Morgunblaðið - 09.06.1994, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ1994 21
LISTIR
ÞAR sem Djöflaeyjan rís eftir Einar Kárason í uppfærslu Leikfé-
lags Hornafjarðar verður sýnd á stóra sviði Þjóðleikhússins nk.
sunnudag.
Djöflaeyjan
í Þjóðleikhúsinu
Gestaleikur frá Leikfélagi Hornafjarðar
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ hefur tekið
upp á þeirri nýjung að bjóða
áhugaleikfélagi að sýna verk á
Stóra sviðinu. Er hér um nokk-
urs konar tilraun að ræða, en
ef vel tekst til gæti sýning
áhugaleikfélags orðið árviss
viðburður í Þjóðleikhúsinu. Að
þessu sinni varð fyrir valinu
uppfærsla Leikfélags Horna-
fjarðar á leikritinu Þar sem
Djöflaeyjan rís, eftir Einar
Kárason, í leikgerð Kjartans
Ragnarssonar og verður hún
sýnd nk. sunnudag kl. 20.
Hugmynd um uppfærslu
áhugaleikfélags í Þjóðleikhús-
inu kom fyrst fram á þingi
Bandalags íslenskra leikfélaga
í Vestmannaeyjum s.l. vor, þar
sem Stefán Baldursson þjóð-
leikhússtjóri var sérstakur
gestur. Þar skýrð: hann m.a.
frá því að leikhúsið hygðist, í
samráði við áhugaleikfélögin,
velja „áhugaleiksýningu árs-
ins“ sem boðið yrði að sýna í
Þjóðleikhúsinu. Með þessu vildi
leikhúsið vekja athygli á starfi
áhugaleikfélaga. Mörg leikfé-
lög óskuðu eftir því að nýta sér
þetta boð Þjóðleiklhússins og
sóttu alls 10 leikfélög um að
koma til greina. Sérstök dóm-
nefnd skoðaði allar sýningarn-
ar og varð Djöflaeyjan fyrir
valinu.
Leikritið Djöflaeyjan var
frumsýnt á Höfn í Hornafirði í
mars sl. en var fyrst flutt hjá
Leikfélagi Reykjavíkur árið
1987. Leikritið byggist á skáld-
sögum Einars Kárasonar „Þar
sem Djöflaeyjan rís“ og „Gul-
leyjunni" og lýsir lífi fólks í
braggahverfum Reykjavíkur á
sjötta og sjöunda áratugnum.
Uppfærsla Leikfélags Horna-
fjarðar á Djöflaeyjunni er
mannmörg sýning og leika
margir fleiri en eitt hlutverk.
Meðal helstu Ieikenda má nefna
Svövu Kristbjörgu Guðmunds-
dóttur, Ingvar Þórðarson, Elínu
Guðmundsdóttur og Hilmi
Steinþórsson. Jóhann Morávek
annaðist tónlistarstjórnun og
útsetningar, Guðjón Sigvalda-
son er höfundur leikmyndar,
jafnframt því sem hann hafði
með höndum lýsingu verksins,
ásamt Þorsteini Sigurbergssyni.
Leikstjóri er Guðjón Sigvalda-
son.
* tListahátíd í dag
SÍÐARI flutningur Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands og kóranna úr
Hamrahlíð á Níundu sinfóníu
Beethovens verður í Hallgríms-
kirkju í kvöld kl. 20. Á leiksviði
gefast jafnframt lokafæri á Lista-
hátíð á tveim sýningum: Makbeð
í leikhúsi Frú Emilíu við Seljaveg
2, en sýningin hefst kl. 20, og
Barpari sem Leikfélag Akureyrar
sýnir í Lindarbæ kl. 20.30.
Margar myndlistarsýningar eru
á hátíðinni: Helgi Þorgils Frið-
jónsson sýnir í Listasafni ASÍ,
Sigurður Guðmundsson í Gall-
eríi Sóloni íslandus, Ilja Kabakov
í sýningarsalnum Annarri hæð,
Kristján Guðmundsson í Galleríi
Sævars Karls, Rudy Audio í
Úmbru, Joel-Peter Witkin á
Mokka og Stepanek og Maslin í
Gallerí Gangi.
Á Kjarvalsstöðum stendur yfir
sýningin íslensk samtímalist en
Listasafn íslands speglar tímabilið
frá alþingishátíð til lýðveldis-
stofnunar. íslandsmerki og önnur
súlnaverk Sigurjóns Ólafssonar
eru í safni hans og verk Jóns
Engilberts í FÍM-salnum og Nor-
ræna húsinu. í sama húsi eru líka
verk sex ungra gullsmiða. Leifur
Kaldal gullsmiður sýnir svo í
Stöðlakoti og loks er ný finnsk
glerlist í Ráðhúsi Reykjavíkur.
í klúbbi listahátíðar á Sóloni
íslandus verður sou/-tónlist; JJ-
Soul og Ingvi Þór.
Eftir daga
17. JÚNÍ1994
Álfakóngur, álfadrottning
bamaguU, íþróttir,
Midas konungur og...
I ,, ■ >■ , . ÉSœ'i [ U ! ^ } V WaSí | .im —>!yi y ——
"H gM~1hi i
Karlakórinn Heimir á tónleikaferðalagi
KARLAKÓRINN Heimir i Skagafirði heldur tónleika
fimmtudaginn 9. júní kl. 21. í Félagsheimilinu Loga-
landi í Borgarfirði, föstudaginn 10. júní kl. 20.30, í
Langholtskirkju í Reykjavík laugardaginn 11. júní,
í Víðistaðakirkju í Hafnarfirði og hefjast þeir kl.
15, laugardagskvöldið 11. júní kl. 21 heldur kórinn
tónleika í Félagsheimilinu að Flúðum í Hrunamanna-
hreppi og verða það lokatónleikarnir í þessari ferð.
Að tónleikunum loknum Ieikur Hljómsveit Geir-
mundar fyrir dansi.
Söngstjóri Heimis er Stefán R. Gíslason. Undirleik-
arar: Tomas Higgerson og Jón St. Gíslason. Ein-
söngvarar eru Einar Halldórsson og Pétur Péturs-
son. Þrísöngur: Hjalti Jóhannsson, Gísli Pétursson
og Jón St. Gíslason, einnig Björn Sveinsson, Pétur
Pétursson og Sigfús Pétursson.
Maestro
Maestro
Maestro
Heppnir Maestro-korthafar:
A tónleika með
Kristjáni Jóhannssyni
í boði Maestro
Handhafar Maestro-debetkorta geta átt von á
óvæntum glaðningi í sumar og haust - miða á
tónleika með meistaranum sjálfum, Kristjáni
Jóhannssyni. Um er að ræða 30 miða á
Listahátíð þann 16. júní og 50 miða á sýningu
Þjóðleikhússins á Valdi örlaganna eftir
Giuseppe Verdi í september en þar verður
Kristján í aðalhlutverki.
Þann 12. júní verður dregið um hvaða korthafar
fá að gjöf miða á tónleika meistarans á
Listahátíð og 15. september verður síðan dregið
um hvaða korthafar hljóta miða á sýningu
Þjóðleikhússins á Valdi örlaganna.
Dregið verður úr nöfnum allra þeirra sem hafa
fengið sér Maestro debetkort frá upphafi
og fram að útdráttardögum og fær hver korthafi
tvo miða á viðkomandi sýningu.
Maestro
DEBETKORT
MEISTARIÁ SÍNU SVIÐI!
Sæktu um MAESTRO debetkort í bankanum þínum eða sparisjóði.
Maestro
Maestro
Maestro
HVÍTA HÚSID / SÍA