Morgunblaðið - 01.11.1994, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 01.11.1994, Blaðsíða 49
morgunblaðið ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1994 49 ÍÞRÓTTIR UNGLINGA/JÚDÓ KORFUKNATTLEIKUR Dregið í bikar- keppni KKÍ Cyrir helgi var dregið í Bik- 1 arkeppni KKÍ í yngri flokkum í körfuknattleik. Unglingaflokkur karla (8-liða úrslit): KR - Þór Akureyri, ÍA - Haukar, ÍR - Valur og Njarð- vík - Keflavík Unglingaflokkur kvenna: Forkeppni að 4 - liða úrslit- um. Keflavík - Valur, Njarðvík - Tindastóll og Grindavík - Eið- ar. KR situr hjá. Drengjaflokkur: Forkeppni að 8 - liða úrslit- um. ÍR - Breiðablik, Þór Akureyri - KR, KR-B - Keflavík og Tindastóll - Eiðar. Breiðablik-B, Haukar, Val- ur og Grindavík sitja hjá. Stúlknaflokkur: Forkeppni að undanúrslit- um. Njarðvík - Fjölnir, Keflavík - Haukar 0g KR- Grindavík. IR situr hjá. 10. flokkur karla: Forkeppni að 8- liða úrslit- um. Þróttur - Skallagrímur, Valur - Haukar, Baldur - Fjölnir, KR-B - Keflavík, Grindavík - IR og USAH - Þór Akureyri A-lið KR og Njarðvík sitja hjá. 9. flokkur karla: Forkeppni að 8 - liða úrslit- um. Keflavík - Valur, Niarðvík - Haukar, KR - Leiknir og Grindavík - ÍR Fjölnir, Skallagrímur, Tindastóll og KR-B sitja yfir. Hafa unnið 17 leiki af tuttugu UNGLINGALANDSLIÐ kvenna í körfuknattleik sigraði á móti á írlandi sem haldið var helgina 21. - 23. sfðasta mánaðar. Islenska liðið hefur leikið tuttugu leiki á síðustu átj- án mánuðum og unnið sigur í sautján þeirra. Flest- ir leikir stúlknanna hafa verið gegn erlendum félagsl- iðum en liðið hefur leikið níu landsleiki á þessum tíma og unnið sex þeirra. íslenska liðið sem skipað er 15 - 16 ára stúlkum lék á mótinu ytra við írsk félagslið sem skipuð voru leik- mönnum U-19 ára og sigruðu nokkuð örugglega í mótinu. I Liðið lék landsleik við íra og beið lægri hlut 64:58 í spennandi viðureign. Stig íslenska liðsins í leiknum skiptust þannig: Erla Þorsteinsdóttir og Júlía Jörgensen 14, Erla Reynisdóttir 10, Hildur Ólafsdótir 9, Kristín Þórarins- dóttir 8, Þóra Bjamadóttir tvö og Anita Sveinsdóttir eitt stig. Þjálfari liðsins er Sigurður Hjörleifsson. Kristrún sigraði í strákaflokki Kristrún Friðriksdóttur úr Ár- manni gerði sér lítið fyrir á Haustmóti Júdósambandsins og sigraði í tveimur þyngdarflokkum í aldursflokknum 11-14 ára. Mótið var haldið í Grindavík á laugardag og sigraði Kristrún í + 45 kg flokki stúlkna. Henni var leyft að keppa í + 53 kg flokki drengja í sama aldursflokki og lék þar sama leikinn. Hún komst tap- laus í gegn um mótið með því að sigra í öllum sjö viðureignum sínurtr, þar af lagði hún sex andstæðinga sína á „ippon.“ Helstu úrslit urðu þessi í yngri aldursflokkum: Drengir7 - 10ára - 26 kg 1. Ingimar F'innbjömsson........JFR 2. Guðvin S. Haraldsson......,.UMFG 3. Ari B. Jónsson............. JFR 3. Ólafur S. Ragnarsson......Ármanni -30kg 1. Daði S. Jóhannsson,.........UMFG 2. Sigurður Ó. Hannesson .......JFR 3. Heimir Kjartansson...........JFR 3. Stefán Ó. Stefánsson.........UMFS -35kg 1. Geirmundur Sverrisson.......UMFS 2. Hjörtur Jónsson.............UMFÞ 3. Hafþór Magnússon............UMFS 3. Dag Grundel...............Ármanni + 35 kg 1. Friðbjörn Ásbjömsson.....Vík. Ól. 2. Ragnar Jóhannsson,.......UMFG 3. Sindri Eiðsson...........UMFS Stúlkur7 - 10ára - 32 kg 1. Elva D. Andersen............UMFE 2. Unnur D. Tryggvadóttir......UMFE 3. Hólmfríður Haraldsdóttir....UMFE Stúlkur 11 -14ára + 45 kg 1. Kristrún Friðriksdóttir..