Morgunblaðið - 04.08.1994, Blaðsíða 16
16 FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 1994
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Til Mistar
TONLIST
Skálholts-
k i r k j a
Flytjendur: Hrafn-
hildur Guðmundsdótt-
ir, söngur, Guðrún
Birgisdóttir, flautu,
Martial Nardeau,
flautu, Elísabet Wa-
age, hörpu, Helga Ing-
ólfsdóttir, sembal,
Örnólfur Kristjáns-
son, selló. Kórstjórn:
Gunnsteinn Ólafsson,
kór skipaður ellefu
söngvurum. 30. júlí
1994.
Mist Þorkelsdóttir
Helga Guðmundsdótt-
ir í Galleríi Sautján
FRÁ - og til - getur til
dæmis afmarkáð tíma-
bil eða æviskeið, tíma sem engnn fær
að vita hvenær lokað verður á, sum-
um gefinn langur tími öðrum stuttur.
Skrefin virðast skilja eftir misdjúp
spor við þessa ferð þroska. Á efnis-
skrá tónleikanna voru ijögur verk
fyrir söng eftir Mist Þorkelsdóttur,
Magnificat, fyrir kór, Dicamus grac-
ias, fyrir alt-rödd, barokkselló semb-
al og kór, hvorutveggja samið 1990.
Hugleiðing fyrir tvær barokkflautur
hörpu- og kór og Alleluia fyrir kór,
tvö síðari verkin frumflutt á tónleik-
unum. Þótt Mist sé enn ung að árum
hefur hún náð góðri fæmi í að skrifa
fyrir hljóðfæri sem vel mátti heyra
á tónleikunum hér fyrr um daginn.
Margir halda að lítill vandi sé að
skrifa fyrir söngrödd, eða söngradd-
ir, þar séu möguleikarnir svo miklu
Nýjar bækur
■ Út er kominn 43. pakki íslenska
kiljuklúbbsins hjá Máli og menn-
ingu og hefur hann að geyma þijár
bækur. Þær eru Hvalirnir í Tang-
anyikavatni eftir Lennart Hager-
fors, Engill, pípuhattur og jarða-
ber eftir Sjón og Ljúf er sumar-
nótt í Færeyjum eftir Jógvan Is-
aksen. Sænski rithöfundurinn
Lennart Hagerfors hefur komið til
íslands og kynnt verk sín, og hefur
Lesbók Morgunblaðsins birt sögu
eftir hann. Skáldsagan sem íslenski
kiljuklúbburinn gefur nú út byggist
á leiðangri Stanleys til Afríku árið
1871. Asgeir Ásgeirsson þýddi
söguna o g er hún gefin út með styrk
frá Norræna þýðingarsjóðnum.
Kápu gerði Ingibjörg Eyþórsdóttir;
bókin er 169 síður og kostar 799
krónur.
Skáldsaga Sjóns kom fyrst út
fyrir fimm árum. Þetta er saga um
ungt fólk í samtímanum. Kápuna
hönnuðu þeir Sjón og Þór Eldon;
bókin er 139 blaðsíður að lengd og
kostar 799 krónur.
Sakamálasaga Jógvan Isaksen
kom fyrst úr í Færeyjum árið 1990
og síðar í Danmörku á dönsku.
Þýðinguna gerði Ásgeir Ásgeirs-
son. Kápuna hannaði Næst; bókin
er 224 blaðsíður og kostar 799
krónur.
Skiptibók klúbbsins er Hamlet
eftir William Shakespeare í þýð-
ingu Helga Hálfdanarsonar og
kostar 787 krónur.
Bækumar eru allar prentaðar í
Skotlandi.
■ Út er komin ljóðabókin Hugar-
fóstur á vegum höfundar, Eiríks
H. Thorarensen, í samvinnu við
Braga Halldórsson. Bókin inni-
heldur 29 ljóð og ljósmynd á kápu
gerði Elín E. Thorarensen. Bókin
fæst hjá höfundi.
■ Norræna ráðherranefndin og
Norðurlandaráð hafa gefið út bók-
ina Norden - Kvinners paradis?
