Morgunblaðið - 09.06.1994, Page 33
1 MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 1994 33
i
í
í
I
I
>
\
>
í
I
I
:
I
i
I
3
i
j
j
J
J
9
+
Afmæli úti í garði eða t.d. á Þingvöllum?
Sýningar, sala, fyrirtækjaveislur, móttökur.
Hvar sem er, hvenær sem er.
Tjaldaleigan, Bíldshöfða 8, sími 91-876777
AÐSENDAR GREINAR
Forréttindi
- ójöfnuður
Ingólfur A.
Þorkelsson
Á 50 ára afmæli
lýðveldisins blasir við
að þeim flölgar sem
eiga þess ekki kost
að taka fullan þátt í
lífí og starfi samfé-
lagsins. Því veldur
vaxandi atvinnuleysi
og minnkandi tekjur
þeirra sem lægst hafa
launin. Ekki er fyrir-
sjáanlegt að úr ræt-
ist. Því er brýnt að
allt sé gert sem unnt
er til að tekjuskipt-
ingin verði réttlát —
engir lendi utan-
garðs. Afnám óhófs-
launa og forréttinda
innan þess rekstrar,
sem ríkið ber ábyrgð á, er skref í
þá átt.
Sérréttindakerfið í bönkunum
Til þess liggja bæði fjárhagslegar
og siðferðilegar forsendur að þann
tekjumun, sem enn viðgengst innan
ríkisgeirans, verði að minnka. Úttekt
frá Ríkisendurskoðun á lækna- og
bankastjóralaunum, sem ríkið greið-
ir, hefur nú leitt í ljós að oft er um
að ræða tífaldan tekjumun og stund-
um meira. Til eru þeir sem ríkið
greiðir mánaðarlega upphæð sem
nemur tuttugufðldum atvinnuleysis-
bótum. Bankarnir eru skýrasta dæm-
ið um þennan ósæmilega tekjumun
og þau lífeyrisforréttindi sem þar
tíðkast. Það er sannarlega tímabært
að bankaráð ríkisbankanna, sem eru
kosin af Alþingi og starfa á ábyrgð
stjómmálaflokkanna, fari að svara
tilmælum Sighvats Björgvinssonar,
viðskiptaráðherra, frá því í janúar
sl. Hinn 19. janúar greinir Morgun-
blaðið frá því að ráðherrann hafi
óskað eftir við formenn bankaráð-
anna „að þeir tækju kaup og kjör
bankastjómenda til skoðunar og
ræddu sín á milli um það til hvaða
ráða þeir teldu rétt að grípa“. Þarna
er og greint frá því að formenn
bankaráða hafí tekið þessari mála-
leitan vel. En hvað var það sem
hneykslaði Sighvat og þjóðina?
Við umrædda úttekt Ríkisendur-
skoðunar kom m.a. í ljós að meðal-
greiðslur til bankastjóra ríkisbank-
anna og forstöðumanna sjóða náðu
árið 1992 litlum 664 þúsund kr. á
mánuði og sá tekjuhæsti í hópnum
var með 900 þúsund kr. á mánuði.
Dæmi var um bankastjóra er fékk
laun frá sjö aðilum. Allir fengu þeir
greiðslur fyrir setu í stjórnum fyrir-
tækja og sjóða sem bankar þeirra
og sjóðir eiga aðild að samkvæmt
fyrmefndri skýrslu og bankarnir
leggja bankastjórunum til bíla og
kosta rekstur þeirra. Búnaðarbank-
inn reyndist öðrum rausnarlegri, létt-
ir sínum mönnum skattbyrði af bíla-
fríðindum og gefur þeim eftirlaun
allt að 90% af fullum launum eftir
fímmtán ára starf en í hinum bönk-
unum fást þessi fríðindi eftir átján
ár. Hersing aðstoðarbankastjóra
reyndist hafa um 80% af launum
hinna.
Siðleysið, sem birtist í þessári
notkun á fjármunum ríkisstofnana,
verður enn grófara í ljósi þess að
bankastjórarnir virðast í raun
ábyrgðarlausir. A.m.k. er ljóst að
þeir eru ekki látnir segja af sér þótt
þeir glati árlega milljörðum af því
fé sem þeim er trúað fyrir vegna
hæpinnar útlánastarfsemi. Lántak-
endur borga fyrir mistökin með háum
vöxtum.
