Morgunblaðið - 04.08.1994, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSEIMDAR GREINAR
FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 1994 21
Lengri skóladagur
- lengra skólaár
í STUTTRI grein í Morgunblað-
inu 29. júní sl. voru birtar niður-
stöður úr könnun sem þrír kennar-
ar gerðu á viðhorfum foreldra til
lengingar skólaársins og skóla-
dagsins. Það er gott framtak að
leita álits hjá foreldrum á grund-
vallaratriðum í skólamálum en það
er líka vandasamt verk einkum í
ljósi þess hve upplýsingar til al-
mennings um skólamál eru af
skornum skammti hér á landi.
Varðandi lengd skóladagsins
segja greinarhöfundar að foreldrar
séu ánægðir með núverandi stöðu.
Hins vegar kemur líka í ljós í könn-
uninni að flestir foreldrar 12 ára
barna vilja að þau hefji nám kl.
8-9 á morgnana og ljúki því kl.
14-15 á daginn. Foreldrar 6 ára
bama vildu líka að þau væru í skól-
um frá kl. 8-9 til kl. 12-14.
Þetta tel ég sýna eindreginn vilja
um lengri skóladag því
eins og hann er í dag
hjá 12 ára nemendum
þá byrja flestir kl. 8
en eru búnir fyrir kl.
13 og suma daga jafn-
vel enn fyrr.
Vikulegur kennslu-
stundafjöldi 12 ára
nemenda í 6. bekk eru
30 stundir og í 7. bekk
32 kennslustundir á
viku. Frá þeim fjölda
dragast oft kennslu-
stundir þar sem bekkn-
um er skipt, t.d. í
myndmennt , heimilis-
fræði eða sundi. Fæstir
nemendur fá í kennslu
í þessum greinum allan
veturinn og ná því ekki umræddum
30 eða 32 stundum á viku.
Sama máli gegnir um skóladag
6 ára barnanna, þau eiga að hafa
24 stundir á viku en fá þær sjaldn-
ast allar vegna skiptinga af ýmsu
tagi. Það er æði algengt að 6 ára
börn séu komin heim til sín upp
úr kl. 11 flesta daga vikunnar eða
fyrir kl. 15 ef þau byija kl. 12.
Dæmi veit ég úr nokkrum skól-
um þar sem börnin hætta kl. 11
einn dag í viku vegna kennara-
funda og lítill vinur minn var í
skólanum frá kl. 8.10 til kl. 9.25
á mánudögum eftir jólin í vetur
vegna þess að hann var ekki í
myndmennt eftir áramót og ekkert
kom í staðinn. Það tók því varla
að fara í skólann fyrir 1 klst. og
15 mín.
Núverandi lengd skóladags er
því ekki í samræmi við óskir for-
eldra ef marka má niðurstöður
könnunarinnar eins og þær birtast
í blaðinu.
Annað sem vakti athygli mína
var að könnunin sýnir að 37% for-
eldra 6 ára barna vilja að þau geti
hafið nám sitt á hádegi en samtím-
is er sagt að áhugi á einsetningu
sé mikill. í einsetnum skóla hefja
öll börn skóladaginn sinn að morgni
og þar er ekkert val um skólabyij-
un á hádegi enda er morguninn
talinn besti tími til náms. Þessi
staðreynd styrkir þá skoðun mína
að margir foreldrar átti sig ekki á
hugtakinu einsetinn skóli og því
hvaða kostir fylgja slíku skóla-
skipulagi sem aðrar þjóðir hafa
búið við um áratugaskeið.
Víkjum nánar að lengingu skóla-
dagsins en í viðræðum við foreldra
hef ég heyrt nokkur mismunandi
sjónarmið á því máli.
Foreldrar í sveitum landsins sjá
ekki þörf á lengri skóladegi. Skóla-
aksturinn, allt að klukkustund
hvora leið, bætist við kennslutím-
ann svo að dagurinn er orðinn æði
langur þegar börnin koma heim.
Skólar í sveitum eru yfirleitt ein-
setnir, þ.e. öll börnin eru á sama
tíma í skólanum. Þar eru heitar
skólamáltiðir og skólinn er miðdep-
ill félagslífsins fyrir börnin. Nem-
endur eru fáir í hveijum bekk og
kennarinn getur því sinnt hveijum
og einum betur. Heimilisaðstæður
barnanna eru oftast aðrar en jafn-
aldrar þeirra í þéttbýli búa við. Þau
koma sjaldan að tómum kofanum
heima eftir að skóla lýkur.
Þessir fámennu sveitaskólar
hafa því ágætar forsendur til að
bjóða nemendum sínum kjörað-
stæður til náms, án lengingar
skóladagsins enda er algengt að
hann sé nú þegar frá kl 9 til 15
hjá eldri nemendum.
Dæmi um jákvætt framtak í
skólamálum má sjá t.d.í Reykhóla-
sveit og í Biskupstungum. Þar eru
yngstu nemendurnir í skólanum
eins lengi og þeir eldri. Þeir fá auk
lögbundinnar kennslu fjölbreytt
viðfangsefni af ýmsu tagi, s.s. tón-
listarkennslu auk að-
stoðar við heimanám.
