Morgunblaðið - 26.10.1994, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 26.10.1994, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ - FRÉTTIR Samstarfsnefnd borgarinnar með Samtökum iðnaðarins Auglýst eftir hönnun innréttinga Fimm milljónir til verkefnisins BORGARRÁÐ hefur samþykkt að tillögu samstarfsnefndar með Samtökum iðnaðarins að auglýst verði eftir hönnuðum, er leggi fram tillögur að innréttingum í íbúðir. Jafnframt hefur borgarráð sam- þykkt fimm milljón króna fjárveit- ingu til verkefnisins. Lagt er til að úr hópi hönnuðana verði valdir fimm umsækjendur sem leggi fram tillögur að innrétt- ingum í íbúðir gegn greiðslu. Síðan verði valinn einn hönnuður og hon- um falið að þróa sína hugmynd og fullhanna. Eftir smíði frum- gerðar verður smíðin boðin út á almennum markaði. Fram kemur að áætlaður kostn- aður sé 5 milljónir króna, þar af 800 þúsund á þessu ári. Verkefn- inu verður stýrt af verkefnisstjórn sem samstarfshópurinn hefur sett á laggirnar. í bókun borgarfulltrúa Sjálf- stæðisflokksins kemur fram að til- lagan sé dæmi um árangursríkt samstarf Reykjavíkurborgar við samtök byggingaraðila, hönnuða og launþegafélaga innan bygging- ariðnaðarins, sem komið var form- lega á í maí síðastliðnum af þáver- andi meirihluta Sjálfstæðismanna, sbr. bréf borgarstjóra til borgar- ráðs 9. maí sl. Mikilvægt sé að þessu samstarfí verði haldið áfram. Morgunblaðið/Sverrir Stúlkur læra skákfræðin svæðinu og Akranesi. Kennarar voru stórmeist- ararnir Helgi Áss Grétarsson, Jón L. Árnason og Margeir Pétursson og alþjóðameistarinn Þröstur Þórhallsson. UM HELGINA stóð Skákskóli íslands fyrir nám- skeiði fyrir stúlkur í húsnæði skólans í Faxafeni 12, Reykjavík, og mættu nílján stúlkur á aldrin- um 9-16 ára, sem búsettar eru á Reykjavíkur- VR undirbýr kjarastefnuna á starfsgreinafundum Samið fyrir hverja starfsgrein um sig FORYSTUMENN Verzlunarmannafélags Reykjavíkur hófu í gær röð starfsgreinafunda með fulltrúum einstakra starfsgreina innan félagsins um stöðu kjaramála og mótun kjarastefnunnar vegna komandi kjara- samninga. Að sögn Magnúsar L. Sveinssonar mun VR í framhaldi af þessu svo óska eftir þeirri breytingu við viðsemjendur sína að næstu kjarasamningar verði gerðir eftir starfsgreinum. Blóðbankinn Sveinn Guð- mundsson yfirlæknir SVEINN Guðmundsson læknir hef- ur verið settur yfírlæknir Blóðbank- ans frá 1. janúar á næsta ári. Ólaf- ur Jensson, nýverandi yfirlæknir, lætur af störfum vegna aldurs. Sveinn Guð- mundsson er fæddur á Siglu- firði 25. nóvember árið 1957. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólan- um við Hamrahlið árið 1976 og loka- prófi frá lækna- deild Háskóla ís- lands 1982. Sérnám í blóðbanka- og ónæmis- fræði stundaði Sveinn við háskóla- sjúkrahúsið í Uppsölum á árunum 1986 til 1993 og varð sérfræðingur þeim greinum árið 1990. Sveinn lauk doktorsprófí sumarið 1993 og hefur verið starfandi lækn- ir í Blóðbankanum frá því í október sama ár. „Við erum búnir að halda tvo fundi af níu sem við ætlum að halda í vikunni með fulltrúum ein- stakra starfsgreina. Við höfum komið upp skipulagi í öllum starfs- greinum þar sem fólkið hefur kos- ið sér fulltrúa, sem verða tengilið- ir milli okkar. Við erum að boða þetta fólk á fundi til að kynna stöðuna í kjaramálum og fara yfir bæði hvers konar form við munum óska eftir í samningum og einnig til að ræða hvaða möguleikar eru á kjarabótum í væntanlegum samningum,“ sagði Magnús. Við gerð starfsgreinasamninga yrði tekið mið af afkomu í einstök- um starfsgreinum að sögn Magnúsar en félagar í VR starfa í apótekum, tryggingafélögum, byggingarvöruverslunum, stór- mörkuðum, iðnfyrirtækjum, ferða- þjónustu, flutnings- og olíufélög- um, bfla- og vélaverslunum og heildverslunum. Launakönnun á vinnustöðum Verslunarmannafélagið er einn- ig að undirbúa launakönnun á vinnustöðum til að fá mynd af raunverulegum launagreiðslum innan fyrirtækjanna. Er stefnt að því að niðurstöður hennar liggi fyrir í byrjun nóvember. Magnús sagði of snemmt að segja til um hvaða kröfur VR- félagar myndu leggja höfuðá- herslu á í komandi kjarasamning- um. „Ég heyri að fólk leggur mikla áherslu á að verðbólaga haldist niðri og vextir verði lágir, þannig að sá stöðugleiki sem verið hefur haldist og ekkert verði gert sem stefni honum í hættu. Engu