Morgunblaðið - 04.08.1994, Side 36
36 FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Richard Pryor
hryllir við
endurminning-
um sínum
UW
Martröð
YNGRI bróðir Spikes Lee
heitir Cinque Lee og er að
reyna fyrir sér í leikstjóm og
handritasmíðum í Hollywood.
Hann aðstoðaði Spike við
handritsgerð myndarinnar
Crooklyn og handrit frá hon-
um gengur núna á milli kvik-
myndaveranna í Holiywood.
Ef það verður fyrir valinu
mun Spike framleiða hana og
Cinqué leikstýra. Cinqué seg-
ir að hugmyndin að sögu-
þræðinum hafi komið tii sín
í martröð: „Þetta er saga um
kvenhatara sem er bitinn af
kanínu með hundaæði. Hann
fer í dá og þegar hann vakn-
ar upp fimmtán mánuðum
síðar eru ailar konur á jörð-
inni dauðar... klámmyndir eru
sýndar látiaust... Enginn veit
hvað gerðist, en meðlimir trú-
arhreyfinga segja þetta hafa
verið refsingu mannkyns."
Óhætt er að taka undir það
með Cinque að um martröð
hafi verið að ræða.
► GRÍNLEIKARINN góðkunni
Richard Pryor er að skrifa sjálf-
sævisögu sína þessa dagana og
það er hreint engin skemmtiaf-
þreying. „Þegar ’eg rifja upp
atburði ævi minnar endurupp-
lifi ég atburði sem ég vildi held-
ur að væru gleymdir," segir
Pryor. Hann nefnir sem dæmi
þegar hann slóst við hnefaleika-
kappann Muhammed Ali á góð-
gerðarsamkundu fyrir löngu
síðan. Eg fæ enn martraðir þeg-
ar ég hugsa um högg Alis; þau
fóru svo nálægt mér að þyturinn
af þeim kastaði höfðinu á mér
fram og aftur. Ég prísa mig
sælan að vera ennþá á lífi.“
Richard Pryor þjáist af MS-
sjúkdómi sem lýsir sér í magn-
leysi og hreyfi-, tal- og sjón-
truflunum. Hann hefur einnig
þriðju gráðu brunasár á rúm-
lega helmingi likama síns eftir
að hafa kveikt í sér í kókaín-
vímu árið 1980. Það eru þó ekki
minningarnar um það sem
ásækja Pryor mest. „I mínum
huga er engin spurning um að
það eru konurnar," segir Pryor.
Burt Reynolds og
Dickinson standa
jafnt að vígi
►BURT Reynolds og Angie
Dickinson beruðu nekt sína í
kvikmyndinni „Sam Whiskey"
fyrir tuttugu og fimm árum.
„Það var
fyrsta nekt-
aratriðið
mitt,“ segir
Reynolds,
sem er orð-
inn 58 ára,
„og Dickin-
son ráðlagði
mér að taka-
því sem eðli-
legum hlut
að vera nak-
inn fyrir
framan kvikmyndatökuvélarn-
ar.“
Núna leika þau aftur saman ,að
þessu sinni í spennumyndinni
„The Maddening“, en tökum á
henni lauk nýlega í Flórída.
Þegar tökur hófust lét Reynolds
Dickinson, sem er 62 ára, vita
að ýmislegt hefði breyst síðan
síðast. „Síðast þegar ég vann
með þér var ég feiminn og bæld-
ur,“ varaði hann hana við.
„Núna er ég algjör villingur.
Dickinson svaraði að bragði: „Þá
stöndum við jafnt að vígi“.
Brúðkaup
Sextíu og þriggja ára
aldursmunur
ANNA Nicole Smith þykir
vera með fegurri konum.
BRÚÐHJÓNIN voru lukkuleg
eftir hjónavígsluna...
og kysstust rembingskossi.
TOPPFYRIRSÆTAN Anna
Nicole Smith, sem íslenskir
kvikmyndahúsagestir þekkja
úr myndinni Beint á ská 33 xh
giftist olíukónginum J. How-
ard Marshall II nýlega, en
auðæfi hans eru metin á 35
milljarða króna. Það vakti
óneitanlega athygli, að brúð-
guminn var sextíu og þremur
árum eldri en brúðurin, áttatíu
og níu ára gamall, og í hjóla-
stól. í brúðkaupsveislunni full-
vissaði hann þá ellefu gesti,
sem voru viðstaddir, að hann
dáðist svo sannarlega að eigin-
konu sinni. Það voru orð að
sönnu, enda hafði hann þegar
gefíð henni skartgripi að verð-
mæti sjötíu milljónum króna.
Eftir athöfnina kyssti Anna
eiginmann sinn rembingskoss
og hvíslaði að honum: „Bless
elskan, ég er farin til Grikk-
lands.“ Hvort hjónin hyggja á
sameiginlega brúðkaupsferð á
næstunni eða barneignir er
ekki vitað.
Viröingarfyllst,
Háskólabíó og Borgarbíó, Akureyri
A tnorgun
verður efnt til Fjögurra
brúðkaupa og einnar
jarðarfarar
„ÉG TEK dúkku dóttur minnar með mér hvar sem ég fer,“
segir Cybill Shepherd, „það hjálpar mér að halda tengslum
við fjölskyldu mína“.
Cybill Shepherd
farin að syngja aftur
LEIKKONAN Cybill Shepherd er
aftur farin að leika í söngleikjaupp-
færslum eftir brösótt gengi á áttunda
áratugnum. Síðast lék hún í söng-
leiknum „At Long Last Love“ árið
1975 og fékk vægast sagt hörmulega
dóma. f gagnrýni blaðsins Today
sagði: „Shepherd getur ekki sungið,
dansað né leikið". Þegar hún er spurð
af hveiju hún leggi höfuð sitt aftur
að veði, segist hún hafa þetta í blóð-
inu og að hún ráði hreint ekki við sig.
Shepherd er ekki ein um hituna,
því Barbra Streisand er líka nýstigin
aftur fram á sjónarsviðið og er á
tónleikaferðalagi um Bandaríkin.
„Það er skrítið, en ég og Barbra
gegnum í gegnum það sama á átt-
unda áratugnum og hún byrjaði líka
að syngja aftur á þessu ári. Þó að
CYBILL Shepherd á æfingu.
Fyrir aftan stendur Patty
móðir hennar, en Tom Ad-
ams tónlistarstjórnandi spil-
ar á píanó.
við höfum þekkst í tuttugu ár er
þetta hrein tilviljun. Ég hringdi ekki
í hana og sagði: „Heyrðu Barb, eig-
um við að leggja í hann aftur?““