Morgunblaðið - 05.07.1994, Side 27

Morgunblaðið - 05.07.1994, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ1994 2 7 • MINNINGAR Sighval Einarsson og Co., en fyrir- tækið rak fjölskyldan með miklum ágætum um áratuga skeið á meðan líf og heilsa entist. Óskar, eiginmaður Sigurbjargar, var fæddur í Reykjavík 7. desember 1923, sonur Birgittu Guðbrands- dóttur og Þorkels Þórðarsonar. Þeg- ar Óskar var sjö ára að aldri gekk Guðrún Kristjánsdóttir, eiginkona Þorkels, Óskari í móðurstað og ól hann upp, sem sinn eigin son. Ösk- ar stundaði nám við Samvinnuskól- ann og lauk prófi þaðan árið 1944. Upp frá því starfaði hann við verzl- unar- og skrifstofustörf. Eftir brúðkaupið dvöldu þau Sig- urbjörg og Óskar um tíma í Banda- ríkjunum og stunduðu þar meðal annars framhaldsnám í verzlunar- j fræðum. Við heimkomuna hóf Ósk- . ar störf við fyrirtæki tengdaföður síns og starfaði þar alla tíð síðan. Heimili þeirra hjóna var sérstak- l lega smekklegt og vinalegt, bar vitni um reglusemi hvert sem litið var og greinilegt var, að hér hafði fyrirmyndarhúsmóðir lagt hönd að verki og lífið blasti við. En lífið getur verið fallvalt og breytingum háð. Eftir ánægjulegt hjónaband til margra ára dró ský fyrir sólu í lífí Sigurbjargar og Ósk- ars. Óskar fékk Parkinsonsveiki, sem ágerðist sífellt, og varð upp frá því sjúklingur til fjölda ára. I veik- indum eiginmanns síns komu ber- lega í ljós mannkostir og trygglyndi Sigurbjargar. Hún stóð alla tíð við hlið eiginmanns síns og hjúkraði honum hvort sem var að nóttu eða degi. Eftir lát Óskars var ekki óeðli- legt, að tómarúm myndaðist í lífi Sigurbjargar og varð úr að hún gekk til liðs við sjálfboðaliða Rauða kross íslands og starfaði þar meðan heilsan entist. Kunningsskapur okkar Sigur- bjargar hefur frá fyrstu kynnum, er hún gekk að eiga Óskar bróður okkar, verið náinn og góður og varð hún ein ,af fjölskyldunni, en nú mun hennar verða saknað. Um leið og Sigurbjörg er kvödd ber að þakka góðum vinkonum hennar fyrir einstaka umhyggju og alúð í veikindum hennar. Guð blessi minningu Sigurbjarg- ar. Ragnheiður Þorkelsdóttir, ' Þórður Þorkelsson og fjölskyldur þeirra. Þegar mamma hringdi og til- kynnti mér að hún Lilla væri dáinn þá brá manni þótt ég hafi heyrt um veikindi hennar. Þegar ég var 13 ára gamall fór ég að vinna sem sendill hjá Sig- hvati Einarssyni og Co. fyrir Sigur- björgu Sighvatsdóttur (Lillu) og mann hennar, Óskar Þorkelsson. Við Lilla höfðum þekkst áður þar sem hún var besta vinkona móður minnar en þar hófust ný kynni þar sem Lilla og Óskar veittu mér fyrstu tilsögn í að feta mig áfram í vinnu. Sambandið hélt áfram eftir að ég hætti að vinna hjá Sighvati Einars- syni og Co. og oft var leitað til Lillu og Óskars með ýmislegt. Óskar eiginmaður Lillu veiktist fyrir aldur fram og tók Lilla að sér að hjúkra honum. Þrátt fyrir erfið veikindi lagði hún það á sig að vera með Óskar á heimili þeirra og hjúkra honum þar eða þar til hann lést fyrir nokkrum árum. Óskar og Lilla áttu ekki börn en ég og systkini mín gátum alltaf leitað til þeirra og höfðu þau alltaf tíma fyrir okkur. Það er söknuður að sjá á eftir þessari lífsglöðu konu sem átti svo margt eftir ógert og hafði svo mikið þrek þar til veikind- in dundu yfir. Sambandið hélt áfram og kynnt- ist Lilla öðrum meðlimum fjölskyldu minnar. Konan mín minnist sérstak- lega ferðar sem þær fóru saman til Hamborgar fyrir nokkrum árum. Ég hitti Lillu um síðustu páska og þá var umtalað að við hittumst fljótlega, en af því verður aldrei. Við söknum þín, Lilla, og biðjum fyrir þér. Lúðvík Friðriksson og fjölskylda. Við seljum •• anægju, oryggi og vellíðan ' ////; Það er tilfinningin. Ilmurinn, kyrrðin loftið, hreyfingin. Ekkert jafnast á við að vera vel búinn úti í náttúrunni. Þetta er ekkert pjatt. Maður lrður áfram á góðum gönguskóm og þreytist mun minna. Þeir verða vinir manns. Matarlystin, maður! Það er svo gott að borða! Ég vil geta eldað almennilegan mat í útilegu. Já, já, ég veit að ég mátti ekki heyra minnst á útilegu en svo þegar maður kynnist þessu þá verður útiveran hluti af lífsstílnum. Bakpoki er ekki það sama og bakpoki. Það er málið. Þetta þarf allt að vera létt, traust, öruggt og einfalt. Sumum leiðist í rigningu en mér \ finnst ekkert betra en hofa mér ' ofan í góðan svefnpoka í góðu tjaldi I og láta rigninguna sem fellur / á tjaldhimininn svæfa mig. / " Þeir vita náttúrlega hvað þeir eru að tala um í Skátabúðinni því þeir hafa reynsluna. Svo kom verðið mér verulega á óvart. \ bwrar fwmur Snorrabraut 60 • Sími 61 20 45 Póstsendum samdægurs. Biðjið um mynda- og verðlista okkar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.