Ábyrgð bankaráða — ábyrgð
stjórnmálaflokka
Viðskiptaráðherra gerði rétt í því
að fela bankaráðum ríkisbankanna
að taka til hjá sér. Mikið virtist
standa til. Átjánda janúar sl. er haft
eftir Ágústi Einarssyni, form. banka-
ráðs Seðlabankans, í Morgunblaðinu
að laun ríkisbankastjóranna ætti að
lækka um þriðjung. Hann á þar við
Búnaðarbanka og Landsbanka. Blað-
Hörður
Bergmann
ið hefur síðan orðrétt eftir honum:
„Eg sé ekki hvemig hægt er að gera
þetta öðruvísi, hvort sem eitthvert
meðaltal er fundið eða aðrar aðferð-
ir notaðar til lækkunar, því ljóst er
að ekki er hægt að hreyfa laun til
hækkunar á þeim tímum sem nú
eru, það er útilokað."
Siðleysið, sem birtist í
þessari notkun á fjár-
munum ríkisstofnana,
verður, segja þeir Hörð-
ur Bergrnaim og Ing-
ólfur A. Þorkelsson,
enn grófara í ljósi þess
að bankastjóramir virð-
ast í raun ábyrgðar-
lausir.
Nú er Sighvatur búinn að missa
Ágúst sem fulltrúa Alþýðuflokksins
í bankaráði Seðlabankans. Banka-
ráðsmanninum var loksins nóg boðið
þegar Sighvatur ákvað að gefa
stjómmálaforingja einu sinni enn
stöðu seðlabankastjóra. Margar
spumingar hljóta að leita á kjósend-
ur sem gagnrýna forréttindi og ójöfn-
uð eftir atburði síðustu vikna. Hve-
nær verður hætt að hlaða undir
stjórnmálamenn, sem komnir eru
með góðan eftirlaunarétt, með feit-
um embættum? Hvenær verður þess
krafist að bankaráð ríkisbankanna
og Seðlabankans afnemi óhófslaun
og forréttindi og gæti almannahags-
muna eins og þeim ber skylda til?
Er ekki kominn tími til þess að stjórn-
málaflokkamir leggi bankaráðs-
mönnum sínum lífsreglur sem sam-
ræmast réttlætis- og siðgæðiskröfum
almennings? Bankaráðin em kosin
af alþingismönnum, sem ber skylda
til að gæta hagsmuna kjósenda
sinna, alls almennings. Getur Sig-
hvatur bjargað andlitinu með því að
taka í hnakkadrambið á bankaráðun-
um, sem undir hann heyra, og byija
að moka flórinn?
Kópavogi, 26. apríl.
Hörður er rithöfundur og fyrrv.
kennari, Ingólfur er fyrrv.
skólameistari.
Við færum þér NetWare
uppfærslur á silfurfati.
Tæknival, sem er viðurkenndur dreifingaraðili
Novell á islandi, hefur um árabil sinnt NetWare
notendum af kostgæfni og hjá fyrirtækinu starfa
fjórir af þeim fimm íslensku tæknimönnum sem
hlotið hafa CNE-gráðuna (Certified NetWare
Engineer) frá Novell. CNE-gráðan tryggir öllum
viðskiptavinum Tæknivals aðgang að hámarks
þekkingu og forgangsþjónustu við úriausn hvers
kyns mála.
Við erum stöðugt að mæta nýjum og breyttum
þörfum notenda NetWare sem gera kröfur um
meiri hraða og betri nýtingu á tækjabúnaði
sínum. Með því að nýta sér möguleika á
uppfærslum, velur þú að njóta þess besta sem
netkerfið býður upp á.
Uppfærslan er bæði fljótleg og einföld, og eykur
afköst í öllu fyrirtækinu. Til dæmis gætir þú
fjölgað notendum á núverandi netkerfi og/eða
uppfært í nýjustu útgáfu af NetWare 3 (v. 3.12).
Þú gætir jafnvel viljað uppfærsluna NetWare 4
til að auka hraðann, bæta frammistöðuna og
um leið sveigjanleika netkerfisins. Þitt er valið.
Og rúsínan í pylsuendanum. Ef þú tekur
uppfærslu fyrir 31. júlí 1994 færðu 40% afslátt
af listaverði - í boði Novell og Tæknivals hf.
Við leggjum metnað í að uppfylla
óskir þínar um Novell netkerfi.
Hafðu samband við fulltrúa
Tæknivals í netkerfum
og við munum koma
til móts við þig.
UPPFÆRSLA
NOVELL
Tæknival
Skeifunni 17 - Simi (91) 681665 - Fax (91) 680664