Morgunblaðið - 01.11.1994, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 01.11.1994, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1994___________________________________________________________MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Tónleikar án leyfis í auglýs- ingaskyni HUÓMSVEITIN Quicksand Jesus efndi án tilskilinna leyfa til tón- leika á mótum Austurstrætis og Pósthússtrætis um klukkan hálf- fjögur aðfaranótt sunnudags. Lög- reglumenn stöðvuðu tónleikahald- ið en urðu fyrir aðkasti áhorfenda, sem að sögn lögreglu hræktu á þá, spörkuðu og grýttu ýmsu laus- legu. Hljómsveitarmenn hurfu í mannhafið en sendibflstjóri sem leigður hafði verið til að aka hljóm- sveitinni var færður á lögreglu- stöð. Lögreglunni bárust kvartanir undan tónleikahaldinu sem hófst þegar stórum sendibfl var ekið inn í Pósthússtrætið og hljómsveitin byijaði að leika. Ráðist gegn lögreglu Lögreglu gekk í fyrstu ekki að komast að bílnum til að stöðva tónleikana vegna íhlutunar áhor- efnda. Einn lögreglumaður fékk högg í andlitið og í annan var kastað flösku. Lögregla handtók fimm þeirra sem sagðir voru hafa haft sig mest í frammi og gistu þeir fangageymslur. Meðan aðgerðir lögreglunnar stóðu yfir fóru meðlimir hljóm- sveitarinnar af staðnum og skildu tæki sín eftir. Sendibílstjórinn, sem hafði verið fenginn til að aka hljómsveitinni gegn greiðslu og taldi, að sögn lögreglu að tilskilin leyfí væru til staðar, varð eftir og var færður til skýrálutöku á löreglustöð. Lögregla hafði hljóðfæri og hljómflutningskerfí hljómseitar- innar enn í vörslu sinni í gær. í viðtölum við sjónvarps- og útvarpsstöðvar hafa meðlimir hljómsveitarinnar lýst því yfir að tónleikarnir hafi náð tilgangi sín- um og skilað því sem að var stefnt. Quicksand Jesus sé að gefa út plötu á eigin kostnað og hafí hljómsveitin efnt til tónleikanna til að vekja á sér athygli og kom- ast í fjölmiðla. Þrírmenn voru hætt komnir við Hellisá á Lakagígavegi um helgina Fastir í bíl hálf- fullum af vatni ÞRÍR menn voru hætt komnir um helgina þegar þeir festu bíl sinn í læk við Hellisá á Lakagígavegi. Mennirnir dvöldu við slæmar að- stæður í bílnum í um 14 klukku- tíma, en vatn streymdi stöðugt inn í hann. Björgunarsveitarmenn frá Vík og Kirkjubæjarklaustri fundu mennina aðfaranótt sunnudags. „Vistin í bílnum var lengst af ágæt. Við létum hann ganga öðru hveiju og vorum með prímus. Um hálfátta um kvöldið skynjuðum við að það var farið að flæða inn í bíl- inn. Ég neita því ekki að þá fór að fara um okkur. Þetta gerðist reynd- ar mjög hægt, en við áttum ekki annan kost en að færa okkur ofar í bílinn. Þegar björgunarsveitarmenn fundu okkur um hálftvö um nóttina var staðan þannig að ég stóð í vatn- inu fram í, ofan á geymsluhólfi á milli sætanna. Sætin bæði fram og aftur í voru komin í kaf. Við björguð- um málum aftur í með því að leggja bakið á framsætunum ofan í setuna og strákarnir sátu þar ofan á. Ég var búinn að reikna út að vatnið ætti um tvær tommur eftir upp í þá,“ sagði Jóhann Ögmundsson, einn þremenninganna. Festu sig í krapaelg Jóhann og félagar hans fóru frá Reykjavík austur á Klaustur á föstu- dagsmorgun. Erindið var að njóta náttúrunnar í haustbúningi, en það hafa þeir gert oft áður. Jóhann sagði að hann hefði verið í vafa hvort hann ætti að halda upphaflegri ferðaáætlun þar sem þungskýjað var. Eftir að hafa haft samband við Veðurstofu hefði hann ákveðið að láta slag standa. Jóhánn sagði að greiðlega hefði gengið að komast inn eftir. Mennirnir gistu í _ skála í Hrosstungum um nóttina. Á laugar- dagsmorgninum var hins vegar kom- jnn talsvert mikill snjór. Þeir ákváðu engu að síður að reyna að komast til byggða. Skömmu eftir að bíllinn fór yfir Hellisá festi hann sig í krapa- elg í læk þar skammt frá. Litlu áður hafði Jóhann haft símasamband við mann á Kirkjubæjarklaustri og til- kynnt honum um erfíða færð, en að ef allt gengi vei myndi hann koma til byggða eftir tvo tíma. Þegar mennirnir