Morgunblaðið - 26.10.1994, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 1994 17
ERLEIMT
I ;
Minnast stjómarandstöðuleiðtoga
STJÓRNMÁLALEIÐTOGAR í Sri
Lanka votta minningu helsta
frammámanns stjórnarandstöð-
unnar, Gamini Dissanayake, virð-
ingu sína í gær. Sprengjutilræði
varð honum og rúmlega 50 öðrum
að bana í fyrradag. Ekkja hans,
Srima, ákvað í gær að verða við
óskum flokksmanna Dissanayeke
og bjóða sig fram í forsetakosn-
ingum í stað hins látna eigin-
manns síns en þær verða eftir
tvær vikur. Lögregla hefur dreift
ljósmynd sem tekin var á
sprengjustaðnum. Vona yfirvöld
að einhver beri þar kennsl á tam-
ílska konu sem talin er hafa borið
sprengjuna á sér innanklæða.
Mótmælendur
reiðubúnir að
ræða við IRA
New York. Reuter.
NORÐUR-írskir stjórnmálamenn, sem tengjast hryðjuverkasamtökum
mótmælenda, sögðust á mánudagskvöld vera reiðubúnir til viðræðna við
Sinn Fein, stjómmálaarm írska lýðveldishersins. Lýstu stjórnmálamennirn-
ir þessu yfir á fundi með bandarísku utanríkismálastofnuninni.
„Ég viðurkenni að nú verðum við
að setjast niður, gleyma hinu liðna,
og gera tilraun til að leggja grund-
völl að nýrri og spennandi framtíð,“
sagði Gary McMichael, úr Lýðræð-
isflokki Norður-írlands. Viður-
kenndi McMichael að það yrði erfitt
að sitja andspænis Gerry Adams,
leiðtoga Sinn Fein, en IRA myrti
föður McMichaels.
Sendinefnd sex stjómmála-
manna, sem aðstoðuðu við að koma
á vopnahléi mótmælenda á Norður-
írlandi, er nú í Bandaríkjunum og
fundar í Boston og Washington í
vikunni. Meðal nefndarmanna er
Augustus Spence, dæmdur morð-
ingj, sem er orðinn talsmaður friðar
og las upp vopnahlésyfirlýsingu
mótmælenda 13. október sl.
Treysta hlutleysi Clintons
Utanríkismálastofnunin er sú
sama og bauð Gerry Adams til
Bandaríkjanna í febrúar sl. Á fundi
hennar og N-íranna kváðust mót-
mælendur þurfa aðstoð, ekki aðeins
fjármagn. Byggja þyrfti upp at-
vinnufyrirtæki og fjölga störfum.
Sagði einn mótmælendanna að
Bandaríkin hefðu hlutverki að
gegna í málefnum Norður-írlands,
sem framvörður lýðræðis í heimin-
um. Kváðust mótmælendur vænta
þess að stjórn Bills Clintons forseta
gerði ekki upp á milli mótmælenda
og kaþólikka.
Ræða við Rússa um
nýja markalínu
Ósló. Morgunblaðið.
Norskir iðnrekendur mæla með samþykki í þjóðaratkvæði
Óttast missi 100.000
starfa utan ESB
Ósló. Reuter.
NORÐMENN og Rsar eru orðnir
sammála um að hefja að nýju við-
ræður um hvar draga beri marka-
línu milli ríkjanna í Barentshafi.
Viðræðumar munu hefjast í janúar.
Bjorn Tore Godal, utanríkisráð-
herra Noregs, og Andrej Kozyrev,
utanríkisráðherra Rússlands, undir-
rituðu minnisblað þessa efnis á
fundi á mánudag. Fundur ráðherr-
VOPNAÐIR flokkar hútúa og tútsa
fara enn um rænandi og myrðandi
í Suður-Rúanda að sögn hjálpar-
starfsmanna á vegum Sameinuðu
þjóðanna. Þá eru fréttir um, að
menn í herklæðum hafi myrt 54
rúandíska flóttamenn í grannland-
inu Norður-Búrúndí en þar er einn-
ig krytur milli sömu þjóða, hútúa
og tútsa.
Fyrstu vikurnar eftir sigur Föð-
urlandsfylkingar tútsa á stjórnarher
hútúa var allt sæmilega kyrrt en
nú virðast manndrápin vera að auk-
ast aftur. Herlæknar á vegum SÞ
gera æ oftar að sámm manna, sem
anna var haldinn í landamærabæn-
um Kirkenes í tilefni hátíðarhalda
vegna þess að fimmtíu ár em liðin
frá frelsun Finnmarkar í síðari
heimsstyrjöld.
