah Saleh, forseti
norðurhlutans, lýsti sig í gær
reiðubúinn til samvinnu um
vopnahlé og fullyrti að norðan-
menn hefðu ekki rofið það.
Hins vegar útilokaði hann að
ganga til viðræðna við and-
stæðing sinn í suðri, Ali Salem
al-Baidh, til að binda endi á
borgarastyrjöldina, sem staðið
hefur í rúman mánuð. Sagði
hann að sunnanmenn yrðu
Reuter
norðanmenn á olíuhreinsunar-
stöðvar, vörpuðu sprengjum
nærri 80 oliutönkum en ekki
hlaust mikið tjón af. Þá hafa
norðanmenn unnið Ijón á
vatnsveitu Adenborgar og
hafa borgarbúar gripið til þess
ráðs að grafa brunna inni í
borginni.
annaðhvort að yfirgefa land
sitt eða gefast upp.
Að minnsta kosti 18 létust í
Dar Saad þorpinu og 23 særð-
ust í árás norðanmanna á að-
fararnótt miðvikudags. Sögðu
talsmenn sunnanmanna að
sprengjur hefðu fallið á fjöl-
mörg íbúðarhús. I gær réðust
Bandaríkin og Nicaragua
Ortega deilir við
þingmann
Managua. Reuter.
DANIEL Ortega, fyrr-
um forseti Nicaragua,
og bandaríski þingmað-
urinn Robert Torricelli
deildu hart á flugvellin-
um í Managua í fyrra-
dag, en þar höfðu þeir
báðir boðað til blaða-
mannafunda.
Bandaríkjastjórn hef-
ur hótað því að fella
niður efnahagsaðstoð til
Nicaragua á næsta ári
ef stjórnvöld þar greiða
ekki þeim 650 banda-
rísku þegnum bætur,
sem misstu eigur sínar
er sandinistar tóku völd- Daniel Ortega
in í landinu árið 1979.
Ortega, sem nú er leiðtogi
Sandinistaflokksins og er í stjórnar-
andstöðu, sakaði Bandaríkjamenn
um að „hóta því að beita land okkar
ofbeldi" og að aðgerðir þeirra brytu
í bága við stofnsáttm;
Sameinuðu þjóðam
Torricelli, sem er den
krati, sagði afstöðu (
tega „bijóstumkennt
lega“.
Hann teldi það el
síst vera óviðeigandi
menn sem ættu heii
í glæsilegum einbýl
húsum, sem hefðu ve
tekin með valdi af h
um raunverulegu e
endum, væru að tjá i
um þessi mál. Orte
býr í húsi sem var í ei
ríks bankamanns,
flúði land.
Þeir Ortega 0g Ton
elli flugu að rifrildinu loknu með sö:
vél til Miami í Bandaríkjunum en 1
ætlar Ortega að eiga fundi n
bandarískum áhrifamönnum, rr
Jimmy Carter, fyrrum forseta.
Reuter.
Heimsend-
ingaþjónusta
í Seoul
KÓRESKUR sendill skýst með
hundruð kílóa af heimilistækj-
um til viðskiptavina í miðborg
Seoul. Það fylgir sögunni að
starfanum fylgi oft margra
kílómetra ferðalag með hleðsíu
sem þessa.
wmt
|í«»í
»14
i«*i
« t S T
rt i* ....
1 4
Iti** «!♦ pil **«
mum lltiilítt **»»«»» i«« tln 115
tminigrnwniiiWiiýiiijpllUtlllllHtllH1 ^sill
: »
:
ðk.
Fátækum
fjölgar
um 70.000
dag hvern
London. Reuter.
Á HVERJUM degi fjölgar
þeim sem lifa við algera ör-
birgð um 70.000, að sögn
breskrar hjálparstofnunar,
BCA. Áætl-
ar stofnunin
að árið 2000
muni um
700 milljónir
manna ekki
hafa aðgang
að drykkjar-
hæfu vatni
og að 100
milljónir
barna geti
ekki sótt
skóla.
Talsmenn
stofnunar-
innar sögðu
að yrði ekki
gripið til
ráðstafana til að koma í veg
fyrir að milljónir manna bætist
í sístækkandi hóp fátækra
jarðarbúa, verði fólk sem lifir
í örbirgð um hálfur annar
milljarður árið 2000. Tölurnar
byggir stofnunin á opinberum
upplýsingum og skýrslum
starfsfólks í tuttugu af fátæk-
ustu löndum heims í Afríku,
Asíu og Suður-Ameríku.
Afbrotaunglingar látnir
mæta fórnarlömbunum
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
UNGMENNI sem hafa gerst sek
um ofbeldi eða skemmdarverk
verða nú látin mæta fómarlömb-
um sínum augliti til auglitis í
nokkrum dönskum lögsagnar-
umdæmum. Þetta hefur þegar
verið reynt nokkrum sinnum í
tilraunaskyni og þykir gefast
vel, bæði fyrir ungmennin og
fórnarlömbin.
Hugmyndin með slíkum fundi
er annars vegar að fá ofbeldis-
mennina til að horfast í augu við
Dönsk tilraun sem von-
ast er til að hafa fyrír-
byggjandi áhrif
brotið og þá, sem hafa orðið að
þola það. Vonast er til að þar
með renni það upp fyrir afbrota-
unglingunum hvað þeir hafa gert
og að þær tilfinningar geti kom-
ið í veg fyrir að ofbeldismennirn-
ir haldi áfram á sömu braut.
Sem dæmi af slíkum fundi
má nefna hjón, sem urðu fyrir
því að þrír strákar brutust inn,
stálu ýmsum tækjum og fimmtíu
vínflöskum, auk þess sem þeir
veltu bókahillum og hentu bók-
um og hlutum út um allt, brutu
gleraugu og brutu upp skápa.
Eftir fund sáu strákarnir eftir
öllu saman og buðust til að vinna
í garðinum fyrir þau. Einn þeirra
hefur haldið sambandi og heim-
sækir þau nú reglulega.