Morgunblaðið - 26.10.1994, Page 26
26 MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Haraldur Sveinsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Á VARÐBERGI
ALLT frá því, að kommúnisminn hrundi í Sovétríkjunum
og Austur-Evrópu og kalda stríðinu lauk hafa verið nokk-
uð skiptar skoðanir á Vesturlöndum um hvers mætti vænta
af hálfu Rússa við nýjar aðstæður. En mat á því hefur að sjálf-
sögðu mikil áhrif á það, hvernig Vesturlandaþjóðir haga
varnarviðbúnaði sínum. Bandaríkjamenn hafa dregið mark-
visst úr herstyrk sínum í Evrópu, eins og eðlilegt verður að
teljast. Þeir hafa dregið úr umsvifum sínum á Keflavíkurflug-
velli og lokað herstöðvum víða um heim.
í þessu samhengi er fróðlegt að kynnast sjónarmiðum Jahns
Ottos Johansens, sem er yfirmaður erlendrar fréttadeildar
norska sjónvarpsins en í samtali við Morgunblaðið í gær sagði
hann m.a. aðspurður um það, hvort ástæða væri til að vera á
varðbergi gagnvart hinu nýja Rússlandi: „Já svo sannarlega.
Ekki vegna þess, að Rússar séu árásargjarnari í eðli sínu en
aðrar þjóðir og alls ekki vegna þess að þeir hafi sem stendur
þann hernaðarmátt, sem þarf til að gera það, sem við óttuð-
umst að þeir hefðu i huga á dögum kalda stríðsins. Reyndar
voru forsendurnar fyrir óttanum þá ekki ávallt byggðar á
miklu raunsæi. Ástæðan fyrir áhyggjunum núna er allt önn-
ur, nefnilega að félags- og efnahagsleg þróun mála í Rúss-
landi sjálfu verði svo erfið og átakamikil, að á endanum kom-
ist ákafir þjóðernissinnar til valda.“
í samtalinu kemur einnig fram, að Jahn Otto Johansen
kveðst „telja miklu meiri hættu á, að fasistar nái völdum í
Rússlandi en í einhverju V-Evrópulandi, jarðvegurinn geti á
skömmum tíma orðið frjór fyrir slíkar öfgar, ef efnahagurinn
hrynji, örvæntingin breiðist út. Sært þjóðarstolt sé líka fyrir
hendi ..."
Þá bendir hinn norski sérfræðingur á, að Rússar hafi nú
fáar nothæfar hafnir í Evrópu, Norðurflotinn og Kólaskagi
hafi því orðið mun mikilvægari fyrir hagsmuni Rússa en áður
og var Kólaskaginn þó mikilvægur fyrir. START-samningurinn
um fækkun langdrægra kjarnavopna á landi verði til þess að
stórveldin hljóti að efla þann hluta kafbátaflotans, sem borið
geti langdræg vopn.
Allt er þetta mikið umhugsunarefni fyrir okkur íslendinga.
Það þarf enga sérfræðiþekkingu til þess að sjá, að veður eru
öll válynd í Rússlandi og útilokað að ganga út frá því, sem
vísu, að hófsöm stjórnmálaöfl ráði þar ferðinni á næstu árum.
Þrátt fyrir efnahagserfiðleika og gífurleg vandamál er Rúss-
land enn mikið herveldi. Hvernig verður því hernaðarafli beitt,
ef öfgasinnar komast þar til valda í skjóli nánast óleysanlegra
vandamála?
Bæði ísland og Noregur eru í mjög viðkvæmri stöðu að
þessu leyti. Þess vegna er skynsamlegt að fara sér hægt í
breytingum á öryggismálum. Eðlilegt er, að Bandaríkjamenn
dragi úr umsvifum sínum hér eins og nú horfir en það skiptir
öllu máli, að varnarviðbúnaður á Keflavíkurflugvelli sé með
þeim hætti, að hann sé hægt að taka í notkun á skömmum
tíma. Þótt friðsamlegra hafi verið á norðurslóðum síðustu árin
og minni umferð herflugvéla, skipa og kafbáta hefur ekki
dregið ú_r hernaðarumsvifum á Kólaskaga. Það er staðreynd,
sem við íslendingar og Norðmenn verðum sérstaklega að horf-
ast í augu við.
