Morgunblaðið - 04.08.1994, Qupperneq 40
40 FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 1994
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
Mm
FOLK
■ HAUKUR INGI Guðnason,
sem skoraði annað mark unglinga-
landsliðsins gegn Noregi í gær, er
sonur þjálfarans kunna, Guðna
Kjartanssonar frá Keflavík. Þetta
var fyrsti landsleikur Hauks.
I BJARNI Guðjónsson, sem leik-
ur einnig með unglingaliðinu, er son-
ur Guðjóns Þórðarsonar, þjálfara
KR.
B BARCELONA er í æfingabúð-
um í Hollandi og leikur á laugardag-
inn við PSV. Liðið lék á þriðjudaginn
við Groningen og gerði 5:5 jafn-
mBB tefli. Rúmeninn
prg Hagi klæddist þá
Kjartani L. peysu Barcelona í
Pálssyni fyrsta sinn og kunni
1 Hollandi vei vjg gig^ gerði tvö
mörk. Mesta athygli vakti þó ungur
piltur, Jordi Cruyff, sonur þjálfar-
ans, en hann gerði þrjú marka Barc-
elona.
B JORDI er talinn einn alefnileg-
asti knattspyrnumaður Evrópu, en
kemst ekki í lið Barcelona þar sem
pabbi hans, Johan Cruyff vill ekki
gefa honum tækifæri enn sem kom-
ið er.
B PSV Eindhoven keypti á þriðju-
daginn brasilíska knattspyrnumann-
inn Ronaldo, en hann er aðeins 18
ára gamall og þykir minna um margt
á Pele. Kaupverðið var tæpar 500
milljómr króna.
B MÖRG lið hafa verið á eftir
Ronaldo en hann ákvað að fara til
PSV bæði vegna orða Romaríos og
Johans Cruyffs sem sögðu gott
fyrir hann að byija þar áður en hann
færi til Italíu eða Spánar. Þetta
virðist vera sama leið og Romarío
fór á sínum tíma.
KNATTSPYRNA
Islenska drengjaliðið lagði
Norðmenn í fyrsta leiknum
ÍSLENSKA drengjalandsliðið í
knattspyrnu sigraði Noreg 2:1,
ífyrsta ieik sínum á Norður-
landamóti drengjalandsliða
sem hófst í Danmörku í gær.
Norðmenn skoruðu fyrsta mark-
ið eftir stundarfjórðungs leik
en íslenska liðið náði að jafna og
komast yfir áður en flautað var til
leikhlés. Enginn mörk voru síðan
gerð í síðari hálfleik. Mörk Islands
gerður þeir Árni Ingi Pjetursson
leikmaður með KR og Haukur Ingi
Guðnason leikmaður með ÍBK.
Ásgeir Elíasson þjálfari liðsins
sagði í samtali við Morgunblaðið
að leikurinn hefði verið ágætur hjá
strákunum. Hann sagði sigurinn
sanngjarnan, íslenska liðið hefði
reyndar verið taugaveiklað til að
byija með, en hefði náð að jafna
sig á því. Allir leikmennirnir nema
einn, Ámi Ingi Fjetursson, voru að
leika sinn fyrsta landsleik. Aðspurð-
ur sagði Ásgeir að strákarnir hefðu
allir staðið fyrir sínu og leikið vel,
en nefndi þó sérstaklega að Árni
Ingi hefði átt góðan leik.
I dag leikur íslenska liðið við
Englendinga sem taldir eru með
sterkasta liðið í riðlinum. Ásgeir
sagði að ensku strákarnir væru
bæði sterkir og fljótir og leikurinn
gegn þeim yrði því mjög erfíður. Á
laugardaginn leikur liðið síðan gegn
Dönum, sem einnig eru með sterkt
Árni Ingi Pjetursson.
lið. Á sunnudaginn verður síðan
leikið um sæti.
íslenska drengjalandsliðið lék ti!
