Morgunblaðið - 09.06.1994, Síða 48
48 FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR
FRJALSAR / REYKJAVIKURLEIKARNIR 18. JUNI
Fjölmargir fimasterkir
keppendur mæta til leiks
Svar kemurfrá heimsmeistaranum og heimsmethafanum í stangarstökki eftir helgina
REYKJAVÍKURLEIKARNIR í frjálsum íþróttum verða haldnir 18.
júní nk. og er búist við rúmlega 70 erlendum keppendum frá um
20 þjóðum. Meðal keppenda verða heimsmeistarinn í kúluvarpi
kvenna, Zhi Hong Huang frá Kína, og í karlaflokki mæta m.a. til
leiks kúluvarparinn Dragan Perec, kringlukastararnir Mike Buncic
og Nick Sweeney, og spjótkastararnir Raymond Hecht og Harri
Hakkarainen. Auk erlendu keppendanna taka flestir sterkustu ís-
lendingarnir þátt í leikunum.
Sergei Bubka, sem er heims-
meistari og heimsmethafi í
stangarstökki, hefur verið boðið að
taka þátt í leikunum, en hefur ekki
gefið svar um hvort hann verði með.
Endanlegur keppendalisti er ekki
ljós, m.a. eiga Svíar eftir að tilkynna
hvaða keppendur komi frá þeim í
kastgreinar í karla og kvennaflokki.
Nú þegar er ljóst að spjótkastar-
inn Raymond Hecht frá Þýskalandi
mun keppa á mótinu, en hann á
lengsta kast ársins til þessa, 90,06
metra. Heimsmeistari unglinga í
spjótkasti mun keppa á leikunum,
Harri Hakkarainen frá Finnlandi.
Victor Zaitsev frá Úsbekistan keppir
einnig í spjótkasti. Einar Vilhjálms-
son og Sigurður Einarsson verða
síðan Islendingarnir í hópnum.
Blikaklúbburinn hittist á
Mömmu Rósu kl. 18.
Breiðablik — Fram
á Kópavogsvelli í kvöld kl. 20
VIÐAR-HF
byggingaverktaki.
Skandia
Lifandi samkeppni.
lægri iðgjöld.
Dragan Perec, sem varð í öðru
sæti á Evrópumeistaramótinu inn-
anhúss í vetur, keppir í kúluvarpi,
og mætir þar m.a. Pétri Guðmunds-
syni, sem varð í þriðja sæti á sama
móti. Mika Halvari, sem varð fjórði
í kúluvarpinu á EM, keppir einnig á
Reykjavíkurleikunum.
I kringlukastinu þarf Vésteinn
Hafsteinsson að etja kappi við
Bandaríkjamanninn Mike Buncic,
sem er einn þriggja sterkustu
kringlukastara Bandaríkjamanna.
Nick Sweeney, sem varð í sjötta
sæti á HM í Stuttgart, keppir einnig.
Óformlegt Norðurlandamót í
kastgreinum
Leikarnir eru óformlegt Norður-
landameistaramót í kastgreinum, og
kemur því að minnsta kosti einn
keppandi frá hveiju landi á mótið.
Stefnt er að því að á næsta ári verði
um formlegt Norðurlandamót að
ræða.
í kvennaflokki ber nafn heims-
meistarans í kúluvarpi kvenna hæst.
Meðal annarra þekktra keppenda
má nefna Kim McKenzie frá Banda-
ríkjunum sem keppir í 100 metra
grindahlaupi, en hún fékk brons-
verðlaun í greininni á Ólympíuleik-
unum í Bandaríkjunum 1984. Farida
Fates frá Frakklandi keppir í 3.000
metra hlaupi, en besti tími hennar
er 8 mínútur 51.33 sek. Til stóð að
heimsmethafinn í spjótkasti kvenna,
Trine Hattested frá Noregi, myndi
keppa á leikunum, en hún gat ekki
komið vegna þess að faðir hennar
átti fimmtugsafmæli einmitt sama
dag og leikarnir eru haldnir.
Guðrún Arnardóttir (t.v) mætir
bronsverðlaunahafanum frá Olympíu-
leikunum 1984 í 100 metra grinda-
hlaupi, Kim McKenzie frá Bandaríkj-
unum, á Reykjavíkurleikunum og Sig-
urður Einarsson spjótkastari þarf að
glíma við Harri Hakkarainen heims-
meistara unglinga og Þjóðveijann
Raymond Hecht, sem á lengst kast
ársins.
