Morgunblaðið - 01.11.1994, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 01.11.1994, Blaðsíða 27
ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1994 2 7 MORGUNBLAÐIÐ rs sjálfstæðismanna í Reykjavík ekki bindandi Prófkjör sjálfstæðismanna í Reykjavík - niðurstöður Atkv. Hlutfall af Röð frambjódenda Atkvæði uppsöfnuð í sæti 1. 1.-2. 1.-3. 1.-4. 1.-5. 1.-6. 1.-7. 1.-8. 1.-9. alls gildum atkvæðum 1.—10. ísæti afheild 1. Davíð Oddsson 5376 6480 78% 94%: 2. Friðrik Sophusson 302 4632 6406 67% 93% 3. Bjöm Bjamason 247 941 3303 6398 48% 93%: 4. Geir H. Haarde 146 513 2602 4246 6567 62% 95% 5. Sólveig Pétursdóttir 67 216 884 1574 2283 5913 33% 86%; 6. Lára M. Ragnarsdóttir 59 207 425 1044 2231 3333 6138 48% 89% 7. Guðmundur Hallvarðsson 36 124 326 703 2036 2776 3438 5526 50% 80%: 8. Pétur H. Blöndal 196 412 620 1078 1791 2591 3235 3910 5257 57% 76% 9. Katrín Fjeldsted 296 630 979 1505 2010 2667 3204 3871 4577 5141 66% 75%; 10. Markús Órn Antonsson 112 265 445 1142 1619 2328 2975 3671 4382 5033 73% 73% 11. Ari Edwald 10 38 76 197 345 648 1725 2381 3087 3982 58% 58%! 12. Ásgerður Jóna Flosadóttir 15 35 60 145 263 479 790 1382 2158 3213 47% 47% 13. Ari Gísli Bragason 13 32 58 99 169 300 527 792 1149 1614 23% 23%; 14. Guðmundur Kr. Oddsson 10 21 48 79 129 218 332 520 756 1182 17% 17% Greidd atkvæði í einstök sæti 1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. O. 9. IO. DavíðOddsson 5376 328 128 110 88 81 80 62 75 152 1 Friðrik Sophusson 302 4330 367 340 181 200 171 184 199 132 Bjöm Bjamason 247 694 2362 1144 540 424 346 278 187 176 GeirH. Haarde 146 367 2089 1644 766 563 370 302 180 140 Sólveig Pétursdóttir 67 149 668 690 709 870 775 792 704 489 Lára Margrét Ragnarsdóttir 59 148 218 619 1187 1102 924 768 670 443 Guðmundur Hallvarðsson 36 88 202 377 1333 740 662 760 724 604 PéturH.Blöndal 196 216 208 458 713 800 644 675 654 693 Katrín Fjeldsted 296 334 349 526 505 657 537 667 706 564 Markús Örn Antonsson . 112 153 178 699 477 709 647 696 711 651 Ari Edwald 10 28 38 121 148 303 1077 656 706 895 Asgerður Jóna Flosadóttir 15 20 25 85 118 216 311 592 776 1055 AriGísiÍ Bragason 13 19 26 41 70 131 227 265 357 465 Guðmundur Kristinn Oddsson 10 11 27 31 50 89 114 188 236 426 Samtals 6885 6885 6885 6885 6885 6885 6885 6885 6885 6885 IMiðurstöður prófkjörs 1990 Nr. Nafn Atkv. 1 sæti % a f gild. atkv. Sæti Atkv. alls /0 af gildum ; 1. DavíðOddsson 4.543 55,5 1. 7.372 90,2 2 Friðrik Sophusson 3.678 44,9 1.-2. 6.988 85,5 ; 3. Björn Bjamason 2.443 29,8 1.-3. 6.260 76,6 4. Birgir ísleifur Gunnarsson 3.264 39,9 1.-4. 6.385 78.1 : 5. EyjólfurLJónsson 3.321 40,6 1.-5. 5.920 72,4 6. Ingi Björn Albertsson . 3.931 48,0 1.-6. 6.037 <3,8 7. Sólveig Pétursdóttir 4.033 49,3 1.-7. 5.749 70,3 8. GeirH. Haarde 4.650 ' 56,8 1.-8. 5.775 70,6 ; 9. Lára M, Ragnarsdóttir 4.411 53,9 1.-9. 5.361 65,6 10. Guðmundur Hallvarðsson 4.760 58,2 1.-10. 5.310 64,9 11. ÞuríðurPálsdóttir 4.825 59,0 1.-11. 5.047 61,7 12. Guðmundur H. Garðarsson 3.962 48,4 1.-12. 3.962 48,4 13. Guðmundur Magnússon 3.100 37,9 1.-13. 3.100 37,9 14. Ólafur ísleifsson 2.934 35,9 1.-14. 2.934 35,9 15. Hreinn Loftsson 2.508 30,6 1.