Morgunblaðið - 01.11.1994, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 01.11.1994, Blaðsíða 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR UNGLIIMGA/HANDKIMATTLEIKUR E ÖNVS Þrettán keppendur keppa á skíðum í Andorra ÓLYMPÍUNEFND íslands ákvað það á fundi sínum í síðustu viku að senda 13 keppendur á Ólympíudaga æskunnar í skíðaíþróttum sem fram fara í Andorra í febrúar á næsta ári. Fimm unglingar taka þátt í göngu og átta í alpagreinum. Unglingalandslið Skíðasam- bandsins í alpagreinum og göngu hefur verið að undirbúa sig í sumar og haust fyrir þátttöku í Ólympíudögum sækunnar sem eru ætlaðir krökkum sem eru fæddir 1978 og síðar. Guðmundur Siguijónsson hefur haft yfirumsjón með alpagreina- liðinu. Liðið æfði m.a. í Kerlingar- fjöllum i sumar og fyrrihugað er að fara á Snæfellsjökul núna í nóvember. Flestir í hópnum fara í æfíngaferð erlendis með félögum sinum um áramótin. Göngulandsliðið hefur einnig undirbúiðs sig vel og hefur Hauk- ur Eiríkson séð um það. Nú þegar hefur verið ákveðið hvaða fimm krakkar taka þátt í göngukeppn- inni í Andorra. Þau eru: Garðar Guðmundsson frá Ólafsfírði, Helgi Heiðar Jóhannesson og Þór- oddur Ingvarsson frá Akureyri og Svava Jónsdóttir frá Ólafsfirði. Ekki hefur verið ákveðið hvaða átta taka þátt í alpagreinum, en 11 krakkar hafa æft með ungl- ingalandsiðinu og munu berjast um átta sæti, fjórar stúlkur og íjórir piltar. Þær sem eru í stúlkna liðinu eru: Hallfríður Hilmarsdótt- ir, Akureyri, Eva Björk Braga- dóttir, Dalvík^ Arnrún Sveinsdótt- ir, Húsavík, Asa Bergsdóttir, KR pg María Magnúsdóttir, Akureyri. Í piltaliðinu eru: Egill Birgison, KR, Jóhann Friðrik Haraldsson, KR, Helgi Indriðason, Dalvík, Sturla Bjarnason, Dalvík, Jóhann G. Möller, Siglufírði og Jóhann Haukur Hafstein, Ármanni. Spennandi úrslitaleikir í 5. flokki kvenna Valur, ÍR og Víkingur hrepptu gullverðlaun - íslandsmótið í 5. flokki kvenna hófst um helgina HANDKNATTLEIKSVERTÍÐIN er komin í fuilan gang í yngri flokkum og þegar hafa flestir flokkar hafið keppni á íslands- mótinu. Keppt var í fimmta flokki kvenna í Víkinni um síðustu helgi og var keppni mjög jöfn og spennandi. Valur, Stjarnan og Fylkir unnu sér rétt til að leika í þriggja liða úrslitum í A-liðakeppninni. Bæði Stjarnan og Valur sigruðu Fylki, Stjarnan með tveimur mörkum og Valur með fímm mörkum og því nægði Val jafntefli í leiknum við Stjörnuna. Stjaman leiddi lengst af og hafði fjögurra marka forskot í leikhléi 7:3. I síðari hálfleiknum sneru Valsstúlkurnar leiknum við skoruðu fjögur mörk í röð og jöfn- uðu 7:7 en lokatölur urðu 8:8 og Valur því sigurvegari á hagstæðari markamun. Sama spenna var hjá B-liðunum og allir leikirnir í þriggja liða úrslit- um voru tvísýnir. Valur sigraði FH 8:5 og ÍR sigraði Val 8:6. ÍR og FH gerðu síðan jafntefli 6:6 og ÍR hlaut því þijú stig, Valur tvö og FH eitt. Víkingsstúlkumar sigruðu í keppni C-liða en leikið var í einum riðli vegna dræmrar þátttöku. Þá var Víkingur valið prúðasta lið keppninnar. íslandsmótinu í yngri aldurs- flokkum er skipt upp í mót og var mótið það fyrsta af þremur sem haldið er í þessum aldursflokki fyr- ir úrslitakeppnina. Næsta mót verð- ur í umsjón Gróttu og fer fram í desemberbyijun. ’ktWtÁ*' i 3 w “■ y ■ 'tfV fÖ a | VKV, 1 ■ T| íá | í $ A VK’i | Llð ÍR slgraðl í keppni B-liða eftir tvísýna lelki við Val og FH. FIMLEIKAR Tilþrif á Haustmótinu Fyrsta stórmót vetrarins í áhaldafimleikum var haldið í íþróttahúsi Ármanns við Sigtún sl. laug- ardag. Óhætt er að segja að mótið lofi góðu fyrir veturinn. Mótið var vel sótt og heppnaðist vel í alla staða þrátt fyrir nokkur þrengsli. Myndirnar að neðan voru teknar á mótinu en úrslit úr því og nánari umfjölliin er hægt að finna annars staðar í blaðinu. Þórey Edda Elísdóttir úr Björk er ein af betri fimleikakonum lands- ins og hér sést hún sýna listlr sínar á gólfinu. Auður Ólafsdóttlr úr Gerplu sýndi vandaðar æfingar á gólfi sem gáfu hennl 7.65 í einkunn á Haustmótinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.