Ármanni 2. Ragna Jónsdóttir............UMFE 3. Rósa M. Guðnadóttir.........UMFE DrengirH -14ára - 35 kg 1. Michael Jónsson.............UMFG 2. Víðir Ö. Jóakimsson.........UMFS 3. Leó Kristófersson...........UMFS 4. Atli Þórarinsson............UMFG - 40 kg 1. Snævar M. Jónsson............JFR 2. Helgi M. Helgason...,....UMFG 3. Þórarinn Pálsson............UMFS 3. Daníel Helgason...............JFR -46 kg Jóhann Jónsson..................UMFS 2. Þormóður Jónsson.............JFR 3. Dagur Sigurðsson.............JFR 3. Haraldur Jóhannesson.........UMFG - 53 kg 1. Hlynur Helgason.............UMFG 2. Kristinn Guðjónsson........ JFR 3. Davíð Kristjánsson.......Ármanrfl^T + 53 kg 1. Kristrún Friðriksdóttir..Ármanni 2. Axel I. Jónsson..........Ármanni 3. Friðgeir Bjarnason............JB Stúlkurnar í unglingalandsliðinu: Grét af gleði eftir sigur í úrslitaglímunni Góð frammistaða hjá íslenskum júdóköppum á írlandi ÍSLENSKIR júdómennirnir Vignir Stefánsson (t.v.) og Atli Gylfason úr Ár- manni náöum góðum árangri á móti i Dublin. Á myndinni má sjá þá með sveitabikarinn. Vignir Stefánsson og Hjalti Gylfason úr Ármanni náðu mjög góðum árangri á Opna írska mótinu íjúdó sem haidið var nágrenni Dyflinnar fyrir tíu dögum. Júdómenn frá írlandi, Englandi, Japan og Þýskalandi tóku þátt í mótinu og kom árangur íslensku keppendanna mjög á óvart enda eru þeir ungirað árum. Eg var hrikalega taugaóstyrkur fyrir úrslitaglímuna sem var gegn Japana. Um eitt hundrað áhorfendur fylgdust með og létu vel í sér heyra og það var ekki til að minnka taugaspennuna. Fyrir glím- una voru Ijósin slökkt og kastljósi beint að okkur. Ég grét af gleði eft- ir sigurinn enda taugarnar búnar að vera þandar," sagði Vignir um sigur sinn í úrslitaglímunni í - 65 kg flokki karla. Vignir varð einnig sigurvegari í unglingaflokki í - 65 kg flokki. Hann er átján ára mörkin á milli unglinga- og karlaflokks eru 21 ár. Atli er aðeins sextán ára en hann lenti í öðru sæti U-21 árs og yngri og í 3. sæti í karlaflokki. „Eg gerði mér engar vonir og fyrir mót- ið hefði ég gert mig ánægðan með að vinna eina glímu. Ég æfði lítið fyrir mótið og hef þyngst sem gerði það að verkum að ég keppti í 86 kílóa flokknum í stað 75 kílóa flokks- ins sem ég er venjulega í.“ Þeir Vignir og Atli fengu engan annan en Bjarna Friðriksson með sér í sveitakeppnina en Bjarni kom inn í sveitina á síðustu stundu vegna meiðsla Halldórs Hafsteinssonar I íslenska sveitin lagði þá þýsku í úrslitunum. Hætti að æfa Vignir og Atli hafa keppt erlendis áður þó að reynsla þeirra sé ekki mikil á alþjóðlegum mótum. Vignir fór á- smáþjóðaleikana í júní í fyrra og var einn þeirra keppenda sem fékk heiftarlega matareitrun. „Ég þurfti að hætta að æfa í nokkra mánuði og það er ekki langt síðan ég náði fyrri styrk. Ég fékk í mag- ann úti, líklega útaf stressi og var farinn að hafa áhyggjur af því að sagan væri að endurtaka sig,“ sagði Vignir, eftir keppnina á smáþjóða- leikunum þurfti hann að dveljast í viku á sjúkrahúsi auk þess sem hann léttist mikið eftir keppnina. Unglingalandslið kvenna í körfuknattleik með sigurlaunín frá alþjóðlegu móti á írlandi. Fremri röð frá vinstri: Anita Sveinsdóttir, Erla Reynisdóttir, Júlía Jörgens- en, Sigríður Kjartansdóttír, Georgía Christiansen og Hildur Óiafsdóttir. Aftari röð frá vlnstri: Svana Bjarnadóttir, Kristín Þórarlnsdóttir, Erla Þorsteinsdóttir, Pálína Gunnarsdóttir, Þóra Bjarnadóttir og Alda Jónsdóttir. Víkingar haustmeistarar 5. flokks Víklngur varð haustmeistari 5. flokks í knattspyrnu með sigri á Fram fyrir nokkru. Á myndinni má sjá Víkinga taka við verðlaunum sínum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.