Morgunblaðið - 01.11.1994, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR B
249. TBL. 82. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR1. NÓVEMBER1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Harðir bardagar geisa í norðvesturhluta Bosníu
Serbar hefja árásir
á Sarajevo að nýju
Sarajevo. Reuter.
SERBAR gerðu í gær sprengjuárás-
ir á úthverfi Sarajevo, höfuðborgar
Bosníu, eftir að stjómarher landsins
hafði hafið stórsókn í norðvestur-
hlutanum. Talið er að bardagarnir
þar harðni á næstu dögum þar sem
Serbar eru að undirbúa gagnsókn.
Sex manns særðust í árásunum
á Sarajevo. Daginn áður hafði einn
maður beðið bana og fjórtán særst
í sprengjuárás á úthverfi í bosnísku
höfuðborginni. Serbar höfðu hótað
sprengjuárásum til að hefna stór-
sóknar stjórnarhersins frá Bihac-
héraði í norðvesturhlutanum sem
Serbar hafa setið um.
Stjórnarherinn hefur náð 250
ferkílómetra svæði á sitt vald í
grennd við Bihac. Þetta er mesti
ósigur Bosníu-Serba á vígvelli frá
því stríðið hófst fyrir 31 mánuði.
Heimildarmenn innan friðar-
gæsluliðsins sögðu að gmnur léki
á að hersveitir stjómarhersins hefðu
sótt of langt fram og gætu átt í
erfiðleikum með að endurnýja
birgðir sinar. Aðrir töldu afar ólík-
legt að Atif Dudakovic, sem stjórn-
ar hersveitunum, gæti hafa gert
slík mistök, en hann hefur náð
meiri árangri á vígvelli en nokkur
annar herforingi í stjórnarhernum.
Fréttastofa múslima í Bihac
sagði að stjórnarherinn héldi áfram
að sækja í átt að bænum Sanski
Most. „í dag höfum við frelsað 30
ferkílómetra landsvæði til viðbót-
ar,“ sagði fréttamaður fréttastof-
unnar. Hann sagði að mannfail
hefði orðið í bænum Velika Kladusa
í Bihac í gær í stórskotaárás Serba
frá Krajina-héraði í Króatíu.
Barist um Bosanska Krupa
Stjórnarherinn hefur reynt að ná
bænum Bosanska Kmpa. Fregnir
herma að hann hafi umkringt tvær
serbneskar hersveitir þar.
Takist stjórnarhernum ætlunar-
verk sitt yrði Bosanska Krupa fyrsti
mikilvægi bærinn sem hann næði
af Serbum.
Fregnir herma að stjórnarherinn
sæki einnig að bænum Trnovo, sem
er um 30 km sunnan við Sarajevo.
Nái herinn Trnovo á sitt vald auk-
ast mjög líkurnar á því að hann
geti tengt Sarajevo og Gorazde, sem
hefur verið einangruð frá því stríðið
hófst.
Reuter
RAÐHERRAR frá Arabisku furstadæmunum og ísraelskir kaup-
sýslumenn skiptast á nafnspjöldum á fundarstað í Casablanca.
Reynt að rjúfa
einangrun Israels
íCasablanca
Casablanca. Reuter.
UM 200 stjórnmálamenn frá 40
ríkjum og 2.000 fjármálamenn frá
80 löndum taka þátt í ráðstefnu í
Casablanca um efnahagssamvinnu
í Miðausturlöndum og Norður-Afr-
íku eftir friðarsamninga milli ísra-
ela og araba.
Eitt af helstu umræðuefnunum
er þörfin á að auka fjárfestingar
og skapa aukin efnahagsleg tengsl
milli ísraela og múslimaríkja til að
tryggja varanlegan frið. Bandaríkin
og Rússland standa fyrir ráðstefn-
unni, sem var sett á sunnudag.
Hálf ríkisstjórn
Warren Christopher, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, kvaðst
vona að ráðstefnan yrði jafn árang-
ursrík og friðarráðstefnan í Madrid
fyrir þremur árum sem var upphaf-
ið að sögulegum friðarsamningum
ísraela við Frelsissamtök Palestínu-
manna (PLO) og Jórdaníu. „Madrid-
ráðstefnan ruddi brautina fyrir frið.
Við skulum lýsa því yfir hér í þess-
ari viku að Casablanca-ráðstefnan
ryðji brautina fyrir aukin efnahags-
leg tengsl og hagvöxt,“ sagði Chri-
stopher. Hann bætti við að mark-
miðið væri að „breyta friðargjörð
leiðtoganna í frið milli þjóðanna".