Ráðherramir undirrituðu að auki
samning um samstarf á mörgum
sviðum og sagði Kozyrev samstarf
ríkjanna mjög gott.
orðið hafa fyrir skoti eða verið
særðir með sveðjum, og fréttir em
um nýtekna fjöldagröf við bæinn
Butare.
Skæruhemaður hútúa
Vitað er, að hópar hútúmanna
hafa ráðist á og drepið aðra hútúa
og telja sumir eftirlitsmenn SÞ, að
þar sé um að ræða merki um skæm-
liðastarfsemi, sem 'beinist í fyrstu
að hófsömum hútúmönnum og ein-
angruðum varðstöðvum tútsí-
manna. Meira en milljón hútú-
manna eru í útlegð og þar á meðal
mestur hluti stjórnarhersins fyrr-
verandi.
HÆTTA er á, að 100.000 störf í
norskum iðnaði glatist á næstu fjór-
um ámm verði aðild að Evrópusam-
bandinu, ESB, hafnað í þjóðarat-
kvæðagreiðslunni í Noregi 28. nóv-
ember nk. Kemur það fram í
skýrslu, sem samtök norskra iðn-
rekenda og viðskiptalífsins hafa
gefið út og birt var í gær.
Skýrslan var aðallega unnin í
ágúst, þ. e. áður en Finnar sam-
þykktu ESB-aðildina, og var það
skoðun langflestra forráðamanna í
fyrirtækjum, að samkeppnisstaða
þeirra myndi stórversna án aðildar
að ESB og einkum ef Svíar og
Finnar gerðust aðilar.
Hættulega háðir olíunni
í opnu bréfí samtaka iðnaðarins
til Gro Harlem Bmndtland, forsæt-
isráðherra Noregs, segja þau, að
„hagvöxtur í Noregi og þar með
atvinnustigið og velferðin muni ráð-
ast mjög af úrslitum þjóðarat-
kvæðagreiðslunnar 28. nóvember“
og Svein Aaser, forseti samtak-
anna, segir, að norskt nei muni
gera landsmenn hættulega háða
olíunni. Þá telur hann, að Evrópska
efnahagssvæðið, EES, muni ekki
verða nema nafnið tómt með Norð-
menn og íslendinga eina innan-
borðs.
Vöxturinn yrði erlendis
I könnuninni kom fram, að for-
svarsmenn 75% fyrirtækja, einkum
smærri fyrirtækja, óttuðust minni
fjárfestingar í Noregi án ESB-aðild-
ar en ekki er talið líklegt, að staða
PAULA Corbin Jones, sem sakað
hefur Bill Clinton Bandaríkjafor-
seta um að hafa sýnt sér kynferðis-
lega áreitni, fullyrti í gær að hún
hefði sannanir fyrir því.
Jones hélt blaðamannafund í gær
þar sem hún veifaði umslagi með
stórra samsteypna á borð við Norsk
Hydro og Kvaerner breytist mikið.
„Velta okkar myndi ekki minnka,
heldur velta undirverktaka okkar,“
sagði Diderik Schnitler, fram-
kvæmdastjóri hjá Kvaemer. „Þeir
yrðu þá erlendir, ekki norskir, enda
myndi vöxtur fyrirtækisins eiga sér
stað utan landsteinanna.“
Þær iðngreinar, sem eru taldar
vera í mestri hættu verði Noregur
ekki aðili að ESB, eru trjávöruiðn-
aðurinn, framleiðsla bílavarahluta,
efnaiðnaður og fiskvinnsla.
staðfestum vitnisburði sem hún
fullyrti að sannaði fullyrðingar sín-
ar um að Clinton hefði flett sig
klæðum að henni viðstaddri. Lög-
menn Jones neituðu hins vegar að
láta nokkuð frekar uppi um inni-
hald umslagsins.
Vargöld á ný í Rúanda
Kibeho, Nairobi. Reuter.
Areitni forseta sönnuð?
Washington. Reuter.
Með dug og áræðni komumst við langt.
Lára Margrét Ragnarsdóttir, alþingismaður
er kona sem þorir.
Kosningaskrifstofa Láru Margrétar er opin
á Lækjartorgi, Hafnarstræti 20, 2. hæð,
alla virka daga kl. 16 - 22, laugardaga og sunnudaga kl. 13 -19.
Símar: 2 49 08, 2 49 12 og 2 49 14.
Stuðningsmenn.
Margrét
í @1 sætið