Ritstjórar hennar éru Brit Fougner
og Mona Larsen-Asp. í bókinni em
greinar, pistlar og ljóð eftir höfunda
frá öllum Norðurlöndunum. Frá ís-
landi birtist greinar eftir Sigurð
Svavarsson og Stefaníu Trausta-
dóttur. Bókin er gefín út bæði í til-
efni af Nordisk Forum í Finnlandi
og verður sérstaklega kynnt þar í
tengslum við umræðu um jafnréttis-
mál. Hún verður einnig gefin út á
ensku fyrir kvennaþing Sameinuðu
þjóðanna í Beijing árið 1995.
færri en í hljóðfæmn-
um. Og rétt er það að
hljóðfærin hafa miklu
fleiri litasamsetningar
en söngröddinn eða kór-
inn, en þar kemur ein-
mitt vandinn, að gera
kórþáttinn áhugaverð-
an. Til þess þarf, held
ég, að þekkja mögu-
leika söngraddarinnar
mjög vel og einnig tak-
markanir og hér er Mist
ennþá í miðju skrefi.
Þættimir fjórir gætu
verið liðir í einfaldri
messugjörð, en þrátt
fyrir oft fínleg vinnu-
brög, of eintóna sem
konsertnúmer. Hrafn-
hildur Guðmundsdóltt-
ir, með sína fallegu rödd, skilaði
ekki fullnægjandi sínum hluta í Dica-
mus gracias, til þess vantaði helgi
og einföldun í flutninginn. Kórinn
náði því miður heldur ekki að lyfta
verkunum, til þess var hann of dauf-
ur og litlaus, hugsaði of mikið um
að syngja hreint, sem hann gerði þó
ekki alltaf, og spennu - expressivo
- vantaði í flutninginn auk þess sem
hlutföll milli radda voru hljómnum í
kirkjunni óhagstæð. T.d. var bassin
of veikur og vildi hljómurinn því
verða einhvemveginn botnlaus. Þrátt
fyrir þetta er Mist Þorkelsdóttir lof-
andi tónskáld. Hún virðist skrifa af
þörf fyrir að skapa, hefur sinn eigin
persónulega stíl og góðar óskir fylgja
henni í skrefínu sem er óstigið.
Ragnar Björnsson
HELGA Guðmundsdóttir sýnir
vatnslita- og akrýlmyndir í Gall-
eríi Sautján, Laugavegi 91, dag-
ana 5. ágúst til 5. september.
Helga er fædd í Reykjavík og
hefur starfað að myndlist í frí-
stundum í nokkur ár. Þetta er
fyrsta einkasýning hennar. Hún
hefur sótt ýmis námskeið í teikn-
ingu og málun undanfarin ár og
hyggur á frekara nám í framtíð-
inni.
Flestar myndanna eru vatnslita-
myndir, en nýlega byijaði Helga
að vinna með akrýl og sýnir nokk-
ur þeirra verka nú. Allar myndirn-
ar eru málaðar á síðastliðnum
þremur árum.
Gaileríið er opið frá kl. 11-18 á
mánudögum, kl. 10-1'J frá þriðju-
dögum til fímmtudaga, kl. 10-19
á föstudögum og kl. 10-16 á
laugardögum.
Langi Seli og Skuggarnir.
Morgunblaðið/Sverrir
Haraldur Reynisson.
Nl+.
sveit Stefáns P. og lyfir öllu í æðri
satírískar hæðir með ótrúlegu lagi,
Rokk og ról, sem sómt hefði sér vel
í Austurbæjarbíói fyrir 30 árum eða
svo. Viðlagið eitt er nóg til að menn
skelli uppúr, en þegar „Fjörkálfarn-
ir“ Ómar Ragnarsson og Hermann
Gunnarsson bregða á leik í næsta
lagi, Allir í fjörið, líta menn ósjálf-
rátt á dagatalið til að gá að ártal-
inu. Sniglabandið gefur svo lítið
jarðsamband áður en Haraldur
Reynisson fer að syngja um „flösk-
una“. Það kemur síðan í hlut Rabba
að koma hlustandanum niður á jörð-
ina eftir þennan ótrúlega útúrdúr,
en eftir þetta er lygn sjór með Silfur-
tónum, Langa Sela og félögum og
Mannakomum, áður en komið er
að endurteknu efni; Pálmi Gunnars-
son flytur ótrúlegan mærðartexta
Ómars Ragnarssonar um „íslensku
konuna"; lag sem var væmið og
leiðinlegt þegar það kom út á jóla-
plötu Omars og því óþarfi að gefa
það út aftur.