AUKIN SAMKEPPNI
Aukin samkeppni er smátt og smátt að ryðja sér til rúms
og skila bæði fólki og fyrirtækjum kjarabótum og hag-
kvæmara verðlagi á vöru og þjónustu. Um helgina var frá því
skýrt í Morgunblaðinu, að verzlunin Bónus seldi hina nýju
GSM-síma á umtalsvert lægra verði en Póstur og sími. í
Morgunblaðinu í gær kemur fram, að annað einkafyrirtæki,
sem einnig selur slíka síma hefur lækkað verð á þeim til jafns
við Bónus. Spyija má, hversu lengi íslenzkir notendur slíkra
síma hefðu borgað yfirverð fyrir þessi tæki, ef samkeppnin
hefði ekki komið sögunnar af hálfu Bónus.
Plugleiðir hafa að mestu setið að fraktflutningum til og frá
íslandi þar til nú, að Cargolux kemur til sögunnar. Þá bregð-
ur svo við, að Flugleiðamenn telja sér fært að bjóða kynning-
arafslátt og þar með lægra verð fyrir fr^kt.
Útgerðarmenn hafa lengi kvartað undan háu olíuverði hér
á landi. Þegar erlend olíuflutningaskip sigla á íslandsmið og
bjóða olíu til sölu sjá olíufélögin hér sér ekki annað fært en
að mæta þeirri samkeppni.
Hversu lengi hafa kaupendur vöru og þjónustu borgað of
hátt verð vegna lítillar og jafnvel engrar samkeppni? Skyndi-
lega kemur í ljós, að það er hægt að lækka verð, þegar sam-
keppnin kemur til sögunnar. Að hve miklu leyti er skortur á
samkeppni skýring á lakari lífskjörum hér en í nálægum lönd-
um? Slíkar spurningar vakna óneitanlega, þegar litið er til
þessarar þróunar og eru vissulega íhugunarefni fyrir seljendur
vöru og þjónustu.
DANS
Danskennarar hafa sam-
einast undir einum hatti
ÞÓ SVO að dans hafi verið
kenndur á íslandi frá því
á upphafi aldarinnar, þá
var fyrsta fagfélag dans-
kennara ekki stofnað fyrr en árið
1963. Það var DSÍ. Eitt af markmið-
um félagsins var að efla dansinn
sem almenningíþrótt fyrir alla fjöl-
skylduna. Síðan þá hefur þetta ver-
ið eitt af aðal markmiðum íslenskra
danskennara. Frá árinu 1984 hafa
verið starfandi 2 fagfélög dans-
kennara á íslandi, DSÍ og FÍD.
Báðir aðilar áttuðu sig fljótlega á
því að lítil sem engin framþróun
yrði í dansinum ef félögin ynnu
ekki saman. Það var svo árið 1986
að Dansráð íslands var stofnað, en
í því áttu fulltrúar beggja félaganna
sæti.
Allt frá stofnun DÍ hefur verið
unnið að sameiningu, skv. stefnu-
skrá DÍ. Mikil vinna hefur farið í
að samræma alla þætti félaganna
og farið nákvæmlega í alla sauma
á öllum málum. T.d. samræming á
íslenska danskennaraprófinu, jass-
balletkennaraprófinu og balletpróf-
inu. Að sögn Báru Magnúsdóttur
(JSB) varaforseta DÍ hefur þetta
gengið vel fyrir sig og ánægjulegt
að sjá hve samstaða íslenskra dans-
kennara er mikil. Hún sagði jafn-
framt að þó félögin hafi verið sam-
einuð þá myndu ýmsir viðburðir,
sem komið var á hjá hvoru félagi
fyrir sig, halda áfram, en nú opnir
öllum innan DÍ. Hér er um að ræða
viðburði eins og Hermannsbikarinn
og sameiginlegt jólaball dansskól-
anna.
Dansráð íslands er fyrst og
fremst fulltrúi allra danskennara á
íslandi og er aðili að ICBD Internat-
ional Consul of Ballroom Dancing
og á það fulltrúa á þingi þar ár-
lega. Strax frá upphafí hefur aðal
baráttumál DI verið að reyna að fá
danskennarastarfið lögverndað á
þeim grundvelli að nám danskenn-
ara hér á landi er 4 ár sem samsvar-
ar iðnfræðslu og kennaranámi. Bar-
áttan stendur enn yfir og er full
ástæða til þess að vera vel á verði
um að faglærðir danskennarar ann-
ist danskennslu. íslandsmót og dan-
skeppnir eru eitt af störfum ráðsins
svo og samskipti við erlenda aðila
og námstefnur ýmiskonar _________
og síðast en ekki síst efl-
ing dansins í landinu m.a.
með því að fá alla aðila
sem sinna dansmennt og
áhugafólk um dansmennt
til að sameinast undir einn
hatt dansinum til stuðnings, eins
og nú hefur verið gert að nokkru
leyti.