úrslita á síðasta Norðurlandamóti
sem haldið var í Færeyjum en tap-
aði úrslitaleiknum á móti Norð-
mönnum með tveimur mörkum
gegn engu. Aðspurður hvort stefn-
an væri sett á úrslitaleikinn aftur
sagði Ásgeir að það væri alltaf
Morgunblaðið/Frosti
Haukur Ingi Guðnason.
óraunhæft að búast við slíku þegar
andstæðingarnir væru þjóðir eins
og Norðmenn, Danir og Englend-
ingar, en stefnan væri auðvitað allt-
af að gera sitt besta. Flestir leik-
mennirnir væru að stíga sín fyrstu
spor með landsliðinu og þetta mót
væri hugsað fyrst og fremst sem
æfingamót fyrir komandi Evrópu-
keppni.
Svíþjóð
sigraði
örugglega
Kvennalandslið íslands í knatt-
spyrnu skipað leikmönnum 20
ára og yngri tapaði í gær gegn Sví-
þjóð með 5 mörkum gegn einu á
Opna Norðurlandamótinu sem haldið
er í Þýskalandi.
íslenska liðið fékk tvö góð-færi
til að byija með leiknum sem ekki
nýttust og um miðbik hálfleiksins
gerðu sænsku stúlkurnar þijú mörk,
öll eftir slæm varnarmistök. Margrét
Ólafsdóttir skoraði eina mark ís-
lands í fyrri hálfleik, úr vítaspyrnu
eftir að brotið hafði verið á henni
sjálfri. Svíar bættu síðan tveimur
mörkum við í síðari hálfleik og inn-
sigluðu sigur sinn.
Logi Ólafsson þjálfari sagði að
hitinn hefði gert liðinu erfitt fyrir,
en um 35 stiga hiti var er leikurinn
fór fram. Varnarleikur liðsins hefði
verið slakur, og ekki bara öftustu
línunnar. Hann var þó bjartsýnn
fyrir leikinn gegn Finnum á föstu-
daginn. Sigur í þeim leik þýðir að
íslenska iiðið leikur um þriðja sætið
á mótinu.
golfmót
fyrir trésmíðameistara, múrarameistara,
pípulagningarmeistara, málarameistara og
veggfóðrarmeistara
haldið sunnudaginn 7. ágúst 1994 á
Kiðjabergi í Grímsneshreppi.
VEGLEG VERÐLAUN.
Skráning í símum 36977 og 31277.
Sími í golfskála 98-64495.
OPNA
REYKJALUNDAR-
MÓTIÐ
HÁFORGJAFARMÓT í
GOLFI
Laugardaginn 6. ÁGÚST 1994
Mótsstaður..: Skráning : Framkvæmd: Bakkakotsvöllur Mosfellsdal. Sími 668480 Fimmtudaginn 4. ágúst og Föstudaginn 5. ágúst klukkan 16,00 til 22,00 í síma 668480. 18 holu höggleikur, með og án forgjar, karla- og kvennaflokkur. Byijað að ræsa kh 8,00 Þátttökuréttur, kylfingar - forgjöf 20 og hærri. 1.2.og 3. verðlaun með og án forgjafar karla og kvennaflokki auk nándarverðlauna á par 3 brautum. Munið forgjafarskírteinin. Mótsgjald kr. 1.500
Styrktaraðili: Vinnuheimilið Reykjalundi
Golfklúbbur Bakkakots Mosfellsdal
HANDKNATTLEIKUR
Valsmenn fyrst
gegn nýliðum HK
Islandsmeistarar Vals í handknatt-
leik heíja titilvörnina gegn nýlið-
um HK að Hlíðarenda miðvikudag-
inn 21. september, en þá hefst Is-
landsmótið með 1. umferð í 1. deild
karla. Deildarmeistarar Hauka taka
á móti Stjörnunni, KA og Víkingur
leika á Akureyri, ÍR fær Aftureld-
ingu í heimsókn, bikarmeistarar FH
sækja Selfoss heim og KR og ÍH
mætast í Laugardalshöll.