Leikamir eitt af tuttugu boðs-
mótum Evrópusambands
Eftir síðustu Reykjavíkurleika
sótti Frjálsíþróttasambandið um að
fá stimpil Frjálsíþróttasambands
Evrópu á mótið, og gekk það eftir.
Einungis um 20 mót fá þennan
stimpil og skiptir hann verulegu
máli varðandi alla kynningu á mót-
inu. Evrópusambandið gerir kröfu
um að ákveðnum reglum í tengslum
við umgjörð mótsins verði fylgt ná-
kvæmlega, og hefur skipað Birgi
Guðjónsson lækni eftirlitsdómara á
Reykjavíkurleikunum til að fylgjast
með því hvernig til tekst.
ISHOKKI / URSLIT NHL-DEILDARINNAR
Draumurínn að veruleika
New York hefur ekki hampað
Stanleybikarnum í íshokkí síð-
an 1940, en eftir 4:2 sigur gegn
Vancouver í Vancouver í fyrrinótt
þarf liðið aðeins einn sigur til viðbót-
ar til að láta drauminn rætast, að
verða „heimsmeistari" í íshokkí.
Staðan er 3-1, en fímmta viðureign
liðanna verður í New York í nótt.
Brian Leetch, einn besti varnar-
KR - FH
©
TRYGGINGA
MIÐSTÖÐIN HF.
ER AÐAL
STYRKTARAÐILI
ÞESSA LEIKS
KR-völlur v/ Frostaskjól fimmtudaginn 9. júní kl. 20.00
Fyrir leikinn verður opið hús í félagshéimilinu þar sem boðið
er upp á pasta og pizzu hlaðborð fyrir alla fjölskylduna á
vægu verði, kl. 18.30 verður 100 númeruðum sætum deilt út
BBURINN til félaga í KR-klúbbnum. Ath. matur borinn fram kl. 18.oo .
Skráning í knattspyrnuskólann stendur yfir
Munið Stúkukvöldið föstudaginn 10 júní í Fóstbræðraheimilinu, Verð kr. 900 fyrir 3 réttaða máltíð
Skírteini KR-klúbbsins verða afhentfrá kl. 18.00 við innganginn
adidas
IBII
FORMPRENT
maður NHL-
deildarinnar, átti
enn einn stór-
leikinn í úrslita-
keppninni og var
maður leiksins,
gerði eitt mark
og átti þijár
stoðsendingar.
Mike Richter,
markvörður
gestanna, sem
stöðvaði síðustu
22 skotin, varði
víti frá Pavel
Bure, marka-
kóngi deíldar-
innar. Þess má
geta að sjö víti hafa verið dæmd í
sögu úrslitakeppninnar og hefur
aldrei verið skorað úr þeim. „Þetta
var hápunkturinn á ferli hans,“ sagði
Mike Keenan, þjálfari Rangers, um
markvörsluna. „Það var honum að
þakka að við fengum tækifæri til
Reuter
Kovalev
að komast aftur inn í leikinn og
sigra. Hann sýndi stórkostlega mar-
kvörslu gegn einum besta leikmanni
deildarinnar — þetta var vendipunkt-
urinn { leiknum."
Leetch er stigahæstur í úrslita-
keppninni með 32 stig, 10 mörk og
22 stoðsendingar, og verður örugg-
lega kjörinn besti maður keppninn-
ar. „Ég á í erfiðleikum með að
stjóma tilfinningunum, en þetta er
í fyrsta sinn, sem ég hef gengið í
gegnum annað eins. Samt er ég viss
um að þetta verður gaman fyrir alla,
en við eigum erfitt verkefni fyrir
höndum,“ sagði hann.
Stuðningsmenn Rangers hafa
beðið í 54 ár eftir titlinum og sagði
Keenan að stuðningurinn í Madison
Square Garden væri ótrúlega mikill,
en hann mætti ekki koma niður á
heimamönnum í nótt. „Það verður
allt vitlaust og við verðum að gæta
þess að einbeita okkur að leiknum
og láta ekkert trufla okkur.“
GOLF f pfa
lacoste ÖLDUNGAMÓT SsSSsl
hjá Golfklúbbnum Leyni, Akranesi,
laugardaginn 11. júní.
Karlaflokkar 50-54 ára og 55 ára og eldri.
Kvennaflokkar 50 ára og eldri.
Skráning til kl. 21.00 föstudaginn 10. júní
í Golfskálanum sími 93-12711.
Nú förum við öll á Skagann og tökum með okkur gesti.