-15. 2.508 30,6 16. Kristján Guðmundsson 1.683 20,6 1.-16. 1.683 20,6 17. Rannveig Tiyggvadóttir 1.636 20,0 1.-17. 1.636 20,0 breiðs hóps kjósenda og stefndi því á þriðja sæti,“ sagði Sólveig Pétursdóttir, sem varð í 5. sæti í prófkjörinu. Hún varð í 7. sæti í próf- kjörinu fyrir síðustu alþingiskosningar og skipaði síðan 6. sæti á listanum. „Ég tel listann vera sigurstrangleg- an. Formaður og varaformaður hljóta mjög trausta kosningu og einnig þeir tveir frambjóðendur sem stefndu á 3. sætið og er ástæða til að óska þeim til hamingju með það,“ sagði Sólveig ennfremur. Lára Margrét Ragnarsdóttir Ótrúlega g-óð viðbrögð Lára Margrét Ragnarsdóttir al- þingismaður sagðist vera ánægð, hún liti á niðurstöðuna sem sigur fyrir sig. Hún varð í níunda sætinu í síðasta prófkjöri og skipaði 8. sæti fram- boðslistans. „Ég bað um fimmta sætið og vantaði aðeins 52 atkvæði upp á að ná því og varð í sjötta sæti.“ Hún sagðist hafa talað við fjölmarga í prófkjörsbaráttunni til þess að heyra hljóðið í flokksmönnum og fá viðbrögð við störfum sínum undanfarin ár. Þetta hefði verið skemmtilegasti þáttur bar- áttunnar. „Ég fann fyrir ótrúlega já- kvæðum viðbrögðum í minn garð en átti þó erfitt með að trúa því að niður- staðan yrði svona góð.“ Lára Margrét sagði að sér sýndist listinn í heild vera prýðilegur. „Undan- farin ár hef ég unnið með alþingis- mönnunum sem röðuðust efst á list- ann. Þetta er samheldinn hópur og fylginn sér. Sú viðbót sem við fáum með nýju fólki eykur á breiddina og verður okkur til góðs.“ Guðmundur Hallvarðsson Ákveðin viðurkenning „Þessi breyting frá síðasta prófkjöri, þar sem ég hafnaði í 10. sæti og nú í 7. sæti, er ákveðin við- urkenning sem ég er mjög þakklátur þátt- takendum í prófkjör- inu fyrir og öllum þeim flölda fólks sem kom að málinu með miklu og góðu starfi,“ sagði Guðmund- ur Hallvarðsson, sem varð í 7. sæti í prófkjörinu. Hann varð í 10. sæti í prófkjörinu 1990 og skipaði 9. sætið á listanum í alþingiskosningunum. Guðmundur sagðist eiga von á því að þessi listi yrði sigurstranglegur. „Ég er ánægður með þennan próf- kjörsslag. Ég held að allir standi bara nokkuð vel sáttir upp úr þessu og geta farið að bretta upp ermar og búa sig undir komandi alþingiskosningar," sagði 'Guðmundur að lokum. Pétur H. Blöndal Fólk vill heyra skoðanir stj órnmálamanna Pétur H. Blöndal tryggingastærð- fræðingur sagðist vera ánægður með útkomu sína í prófkjörinu. Hann hefur ekki áður tekið þátt í stjórnmálum og varð í áttunda sæti, efstur nýju fram- bjóðendanna. Sagði hann að það færði sér nokkuð öruggt sæti á Alþingi, það er að segja ef kjör- nefndin og fulltrúa- ráðið færu eftir úr- slitum þess. „Menn vilja sjá ný andlit og menn úr atvinnulífinu. Ég er líka nokkuð vel þekktur og óragur við að láta uppi skoðanir mínar á ýmsum málum,“ sagði Pétur spurður um skýringar hans á þessum árangri. Sagðist hann verða mikið var við óánægju fólks með það að stjórnmála- menn væru almennt skoðanalausir. „Ég ákvað þvert á ráðleggingar að halda áfram að gefa yfirlýsingar í kosningabaráttunni til þess að vera ekki einn af þeim stjórnmálamönnum sem reyna að finna meðaltalsskoðanir kjósenda sinna og gera þær að sínum. Ég tel að þetta hafi fallið kjósendum vel í geð. Þeir geta þá metið það hvort skoðanir mínar eru nálægt þeirra. Allavega er betra fyrir kjósendur að vita hvar þeir hafa manninn, jafnvel þó þeir séu ekki að öllu leyti sáttir við skoðanir hans.