1. deild kvenna hefst laugardag-
inn 1. október. íslandsmeistarar Vík-
ings taka á móti Haukum, Fylkir
og Valur mætast, ÍBV og Ármann,
Grótta og KR og Stjarnan og FH.
HANDKNATTLEIKUR
Fjórir
Svíar í
héims-
liðinu
Bengt Johansson, landsliðsþjálf-
ari Svía, hefur valið heimsliðið
í handknattleik, sem leikur gegn
Þýskalandi í Liibeck 8. september.
Leikurinn er ágóðaleikur fyrir börn
í Sarajevo.
Johansson valdi fjóra af leik-
mönnum sínum í heimsliðið, sem
er þannig skipað:
Markverðir Andrej Lavrow,
Rússlandi og Thomas Svensson,
Svíþjóð. Aðrir leikmenn: Jan E.
Jörgenson, DanmÖrku, Magnus
Wislander, Svíþjóð, Juan Alemany,
Spáni, Andrej Parashenko, Hvita-
Rússlandi, Wasili Kudinov, Rúss-
landi, Marc Baumgarter, Sviss, Irf-
Marc Baumgarter, skyttan snjalla
frá Sviss.
an Smajlagic, Króatíu, Pierre
Thorssen, Svíþjóð, Jackson Ric-
hardson, Frakklandi, Per Carlen,
Svíþjóð, Stefan Kretzschmar,
Þýskalandi og Erik Hajas, Svíþjóð.
í kvöld
Knattspyrna
1. deild karla:
Stjörnuvöllur: Stjarnan - ÍA...19
Kaplakriki: FH - Valur.........19
Vestm.ey.: ÍBV - Breiðablik....19
Keflavík: Keflavík - KR........19
■KR-klúbburinn gengst fyrir hóp-
ferð á leikinn. Lagt verður af stað
kl. 18 frá KR-heimilinu.
4. deild C:
Siglufj.: KS - Neisti H.........19
HELGARGOLF
Unglingameistaramótið
Unglingameistaramótið hefst á morgun í
Grafarholtinu og munu unglingarnir leika
fram á sunnudag.
Landsmót eldri kylfinga
Landsmót eldri kylfinga verður í Leirunni
og hefst í dag kl. 10 árdegis. Keppendur
eru 140 og mótinu lýkur á laugardag.
Húsavíkurmótið
Opna Volvo - B.K. móitð verður haidið á
Húsavík um helgina. Leiknar verða 36 hoi-
ur með og án forgjafar.
Keilir
Opna Kays-mótið verður hjá Keili á laugar-
dag. 18 holur með og án forgjafar.
Kjölur
Opna Stöðvar 2 mótið verður haldið ! Mos-
felisbænum á laugardag. 18 holur með og
án forgjafar.
Selfoss
Opna Citizen-mótið verður á Svarfhólsvelli
á laugardag. 18 holur með og án forgjfar.
Bakkakot
Opna Reykjalundarmótið verður á Bakka-
kotsvelli á laugardag.
Leiran
Bláalónsmótið verður í Leirunni á sunnu-
daginn. 18 holur með og án forgjafar.
Flúðir
Opna Límtrésmótið verður að Flúðum á
sunnudag. 18 holur með og án forgjafar.
Leiðrétting
í umijöllun um leik Þórs og FH i Morgun-
blaðinu sl. föstudag féllu niður nöfn nokk-
urra FH-inga í einkunnagjöf blaðsins vegna
mistaka. Þorsteinn Jónsson fékk |>ar eitt M
en átti að fá tvö og nöfn eftirtalinna leik-
manna féllu niður í upptalningu yfir þá leik-
menn sem fengu eitt M; Auðun Helgason,
Petr Mrazek, Ólafur H. Kristjánsson, Hrafn-
kell Kristjánsson og Drazen Podunavac.