Morgunblaðið - 05.07.1994, Síða 44
SÍmG<MW^MBREF69n8l!PÓSmÓLF3040 / AKVHEYRl: HAFNARSTRÆTI 86 ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 1994 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Forsætisráðherra segir flest benda til að rofi til í efnahagsmálum
Teikn um að efnahags-
kreppan sé á undanhaldi
EFNAHAGSÞRÓUN hérlendis virðist benda til
þess að brátt geti séð fyrir endann á því sam-
dráttar- og stöðnunarskeiði sem ríkt hefur frá
því í lok síðasta áratugar.
„Það bendir flest til þess að við séum komin
að endimörkum þessarar kreppu. Það eru engin
teikn um það að hún eigi eftir að dýpka. Það
eru þvert á móti teikn um að hún fari að slakna
en menn þurfa auðvitað að gæta að sér,“ sagði
Davíð Oddsson forsætisráðherra í gær þegar
V^kynnt var nýtt minnisblað frá Þjóðhagsstofnun
“iim útlit í efnahagsmálum á þessu og næsta ári.
Þar er því spáð að hagvöxtur fari að taka
við sér, þó hægar og seinna en í mörgum öðrum
löndum. Þannig verði hagvöxtur 1% á næsta
ári en áætlað er að hagvöxtur verði um 3% að
meðaltali í aðildarríkjum OECD. Þá er gert ráð
fyrir að þjóðartekjur aukist um 1,6%. Horfur
eru á batnandi viðskiptakjörum og jafnvægi í
viðskiptum við útlönd þrátt fyrir samdrátt í
fiskafla. Útlit er fyrir áframhaldandi stöðugleika
í verðlagsmálum þótt horfur séu á aukinni neyslu
og fjárfestingu. Talið er að þjóðarútgjöld aukist
um 2,2% á næsta ári en undanfarin 3 ár hafa
þau dregist saman. Gert er ráð fyrir að kaup-
máttur aukist um 0,5% og talið er að atvinnu-
leysi aukist ekki frá því sem nú er. Á hinn bóg-
inn geti þróun opinberra íjármála og vaxta sett
strik í reikninginn en reiknað er með aðhaldss-
amri stjóm peningamála og að stefnt verði að
lækkun ríkissjóðshalla í áföngum á næstu árum.
„Það em allir þættir jákvæðir, sem tekið er á
í þessu plaggi, og þetta er í fyrsta skipti í lang-
an tíma sem við horfum á slíkar tölur. Það er
auðvitað ánægjulegt fyrir okkur öll sem höfum
verið að þrauka þetta tímabil," sagði Davíð
Oddsson.
Þórður Friðjónsson forstjóri Þjóðhagsstofnun-
ar sagði tvennt skipta mestu máli varðandi betri
horfur. Annars vegar uppgangur í efnahagslífi
annarra ríkja og hins vegar væm starfsskilyrði
hér hagstæð og stöðug.
Davíð Oddsson sagði við Morgunblaðið, að
allt benti nú til að umsvif fæm að aukast í at-
vinnulífínu. í ljósi þess væri gert ráð fyrir ívið
meiri verðbólgu á næsta ári en þessu og einnig
að kaupmáttur aukist lítillega. Davíð sagði að
einkafjárfesting hefði verið of lítil og nauðsyn-
legt að hún fari að taka við sér.
H Efnahagslífið/6
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Með loðnu
til Eyja
eftir 37
tíma stím
VEL VAR tekið á móti skipveij-
um á Sighvati Bjamasyni þegar
skipið kom með fyrsta loðnu-
farm vertíðarinnar til Vest-
mannaeyja í gær eftir um 400
sjómílna siglingu af miðunum.
Skipið var um 37 tíma á leið-
inni með fullfermi, 680 tonn.
Guðmundur Sveinbjörnsson,
skipstjóri, sagði að siglingin af
miðunum hefði gengið vel, slétt-
ur sjór alla leiðina. Hann sagði
að nokkurn tíma hefðí tekið að
finna góðar loðnutorfur til að
kasta á. Stærstur hluti farmsins
hefði fengist í síðasta kasti. Um
100 tonn hefðu verið eftir í
nótinni þegar skipið var orðið
fullt. Guðmundur sagði að ná-
læg skip hefðu dælt upp úr
nótinni svo ekkert hefði farið
til spillist.
■ Skipstjórar/2
A toppi
Heklu
Tveir hjólreiðamenn klifu Heklu
um helgina og hjóluðu síðan nið-
ur. Á myndinni virða Eggert
Akerlie og Karl Eiríksson útsýn-
ið fyrir sér. Eyjafjallajökull og
MýrdalsjökuII sjást í fjarska.