„Já takk“ er sérkennilegur
samtíningur um margt. Á plötunni
eru ágætis lög hljómsveita sem
mættu gjarnan láta í sér heyra aft-
ur, en gæðasían hefur bilað ein-
hversstaðar í vinnsluferlinu.
Árni Matthíasson
SNIGLABANDIÐ & Borgardætur.
Sumarsamtíningur
TONLIST
Poppblanda
„JÁ TAKK“
Ýmsir flytjendur á disknum „Já
takk“; Nl+, Silfurtónar, Sniglaband-
ið & Borgardætur, Langi Seli og
Skuggamir, Mannakom, Haraldur
Reynisson, Fánar, Hljómsveit Stef-
áns P., Ómar Ragnarsson og Her-
mann Gunnarssson, Rafn Jónsson,
og Pálmi Gunnarsson. Japís gefur
út, 64,29 mín. 1.990 kr.
SAFNDISKAÚTGÁFA stendur
með blóma. Flestir safndiskar eru
sambland erlendra popplaga og inn-
lendra, en stöku diskar eru með ís-
lenskri tónlist eingöngu, þar á með-
al „Já takk“ sem Japís gefur út og
á eru sautján lög ýmissa flytjenda,
Nl+, Silfurtóna, Sniglabandsins &
Borgardætra, Langa Sela og
Skugganna, Mannakoma, Haraldar
Reynissonar, Fána, Hljómsveitar
Stefáns P., Omars Ragnarssonar og
Hermanns Gunnarsssonar, Rafns
Jónssonar og Pálma Gunnarssonar.
Tónlistin er upp og ofan, sem von-
legt er með svo ólíka listamenn, en
því verður ekki neitað að sitthvað á
disknum hefði að skaðlausu mátt
liggja óútgefið.
Nl+, hljómsveit Sigríðar Bein-
teinsdóttur og félaga, á tvö lög á
disknum, dægileg popplög en líf-
laus. Fyrra laginu spillir illilega
mássöngur Sigríðar og misheppnuð
fyndni í útsetningu seinna lagsins
er ekki til að gera það eftirminni-
legt, þó lagið sjálft sé ekki ílla gert.
Silfurtónar láta í sér heyra eftir
nokkurt hlé með tvö lög á disknum
í sínum sérkennilega stfl. Fyrra lag-
ið, Tælandi fögur, er ekki fullburða,
þó þekkilegt áheyrnar, en síðara
lagið, um Jóa mussu, er öllu
skemmtilegra, þó það þurfí meiri
hlustun. Textinn í því er sérdeilis
góður.
Apríkósusalsa með Sniglaband-
inu og Borgardætrum er gott dæmi
um „gervisalsa"; í raun hreinræktað
popp. Lagið gengur þó ágætlega
upp en annað lag Sniglanna á diskn-
um, Sveifla og galsi, er frekar klénn
samsetningur.
Lítið hefur heyrst til Langa Sela
og Skugganna frá því sveitin sendi
frá sér eina bestu breiðskífu seinni
ára. Sveitarmenn hafa þó verið iðn-
ir með ýmusm öðrum sveitum þar
til þeir ákváðu að taka upp þráðinn
snemmsumars. Á „Já takk“ má
,þeyra að litlar breytingar hafa orðið
á tónlistargrunni þeirra félaga; ef
eitthvað eru lögin tvö á „Já takk“
öllu hrárri en þau sem áður hafa
komið, en Um leið full kraftlítil þó
viða séu góðir sprettir.
Mannakom eru líklega með lang-
lífari rokksveitum, þó ekki hafi
sveitin starfað með látum. Hún læt-
ur þó á sér kræla af og til með
góðum árangri, enda er Magnús
Eiríksson helsti popplagasmiður
þjóðarinnar. Fyrra lag sveitarinnar
á disknum fer þó fráleitt í meistara-
flokk, en það síðara, Gálgablús, er
afbragð og Magnús syngur það
skemmtilega sjálfur.
