Morgunblaðið - 09.06.1994, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 1994 15
OECD
aðstoðar
Rússa
RÚSSAR skrifuðu í gær undir
samning við OECD-ríkin um
aðstoð við endurbætur á efnahag
Rússlands. Vonast er til að að-
stoðin muni auðvelda Rússum
að laga sig að og taka fullan
þátt í efnahagsmálum heimsins.
Um er að ræða, til dæmis, ráð-
gjöf um umbætur á réttarkerfi
og stofnunum Rússlands.
Tólfta líkið
fundið
LÖGREGLA á Bretlandi greindi
frá því í gær að fundist hefðu
tólftu líkamsleifamar í tengslum
við fjöldamorðin í „Hryllingshús-
inu“ svonefnda. Leifarnar fund-
ust á afskekktu akurlendi í
Gloucester á Vestur-Englandi,
þar sem leitað hefur verið í um
tvo mánuði. 52 ára gamall Glo-
ucesterbúi hefur verið kærður
fyrir 11 morð.
Fini vill reka
fasistana
GIANFRANCO Fini, leiðtogi ít-
alska Þjóðarbandalagsins, segist
reiðubúinn til þess að reka harð-
línusinnaða
nýfasista úr
flokknum ef
þeir andmæla
tilraunum
hans til þess
að gera
bandalagið að
hefðbundnum
íhaldsflokki.
Haft var eftir Fini í gær, að
Benito Mussolini, fyrmm ein-
ræðisherra, hefði „aldrei verið
glæpamaður." Hann hefði gert
þau mistök að ganga í bandalag
með Adolf Hitler, en „munurinn
er sá, að enginn grætur Hitler,
en margir Italir eru sannfærðir
um að Mussolini hafi látið margt
gott af sér leiða,“ sagði Fini við
þýska tímaritið Stern.
Geimflauga-
eldsneyti
áþotur
RÚSSAR hyggjast smíða þrjár
tilraunaþotur knúnar samskonar
eldsneyti og notað er til að knýja
geimflaugar. Viktor Tsjernó-
myrdin, forsætisráðherra, hefur
gefið út tilskipun um að byggðar
verði þrjár Túpolev-156 þotur
árið 1997. Þær verða knúnar
lághitaeldsneyti - fljótandi vetni
- sem er mun umhverfisvænna
en það eldsneyti sem nú er notað
í farþegarþotum, og aukinheldur
mun ódýrara. Gallinn er hins
vegar sá, að fjórfalt meira magn
þarf af lághitaeldsneytinu en
hefðbundnu eldsneyti
Alpajurtir
þokast ofar
VIÐKVÆMAR Alpajurtir virð-
ast sífellt færast ofar í fjallshlíð-
arnar, og telja vísindamenn að
breytingarnar verði af völdum
gróðurhúsaáhrifa. Allar líkur eru
á að þetta muni valda því að
jurtirnar deyi út.
Wonder til Ghana
New York. The Daily Telegraph.
SÖNGVARINN Stevie Wonder segist
hafa ákveðið að flytjast búferlum frá
Bandaríkjunum til Ghana, vegna þess
að þar sé að finna samheldnari ná-
granna en í Los Angeles, þar sem söngv-
arinn hefur verið búsettur til fjölda ára.
Segist hann þó munu halda í tónleika-
ferð um Bandaríkin á hausti komanda.
Að sögn vina söngvarans ákvað hann
að flytja til Ghana eftir nokkrar heim-
sóknir þangað á tónleikaferðum um
Afríku. Búist er við að hann muni setj-
ast að nálægt höfuðborginni, Accra, og
búa sér heimili ekki ólíkt því setri og
sundlaug sem hann mun yfirgefa í Los
Angeles. Þess er vænst að hann muni
þó dvelja talsvert þar í borg í framtíð-
inni, því hann á þar fagurbúið og tækni-
lega fullkomið upptökustúdíó, sem nefnt
er Undraland.
Wonder er 44 ára gamall. Hann fædd-
ist blindur og í fátækt í Michiganríki,
og ólst upp í austurhluta Detroitborgar.
Hann var einungis 13 ára þegar hann
sló fyrst í gegn, og hefur síðan gert
alls um 30 hljómplötur.
Stevie Wonder
Mandela ætlar
að sitja í 5 ár
NELSON Mandela, forseti Suður
Afríku, neitaði í gær fréttum þess
efnis að hann hygðist láta af emb-
ætti fljótlega.
Mandela sagðist myndu sitja út
kjörtímabilið, sem er fimm ár. „Að
minnsta kosti í fimm ár,“ sagði
Mandela þegar blaðamaður The
Independent spurði hve lengi hann
hygðist gegna embætti. Mandela,
sem er 75 ára, gaf í skyn að hann
myndi ef til vill hætta þegar hann
yrði áttræður.
SUNNYSR
sportlegur
og hlaðinn
Nissan Sunny SR
þriggja dyra er með
kraftmikilli 1600 vél og beinni
innspýtingu.fimm gíra vökva-og
veltistýri samlæsingu, rafdrifnum
rúðum, vindskeið og fjóra öfluga
Ijóskastara.
Auk þess fylgir bílnum frítt
þjónustueftirlit í eitt ár.
aukahlutum
kostar
aðeins kr.
1.278.000.-
Aðeins örfáir bílar j
seljast á þessu |
tilboðsverði. I
Ingvar
Helgason hf.
Sævarhöföa 2
síml 91-674000