Morgunblaðið - 05.07.1994, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 05.07.1994, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 1994 9 FRÉTTIR EFTIR sjö stunda glímu í Þverá í Borgarfirði á dögunum landaði Jón Hjartarson 25 punda hæng, sem hann veiddi á flugu í streng ofan Dranghyls. Laxinn er enn sá stærsti sem veiðst hefur. Jón Ársælsson, einn leiðsögumanna við Ytri Rangá missti þann stóra um helgina, glímdi við ferlíki á Klöppinni í rúmlega hálftíma áður en taumurinn slitnaði og laxinn fór sína leið. Ekki var hægt að slá þyngd á fiskinn, því hann lét aldrei sjá til sín, lá djúpt og langt úti í á. Þveráin einna sterkust Holl sem lauk veiðum í Þverá á sunnudag veiddi rúmlega 50 laxa og voru þá komnir yfir 500 laxar á land úr ánni að sögn Jóns Ólafs- sonar, eins leigutaka árinnar. Eitt- hvað vantaði á töluna vegna óbók- aðra laxa á efri hluta svæðisins sem kennt er við Kjarrá. Metlax sumars- ins er enn 25 punda hængur Jóns Hjartarsonar. 13 ára stúlka veiddi 20 punda fisk Núpá á Snæfellsnesi hafði gefið 75 laxa um helgina og var meðalþung- inn 13 pund. Tveir 20 punda fiskar eru stærstir og einn 19 punda. Annan 20 punda laxinn veiddi 13 ára stúlka, Anna María Gísladóttir og var það aðeins annar lax hennar á ferlinum. Anna María var eina klukkustund og kortér að ná laxin- um sem dró hana mörg hundruð metra ýmist upp ána eða niður eft- ir henni. Fyrir utan augnablikið er laxinum var landað var hámark orrahríðarinnar er barnið lenti út í miðjum hyl og þurfti þá nærstaddur fullorðinn áhorfandi að hlaupa til og veiða stúlkuna upp úr hylnum. Ævintýrið að endur- taka sig? „Það lítur út fyrir að ævintýrið frá 1990 ætli að endurtaka sig. Um mánaðamót júní-júlí verða komnir álíka margir laxar á land og þá og það sem meira máli skiptir, áin er að verða blá af laxi. Mikið magn af fiski hefur verið að hellast inn síðustu daga. Hann hefði mátt taka betur, en gerir það eflaust á næstu dögum,“ sagði Þröstur Elliðason leigutaki Ytri Rangár í samtali við Morgunblaðið í gærdag. Þá voru komnir um 50 laxar úr Rangánum báðum til samans, 35 úr Ytri ánni, um það bil 15 úr þeirri eystri sem að öllu jöfnu er seinni til. Það er mest vænn smálax sem er að ganga um þessar mundir, en 12-14 punda fiskar eru einnig með í veiðinni. Eftirlitsmenn fóru á ósasvæðið um helgina til að flæma burtu seli sem höfðu gert sig heimakomna þar. Voru fimm selir skotnir og fleirum stökkt á flótta. Sáust miklar göngur þar um slóðir, en ofai' í ánni er það helst svæðið fyrir neðan Ægissíðu- foss sem hefur gefið, en veiðistaðir ofar hafa verið að styrkjast. Islandsheimsókn Beatrix Hollandsdrottningar lokið Heillaðist af fegurð landsins BEATRIX Hollandsdrottning og eiginmaður hennar Claus prins fóru frá íslandi i gærmorgun eft- ir velheppnaða ferð. Um helgina ferðuðust þau um landið í fylgd Vigdísar Finnbogadóttur, forseta Islands. Þau voru heppin með veður og voru að sögn Sveins Björnssonar, forsetaritara, heill- uð