Morgunblaðið - 26.10.1994, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 1994 25
AÐSEIMPAR GREIIMAR
Þjóðarátak fyrir þjóðbókasafnið
Gefum húsinu
stóra sál
FYRIR nokkru var
ég á gangi um Vest-
urbæinn með útlendri
vinkonu minni og
benti henni á stóru
nýbygginguna sem
risin er þar sem áður
var Melavöllurinn.
„Hér verður þjóðar-
bókasafnið okkar til
húsa,“ sagði ég stolt.
„Ég veit það,“ sagði
vinkona mín þreytu-
lega, „þú hefur oft
sagt mér það áður.“
Þetta var nefnilega
ekki fyrsta heimsókn
hennar til Reykjavík-
ur. Og skyndilega varð
mér ljóst að allar götur síðan Þjóð-
arbókhlaðan varð sýnileg og
áþreifanleg þarna vestur í bæ hef
ég hugsað hlýlega til þessarar
byggingar og beðið þess með
óþreyju að dyr hennar lykjust upp.
Nú bendir allt til þess að næst
þegar vinkonan heimsækir mig
geti ég boðið henni að ganga með
Oft var þörf en nú er
nauðsyn, segir
Ingibjörg Haralds-
dóttir, sem hvetur fólk
til samátaks með
stúdentum í þágu
þjóðarbókasafns okkar.
mér inn um þær dyr og skoða
þetta stóra, fallega hús innanfrá.
Ég sé það fyrir mér fullt af
bókum og listaverkum og fólki á
öllum aldrei. Fólki sem á þangað
ýmis erindi, fólki í leit að upplýs-
ingum, þekkingu, fræðslu,
skemmtun, fólki sem hefur unun
af bókmenntum. Ungu fólki sem
er að búa sig undir lífsstarfið, eldra
fólki sem hefur lokið störfum sín-
um í þágu þjóðfélagsins og hefur
því betri tíma en áður til að dvelja
í heimi bókanna. Alls konar fólki.
Ég sé fyrir mér hús sem er allt
í senn: friðsælt afdrep í erli dags-
ins, musteri menningar, vísinda
og lista, og nútímaleg upplýs-
ingamiðstöð sem nýtist öllum
landsmönnum. Hús sem gegnir
margþættu hlutverki og skiptir
okkur öll miklu máli.
Stundum er það haft á orði að
við íslendingar teljum okkur geta
leyst flest vandamál með stein-
steypu. Þá er kannski verið að ýja
að því að við hugsum meira um
umbúðir hlutanna en eiginlegt inn-
tak þeirra. Þjóðarbókhlaðan er
óneitanlega stórt hús og glæsilegt
- en það sem gefur henni gildi
er auðvitað innihaldið, fremur en
umbúðimar. Bækurnar í hillunum,
hugbúnaðurinn og skjölin í tölvun-
um. Hugvitið og fróðleikurinn,
Viðgerðir
á öllum tegundum
af töskum.
Fljót og góð þjónusta.
TÖSKU-
VIÐGERÐIN
VINNUSTOFA SlBS
Ármúla 34, bakhús
Síml 814303
vinnan og listin. Arfur
kynslóðanna, saga
okkar og menning.
Þjóðarbókhlaðan
hlýtur að verða hús
með stóra sál - ef
þjóðin ber gæfu til að
þekkja sinn vitjunar-
tíma. Ef hún sér til
þess að hillurnar fyll-
ist af bólkum handa
fróðleiksþyrstu fólki
og unnt verði að halda
safninu lifandi með
nýjum aðföngum.
Gróskumikil og lifandi
bókasöfn eru lífsnauð-
syn hverri þjóð sem
vill kalla sig menning-
arþjóð. Sú staðreynd breytist ekki
þótt tæknin bjóði stöðugt upp á
ný form, bækur og rit víki fyrir
tölvudiskum og geisladiskum og
upplýsingar verði sífellt aðgengi-
legri þeim sem heima sitja yfir
sínum tölvum. En það verður
brýnna en nokkru sinni fyrr að
fylgjast með, dragast ekki aftur
úr öðrum þjóðum í þeirri hröðu
þróun sem við erum þátttakendur
í hvort sem okkur líkar betur eða
verr.
Oft var þörf en nú er nauðsyn
- við þurfum að standa myndar-
lega að málum þegar þjóðarbóka-
safnið tekur til starfa í Þjóðarbók-
hlöðunni. Líti nú hver í eigin barm
og spyiji sjálfan sig. Hvað get ég
lagt af mörkum til þess að tryggja
börnum mínum og barnabörnum
aðgang að því besta sem þessi
þjóð hefur skapað, hvað get ég
gert til að tryggja þeim menning-
arlegt og fagurt mannlíf í framtíð-
inni?
Höfundur er formaður
Rithöfundasambands Islands.
Duga vasa-
peningamir
ekkiút
vikuna?
NOTAÐU
EITTHVAB
AF PEIM í
HAPPAPRENNUR
PA0 C3ÆTI
DUGAEJ!
— HEFUR VINNINGINN!
Ingibjörg
Haraldsdóttir
Kosnmgaskrifstofa Ara Edwald er ad Hafnarstncti 7 n” er opin aUa daf*a
frá 10 til 10. Símar skrijstofiumur eru: 2 40 25 og 2 40 65. Fax: 2 40 79
Ungt fólk telur um 40% kjósenda í Reykjavt'k ogþað þarf að
eiga fulltrúa á framboðslista Sjálfstœðisflokksins. Rödd
þess verður að heyrast á Alþingi þegar stefnan verður mörkuð
til nœstu a/dar. Það er kostur fyrir Sjálfstceðisflokkinn að geta
boðið upp á ungan mann með þá reynslu sem Ari Edwald
hefur og því hvetjum við alla til að styðja hann í 7. sœtið.
-Stuðn ingsnicnn
PowerBook 150
Við bjóðum nú nýjustu fartölvuna frá Apple,
Macintosh PowerBook 150 með 4 Mb
vinnsluminni og 120 Mb harðdiski.
Tölvunni fylgir Claris Works 2.1, fjölnota
forrit sem samanstendur af ritvinnslu, töflu-
reikni, teikniforriti, gagnagrunni, samskipta-
forriti og listmálunarforriti, MacLink Plus
7.5, sem les og skrifar MS-DOS-skjöl,
Stýrikerfi 7.1 og fleiri forrit.
PowerBook 150-fartölvan hentar öilum sem
þurfa á öflugri tölvu að halda og meðfæri-
legri, því hana má taka með sér nánast
hvert sem er. Hún er því kjörin hvort sem
er fýrir skrifstofuna, skólann eða heimilið.
Verð PowerBook-tölvunnar ásamt hug-
búnaðinum er 143.158,- kr. eða aðeins
136.000, mm kr. stgr.
Eitt blab
fyrir alla!
JftovgMHÍÍJlíibih
- kjarni málsins!