skiluðu sér ekki um há- degisbil og ekki náðist símasamband við þá óskaði maðurinn eftir aðstoð björgunarsveitarinnar Kyndils á Kirkjubæjarklaustri. Menn frá Kyndli á Kirkjubæjar- klaustri lögðu af stað á vel útbúnum jeppa um miðjan dag, en neyddust fljótlega til að snúa við vegna ófærð- ar. Björgunarsveitarmenn frá Kyndli og björgunarsveitinni Víkveija í Vík lögðu af stað á snjóbíl og fjórum vélsleðum um kl. 11 um kvöldið. Björgunarsveitarmenn fundu bílinn um hálftvö um nóttina. Náðist með aðstoð sryóbíls Bíllinn náðist upp úr ánni með aðstoð snjóbílsins, en engin tök voru hins vegar á að koma honum til byggða um nóttina. Félagar í Kyndli fóru í gær á tveimur fjórhjóladrifn- um traktorum til að ná í bílinn. Grétar Einarsson, formaður Vík- veija, sagði að aðstæður til leitar hefðu verið slæmar, myrkur, snjó- koma og blint. Hann sagði að í aðal- atriðum hefði björgunin þó gengið vel. „Við fengum sting þegar við fundum för eftir mennina á veginum. Við áttuðum okkur fljótlega á að förin lágum til baka aftur,“ sagði Grétar. Hann sagði að þremenning- arnir hefðu gert hárétt að snúa til baka og vera um kyrrt í bílnum. Á milli 10 og 20 björgunarsveitar- menn tóku þátt í björguninni. Leitin tók 10-11 tíma. Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson 110.000 jó-jó hafa selst hér á landi ÍSLANDSMÓTIÐ í jó-jó fór fram á laugardaginn í Kringlunni og tóku 153 keppendur þátt, en tvo undanfarna mánuði fór fram forkeppni víðsvegar um land. Islandsmeistari varð fjórtán ára Reykvíkingur, Kristleifur Guð- björnsson. Á fimmta þúsund börn og unglingar tóku þátt í 120 mótum, sem voru liður í undankeppn- inni. Um helgina höfðu selst yfir 110.000jó-jó, sem er nyög hátt hlutfall miðað við höfðatölu á heimsmælikvarða.„Áhuginn hér- lendis hefur verið gífurlegur og jó-jó-salan hefur tvöfaldast á milli móta,“ sagði Ivan Hagen í samtali við Morgunblaðið, en hann hafði umsjón með mótinu fyrir Russell-fyrirtækið banda- ríska og Vífilfell. Hagen er bras- ilískur og hefur unnið við mark- aðssetningu á jó-jó í 13 ár um allan heim. „Ég hef komið til 30 landa og þar sem ég er vanur 30-40 stiga á heimaslóðum fannst mér stórkostlegt að vakna við snjókomu á íslandi. Það er skemmtilegur endapunktur á veru minni í þessu fallega landi. Jó-jó eru vinsæl um allan heim, í Mexíkó seldum við 45 milljón jó-jó á nokkrum mánuðum. Sex- tíu manna hópur frá ýmsum löndum annaðist kynninguna og klæddist eigin þjóðbúningum. Ég ætla að þjálfa íslenskan strák í sýningarhóp fyrir næsta ár. Hann heitir Bjarni Baldvinsson og er mjög fær 17 ára strákur. íslandsmeistarinn er enn of ung- ur, en það er aldrei að vita nema hann eða aðrir strákar hérlendis eigi möguleika á starfi í framtíð- inni. Ékki vantaði áhugann núna og margir strákar og stelpur eru orðin mjög fær á nokkrum mán- uðum. Gera sömu hluti og hefur tekið mig mörg ár að full- komna.“ Á myndinni afhendir Ivan Hagen íslandsmeistaranum unga, Kristleifi Guðbjörnssyni, meistarabikarinn eftir keppni í Kringlunni á laugardag. i l i Héraðsdómur hafnar 10 millj. kröfum á hendur Landsvirkjun 250 þúsund vegna jarðrasks „Leita kannski til Evrópudómstólsins,“ segir Björn Pálsson á Ytri-Löngumýri HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur dæmt Landsvirkjun til að greiða Birni Pálssyni, bónda á Ytri-Löngumýri, 250 þúsund krónur í eignarná- msbætur vegna lands sem tekið var undir raflínu- stæður og línuveg vegna 3 km háspennulínu frá stjórnstöð Blönduvirkjunar og að byggðalínu við Blöndu. Björn hafði krafíst rúmlega 10 milljóna króna í bætur vegna landsins en dómurinn bygg- ist á niðurstöðu matsnefndar eignarnámsbóta sem Björn hafði ekki viljað una en Landsvirkjun var fús til að fallast á. Bjöm Pálsson sagðist í samtali við Morgunblaðið í gær að öllum líkind- um skjóta málinu til Hæstaréttar. „Það getur verið að ég verði að leita til Evrópudómstólsins til að fá þetta leiðrétt en ég verð áður að fara í Hæstarétt og fá úrskurð um þetta