Morgunblaðið - 26.10.1994, Blaðsíða 48
48 MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
16500
Sínu
Frá framleiðendum ALIENS og
THE TERMINATOR
FLÓTTINN FRÁ
ABSOLOM
ENGIR MÚRAR - ENGIR VERÐIR -
ENGINN FLÓTTI
RAY LIOTTA (Goodfellas), KEVIN
DILLON (The Doors, Platoon).
Sýnd kl. 5, 9 og 11. B.i. 16 ára.
STJÖRNUBÍÓLÍNAN
SÍMI991065
Taktu þátt í spennandi
kvikmyndagetraun. Verðlaun:
Boðsmiðar á myndir í Stjörnubíói.
Verð kr. 39,90 mínútan.
Nú hafa 25.000 manns
séð Bíódaga.
Ert þú einn þeirra?
Sýnd í örfáa daga í
A-sal kl. 5, 7 og 9.
Amandaverðlaunin
1994.
Besta mynd
Norðurlanda.
TILBOÐ
KR. 600 F. FULLORÐNA
KR. 400 F. BÖRN
Stórmyndin
ÚLFUR
DÝRIÐ GENGUR LAUST.
★★★ S.V. Mbl.
★★★ Eintak ★★★ Ó.T. Rás2
Sýnd kl. 6.50 og 11.
MIKE Tyson og Robin Givens eru leikin af Michael Jai White
og Kristen Wilson.
Stjörnunum skotið
upp á hvíta tjaldið
ÞAÐ ER ekki tekið út með sældinni
að vera í sviðsljósinu í Bandaríkjun-
um. Nýjasta æðið hjá bandarísku
sjónvarpsstöðvunum er að gera kvik-
myndir um líf fræga fólksins, að því
forspurðu. Þar heyja sjónvarps-
risamir Fox og NBC einvígi og
leggja allt í sölurnar. Myndir um líf
Elizabeth Taylor, Miu Farrow, Mike
Tysons, O.J. Simpsons, Madonnu og
■Roseanne eru væntanlegar í vetur
og ekki eru allar stjörnurnar jafn
hrifnar.
Elizabeth Taylor lögsótti NBC-
sjónvarpsstöðina til að reyna að
koma í veg fyrir sýningu á kvikmynd
sem byggð er á ævi hennar. Hún
tapaði málinu, en íhugar að höfða
mál aftur eftir að myndin hefur ver-
ið sýnd. Hún er fokvond yfir því að
í myndinni sé dregin upp mynd af
stjörnu sem hafi verið barin af þrem-
ur eiginmönnum sínum og neitar því
alfarið.
Roseanne er aldeilis í sviðsljósinu
því bæði Fox og NBC sýna myndir
um líf hennar á þessum vetri. Hún
er alveg brjáluð yfir því að vera leik-
BOBBY Hosea og Jessica Tuck
in af Denny Dillon í myndinni „Rose-
anne: An Unauthorized Biography"
frá Fox og lýsir henni sem „litlu
skrípi ... dvergkonu".
Eftir að hafa ráðfært sig við lög-
fræðinga O.J. Simpsons frestaði Fox
sýningu á mynd um sögu O.J. Simp-
son þar til val á kviðdómendum hefði
farið fram, svo hún hefði ekki áhrif
á kviðdóminn.
Lögfræðingar Miu Farrow hafa
sent mótmælabréf til framleiðenda
myndar Fox „Mia: Child of Holly-
wood“. Talsmaður hennar segir að
hún „... mótmæli ákaft. Hún veit
hvað þeir munu líklega einblína á“.
En mótbárum hennar verður ekki
sinnt.
Madonna og Mike Tyson eru þau
einu sem hafa þagað þunnu hljóði.
Framleiðendur myndarinnar „Ty-
son“ töluðu aldrei við kappann, en
þeir höfðu samráð við marga af vin-
um hans. Að sögn talsmanns Ma-
donnu, Liz Rosenberg, hefur hún
„enga skoðun" á mynd Fox um það
þegar hún fetaði sín fyrstu spor fram
í sviðsljósið.
leika O.J. og Nicole Simpson.
PATSY Kensit og Katlin
Yeung leika í „Miu“.
TERUMI Matthews leikur
Madonnu.
PATRIKA Darbo go Stephen
Lee leika Roseanne og
Tom Arnold.
DAVID Graf og Denny Dillon
í hlutverkum Arnold-
hjónanna.
BOB og April voru gift í tíu
ár og aldrei grunaði Bob að
April væri í raun karlmaður
en April hét í fyrstu Antonio
og ieit svona út.
Hjónin skildu árið 1991 og
þá vissi Bob ekki enn að hann
hafði verið giftur karlmanni.
Lögfræðingur hans skynjaði þó
að ekki var allt með felldu og
lét rannsaka málið og þá féll
sprengjan: „Bob, þú hefur verið
giftur karlrnanni."
Nú höfðar Bob Elliott mál á
hendur April og krefst hálfs
milljarðs króna í skaðabætur
fyrir þá auðmýkingu sem hann
hefur þurft að þola.
maður
►BOB Elliott var giftur sinni
heittelskuðu April í tíu ár. Þau
hittust í mars árið 1981 og Bob
féll kylliflatur fyrir ljóshærðu
fegurðardísinni. Hann vissi ekki
að April hafði heitið Antonio
Neves áður en hún gekkst und-
ir kynskiptaaðgerð einu ári
fyrr. „Við lifðum eðlilegu kyn-
lífi,“ segir Bob. „Það eina sem
olli mér vonbrigðum var að hún
sagðist ekki geta eignast barn
og það skýrði hún með því að
hún hefði gengist undir stóran
uppskurð."
Basinger
ekki gjald-
þrota
►LEIKKONAN Kim Basinger
geturaldeilis gert sér glaðan
dag. Ástæðan er sú að áfrýjun-
ardómstóll Kaliforníu úrskurð-
aði henni í vil nýlega og hún
þarf því ekki að borga 560 millj-
ónir króna í skaðabætur fyrir
þá ákvörðun sína að hætta við
að leika í myndinni „Boxing
Helena“ árið 1993. Ef hún hefði
ekki unnið málið hefði leikkon-
an orðið að lýsa sig gjaldþrota.