Alþjóðleg danskeppni
Fyrsta keppni vetrarins verður
laugardaginn 29. október nk. og er
það „Hafnarfjörður open“, sem Nýi
dansskólinn stendur fyrir í sam-
vinnu við Flugleiðir. Er þetta fyrsta
alþjóðlega danskeppni sem haldin
er á íslandi. Að sögn Níelsar Einars-
sonar danskennara hefur mikill
fjöldi erlendra para spurst fyrir um
keppnina og flest öll bestu pör okk-
ar Islendinga hafa nú þegar skráð
sig. Alls munu milli 80 og 90 pör
taka þátt í keppninni.
Fimm keppnir verða í vetur á
íslenskir danskennarar sameinuðust undir ein-
um hatti í Dansráði íslands í sumar. Nú er
dansvertíðin komin í fullan gang og Jóhann
Gunnar Amarsson kynnti sér hvaða verkefni
eru framundan hjá ráðinu og hvað bíður kepp-
enda í dansi í vetur.
KEPPENDUR í dansi eru á öllum adlri. Hilda
og Olafur sjást hér svífa um gólfið í rúmbu.
Fyrsta keppni
vetrarins
verðurá
iaugardaginn
vegum Dansráðs íslands og verða
þær allar haldnar í íþróttahúsinu
Ásgarði í Garðabæ. í lok nóvember
verður 4x4 og 5x5 dansa keppnin,
með fijálsri aðferð, sem ávallt er
glæsileg hátíð fyrir augað, samhliða
henni verður að venju einsdans-
________ keppni, til að gefa þeim
sem keppa einungis í
grunnsporum tækifæri til
að öðlast dýrmæta keppn-
isreynslu.
Laugardaginn 18. mars
' verður svo haldin 8 og 10
dansakeppni, með frjálsri aðferð.
Þar er lagður saman árangur kepp-
enda í suður-amerískum dönsum,
annarsvegar og standard dönsum
hinsvegar og það par sem kemur
út með besta árangurinn úr saman-
lögðum þessum greinum stendur
uppi sem sigurvegari, að venju er
einnig haldin einsdanskeppni sam-
hliða 10 dansakeppninni.
Sunnudaginn 19. mars verður svo
gömludansa- og rokkkeppnin hald-
in. Gömludansarrtir svokölluðu, bár-
ust flestir hingað til íslands í upp-
hafi þessarar aldar, með leikurum
og öðrum sem komu úr námi frá
Kaupmannahöfn. Þessir dansar eru
mjög skemmtilegir og þjóðlegir og
gaman til þess að vita að íslenskir
danskennarar bera þetta mikla virð-
ingu fyrir þessum mikla menningar-
arfi. Gömludansarnir eru í mörgu
frábrugðnir samkvæmisdönsunum.
Gömludansarnir urðu til uppúr bal-
let og því er mikið dansað með bein
hné og þó nokkuð notað af hoppum.
Samkvæmisdansarnir eru ________
hinsvegar byggðir upp á
venjulegum göngusporum
og þar dansar maður
miklu meira með hnéin
afslöppuð, tii þess af fá
mýktina í dansinn.
Helgina 6. og 7. maí verður svo
haldin Islandsmeistarakeppni í
dansi með grunnaðferð. í þessari
keppni sjáum við oft efnivið í bestu
framtíðardansara á íslandi. Grunn-
sporin eru nefnilega mikilvægasti
þátturinn í dansi og enginn sem
ekki dansar grunnsporin vel getur
nokkru sinni látið sig dreyma um
að geta náð einhveijum árangri í
dansi. íslenskir danskennarar hafa
lagt mikla rækt við grunnsporin.
Að lokum er það svo keppnin um
Hermannsbikarinn, en hún er nefnd
hér í lokin því enn hefur ekki verið
ákveðið hvenær hana skuli halda.
Keppnin um Hermannsbikarinn hef-
ur verið ákaflega hátíðleg keppni
og þar hefur ríkt afslappað og gott
andrúmloft, þar sem kappið hefur
svo sannarlega ekki borið fegurðina
ofuliði. Nánar verður greint frá
dagsetningu þessarar keppni síðar.