Rannsókn
á meiðsl-
um Gýmis
FÉLAG tamningamanna hefur
óskað eftir opinberri rannsókn á
slysi sem gæðingurinn Gýmir frá
Vindheimum varð fyrir í úrslita-
keppni á landsmótinu á Gadd-
staðaflötum á sunnudag. Meiðsl-
in voru svo alvarleg að fella
þurfti hestinn.
Hinrik Bragason, eigandi
hestsins, sagðist í samtali við
Morgunblaðið í gær ekkert hafa
við það að athuga þótt klárinn
yrði krufinn og rannsakað hvort
um meinta lyfjagjöf hafi verið
að ræða.
■ Konungur gæðinga/Cll
Hag-stofan birtir greinargerð um launavísitölu o g launasamanburð
Um 3% meiri hækkun launa
til opinberra starfsmanna
HAGSTOFA íslands hefur komist að þeirri niðurstöðu í greinargerð
um útreikning launavísitölu að laun opinberra starfsmanna hafi
hækkað um 3% umfram laun á almennum vinnumarkaði. Talsmenn
ASÍ höfðu haldið því fram að munurinn væri um 5-6 af hundraði.
Friðrik Sophusson fjármálaráðherra segir niðurstöðurnar hrekja stað-
hæfingar um að n'kisstjórnin fylgi annarri launastefnu en ASÍ og
VSÍ. Gylfi Ambjömsson hagfræðingur ASÍ segir aftur á móti að þær
staðfesti þau sjónarmið ASI að mikill munur sé í launaþróun ólíkra
stétta.
í greinargerð Hagstofunnar
kemur fram að tiltæk gögn um
þróun launa undanfarin fjögur ár
gefi ekki færi á nákvæmum
samanburði vegna mismunandi
aðferða við athuganir. Gögnin
styðji þó í meginatriðum það mat,
sem fram komi í launavísitölu
Hagstofunnar, og virðist hún
þokkalegur mælikvarði á þróun
launa í heild.
I greinargerðinni kemur fram
að samkvæmt gögnum launavísi-
tölunnar hafí laun opinberra
starfsmanna og bankamanna
hækkað um 3% umfram laun á
almennum vinnumarkaði frá því í
ársbyrjun 1990. Sagt er að í reynd
sé munurinn þó líklega nokkuð
minni, þar sem líklegt sé að í tölun-
um gæti nokkurs ofmats á launa-
breytingum opinberra starfs-
manna og bankamanna en van-
mats á launabreytingum á al-
mennum vinnumarkaði.
Fjármálaráðherra segist vera
ánægður með greinargerð Hag-
stofunnar. „Niðurstaða hennar er
að lánskjaravísitalan geti ekki
mælt mismun á þróun launa milli
einstakra tekjuhópa vegna þess
að þau gögn sem hún byggir mat
sitt á eru fengin með mismunandi
hætti,“ sagði hann.
„Frumhlaup ASÍ“
Friðrik segir að niðurstaðan
hreki þær staðhæfíngar að ríkis-
stjórnin hafi fylgt annarri launa-
stefnu en VSÍ og ASÍ. Hann
minnir á að launaþróun skv. niður-
stöðu kjararannsóknarnefnda hafi
sýnt aðra útkomu fyrir sama tíma-
bil.
„Því miður hefur þetta frum-
hlaup ASÍ ýtt undir óþarfa úlfúð
milli launþegahópa í landinu. Það
er vonandi að menn snúi sér frek-
ar að því nú að viðhalda stöðug-
leikanum þegar loks grillir í betri
tíð í efnahagsmálum þjóðarinnar,“
sagði Friðrik Sophusson að lokum.
Sjónarmið ASÍ staðfest
Gylfi Arnbjörnsson hagfræðing-
ur ASÍ segir að niðurstöður
greinargerðarinnar hafí staðfest
þau grundvallarsjónarmið sam-
bandsins að yfir heildina ríki mik-
ill munur í launaþróun launafólks.
„Við teljum að munurinn sé mikill
einkum í ljósi þess að laun hafa á
sl. þremur árum hækkað um
1,7%,“ sagði hann. „Hagstofan
lýkur samanburði sínum á fyrsta
ársfjórðungi þessa árs en tekur
ekki tímabilið fram til maíloka eins
og við gerðum í okkar útreikning-
um. Opinberir starfsmenn gerðu
samninga í vor og við ályktum því
að munur upp á rúm 3% sé í lægri
kantinum.“
Að sögn Gylfa Arnbjörnssonar
munu fulltrúar ASI hitta forsætis-
ráðherra að máli í dag og fara
yfir stöðu mála.