að síður horfa menn til þess að launa- taxar fyrir ófaglegt fólk eru á bil- inu 43-60 þúsund krónur á mán- uði, sem eru langt undir því sem fólk getur lifað af. Vandamálið er að finna leið til þess að hækka þessa taxta án þess að sú hækkun fari í gegnum allt launakerfíð í landinu og framkalli verðbólgu,“ sagði hann. Nýr meirihluti hefur tekið við völdum í bæjarstjórn Vesturbyggðar BÆJARFULLTRÚAR í fráfar- andi meirihluta í bæjarstjórn Vesturbyggðar hafa mjög ólík við- horf til þess hvemig meirihluta- samstarfíð gekk þá fjóra mánuði sem það varði. Bæjarfulltrúar B- lista og F-Iista segja að samstarf- ið hafi gengið vel, en Ólafur Arn- fjörð, bæjarstjóri og fulltrúi Al- þýðuflokksins, segir að stöðugur ófriður hafí verið innan meirihlut- ans. Málefnasamningur Sjálfstæðis- flokks og Alþýðuflokks var sam- þykktur á bæjarstjórnarfundi í Vesturbyggð í gær. Að meiri- hlutanum standa fjórir fulltrúar Sjálfstæðisflokks ogtveir fulltrúar Alþýðuflokks. I minnihluta eru tveir framsóknarmenn og einn fulltrúi F-lista, óháðra. Fulltrúar fráfarandi meirihluta lögðu fram bóknarir á bæjarstjórn- arfundinum. Ólafur Arnfjörð segir í sinni bókun að stöðugur ófriður Agreimngur um hvort um ágrein- ing var að ræða hafí verið um stjórn bæjarmálefna að til þess að ég sem fram- í Vesturbyggð þá fjóra mánuði kvæmdastjóri hins nýja sameinaða sem liðnir séu frá kosningum. sveitarfélags Vesturbyggðar næði Oddviti bæjarstjómar, Einar Páls- fram þeim markmiðum sem ég syni bæjarfulltrúa F-lista, hafí setti mér í upphafi yrði að verða ekki sinnt hlutverki sínu sem breyting hér á. Val mitt stóð því sáttasemjari heldur hafí hann efnt um að segja af mér sem bæjar- til ófriðar, nú síðast við bæjar- stjóri og láta verkefnið frá mér stjórnarmenn í nágrannasveitarfé- - fara eða beijast til þrautar og Iaginu. freista þess að mynda sterkan „Það varð því niðurstaða mín meirihluta í bæjarstjóm Vestur- byggðar, sem næði fram þeim markmiðum sep verður að ná,“ segir í bókun Ólafs. Samstarfið hnökralaust Magnús Bjömsson og Anna Jensdóttir, bæjarfulltrúar Fram- sóknarflokks, segja að engir erfið- leikar hafí verið í samstarfinu, hvorki varðandi markmið eða Ieið- ir. Þeir segjast líta svo á að Al- þýðuflokkurinn hafi, sem forystu- afl í bæjarstjóminni, fullkomlega náð fram sínum málum. Einar Pálsson segir í bókun sinni að hann kannist ekki við samstarfsörðuleika milli sín og Olafs Arnfjörðs. Samstarfíð hafí verið hnökralaust og með ágætum. Hann segir að dýpri ástæður hljóti að liggja á bak við þessa ákvörð- un. Einar segir í bókuninni að sú breyting sem orðið hafí í bæjar- stjórn Vesturbyggðar hafi verið undirbúin á laun suður í Reykjavík. Ein far- símalegnnd \ lækkar hi á * P&S Veitum þeim þjónustu sem versla við aðra PÓSTUR- OG SÍMI hyggst lækka verð á GSM-farsmímum frá Ericson innan tíðar og segir Gylfi Már Jónsson, tæknifræð- ingur og yfirmaður innkaupa- deildar P&S, að lækkunin stafi af breytingu á innkaupsverði þar sem framleiðandi hafi tilkynnt verðlækkun. Símar frá Hagenug og Motorola sem verslunin Bónus hefur selt á lægra verði en P&S muni ekki lækka að óbreyttu. Gylfi Már segir að ekki sé búið að ákveða hvenær síminn frá Eric- son muni lækka. Birgðastaða hafi einhver áhrif á tímasetninguna, en búast megi við lækkun á næstu dögum og þá í samræmi við þá lækkun sem átt hefur sér stað hjá íslenskum fjarskiptum hf. sem m.a. selur sömu merki, eða um 20% Hann segir að þrátt fyrir að ekki sé útlit fyrir lækkun á verði Motorola og Hagenug síma, megi minna á að fyrirtæki veiti mismik- inn staðgreiðsluafslátt af vörum sínum. Þjónustan sé einnig mis- munandi eftir söluaðilum. Viðgerð eða þjónusta greidd fullu verði Aðspurður um hvort P&S muni veita þeim þjónustu sem kaupi farsíma frá Bónus eða öðrum aðil- um ef eftir því er leitað, segir hann svo vera en hins vegar þurfi i viðkomandi að greiða viðgerð eða aðra þjónustu fullu verði. „Þeir sem kaupa síma annars staðar verða jafnframt að útvega sér ábyrgð á búnaðinn þar, enda tök- um við enga ábyrgð á því sem aðrir selja og veitum ekki þjónustu á ábyrgðartíma nema gegn fullri greiðslu. Almennur ábyrgðartími er eitt ár en þráðlaus búnaður krefst almennt meiri þjónustu en annar búnaður vegna smæðar og fleiri atriða,“ segir Gylfi Már.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.