Keppnir sem þessar eru mikil
lyftistöng fyrir dans á íslandi og
ekki veitir af, því nú þegar hart er
í ári vill það oft verða svo að fólki
hættir til að finnast dansinn vera
dýr „afþreying", sem hann er alls
ekki. Það vill nefnilega alltof oft
gleymast hið mikla uppeldislega
gildi sem dansinn hefur og að „list-
ir og hagleikur eru tré sem bera
ávöxt“ (japanskur málsháttur). En
burtséð frá öllu ágæti danskeppna
þá hafa danskennarar ekki gleymt
því að dansinn er almenningseign
og því má almenningur heldur ekki
gleyma. Það er nefnilega ekki
skylda að keppa þó maður skrái sig
í dansskóla, maður getur dansað sér
til ánægju og yndisauka og svo síð-
ar meir getur maður farið í keppni,
þegar þar að kemur og ef mann
langar til þess.
Oft er spurt eftir hveiju dómarar
fari þegar þeir eru að velja á milli
para í danskeppni. Hér fara á eftir
nokkur atriði til að fólk geti glögg-
vað sig á því eftir hveiju er farið.
Meginreglurnar sem farið er eftir
eru fimm: 1. Taktur og hraði í við-
komandi dansi. 2. Líkamslínur. 3.
Hreyfingar. 4. Túlkun á tónlist. 5.
Fótaburður.
í öllum dönsum er liður 1 hæst-
ráðandi.
Einnig eru nokkrar grunnreglur
í viðbót sem hafa ber í huga við
dómgæslu:
Dómgæsla hefst strax og parið
er komið í dansstöðu og lýkur ekki
fyrr en tónlistin er stoppuð.
Ef par hættir dansi áður en lotu
er lokið verður það par lægst í þeim
dansi.
Ef það kemur fyrir í úrsltium er
það par úr leik.
Parið er dæmt eins og það kemur
fram í viðkomandi keppni og er alls
ekki tekið tillit til áður unninna titla
eða frammistöðu í öðrum keppnum.
Dómari og keppendur mega ekki
ræðast við meðan á keppni stendur.
Dómari tekur afstöðu til þess
hvort par dansar í takti og heldur
grunnreglur. Par sem ekki gerir
neina skekkju í þessui efni er alltaf
sett í fyrsta sæti. Dansi fleiri pör
en eitt úr réttum takti verður að
raða þeim eftir lið 2-5 í megin regl-
unum.
Ekki bara keppni
Ýmislegt fleira er á dagskrá hjá
Dansráðinu þó svo keppnirnar taki
mikinn tíma. Síðastliðinn vetur
skipulagði Dansráðið ásamt fulltrú-
um Reykjavíkurborgar danskennslu
í öllum 9 ára bekkjum í
skólum á Reykjavíkur-
svæðinu. Síðastliðið vor
heiðraði svo Dansráð ís-
lands Matthildi Guð-
________ mundsdóttur, kennslufull-
trúa á Fræðsluskrifstofu
Reykjavíkurumdæmis, en hún hefur
meðal annars beitt sér fyrir því að
danskennsla verði færð inn í grunn-
skólana. í ræðu sem Matthildur
flutti, við það tækifæri, kom fram
að tilraunakennsla innan skólanna
veturinn 1992-1993 hefði gefist
svo vel að ákveðið var að fara með
markvissa kennslu inn í 9 ára bekki
í 25 grunnskólum í borginni vetur-
inn 1993-1994 og var kennt í alis
62 bekkjardeildum. Matthildur
sagði jafnframt að skólayfirvöld
Reykjavíkur hefðu gefið vilyrði fyrir
því að áframhald yrði á þessari
kennslu í framtíðinni.
Danskennarar
hafa lagt
mikla rækt við
grunnsporin
Höfundur skrifar um dans í
Morgunblaðið.
MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 1994 27
Efnahagsástandið í Rússlandi
HEILSUGÆSLUSTÖÐVAR fyrir gæludýr eru meðal einkafyrirtækja sem skotið hafa upp kollinum og blómstrað í skjóli umbótanna.
Kapítalismi farinn
að skila árangri
Laun hækka og lífskjör batna, stjómendur
stjórna í reynd, peningamenn fjárfesta. Kapít-
alismi er farinn að skila árangri í Rússlandi
en reikul stjómarstefna kann hins vegar að
hindra frekari efnahagsframfarir.
