Morgunblaðið - 26.10.1994, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 26.10.1994, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 1994 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ „Á ekki að gera neitt annað í lífinu“ Ólafur Ámi Bjarnason, tenór, náði á dögunum frábærum árangri í alþjóðlegri söngvarakeppni ungra tenóra í Svíþjóð. Keppnin vakti mikla at- hygli á Norðurlöndum og hafa Ólafi Áma þegar borist tilboð í kjölfar frammistöðunnar. „ÞESSI árangur undirstrikaði það enn einu sinni að ég á ekki að gera neitt annað í lífinu,“ segir Ólafur Árni Bjarnason, tenór- söngvari, sem varð í fjórða til fimmta sæti í alþjóðlegri söngv- arakeppni ungra tenóra — sem tileinkuð er minningu Jussi Björl- ing — í Borlánge í Svíþjóð á sunnu- daginn var. 125 tenórar á aldrin- um 25-35 ára, frá 38 löndum og fimm heimsálfum, óskuðu eftir þátttöku í keppninni. Úr þeim hópi fengu fimmtán að spreyta sig í undanúrslitum og fimm reyndu síðan með sér í úrslitum. Að sögn Ólafs Árna vakti keppnin mikla athygli á Norður- löndum en 80 mínútna dagskrá var sýnd í sjónvarpi í Svíþjóð, Finnlandi og Noregi á sunnudags- kvöldið. „Allir þeir fimmtán sem kepptu í undanúrslitunum eru í raun sigurvegarar vegna þess að fjöldi umboðsaðila og óperufólks hvaðanæva úr heiminum kom til að hlusta enda stöðugur áhugi fyrir nýjum tenórum." Sjálfur fékk Ólafur tilboð frá Óperunni í Hels- inki, strax að keppninni lokinni, um að syngja í Don José á næsta ári. í huga Ólafs Árna er það mik- ill heiður að hafa komist í úrslit. Þegar upp var staðið hafði kín- verski tenórinn, Deng Xiao-Jun, borið sigur úr býtum í keppninni. Að sögn Ólafs Áma höfðu margir keppenda þegar komið fótunum undir sig í heimi óperunnar enda kom fram í kynningu aðstandenda Ólafur Árni Bjarnason keppninnar að meðal þátttakenda væru kunnir tenórar á heimsmælikvarða. „Ég er alveg í skýjun- um yfir að hafa kom- ist áfram vegna þess að hinir tíu sem helt- ust úr lestinni voru ekkert síðri en þeir sem komust í úrslit.“ Ólafur Ámi var eini tenórinn af Norður- löndum í hópi fimm- menninganna og fyrir vikið kveðst hann hafi fundið fyrir því að Svíarnir hafi verið á hans bandi. Ólafur Vignir Albertsson, píanóleikari, var nafna sínum inn- an handar í keppninni og gerir Ólafur Árni góðan róm að fram- lagi hans. „Ég er honum innilega þakklátur enda átti hann stóran þátt í því að ég komst í úrslitin. Okkar samvinna var góð enda er það allt annað að vinna með pían- ista sem maður þekkir." Ólafur Ámi segir að heimamenn í Borlánge hafi vandað til keppn- innar í hvívetna. Kupolen-höllin, þar sem keppnin fór fram, sé að vísu ekki sérhönnuð fyrir tónlistar- flutning en engu að síður hafi tek- ist ágætlega til. Þá var tenórinn hæstánægður með sjónvarpsupp- tökuna enda var henni stjórnað af sama manni og_ hafði umsjón með upptökum á Ólympíuleikun- um í Lillehammer. Góð auglýsing Árangurinn í Borlánge hefur verulega þýðingu fyrir Olaf Árna enda samkeppnin hörð í heimi ten- óra. „Maður þarf stöðugt að vera að koma sér á framfæri þannig að auglýsingin er góð.“ Hann er samningsbundinn Musik Theater im ‘ Revier í Gelsen- kirchen í Þýskalandi um þessar mundir en gerir ráð fyrir að starfa eingöngu sem lausráðinn söngvari frá og með næsta vori. Það fyrirkomulag henti honum betur enda eigi hann þannig hægara um vik að velja sér verkefni. Ólafur Árni hyggst búa á ítal- íu í framtíðinni. „Þetta líf er hins vegar enginn dans á rósum. Þetta er hálfgert sígaunalíf; að búa í ferðatöskum og á hótelum. Þetta er slítandi." Þá segir Ólafur Árni að samdráttar gæti í óperuheiminum nú um stundir og gripið hafi verið til uppsagna víða. Á honum er þó engan bilbug að finna. „Tenórar fá alltaf eitthvað að gera ef þeir hafa réttu tónana.