Morgunblaðið - 01.11.1994, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 01.11.1994, Blaðsíða 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ MINNIIMGAR t Ástkaer móðir okkar og tengdamóðir, ÞÓRA EINARSDÓTTIR, Hraunbæ 142, lést í Landspítalanum 30. október sl. Ásdis Gunnarsdóttir, Simon Gunnarsson, Steinunn Gunnarsdóttir, Þóra S. Gunnarsdóttir, Gunnar Gunnarsson, Guðmundur Gunnarsson, Emil Gislason, Rannveig Guðmundsdóttir, Gunnar R. Antonsson, Eggert Ólafsson, Herdís Skarphéðinsdóttir, Kristín D. Árnadóttir. t Faðir okkar, DANÍEL JÓNSSON, áðurtil heimilis í Sörlaskjóli 16, er látinn. Útförin hefur farið fram. Börn hins látna. t Innilegar þakkir til allra, fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGRÍÐAR EYJÓLFSDÓTTUR frá Laugardal, Vestmannaeyjum, Breiðvangi 48, Hafnarfirði. Pétur Þorbjörnsson, Ágústa Pétursdóttir, Sigurður Helgason, Eyjólfur Pétursson, Ingveldur Gísladóttir, Líney Björg Pétursdóttir, Kristinn Sigmarsson, Pétur Örn Pétursson, Ólöf K. Guðbjartsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ÁSGEIR ÖRN Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem Elsku Sveinn, Auður, Auja, Ella, Hrönn, Simmi, Bessi og aðrir að- standendur. Megi Guð blessa ykkur og styrkja á komandi tímum. Ásgeir Bachmann, Anna Margrét. Það er erfítt að trúa því og sætta sig við það að fá aldrei framar að hitta Ásgeir og vera í félagsskap við hann. Það er ótrúlegt að hugsa til þess að hann sé farinn frá okkur svo ungur og í blóma lífsins. Mig langar með fáeinum orðum að minnast vinar og félaga. Kynni okkar hófust þegar fjöl- skylda mín fluttist í Máshólana fyr- ir um 13 árum og tókust þá með mér og Ásgeiri góð vináttubönd og héldust þau í gegnum súrt og sætt, frá því að við vorum litlir ærslafull- ir pollar að leik og í gegnum ungl- ingsárin. Ásgeir var mjög félagslyndur og átti hann auðvelt með að ná til allra í kringum sig með brosi sínu, gríni og glensi. Það er sárt að kveðja hann aðeins 18 ára gamlan og lífíð rétt að byija. Það var gaman að spjalla við Ásgeir um hin ýmsu mál og var hann fróður um marga hluti. Ásgeir var opinskár og skemmti- legur, átti stóran vinahóp, þar sem hann var oftast hrókur alls fagnað- ar. Hann hafði mikinn áhuga á tón- list og spilaði m.a. á bassa og píanó. Hann átti mjög gott með að sjá spaugilegar hliðar á ýmsum málum og oft var stutt í hláturinn. Undir niðri var hann samt alvarlega hugs- andi um lífíð og tilveruna. SVEINSSON Elsku Ásgeir, ég hefði gjarnan viljað hafa átt fleiri stundir með þér. Það var ánægjulegt að fá að kynnast þér og minnist ég margra skemmtilegra stunda með þér með söknuði. Það er gott að eiga aliar þessar góðu minningar um þig um ókomin ár í huga og hjarta. Hvíl í friði kæri vinur. Elsku Auður, Sveinn, Auja, Ella, Sigmundur, Hrönn, Bessi og aðrir ættingjar og vinir, ég og fjölskylda mín sendum okkar dýpstu samúðar- kveðjur á erfiðri stundu og biðjum góðan guð að styrkja ykkur og vernda í ykkar miklu sorg. Minning- in um góðan dreng mun ávallt lifa. Baldur Þór Vilhjálmsson. Innst í hjarta augað bjarta