UNDANFÖRNUM fjórum
árum hefur iðnaðarfram-
leiðsla dregist saman um
helming í Rússlandi. Til
samanburðar minnkaði hún um þriðj-
ung í Bandaríkjunum í kreppunni
miklu. Opinberar tölur gefa hins veg-
ar von um að bati sé í vændum því
þær benda til að framleiðslusamdrætt-
inum sé lokið því framleiðslan hefur
ekki minnkað undanfarna þijá mán-
uði. Sömuleiðis hafa mælanleg lífskjör
raunverulega batnað.
Að sögn Goskomstat, rússnesku
hagstofunnar, jukust rauntekjur
heimilanna, þegar tillit hefur verið
tekið til verðbólgu, um 18% frá júlí
1993 til 1994. Raunveruleg neyslu-
aukning heimilanna jókst um 10% á
sama tíma. Þá hefur bílaeign tekið
stakkaskiptum og áttu 40% fleiri fjöl-
skyldur bifreið í haust en í hitteðfyrra.
Jafnframt eru breytingar á neyslu-
venjum Rússa merkjanlegar. Þannig
jókst innflutningur á kjúklingum og
annar kjötinnflutningur úr 90.000
tonnum í janúar sl. í 399.000 tonn í
ágúst.
Andstæðingar efnahagsumbóta
halda því fram að Rússar hafi ekki
efni á matvælainnflutningi en þrátt
fyrir hann voru utanríkisviðskipti
Rússa hagstæð um 11,7 milljarða
Bandaríkjadollara á fyrstu átta mán-
uðum þessa árs.
Skoða má þessar jákvæðu tölur í
ljósi þess að þegar rússneskar hagtöl-
ur eru annars vegar er dregin upp
allt of dökk mynd af ástandi og horf-
um í efnahagsmálum. Þannig nam
verg landsframleiðsla Rússa 364 tril-
ljónum rúblna, jafnvirði 245 milljarða
dollara, á 12 mánaða tímabili sem
lauk í júní sl. Það jafngildir 1.700
dollara tekjum á mann eða sömu
upphæð og á hvern íbúa í Namibíu.
Meira til ráðstöfunar
Augljóst má hins vegar vera að
Rússar búa mun betur en þessi upp-
hæð gefur til kynna. Ein skýringin
er sú að þótt gjöld fyrir frumþarfir á
borð við húsaleigu, vatn, hita, gas
o.s.frv., hafi stórhækkað nema þau
eftir sem áður aðeins broti af því sem
þessi þjónusta raunverulega kostar.
Önnur ástæða er að opinberar tölur
um landsframleiðslu endurspegla
einkum það sem á sér stað í ríkisrekn-
um framleiðslufyrirtækjum. Sá þáttur
efnahagslífsins er smám saman að
fjara út, að hluta vegna stefnu stjórn-
valda og að hluta vegna vanhæfni
stjórnenda þeirra.
Einnig er það svo í einkageiranum
að fáir kaupsýslumenn eru svo
heimskir að þeir gefi utanaðkomandi
fólki upplýsingar um tekjur og veltu.
Þeir óttast að skattheimtan eða maf-
ían komist yfir upplýsingarnar.
Giskað er á, að stærð gráa hagkerf-
isins utan við opinberu tölurnar sam-
svari 25-40% af landsframleiðslunni
og þykja þær ágiskanir varfærnar.
Umsvifin eru alla vega nógu mikil til
þess að koma milljónum Rússa upp
fyrir fátækramörk. Þeim sem opin-
berlega hafa verið skráðir búa í fá-
tækt fækkaði um helming á einu ári
frá júní 1993 eða úr rúmlega 40 millj-
ónum í 20 milljónir.
Staðfesta
Ríkisstjórn Borís Jeltsíns forseta
hefur sýnt tiltölulega mikla staðfestu
á þremur sviðum efnahagsumbóta.
Hún hóf að innleiða viðskiptafrelsi
og gefa verðlag frjálst í janúar 1992
og hefur ekki hvikað frá þeirra stefnu.
Einnig greip hún til aðgerða, að
vísu nokkuð fálmkenndra, til þess að
koma á þjóðhagslegum stöðugleika
og loks hefur stjórnin ekki látið deig-
an síga við einkavæðingu ríkisfyrir-
tækja og stofnana.
Hægt hefði verið að ganga röskleg-
ar fram og í meira samhengi. Að vísu
fór eitt ár meira eða minna í súginn
vegna átaka stjórnarinnar og þings-
ins, en stefna og aðgerðir stjórnar
Jeltsíns hafa engu að síður
umbreytt hagkerfinu sem
Rússar fengu í arf frá Sov-
étríkjunum sálugu.