þar. Ég geri ráð fyrir að það verði gert og síðan verður ákveðið hvort það hafí þýðingu að ég fari lengra með það. En fyrst þarf ég að ráðfæra mig við færa lögfræðinga," sagði Björn Pálsson. Vegna Blönduvirkjunar óskaði Landsvirkjun að taka eignarnámi land undir 3 km langan og 4,8 m breiðan vegarslóða og reisa tíu turnstæð- ur. Ekki var farið fram á fullkominn eignarrétt að landi undir mannvirkin, heldur afnotarétt um ótakmarkaðan tíma og mætti ekki byggja á 30 metra landsvæði beggja vegna línunnar. Mats- nefnd eignarnámsbóta taldi hæfílegar bætur 242 þúsund krónur auk 140 þúsund króna í máls- kostnað. Tilkvaddir matsmenn töldu að jarðrask framkvæmdanna næði til 2,14 ha lands, þar af væru 1,4 ha ógróið land. Björn taldi fjarstæðu að meta hvem hektara á 110 þúsund krónur og væri sú ijárhæð ekki fullt verð fyrir það sem tekið hefði verið eign- arnámi. Vildi bætur fyrir 18 hektara Hann taldi að bætur ættu að koma fyrir alla þá 18 hektara sem línan lægi um og hefðu því beint eða með kvöðum verið teknir eignamámi; vildi miða við 512 þúsund kr. verð á hektara, í samræmi við land sem Landsvirkjun hefði keypt í grenndinni, og taldi sér því bera rúmlega 10 milljónir króna fyrir landið. Þá væri tekið tillit til sjónmengunar en Björn taldi turnstæðumar lýti á fagurri bújörð og spilla íjárhagslegu verð- mæti hennar. Möstrin blasi við af bæjarhlaðinu og vildi Björn glaður borga milljón til að losna við ófögnuðinn. Þá uni hross Björns sér illa í námunda við mannvirki eins og háspennulínur sem hvíni í þegar vindur er og með lagningu línunnar sé stórt landsvæði undir henni orðið vannýtt til beitar hrossa. Þar með hafi Björn misst mögu- leika á að nýta afbragðs beitar- og ræktunar- land til þess búskapar sem nú kunni að vera hentugastur á því. í niðurstöðum dómsins segir að mælingar dómkvaddra matsmanna um að 2,14 ha, þar af 1,4 ha ógróið land, hafí farið undir raflínustæð- ur og afleggjara frá línuvegi, skuli leggja til grundvallar. Ósannað að verðgildi hafi rýrnað Ekki verði litið fram hjá því að Björn hafi áfram full afnot þess lands sem tekið hafi verið eignar- námi að undanskildu því sem farið hafi undir veg og raflínustæður. Ytri-Langamýri sé hefðbundin bújörð og Bjöm hafí ekki sýnt fram á eða gert sennilegt að á því verði breyting í fyrirsjáanlegri framtíð. Hann eigi þvi rétt til bóta fyrir missi beitarlands en ósannað sé að um annan fjárhags- legan skaða sé að ræða eða að verðgildi jarðarinn- ar hafí rýrnað vegna framkvæmdarinnar. Ekki hafí verið gert sennilegt að Björn muni bera fjárhagslegan skaða af byggingarbanni á 60 m breiðu svæði meðfram línunni enda komi það ekki í veg fyrir ræktun eða nytjun fyrir búfé, þar með talin hross. Landsvirkjun var því dæmd til að greiða Birni bætur fyrir jarðrask á 2,2 hektömm sem þóttu hæfilega 250 þúsund með vöxtum frá 1091, auk 340 þúsund króna í málskostnað fyrir matsnefnd og dómi. Sjálfstæðisflokkur | Prófkjör 1 á Norður- landi vestra SJÁLFSTÆÐISMENN í Norður- | landskjördæmi vestra ákváðu á fundi | kjördæmisráðs á Hótel Blönduósi um ? helgina að efna til opins prófkjörs 1 til ákvörðunar framboðslista fyrir næstu alþingiskosningar. Prófkjörið verður haldið 26. nóvember næst- komandi. Prófkjörið verður opið öllum flokksbundnum sjálfstæðismönnum, sem náð hafa 16 ára aldri á kjördag og einnig þeim sem undirrita stuðn- ingsyfirlýsingu við Sjálfstæðisflokk- inn. Pálmi Jónsson sem leitt hefur list- ann við undanfarnar kosningar ætlar að hætta í framboði. Vilhjálmur Egilsson alþingismaður og séra Hjálmar Jónsson varaþingmaður á Sauðárkróki hafa lýst því yfír að þeir muni sækjast eftir 1. sætinu í prófkjöri. Einnig hefur Ágúst Sig- urðsson bóndi á Geitaskarði í Aust- ur-HúnavatnssýsIu boðað framboð í efstu sætin. Þá hafa sjálfstæðismenn á Siglufírði, Skagaströnd og fleiri stöðum sýnt áhuga á að fá menn í prófkjörið en ekki kom fram á fund- inum um helgina hveijir það yrðu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.