“ Ölafur Árni mun syngja í Bandaríkjunum í janúar á næsta ári og í febrúar mun hann taka þátt í uppfærslu íslensku óperunn- ar á La Traviata. „Hingað til hef ég bara komið heim til að stökkva inn í sýningar þannig að þetta verður spennandi.“ Þá mun hann taka þátt í nýársfagnaði á Hótel íslandi um áramótin. „Það er allt- af skemmtilegast_ að syngja fyrir sitt heimafólk. Islendingar láta líka ekki bjóða sér hvað sem er þannig að maður þarf alltaf að vera í 100% formi til að syngja á íslandi. Það er líka allt í lagi!“ Evrópskar sjónvarpsstöðvar verðlauna Friðrik Erlingsson Sérstök viðurkenn- ing fyrir handritið Hreinn sveinn FRIÐRIK Erlingsson hlaut auka- verðlaun í handritasamkeppni evr- ópskra sjónvarpsstöðva í ár. Hann fékk í fyrra starfslaun vegna sjón- varpshandritsins Hreinn sveinn og lagði það fram fullunnið í úrslita- keppni þessa árs. Þar kepptu tíu höfundar og franskt handrit þótti best. En Friðrik fékk jafnframt við- urkenningu fyrir sitt handrit. Verð- launin voru veitt við hátíðlega at- höfn í Genf á mánudaginn. Sjónvarpsstöðvar og menningar- málastofnanir í Evrópu standa sam- eiginlega að verðlaunasamkeppn- inni í því skyni að hvetja unga höf- unda til að skrifa handrit að sjón- varpsleikritum eða leiknum fram- haldsþáttum. Keppt er um starfs- laun sem nema 1,3 milljónum króna og fá 10 höfundar styrki til að full- vinna handrit. Ári síðar keppa þeir um besta handritið og eru þá 1,6 milljónir króna í verðlaun. Aðalverðlaun keppninnar í ár runnu til Manuelu Fresil frá Frakk- landi. Dómnefndin hreifst jafnframt af handriti Friðriks og ákvað að veita honum aukaverðlaun. Enn hefur ekkert verið ákveðið um gerð myndar eftir handritinu. Fyrri íslenskir verðlaunahafar í keppninni eru Vilborg Einarsdóttir og Kristján Friðriksson sem hlutu starfslaun 1987 og sérstaka viður- kenningu ári síðar fyrir handritið að Steinbarni. Kristlaug María Sig- urðardóttir hlaut síðan starfslaun 1991 til að fullvinna handrit að Fríðu frænku. T PRINSINN og prinsessan, Hilmar Jónsson og Elva Ósk Óskars- dóttír í hlutverkum sínum ásamt hirðmönnum. Sinfóníuhljómsveit íslands Frá Mozart til Mahlers Guðný Richard Guðmundsdóttir Bernas GUÐNÝ Guðmundsdóttir konsertmeistari leikur einleik á tónleikum Sin- fóníuhljómsveitar íslands í Háskólabíói á morgun, fimmtudag, kl. 20. Leiknar verða sinfóníur eftir austurrísku meist- arana Mozart og Mahler, Sinfónía nr. 35 Haffner og Sinfónía nr. 1. Inn á milli verka þeirra kemur tónverk eftir þriðja Aust- urríkismanninn, Herbert H. Ágústsson, Formgerð II. Hljómsveitarstjóri verður Richard Bernas. Hljómsveitarstjórinn Richard Bernas, sem fæddur er í Bandaríkjunum en býr nú í Bretlandi, var í upphafi ferils síns aðstoðarhjómsveitar- stjóri sir Charles Macerras. Þó þetta sé í fyrsta sinn sem Bernas sækir okkur heim er hann ekki ókunnugur íslenskri tónlist því hann stjórnaði tónleikum á ís- lenskum dögum í Glasgow árið 1992 þar sem eingöngu var leik- in íslensk tónlist. Einleikari á þeim tónleikum var Sigrún Eð- valdsdóttir. Guðný Guðmundsdóttir, 1. konsertmeistari SÍ, hefur verið í leyfi frá störfum um nokkurn tíma en henni voru veitt lista- mannaverðlaun í sex rnánuði. Á