“ Pétur sagði að sér þætti að vissu leyti erfitt að koma inn í stjórnmálin. Það væri óþægileg tilfinning að þurfa að lofa sjálfan sig og ekki síður að hlusta á aðra lofa sig í hástert. En þessu þyrftu stjórnmálamenn sjálfsagt að venjast. Katrin Fjeldsted Ánægð með minn hlut „Mér líst vel á niðurstöðuna og get verið ánægð með minn hlut,“ sagði Katrin Fjeldsted, læknir, sem varð í níunda sæti í próf- kjörinu, en hún hefur ekki áður tekið þátt í prófkjöri vegna al- þingiskosninga. Hún sagði að Sjálfstæðis- flokkurinn væri nú með níu þingmenn og þeir þingmenn sem hefðu gefið kost á sér áfram röðuðu sér í sjö efstu sætin og síðan kæmu þau Pétur ný inn í hópinn í 8. og 9. sæti. Níunda sætið væri baráttusæti. „Hafandi tapað meirihlutanum í Reykjavík í vor er auðsætt að það verður að leggja ofuráherslu á að vinna glæstan sigur í Reykjavík í þingkosn- ingunum. Um helmingur kjósenda er þetta óákveðna fylgi og nú verða menn að bretta upp ermarnar og höfða til alls þessa fólks sem í raun á fulla samleið með Sjálfstæðisflokknum," sagði Katrín. Hún sagði að sér sýndist þetta vera sigurstranglegur listi. Niðurstaðan væri að mestu eins og búast hefði mátt við fyrirfram. Hins vegar mætti spyija sig að því hvort röðunin á list- ann hefði orðið mikið öðru vísi þó eng- in prófkjörsbarátta hefði farið fram. Það væri löngu tímabært að endur- skoða prófkjörsfyrirkomulagið. Sjálf- sagt væri að kjósendur gætu haft áhrif á val frambjóðenda en það væri kannski hægt að gera það með öðrum hætti. Markús Örn Antonsson Kennt um tapið í borgar- stg órnarkosningunum Markús Örn Ant- onsson fyrrverandi borgarstjóri sagði að það hefðu verið sér vonbrigði að hafna í tíunda sætinu. Hins vegar hafí lengi verið mjög mjótt á mun- unum milli manna um röðina í 8.-10. sæti, hann hafi í upp- hafí talningar verið í 8. sætinu og hrein heppni réði því síðan hvar menn enduðu. „Ég kynnti það í upphafi kosningabaráttunnar að ég stefndi á 4.-6. sæti og skerpti síðan á með því að leggja áherslu á 4. sætið. Hins vegar gerði ég mér allan tímann grein fyrir því að það yrði á brattann að sækja vegna þess að þingmennirnir sem þarna voru fyrir mynduðu mjög þéttan kjarna sem erfítt var að brjót- ast inn í. Ég met það hins vegar mik- ils að fá á 6. þúsund atkvæði alls og þakka stuðninginn." Markús sagðist ekki vita fyrir víst hvað valdið hafi niðurstöðunni. Sagð- ist hann hafa heyrt eftir prófkjörið og einnig á meðan baráttan stóð yfir að óánægju gætti með þá ákvörðun hans að hætta sem borgarstjóri fyrit kosn- ingarnar í vor og að sér væri jafnvel kennt um tap flokksins í borgarstjórn- arkosningunum. Vildi hann láta það koma skýrt fram að hann hefði fulla sannfæringu fyrir því að þetta hafi verið hárrétt ákvörðun sem hann sæi ekki eftir. Markús Örn sagðist ætla að skipa 10. sætið ef kjörnefnd óskaði þess. Hann vildi gera það sæti að baráttu- sætinu