og orðið góða hann geymir sem skart uns grafarhúm svart mun gestum bjóða. Mitt er þitt og hjá mér áttu heima, víst skalt öllum veraldarsorgum gleyma, veraldarsorgum gleyma. (Halldór Laxness) Elsku Ásgeir, takk fýrir allt. Árdís Hulda. Elsku Ásgeir Örn. Við viljum þakka þér fýrir allar þær stundir sem við fengum að njóta með þér. Vildum við að þær hefðu orðið fleiri. Kær vinur, við minnumst þín með þessu ljóði. Þú gekkst mér við hlið Svo er því farið; Sá er eftir lifír deyr þeim sem deyr en hinn dáni lifír í hjarta og minni manna er hans sakna. Þeir eru himnamir honum yfír. (Hannes Pétursson) Við biðjum guð að styrkja fjöl- skyldu þína og alla þá, sem í kring- um þig voru, í þessari miklu sorg. Birna Kristín Oskarsdóttir, Stefanía Krisljánsdóttir. Elsku Ásgeir, þú hvarfst svo snögglega á braut og eftir stendur aðeins autt skarð þitt, sem mun aldrei verða uppfyllt. Ég lít í kringum mig en þig er hvergi að finna, þú ert horfínn. Ég er þakklát fyrir að fá að kynn- ast þér og fyrir allar þær stundir sem við áttum saman. Minningarn- ar um þig munu ávallt vera vel varðveittar í hjarta mínu. í dagsins önnum dreymdi mig þinn djúpa frið, og svo varð nótt. Ég sagði i hljóði: Sofðu rótt, þeim svefni enginn ræni þig. Og þungur gnýr sem hrynji höf mitt hjarta lýstur enn eitt sinn: Mín hljóða sorg og hlátur þinn, sem hlutu sömu gröf. (Steinn Steinar) Fjölskyldu og aðstandendum votta ég samúð mína. Elma Rún. Varðveit þú faðir! mig og mína, á miskunn fel ég oss aila þína. Gef oss lastvart að lifa hér og loks í dýrð hjá sjálfum þér! (Bjarni Torarensen) Nú kveðjum við vin okkar Ásgeir Örn Sveinsson sem lést laugardag- inn 22. október. Því miður áttum við ekki fleiri stundir með þér, en þær sem við áttum saman voru ómetanlegar. Minning þín mun lifa meðal okkar. Biðjum við þig, Drott- inn, að styðja þau Svein, Auði, Auju, Ellu, Hrönn, Simma, Bessa og Hektor í þeirra mikla missi. Þínir vinir, Elvar Örn Þórisson, Óli B. Jónsson. + Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, SIGURÐUR MARSELLÍUSSON, Sólgötu 8, isafirði, andaðist í Landspítalanum 30. október. Útförin fer fram 5. nóvember frá ísafjarðarkapellu. Lilja Kristjánsdóttir, Þórhildur Sigurðardóttir, Snorri Jónsson, Kristján Sigurðsson, Anna Gunnarsdóttir, Daníel Órn Kristjánsson. + Bróðir okkar, ARNALDURÁRNASON, Aðalgötu 3, Stykkishólmi, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju föstudaginn 4. nóvember kl. 13.30. Fyrir hönd annarra aðstandenda, Ingvi Árnason, Sveinn Árnason, Reginn Árnason. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem) Kæri Ásgeir Öm. Í dag kveðjum við þig, kæri vin- ur. Það er sárt að hugsa til þess að við eigum aldrei eftir að sjá þig framar en það er staðreynd sem við verðum að reyna að sætta okkur við. Á þessum tímamótum streyma handavinna ■ Ódýr saumanámskeið Sparið og saumió fðtin sjálf. Mest 4 nemendur í hóp. Faglærður kennari. Upplýsingar f sfma 17356. stjórnun ■ Breytum áhyggjum f uppbyggjandi orku! ITC námskeiðið Markviss málflutningur. Upplýsingar: Sigrfður Jóhanns- dóttir f