Morgunblaðið - 01.11.1994, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 01.11.1994, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1994 25 Hússjóður Öryrkjabandalagsins EITT af brýnustu hagsmunamál- um fatlaðra er að geta fengið hús- næði við hæfi á viðráðanlegu verði. Hlutverk Hússjóðs Öryrkjabanda- lagsins er að afla íbúðarhúsnæðis fyrir fatlaða og reka það. Þarfir fatlaðra eins og annarra eru mis- munandi. Allir þurfa fyrst og fremst á góðu húsnæði að halda, sumir þurfa sérhannað húsnæði, aðrir þurfa húsnæði þar sem kostur er á nokkurri þjónustu og enn aðrir þurfa hvort tveggja. Þjónustan þarf að koma frá sveitarfélögum og svæðisskrifstofum um málefni fatl- aðra. Hússjóðurinn á nú þegar 490 íbúðir, þar af 4 í byggingu. Frá síðasta aðalfundi hafa verið keyptar 23 íbúðir og 4 eru í byggingu. Sex af þessum 27 íbúðum eru utan Reykjavíkursvæðisins. Á árinu 1993 voru keyptar eða byggðar íbúðir fyrir 255 milljón krónur, þar af komu 92 milljónir af hluta Ór- yrkjabandalagsins í lottótekjum. Það sem á vantaði var tekið að láni hjá Húsnæðisstofnun ríkisins. Verð- mæti fasteigna í rekstri er um einn og hálfur milljarður króna. Tap á Til þess að geðfatlaðir geti nýtt sér þetta hús- efnt til Ljósmyndasýn- ingar í setustofu í Há- túni lOa. Þar getur að líta nokkrar af þeim byggingum fyrir fatl- aða, sem Húsnæðis- stofnun hefur lánað til á liðnum aldarfjórð- ungi. Næstu verkefni Nýlega gerðist hús- sjóður aðili að sjálfs- eignarstofnuninni Eir og mun kaupa þar 10 sjúkrarými. Þetta er Tómas Helgason gert til að mæta lítil- lega þörfum aldraðra íbúa í húsnæði Ör- yrkjabandalagsins sem verða að fá hjúkrunar- rými þegar elli bætist við fötlun. Með þessu móti kemur hússjóð- urinn til með að hafa ráðstöfunarrétt á hjúkrunarrýmum, án þess að reka sjálfur slíka starfsemi. Skömmu eftir síð- asta aðalfund efndi stjórn hússjóðsins til fundar þar sem fjallað var um bú- setuþörf geðfatlaðra. í framhaldi af þeim fundi var stofnuð nefnd hússjóðsins, Félagsmálastofnunar Reykjavíkur og Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík til þess að athuga sérstaklega búsetu- þörf geðfatlaðra í Reykjavík. Sú nefnd hefur nýlokið störfum og hélt fund í Oddshúsi hinn 12. þ.m. til þess að kynna skýrslu sína. Þegar búið var að samræma biðlist- ana kom í ljós, að 227 geðfatlaðir einstaklingar voru á biðlistum hjá þessum aðilum, langflestir hjá Hússjóði Öryrkjabandalagsins. Af þessum hópi voru 50 einstaklingar annað hvort á götunni eða á gisti- heimilum, 134 í óöruggu húsnæði og 43 dvöldu á áfanga- eða lang- legudeildum. Á nefndin, sem gerði þessa athugun, mikla þökk fyrir vinnu sína, sem á eftir að koma að gagni við skipulagningu á úr- lausn þessa mikla vanda. Hlutverk Hússjóðs í sambandi við lausn á húsnæðisvanda geðfatlaðra er, eins og fyrir aðra fatlaða, að út- vega húsnæði til leigu fyrir þá. Til þess að geðfatlaðir geti nýtt sér þetta húsnæði nægjanlega, er nauðsynlegt að til komi verulega aukin þjónusta Félagsmálastofn- unar og Svæðisskrifstofu. Höfundur er formaður stjórnar Hússjóðs Öryrkjabandalagsins. Off nú er hann tvöfaldiir! Samvinna hússjóðs og Húsnæðis- stofnunar ríkisins hefur alla tíð verið með ágætum. Á yfirstandandi ári hafa fengi 20 lánsloforð frá Húsnæðisstofnuninni. í tilefni þess að 25 ár eru síðan Húsnæðisstofn- unin byrjaði að lána til íbúða fyrir öryrkja, hefur stjórn stofnunarinnar Verður hann 100 milljónir? Grilljónauppskrift Emils: 1. Skundaðu á næsta sölustað íslenskrar gétspár. 2. Veldu réttu milljónatölurnar eða láttu sjálfvalið um getspekina. 3. Snaraðu út 20 krónum fyrirhverja röð sem þú velur. 4. Sestu í þægilegasta stólinn í stofunni á miðvikudagskvöldið og horfðu á happatölurnar þínarkrauma í Víkingalottó pottinum I sjónvarpinu. 5. Hugsaðu um allt það sem hægt er að gera fyrir 100 milljónir. Samvinna við Húsnæðisstofnun næði nægjanlega, að mati Tómasar Ilelga- sonar, þarf að koma til verulega aukin þjónusta Verði ykkur að góðu! Félagsmálastofnunar og Svæðisskrifstofu. rekstrinum varð um 3 milljónir króna á árinu. Þrátt fyrir þann íbúðafjölda, sem hússjóðurinn á núna, hefur biðlist- inn haldið áfram að stækka. Nú liggja fyrir 568 umsóknir og hafði fjölgað um 120 á rúmum þremur mánuðum næst áður en biðlistanum var lokað til þess að hægt væri að endurvinna hann og athuga ná- kvæmlega hvaða umsóknum þyrfti að forgangsraðá. Hússjóðurinn þjónar öllum fötluðum Við lauslega athugun á megin- ástæðum fötlunar þeirra sem fengið hafa íbúðir hjá hússjóðnum kemur í ljós, að flokkun fötlunar eftir meginorsökum er svipuð og hjá þeim sem hafa verið metnir 75% öryrkjar. Þó er hlutur geðfatlaðra nokkuð minni. Ástæða er til að vekja sérstaka athygli á því, að á árunum 1987-1994 keypti og byggði hússjóðurinn 180 íbúðir, en af þeim voru 39 sérstaklega fyrir þroskahefta, bæði íbúðir og sam- býli (í 5 einbýlishúsum), sem þjónað er af svæðisskrifstofum. Þrátt fyrir þetta hefur stjórn Þroskahjálpar leitað til yfirvalda og óskað eftir að fá hlut í lottótekjum til jafns við Öryrkjabandalagið. Ef þetta næði fram að ganga, myndi hlutur annarra fatlaðra skerðast verulega og enn lengur dragast að hægt yrði að bæta úr húsnæðisþörf þeirra. Þó að þörf þroskaheftra fyr- ir húsnæði sé mikil, réttlætir hún ekki að gengið sé á rétt fatlaðra almennt og tekjustofn þeirra skert- ur, en eins og áður er sagt hefur hann ekki síður komið þroskaheft- um en öðrum fötluðum til góða.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.