Morgunblaðið - 26.10.1994, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 26.10.1994, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ . H Lét kon- urtaka lánin MAÐUR um fímmtugt er grun- aður um fjársvik fyrir á annan tug milljóna með því að hafa fengið allmargar konur til að taka fyrir sig lán eða ábyrgjast lán fyrir samtals á annan tug milljóna á undanfömum mán- uðum. Maðurinn, sem sjálfur er ógjaldfær og eignalaus, var úrskurðaður í 10 daga gæslu- varðhald vegna málsins nýlega en var látinn laus úr haldi í gær eftir að Héraðsdómur hafnaði kröfu RLR um framlengt gæsluvarðhald. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins er maðurinn grunaður um að hafa blekkt konumar til að taka lán og afhenda sér peningana sem hann hafi lofað að endurgreiða. í einhveijum tilvikanna er talið að um misneytingu hafi verið að ræða, þ.e.a.s. að mað- urinn hafí notfært sér bágindi, einfeldni eða fákunnáttu við- komandi eða það að hann var honum háður til að afla sér hagsmuna án þess að eðlilegt endurgjald kæmi fyrir. Sendiráðslóð- in auglýst í samráði við lóðarhafa SKIPULAGSNEFND Reykja- víkurborgar hefur ákveðið að auglýsa tillögu að breyttri land- notkun á lóð breska sendiráðs- ins við Laufásveg, í samráði við lóðarhafa. Skipulagsstjóm ríkisins hafnaði beiðni Borgarskipulags Reykjavíkur um breytta land- notkun á lóð breska sendiráðs- ins við Laufásveg 31, en þar stendur til að Bretar og Þjóð- veijar sameinist um byggingu sendiráðs. Sótt var um breyt- ingu á aðalskipulagi Reykjavík- ur og að landnotkun lóðarinnar yrði breytt úr svæði fyrir íbúða- byggð í svæði fyrir verslun og þjónustu. í bókun skipulags- stjómar segir að „með tilliti til þess að byggt er í grónu íbúðar- hverfi og fyrir liggur andstaða við framkvæmdina meðal ná- granna þá fellst skipulagsstjórn ekki á erindið". Lést í bílslysi STÚLKAN, sem lést í banaslysi á Fagradal síð- degis á mánu- dag, hét Kristín Fönn Ómarsdóttir, til heimilis að Bleiksárhlíð 2 á Eskifirði. Kristín Fönn var tæplega 16 ára, fædd þann 17. nóvem- ber árið 1978. Hannes vann Helg*a ÖNNUR umferð úrslitakeppni um íslandsmeistaratitilinn í skák fór fram í Vestmannaeyj- um í gærkvöldi. Hannes Hlífar Stefánsson vann Helga Ólafs- son í 35 leikjum með svörtu. í fyrstu skákinni í fyrradag gerði Hannes jafntefli við Jó- hann Hjartarson. Jóhann og Helgi Ólafsson tefla í dag og hefur Jóhann hvítt. FRÉTTIR Samþykkt bæjarstjórnar Hafnarfjarðar Mál listahátíðar undir- búið í hendur lögreglu BÆJARSTJÓRN Hafnarfjarðar samþykkti á fundi í gær að fela bæjarlögmanni að undirbúa mál vegna listahátíðar í bænum á síðasta ári í hendur Rannsóknarlögreglu og afla frekari gagna um málið ásamt bæjarendurskoðanda. Á þessari vinnu að vera lokið fyrir bæjarráðsfund í næstu viku og í framhaldi af því munu bæjar- yfirvöld taka ákvörðun um framhald málsins. Bæjarfulltrúar Alþýðuflokks sátu hjá í at- kvæðagreiðslu um málið. Þeir lögðu fram bókun þar sem m.a. segir að einstaka ákvarðanir eða fjárreiður Listahátíðar hf. beri vissulega að skoða og gera verði þá almennu kröfu til allra þeirra er njóti framlags bæjarsjóðs að umbeðnar skila- greinar um tiltekin verkefni sem styrkt eru séu skýrar. Hins vegar hafí forsvarsmenn meirihluta bæjarstjórnar reynt að gera alla aðila málsins tortryggilega og sérstaklega reynt að koma höggi á Guðmund Árna Stefánsson fyriyerandi bæjarstjóra. Þessu vísaði Magnús Jón Ámason bæjarsjóri á bug í umræðum um málið. I samþykkt bæjarstjómar segir að endurskoð- unarskýrsla um listahátíðina sé samfelldur áfell- isdómur yfir allri fjármálastjóm hátíðarinnar. Bæjarstjóm telji að samningar við bæjarfélagið Bæjarfulltrúar Alþýðu- flokks sátu hjá við at- kvæðagreiðslu um málið hafi verið brotnir, þar á meðal samningur við stjórn Listahátíðar í Hafnarfírði hf. frá mars 1993 og samningur við Arnór Benónýsson fjár- málastjóra hátíðarinnar frá febrúar 1993 en þessir aðilar hafí ekki staðið við samninga. Þá segir að fjölmargt í skýrslunni hljóti að vekja undmn og reiði bæjarstjómar og bæjarbúa allra enda sé ekki annað sýnna en að um lög- reglumál sé að ræða. Magnús Jón Ámason varp- aði fram þeirri spurningu á fundinum hvað og hvern ætti að kæra því málið væri flókið. Um væri að ræða bæjarfélag annars vegar og fyrir- tæki hins vegar sem átti að taka að sér að reka ákveðið verk fyrir bæjarfélagið. Bæjarfélagið hafi síðan gripið inn í og sjálft farið að reka verkið. Magnús sagði að ef sveitarfélög vildu láta rannsaka fjárreiður hjá sér, þá yrðu þau