þessum tíma hefur hún ekki set- ið auðum höndum því hún er nýkomin heim úr löngu tónleika- ferðalagi. Fyrst hélt hún til Mexíkó þar sem hún lék einleik í fiðlukon- sert eftir Mendelssohn með Orquesta Sinfonica del Estado de Mexico undir stjórn Enrique Batiz, síðan tók við tónleikaferð til Japans og að lokum fór hún til Kína þar sem hún dvaldi viku í Bejing við tónleikahald og sem gestakennari við tónlistarskólann þar í borg. í næsta mánuði mun hún halda tónleika í Lond- on ásamt píanóleikaranum Peter Máté en geislaplata þeirra með fiðlusónötum Griegs kemur út í næsta mánuði. Það var árið 1782 að Mozart fékk beiðni um að semja verk í tilefni af því, að til stóð að slá aðals- manninn Sigmund Haffner til riddara. Mozart var um þetta leyti mjög önnum kafínn, hann var að stjóma ópera sinni Brottnáminu úr kvennabúrinu, hann vann við tónsmíðar og hann var um það bil að ganga í heilagt hjónaband. Hann lét þó til leiðast og samdi kvöldlokku í sex þáttum. Þegar Mozart var beðinn nokkru síðar að stjóma tónleikum með eigin verkum vantaði hann sinfóníu. Hann greip til þess ráðs að fækka um tvo þætti í kvöldlokkunni sem tileinkuð var Haffner og stækka hljómsveitina. Þar var þá tilkomin sinfónía nr. 35. Eftir sem áður er tónverkið kennt við áðumefnd- an Haffner. Höfundur verks númer tvö á efnisskrá tónleikanna er Herbert H. Ágústsson, fæddur í Austur- ríki en löngu orðinn íslendingur. Herbert kom til þess að gegna stöðu hornaleikara í Sinfóníu- hljómsveitinni árið 1952 en 1. september sl. lét hann af störfum sem slíkur fyrir aldurs sakir. Formgerð II er fíðlukonsert sem Herbert samdi 1979 en það var framflutt hér árið 1981 og þá af Guðnýju Guðmundsdóttur sem flytur verkið einnig nú. Sem ungum manni var Mahl- er, þá hljómsveitarstjóri við Fíl- harmóníuhljómsveitina í Búda- pest, boðið að stjórna sinfónísku verki eftir sjálfan sig. Mahler dró þá fram úr pússi sínu risastórt verk sem hann hafði samið nokkra áður en það varð síðar hans fyrsta sinfónía. Viðbrögð hljóðfæraleikara í hljómsveitinni voru mjög uppörvandi fyrir Ma- hler en viðtökur áheyrenda og gagnrýnenda við frumflutningi verksins, en Mahler stjórnaði sjálfur árið 1889, voru í daufara lagi. Síðar endurskoðaði Mahler tónverkið og er óhætt að segja að gagnrýnendur síðari tíma hafa farið blíðari höndum um sinfóníuna. Snædrott- ingin frum- sýnd í dag BARNALEIKRITIÐ Snædrottn- ingin verður frumsýnt í Þjóð- leikhúsinu í dag. Leikritið er eftir Evgení Schwartz, byggt á samnefndu ævintýri eftir H.C. Andersen. Snædrottningin var fyrsta barnaleikrit Þjóðleik- hússins, 1951. Leikstjórinn, Andrés Sigur- vinsson, vann handritið ásamt Elísabetu Snorradóttur. Þau studdust við þýðingar Árna Bergmann og Bjarna Guð- mundssonar, en söngtextar eru eftir Flosa Ólafsson. Árni Harð- arson samdi tónlistina, hljóð- sljórn annast Sveinn Kjartans- son og Sylvía von Kospoth er danssljóri. Leikmynd gerði Guðný B. Richards, búninga Þórunn Elísabet Sveinsdóttir og Katrín Þorvaldsdóttir sá um dýragervi. Lýsingu annast Páll Ragnarsson. I helstu hlutverkum eru Hilm- ir Snær Guðnason, sem er sögu- maður, Álfrún Helga Örnólfs- dóttir leikur Gerðu, Gunnlaug- ur Egilsson er Kári, Bryndís Pétursdóttir leikur ömmu og fulltrúinn er í höndum Jóhanns Sigurðarsonar. Snædrottning- una leikur Edda Arnljótsdóttir. Frumsýningin hefst klukkan 17. Önnur sýning verður sunnu- daginn 30. október, klukkan 14.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.