Yitzhak Rabin, forsætisráðherra
Ísraels, og hálf stjórn hans sitja
ráðstefnuna í von um að hún verði
til þess að binda enda á efnahags-
lega einangrun ísraels í þessum
heimshluta.
Opna landamæri
Rabin tilkynnti eftir viðræður við
Yasser Arafat, leiðtoga PLO, að
hann hygðist opna að nýju landa-
mæri ísraels að sjálfstjórnarsvæð-
um Palestínumanna á Gaza-svæð-
inu og Vesturbakkanum innan
tveggja daga. Landamærunum var
lokað eftir mannskæða sprengju-
árás Hamas-samtakanna í Tel Aviv.
Ráðherrar frá flestum múslima-
ríkjunum sitja ráðstefnuna. Ráða-
menn í Líbanon og Sýrlandi snið-
ganga hana og írökum, írönum og
Líbýumönnum var ekki boðið.
Þýskur fjármálamaður undirbjó flótta sirni til Teheran
Mútaði klerkastj óminni
London, Frankfurt. Reuter.
Claudia, sést í borginni
Isfahan en þar á Schneid-
er eignir.
Schneider hefur verið
sakaður um fjársvik og
hefur mál hans valdið
miklum deilum, m.a. hefur
Deutsche Bank verið sak-
aður um mikið fyrir-
hyggjuleysi í lánveitingum
sínum ti! fyrirtækja fjár-
málamannsins.
Sögusagnir voru á
kreiki um að Schneider, sem
Jiirgen
Schneider
verið sagt að hann væri
í Flórída eða Sviss.
Þýska tímaritið Focus
skýrði frá því fyrir
skömmu að Schneider
hefði tvisvar hringt í lög-
fræðing sinn í Genf,
Francois Canonica, í liðn-
urn mánuði og svissneska
lögreglan hefði tekið
samtölin upp. Sagði tíma-
ritið að Schneider hefði
samið skýrslu þar sem
Fælast
tölvurnar
Tókíó. Reuter.
NÝLEG konnun menntamála-
ráðuneytisins í Japan hefur leitt
i ljós að tveir þriðju allra kennara
landsins geta ómögulega notað
venjulegar tölvur.
Japan er eitt tæknivæddasta
þjóðfélag heims og því olli það
yfirvöldum áhyggjum fyrir nokkr-
um misserum að einungis tæplega
þriðjungur 994.600 kennara
landsins gat brúkað skólatölvur.
Af þessum sökum efndu jap-
önsk skólayfirvöld til sérstaks
átaks til að draga úr tölvufælni
kennara. Árangurinn hefur hins
vegar látið á sér standa, því þeim
fjölgaði aðeins um 4% sem náðu
valdi á tölvunum.
Skefjalaus
hrekkja-
vaka
KVEIKT var í á annað hundrað
bygginga í Detroit í fyrrinótt er
skefjalaust íkveikjuæði giæip
ungmenni þar í borg í tilefni
árlegrar lirekkjavöku. Verulega
hafði dregið úr íkveikjum á und-
anförnum árum, eða úr 297
byggingum í 65 í fyrra. Viðbún-
aður lögreglu- og slökkviliðs
hafði verið minnkaður af þeim
sökuin. Sömuleiðis hafði verið
fækkað í gæslusveitum sjálfboða-
liða úr 40.000 í 8.000. Að mestu
var kveikt í yfirgefnum bygging-
um en einnig i íbúðarblokkum
og fórst eins árs barn í eldsvoða.
ÞÝSKI fjármálamaðurinn Jiirgen
Schneider, sem eftirlýstur er af
þýsku lögreglunni eftir að hafa
skilið eftir sig gjaldþrot og 3,3
milljarða dollara skuldir þar í
landi, býr nú í íran, að sögn
breska dagblaðsins The Sunday
Times. Blaðið segir að sést hafí
til Schneiders í Teheran. Hann
hafí undirbúið flóttann vel og
mútað klerkastjórninni óspart
með „miUjönum þýskra marka“
eða tugmilljónum króna.
Blaðið sagði að einnig hefðu
Schneider og eiginkona hans,
hvarf ásamt eiginkonu sinni í
apríl, væri látinn. Einnig hefur
fram kæmu upplýsingar er skað-
að gætu Deutsche Bank.