símum 682750 og 681753. ýmisiegt ■ Cranio - Sacral Balancing Höfuðbeina- og spjaldhryggsmeðferð. Vikunám 28. nóvember-4. desember. Upplýsingar og skráning í síma 641803. ■ Lífefli - Gestalt Námskeið í stjóm og losun tilfinninga Sársauka - spennu - kvíða - fælni. Sálfrœðlþjónusta, Gunnars Gunnarss., súni 641803. tölvur Tölvuskóli EJS, Grensásvegi 10, sfmi 633000. ■ Á næstu vikum er boðið upp á eftirfarandi námskeið: Grunnur og Windows 3.1 Námskeið fyrir bytjendur í tölvunotkun. 7.-11. nóv. kl. 9-12. 21.-25. nóv. kl. 9-12. Windows 3.1 ítarlegt námskeið um undirstöðuatrið gluggastýrikerfisins. 2.-4. nóv. kl. 13-16. 16.-18. nóv. kl. 9-12. 30. nóv.-2. des. kl. 13-16. Windows for Workgroup 3.11 Námskeið í Microsoft Mail og Schedule+. 4. nóv. kl. 9-12. 23. nóv. kl. 9-12. Ritvinnsluforritið Word fyrir Windows útg. 6.0 7.-11. nóv. ki. 20-23, byrjendanámskeið. 14.-18. nóv. kl. 9-12, byrjendanámskeið. 28. nóv.-2. des. kl. 13-16, byrjendanámskeið. 14.-17. nóv. kl. 20-23, framhaldsnámskeið, 24.-29. nóv. kl. 9-12, framhaldsnámskeið. Ritvinnsluforritið WordPerfect fyrir Windows útg. 6.0 14.-18. nóv. kl. 13-16, byrjendanámskeið. 28. nóv.-2. des. kl. 9-12, byrjendanámskeið. 24.-25. nóv. kl. 13-16. Uppfærsla úr WPWIN 5.1 í 6.0 Töflureiknirinn Excel útg. 5.0 7.-10. nóv. kl. 13-16, byrjendanámskeið. 19.-20. nóv. helgamámsk., byrjendanámskeið. 28. nóv.-l. des. kl. 20-23, byrjendanámskeið. 11. nóv. kl. 13-16, uppfærslunámskeið úr Excei 4.0 í útg. 5.0. 14.-17. nóv. kl. 13-16, framhaldsnámskeið. Verkáætlanaforritið Project, útg. 4.0. 18.-23. nóv. kl. 13-16. Access útg. 2.0 10.-15. nóv. kl. 9-12. 21.-24. nóv. kl. 20-23. Visual C++. 21.-24. nóv. kl. 13-16. Visual Basic. 7.-10. nóv. kl. 13-16. Skráning á námskeið og frekari upplýsingar um þessi og önnur námskeið hjá Tölvuskóla EJS, Grensásvegi 10, sfmi 633000. STJÓRNUNARFÉLAGS (SLANDS OG NÝHERJA 69 77 69 62 10 66 <33> NÝHEBII ■ Tölvuskóli f fararbroddi Öll hagnýt tölvunámskeið. Fáðu senda námsskrána. ■ Tölvunámskeið - Windows 3.1. - Word 6.0 fyrir Windows og Macintosh. - WordPerfect 6.0 fyrir Windows. - Excel 5.0 fyrir Windows og Macintosh. - PageMaker 5.0 fyrir Windows/ Macintosh. - Access 2.0 fyrir Windows. - Paradox fyrir Windows. - PowerPoint 4.0 fyrir Windows/ Macintosh. - Tölvubókhald. - Novell námskeið fyrir netstjóra. - Word og Excel uppfærsla og framhald. - Unglinganám. - Windows forritun. Kennt er á nýjustu útgáfur og veglegar kennslubækur fylgja öllum námskeiðum. Upplýsingar og skráning f sfma 616699. nife Tölvuskóli Reykiavíkur Borgartúni 28, sími 616699 tungmnál T H E ENGLISH S C H O O L Túngötu 5. * Hin vinsælu 7 vikna enskunámskeið eru að hefjast. ★ Áhersla á talmál. ★ 10 nemendur hámark í bekk. ★ 10 kunnáttustig. Einnig er í boði: Viðskiptaenska, rituð enska, umræðu- hópar, tofel-undirbúningur, stuðnings- kennsla fyrir unglinga og enska fyrir börn 4-12 ára. ★ Enskir sérmenntaðir kennarar. ★ Markviss kennsla í vinalegu umhverfi. Hafðu samband og fáðu frekari upptýsingar í sfma 25900.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.