Þarna hafa sveitarfé-
lögin aukið við kennsl-
una að eigin frum-
kvæði.
Á höfuðborgar-
svæðinu og á flestum
þéttbýlisstöðum
landsins eru aðstæður
allt aðrar og hinn
stutti skóladagur
barnanna skapar
margs konar erfið-
leika fyrir þau og for-
eldra þeirra. Því hafa
t.d. Reykjavíkurborg,
Hafnarfjörður, Garða-
bær og Seltjarnarnes
brugðið á það ráð
fjölga kennslustundum eða bjóða
lengri viðveru í skólanum. Foreldr-
ar hafa tekið þessari þjónustu feg-
ins hendi. Á Seltjarnarnesi og í
Fossvogsskóla eru foreldrar mjög
ánægðir með lengingu skóladags-
ins og börnin kvarta ekki. Kannan-
ir Heimilis og skóla á viðhorfum
foreldra benda eindregið í þátt átt
að á stærstu þéttbýlisstöðum lands-
ins mundi lenging skóladagsins
fram til kl. 14-15 hjá yngri nem-
endum vera kærkomin skipulags-
breyting.
Áðalrökin fyrir lengingu skóla-
dagsins eru þó menntarökin, nefn-
inlega þau að skólinn þarf meiri
tíma til að geta sinnt hlutverki sínu.
Hann getur það einfaldlega ekki á
þeim nauma tíma sem honum er
skammtaður í dag.
Ég mótmæli þeim fullyrðingum
að með óskum um lengingu skóla-
dags séu foreldrar að varpa ábyrgð-
inni á uppeldi barna sinna yfir á
skólann. Þvert á móti eru kröfur
flestra foreldra um betri og lengri
skóladag byggðar á umhyggju
þeirra fyrir velferð barnanna.
Kröfur flestra foreldra
um betri og lengri skóla-
dag, segir Unnur Hall-
dórsdóttir, er byggur á
umhyggju fyrir velferð
barnanna.
Skólinn er menntastofnun með
fjölþætt hlutverk. Honum er ætlað
að undirbúa börnin okkar undir líf
og störf í afar flóknu samfélagi
framtíðarinnar. Fái skólinn ekki
nægilegan tíma til að sinna því sem
af honum er krafist fer á verri veg.
Mín skoðun er sú að námsleiði
barna, aukin sérkennsluþörf og
slök útkoma of margra í samræmd-
um prófum eigi að hluta til rætur
að rekja til þess hve lítill tími er
til að glíma við verkefnin. Kennar-
ar verða að keyra bekkinn í gegn-
um námsefnið og sáralítið svigrúm
er til að sinna sérþörfum slakra
jafn sem dugmikilla.
Þeir sem ekki vilja fleiri kennslu-
stundir fyrir börn sín ættu kannski
að setjast niður með námsskrána
og skoða hvaða námsgreinum eða
verkefnum ætti að sleppa. Annað
hvort verður að fækka viðfangsefn-
um eða bæta við kennslustundum.
Ég er sannfærð um að foreldrar
almennt vilja góðan skóla og góða
menntun fyrir börnin sín. Einsetinn
skóli með lengdum skóladegi þar
sem blandað er saman leik og
starfi, bóklegu námi, verklegum
greinum, íþróttum, söng, dansi,
vettvangsferðum og tengslum við
atvinnulíf og aðra þætti samfélags-
ins er sjálfsögð krafa foreldra fyrir
hönd barna sinna. Fjölbreytt skóla-
starf af þessu tagi er ekki dýrara
fyrir samféiagið en það framboð
tónlistarnáms og fþróttaþjálfunar
sem mörg börn sækja en önnur
börn fara á mis við t.d. vegna efna-
hags foreldra.
Samfélagsbreytingar síðus"
áratuga hafa bitnað harkalega
börnunum okkar. Eigi þau að
gott veganesti út í lifið þurfa þ;
öðruvísi skóla og annan skólatín
en við foreldrar þeirra fengum. Þ;
eiga líka rétt á að við foreld
þeirra leggjum rækt við uppe
þeirra og sýnum þeim ást og hlýj
I sumum fjölskyldum er misbrest
á því að þessum gi-undvallarþörfu
barna sé sinnt en er þá ekki ei
brýnna að skólinn hafi tíma til
sinna lögboðnum skyldum sínun
Höfundur er formaður Heimilis
og skóla.
Þau styrktu Rauða kross íslands
ÞESSIR krakkar héldu hlutaveltu uýlega og varð ágóðinn 2.1
krónur sem þau létu renna til Rauða krossins. Þau heita Dari
Sandra og Jana Katrín.
Unnur
Halldórsdóttir
NEYÐARSÖFNUN FYRIR
FLOTTAFOLK FRÁ RÚANRA
Tekið á móti framlögum í síma 91-626722.
Gíróseðlar í bönkum og sparisjóðum.
Rauöi kross íslands
Þriggja Rétta
KvÖLDVÐmUR
Rjómalöguö
sjávarréttasúpa
Ristaáur karfi
með mango-appelsínusósu
Marenskaka með súkkulaöimús
og Grand Marniersósu
Verðkr. 1.960
Shólabní
Sími 62 44 55