Gamla hagkerfið var
miklu fremur misþróað en
vanþróað. Það var alltof
mikil áhersla á vöruframleiðslu og
kerfið var svo óskilvirkt, að verð-
mætasköpunin var neikvæð og virð-
isauki hráefnisnotkunarinnar oft eng-
inn vegna gífurlegrar hergagnafram-
leiðslu.
Fyrsti ávinningur umbótanna var
að hlutdeild verksmiðjuframleiðslunn-
ar í vergri landsframleiðslunni hafði
lækkað í 30% og þáttur þjónustugrein-
anna - sem ekki voru metnar í sov-
éska hagkerfinu - orðinn rúmlega
50%. Ekki er síður mikilvægt að 58%
opinberrar landsframleiðslu Rússa í
dag koma frá einkareknum fyrirtækj-
um.
Hugarfarsbr eyting
Mikil hugarfarsbreyting hefur fylgt
umskiptunum í hagkerfinu. Ifyrir
nokkrum misserum snerist umræðan
í kaffitímunum um það hvort einka-
eign væri æskileg en í dag snýst hún
um það hvort einkavæðingin hafi tek-
ist vel eða illa.
Meira að segja Gennadíj Zjúganov,
formaður Kommúnistaflokksins end-
urreista, sem litlum eða engum breyt-
ingum hefur tekið, hafnar ekki hug-
myndinni um að þörf sé á því að fast-
eignir og fyrirtæki komist í einkaeigu.
Ný bók, „Rússneskir kaupsýslu-
menn: 40 afreksþættir“, sem félags-
fræðingurinn ígor Búnín ritstýrði, gef-
ur örlitla mynd af nýju forréttindastétt-
inni og afstöðu almennings til hennar.
Þar virðist afsönnuð sú viðtekna
skoðun að helstu fyrirtækjastjórnend-
ur í dag séu menn sem stjórnað hafi
sovéskum ríkisfyrirtækjum og notfært
sér aðstöðu sína til þess að sölsa und-
ir sig eignir.
Langflestir kaupsýslumannanna 40
eru alltof ungir til þess að hafa kom-
ist í áhrifastöður í gamla hagkerfinu,
aðeins einn þeirra er yfir fimmtugu.
Nær helmingurinn er með háskóla-
gráðu.
í skoðanakönnun sem gerð var
meðal almennings sögðust 58% telja
að samfélagið nyti góðs af
því að einkafyrirtæki og
einstaklingar græddu. Að-
eins 19% voru á öndverðrl
skoðun. Sömuleiðis sagði
rúmlega helmingur að-
spurðra, að ekkert væri at-
hugavert við það að einhveijir menn
auðguðust um sem samsvaraði millj-
ónum dollara.
Óvissa
Nokkurrar óvissu gætir um hvert
stefnir í rússneskum efnahagsmálum
og efasemdir eru um stöðu Víktors
Tsjernomýrdíns forsætisráðherra.
Verðbólga er tekin að stíga á ný og
kreppa í bankastarfsemi er sögð vera
í uppsiglingu. í stað þess að festa i
sessi ávinning undanfarinna missera
gæti árið 1995 reynst ár neyðarúr-
ræða.
Óttast er að þingkosningar seint á
næsta ári og forsetakosningar í síð-
asta lagi á miðju ári 1996 geti haft
í för með sér óstöðguleika. Taki ríkis-
stjórnin á verðbólgunni af festu gæti
hún gengið hnarreist til kosninga.
Mistakist henni í þeim efnum legði
hún vopn í hendur kommúnistum og
afturhaldsseggjum sem gætu með
góðum árangri í kosningunum stöðvað
framrás kapítalismans í Rússlandi, ef
ekki snúið þróuninni við.
í því sambandi má rifya upp kvíða-
fulla yfirlýsingu umbótasinnans Jegors
Gajdars, fyrrverandi forsætisráðherra,
í janúar 1992 er hann ýtti úr vör fyrstu
aðgerðum í þá veru að gefa verðlag
fijálst. „Kommúnistamir okkar eru
ólíkir pólskum og ungverskum skoð-
anabræðrum sínum - okkar eru langt
frá því að geta talist skaðlausir."
Byg^t á The Economist
og Business Week.
Opinberar
hagtölur
draga upp of
dökka mynd