af landinu þegar þau fóru. Á laugardag flugu hinir tignu gestir til Húsavíkur og fóru um Námaskarð og upp að hraunrönd- inni við Kröflu þar sem þau fengu sér nesti í hlýju og björtu veðri. Hiti var um 20 stig. Þau fóru síðan í Dimmuborgir og að Mývatni. Síð- degis flugu þau síðan til Hafnar i Hornafirði. Á sunnudeginu fóru þau í ferð sem Jöklaferðir skipu- lögðu. Fyrst fóru Beatrix, Claus og Vigdís í bátsferð um Jökullónið og síðan fóru þau upp á Skálafell- sjökul og stigu m.a. á vélsleða. Skygni var frekar lélegt, en þó sáu þau Öræfajökul gnæfa upp úr skýjahulunni. Útbob ríkisvíxla til 3, 6 o§ 12 mánaba fer fram mibvikudaginn 6. júlí. Nýtt útboð á ríkisvíxlum fer fram á morgun. Um er að ræða 13. fl. 1994 A, B og C í eftirfarandi verðgildum: Kr. 1.000.000 Kr. 50.000.000 Kr. 10.000.000 Kr. 100.000.000 Ríkisvíxlarnir eru til 3, 6 og 12 mánaða með gjalddaga 7. október 1994, 6. janúar 1995 og 7. júlí 1995. Þessi flokkur verður skráður á Verðbréfaþingi íslands og er Seðlabanki íslands viðskiptavaki ríkisvíxlanna. Ríkisvíxlarnir verða seldir með tilboðsfyrirkomulagi. Lágmarkstilboð samkvæmt tiltekinni ávöxtunarkröfu er 5 millj. kr. og lágmarkstilboð í meðalverð samþykktra tilboða er 1 millj. kr. Löggiltum verðbréfafyrirtækjum, verðbréfamiðlurum, bönkum og sparisjóðum gefst einum kostur á að gera tilboð í ríkisvíxlana samkvæmt tiltekinni ávöxtunarkröfu. Aðrir sem óska eftir að gera tilboð í ríkisvíxla eru hvattir til að hafa samband við framangreinda aðila, sem munu annast tilboðsgerð fyrir þá og veita nánari upplýsingar. Jafnframt er þeim sjálfum heimilt að bjóða í vegið meðalverð samþykktra tilboða (meðalávöxtun vegin með fjárhæð). Öll tilboð í ríkisvíxlana þurfa að hafa borist Lánasýslu ríkisins fyrir kl. 14 í dag, miðvikudaginn 6. júlí. Tilboðsgögn og allar nánari upplýsingar eru veittar hjá Lánasýslu ríkisins, Hverfisgötu 6, í síma 62 40 70. Athygli er vakin á því að 8. júlí er gjalddagi á 7. fl. ríkisvíxla sem gefinn var út 8. apríl 1994 og 1. fl. ríkisvíxla sem gefinn ver út 7. janúar 1994 LANASYSLA RIKISINS Hverfisgötu 6, 2. hæö, 150 Reykjavík, sími 91- 62 40 70. Afsláttur af öllum l«fc«nl golfvörum öt julí Sportbúð Kópavogs, Hamraborg 20A - sími 641000 Beldray tröppur og stigar ávallt fyrirliggjandi. Mest seldu áltröppur á íslandi. Þú nærð hærra með BELDRAY Fæst í næstu wynninaavöruversiun_ GUÐMUNDSSON & Co. hf. UMBODS OG HEILDVERSLUN SIMI 91-24020 FAX 91-623145 TOSHIBA Attþú ekkí < örbylgjuofn ? Þeir sem eiga T0SHIBA örbylgjuofn segja að það sé tækið, sem þeir vildu síst vera án. T0SHIBA eru mest seldu örbylgjuofnarnir á Islandi og þeim fylgir ókeypis kvöldnámskeið hjá Dröfn H. Farestveit hússtjórnarkennara. Hvernig væri að láta drauminn rætast og fá sér slíkan kostagrip ? Við bjóðum yfir 10 gerðir af T0SHIBA örbylgjuofnum á verði og kjörum, sem allir ráða við! Einar Farestveit & Co. hf. Borgartúni 28 S 622901 og 622900

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.