að leita til ráðuneytis félagsmála. „Þangað sé ég litla ástæðu til að vísa þessu máli á þessu stigi,“ sagði Magnús Jón. Framlög umfram áætlanir MagTiús Jón sagði á bæjarstjórnarfundinum að greidd framlög til listahátíðar úr bæjarsjóði hefðu verið mun hærri en fjárhagsáætlun bæjar- ins sagði til um, en Guðmundur Árni Stefánsson hefur sagt að greiðslur til hátíðarinnar hafi ver- ið heimilaðar í samræmi við fjárhagsáætlun og endurskoðaða fjárhagsáætlun. Magnús Jón sagði að þann 23. febrúar 1993 hefði fjárhagsáætlun bæjarins verið samþykkt og þá verið ráðgerðar 10 milljónir króna til lista- hátíðar. í mars sama ár hefði Guðmundur Árni Stefánsson skrifað undir samning við Listahátíð í Hafnarfirði hf. um að framlag bæjarins verði 16 milljónir. í lok maí 1993 var að sögn Magnús- ar Jóns búið að greiða 11,4 milljónir úr bæjar- sjóði, í lok júní 25 milljónir umfram tekjur af hátíðinni, í lok júlí 30,5 milljónir umfram tekjur og í lok nóvember var búið að greiða 34 milljón- ir umfram tekjur. Hinn 30. nóvember endurskoð- aði meirihlutinn í bæjarstjóm fjárhagsáætlun og samþykkti að heimila þessar greiðslur. Fæðingar- heimilið opni í desember UNNIÐ er hörðum höndum að Iagfæringn Fæðingarheimilisíns við Eiríksgötu um þessar mund- ir. Davíð A. Gunnarsson, for- stjóri Ríkisspítalanna, segir að stefnt sé að því að taka í notkun 16 til 18 rúm fyrir fæðandi kon- ur á annarri og þriðju hæð húss- ins í byijun desember. Ekki hefur enn verið ákveðið hvaða starfsemi verður í neðri hluta hússins. En ein hugmyndin er að mæðraskoðun fari þar fram. Neysla áfengis minnki um 25% Á ALÞINGI hefur verið Iögð fram tillaga til þingsályktunar um að rík- isstjórninni verði nú þegar falið að gera áætlun um hvernig draga megi úr áfengisneyslu um 25% fram til ársins 2000, en það markmið Al- þjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar samþykkti ríkisstjórnin á árinu 1986. Flutningsmenn er úr öllum stjórnmálaflokkunum. Breytingar á kjörvaxtaflokkum Landsbanka íslands Vaxtaálag hækkað um allt að 0,5% A að hvetja lántakendur til að bæta fjárhagsstöðu sína LANDSBANKINN hækkaði sl. föstudag álag í þremur hæstu álagsflokkum í kjörvaxtakerfi sínu um allt að hálft prósentustig. Ólaf- ur Örn Ingólfsson, forstöðumaður hjá Landsbankanum, sagði að ekki væri um almennar vaxtabreytingar að ræða heldur eingöngu endur- skoðun á efstu álagsflokkum í kjör- vaxtakerfinu í þeim tilgangi að bæta kjör útlána og hvetja lántak- endur til að bæta fjárhagslega stöðu sína. Landsbankinn raðar viðskipta- vinum sínum í 9 kjörvaxtaflokka eftir lánstrausti viðkomandi aðila. Álag í 7. flokki hækkar um 0,05%, í 8. flokki er hækkunin um 0,30% og í 9. flokki er hækkunin 0,50%. Eftir breytinguna greiða lántak- endur sem lent hafa í hæsta útláns- flokki óverðtryggðra skuldabréfa- lána 12,25% vexti í stað 11,75% áður. Hæstu verðtryggðu vextir hækka úr 9,70% i 10,20% og hæstu forvextir víxla fara úr 12,25% í 12,75%. Álag hækkaði seinast í júní Landsbankinn gerði talsverðar breytingar á kjörvaxtaálagi sínu 21. júní sl. en þá hækkaði álag á kjörvexti útlána um 0,4-1,25%, mismunandi eftir kjörvaxtaflokk- um. Aðspurður sagði Ólafur að þær breytingar hefðu ekki dugað til í efstu flokkunum til að hvetja lán- takendur til að bæta stöðu sína með það fyrir augum að fá betri útlánskjör. Við endurskoðun á þessu kerfi hefði mönnum þótt rétt að gera breytingar á efstu álagsflokkunum og sagði hann að bankinn myndi halda áfram að endurskoða þetta kerfi til hækkun- ar eða lækkunar eftir því sem ástæða þætti til. Seðlabankastjóri spyr hvort hætta sé á bankakreppu Steingrímur Hermannsson seðlabankastjóri ijallaði um vaxta- mál í ræðu á þingi BSRB í gær. I fréttum útvarps og sjónvarps kom fram, að hann hefði gagnrýnt háa vexti í bankakerfinu. Hann sagði að bilið á milli bankavaxta og vaxta af ríkisbréfum bæði á lang- tíma- og skammtímavöxtum hefði farið stórlega vaxandi og væri eitt alvarlegasta einkennið í íslenskri vaxtamyndun. Steingrímur benti einnig á hætt- una af því að skuldir einstaklinga og heimila færu sífellt vaxandi og spurði: „Gætu vaxandi skuldir heimilanna valdið nýrri banka- kreppu hér á landi?“ Einnig vék Steingrímur að hækkun á hæstu álagsvöxtum Landsbankans sl. föstudag og sagði: „I því lenda einstaklingarnir og það sem er umhugsunarefni er að í hæstu flokkunum lenda þeir einstaklingar sem eiga erfiðast með að greiða. Þeir eru metnir lélegustu lántakendurnir,“ sagði Steingrímur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.