Trúbadúrinn Haraldur Reynisson
á einnig tvö lög á disknum, en hann
kvaddi sér hljóðs síðasta haust með
sinni fyrstu breiðskífu. Haraldur
leikur einskonar þjóðlagapopp, með
áherslu á poppið, og sem fyrr eru
textarnir hans veika hlið, til að
mynda er væmnin yfírgengileg í
laginu Allt sem ég óska mér, og
kímnin í því síðara, Flöskunni, end-
ist ekki út lagið.
Um miðbik disksins er eins og
allt fari úr böndunum, því þá breyt-
ist þessi hefðbundna poppplata í
brandarasúpu; Nl+ breytir prýði-
legu lagi Guðmundar Jónssonar í
brandara með hallærislegum milli-
kafla, Fánar bera á borð aulafyndn-
ina Greidd skuld er glatað fé, þó
vel sé spilað, og svo kemur Hljóm-
Skálholtstónleikar
Verk eftir
Þorstein
Hauksson
SÍÐUSTU tónleikamir í tón-
leikaröðinni Sumartónleikar í
Skálholti verða nú um helgina.
Flutt verður verk eftir staðartón-
skáldið Þorstein Hauksson.
Dagskráin
hefst á laugar-
dag, 6. ágúst,
klukkan 13.30
með því að
Þorsteinn
Gylfason flyt-
ur fyrirlestur,
sem hann
nefnir Um
heimspeki og
tónlist. Klukkan 15.00 leikur
Guðrún Óskarsdóttir sembal-
tónlist frá 17. öld eftir Cham-
bonniéres, D’Anglebert, L. Cou-
perin og Froberger. Klukkan
17.00 verður síðan frumflutn-
ingur óratóríunnar Psychomac-
hia við ljóð Prudentius, fyrir ein-
söngvara, kór, strengjakvintett
og sembal. Stjórnandi er Bern-
harður Wilkinson.
Verk Þorsteins verður endur-
tekið á sunnudaginn, 7. ágúst,
klukkan 15.00. Sama dag,
klukkan 17.00 verður messa
með þáttum úr tónverkum helg-
arinnar.
Brasilísk
píanótónlist
SIGRÍÐUR Hulda Geirlaugs-
dóttir, pianóleikari, flytur verk
eftir brasilísk tónskáld í Nor-
ræna húsinu, sunnudaginn 7.
ágúst. Tónleikamir hefjast
klukkan 15.00 og mun Sigríður
Hulda einnig flytja erindi um
brasilíska tónlist.
Á efnis-
skránni eru
verk eftir al-
þýðutónsk-
áldið Emesto
Nazareth, nú-
tímatónskáldið
J.G. Ripper og
Heitor Villa-
Lobos.
Sigríður
Hulda lauk
einleikaraprófí
frá Tónlistar-
skólanum í Reykjavík árið 1985
og útskrifaðist frá New England
Conservatory í Boston vorið
1989.
Papgírstextíll
í Umbru
FINNSKA listakonan Ritva Pu-
otila opnar sýningu á nokkrum
verka sinna í Galleríi Úmbru á
Bemhöftstorfunni í dag,
fimmtudaginn 4. ágúst.
Ritva Puotila er víða kunn
fyrir pappírsteppi sín, ekki síst
ofín gólfteppi, sem hún hefur
hannað og framleidd em í
heimalandi hennar, segir í
fréttatilkynningu.
Sýningin er opin þriðjudaga
til laugardaga klukkan 13-18 og
sunnudaga klukkan 14-18 og
stendur til 24. ágúst.
Sýning á
verkum Dags
í TILEFNI af fímmtán ára af-
mæli veitingahússins Hornsins
við Hafnarstræti, stendur yfír
sýning á grafískum tréskurðar-
myndum eftir Dag Sigurðarson,
sem Iést snemma á þessu ári.
Myndirnar eru frá árunum 1958
til 1964 og hafa ekki verið sýnd-
ar áður.
Sýningin er í gallerí Djúpinu
í kjallara veitingahússins en þar
hafði Dagur nýtt sér aðstöðuna
til sýningar á verkum sínum.