í kosningunum. Ari Edwald Vex ásmegin við þessa niðurstöðu „Ég er ánægður með niðurstöðuna almennt. Ég held þettá sé sterkur listi fyrir Sjálfstæðis- flokkinn og góð byij- un fyrir mig per- sónulega. Ég er að koma inn nýr maður og fæ yfir Ijögur þúsund atkvæði og bindandi kosningu ef prófkjörið væri bindandi í heild. Mér finnst það þýða það fyrir mig sem ungan mann og nýjan frambjóðanda að ég sé kominn til að vera og muni bara vaxa ásmeg- in við þessa niðurstöðu," sagði Ari Edwald, sem varð í 11. sæti í prófkjör- inu. Aðspurður sagði hann að hlutur ungs fólks í stjórnmálum væri alltof lítill, ekki bara í Sjálfstæðisflokknum heldur almennt. Á Alþingi í dag væru einungis fimm þingmenn undir fer- tugu. „Það segir okkur bara það að yngri kynslóðimar eiga of fáa fulltrúa í stjórnmálunum. Mér finnst að ungt fólk verði að sækja í sig veðrið, en það kannski stendur alveg eins upp á það að gefa meira kost á sér og sækja það fastar að hafa áhrif á stefnumótun á framboðslistum stjórnmálaflokk- anna,“ sagði Ari ennfremur. Hanii sagði að listinn væri sigur- stranglegur. Átök hefðu ekki verið hörð í prófkjörsbaráttunni og hann hefði trú á að sá hópur sem gengi til kosninganna í vor yrði samhentur og myndi vinna vel saman að því að tryggja Sjálfstæðisflokknum tíunda manninn. Asgerður Jóna Flosadóttir Lærdómsrík reynsla Ásgerður Jóna Flosadóttir stjórn- málafræðingur varð í 12. sæti og sagðist hún vera ánægð með sinn hlut. „Ég kom ný inn í prófkjörið og hafði allt að vinna en engu að tapa. Ég var ekki með kosn- ingaskrifstofu og stóð ekki fyrir hringingum til flokks- manna. Ég fékk þó rúmlega 3.200 atkvæði sem sýnir að nærri því annar hver kjósandi hefur merkt við nafn mitt. Það tel ég vera góðan árangur í fyrsta prófkjöri." Hún sagðist telja að hlutur kvenna hefði mátt vera meiri í þessu próf- kjöri. Hún sagði að sér hefði verið vel tekið og alls staðar mætt hlýhug, ekki síst hefðu konur í sjálfstæðiskvennafé- laginu Hvöt veitt sér dýrmætan stuðn- ing. „Þetta hefur verið lærdómsrík reynsla fyrir mig og ég hvet konur eindregið til að taka þátt í prófkjörum. Ég vil þakka fyrir stuðninginn og veit að ég mun örugglega taka aftur þátt í prófkjöri, reynslunni ríkari.“ Ari Gísli Bragason Sáttur við niðurstöðuna Ari Gísli Bragason sagðist vera mjög sáttur við niðurstöðu prófkjörsins, en hann varð í 13. sæti. Það hefði verið á brattann að sækja þar sem fyrir væru þingmenn flokksins í kjördæm- inu auk annarra frambjóðenda. Hann hefði gert sér vonir um 12. sætið en sætti sig vel við niðurstöðuna. „Ég er mjög ánægur með það atkvæðamagn sem ég fékk miðað við að ég er að taka þátt í prófkjöri í fyrsta skipti og eyddi ekki miklu í auglýsingar og aðra kynningu. Niðurstöðuna almennt tel ég vera mjög góða og viðurkenningu á störfum þingmanna okkar,“ sagði Ari Gísli. Þá sagðist hann fagna árangri Péturs Blöndal. Það yrði gaman að fylgjast með honum og sjá hvaða hug- myndir og strauma hann tæki inn á þing. Listinn væri mjög sigurstrangleg- ur í það heila tekið. Guðmundur Kristinn Oddsson Eyddi ekki krónu Guðmundur Krist- inn Oddsson nemi varð í fjórtánda og neðsta sæti próf- kjörsins. Hann sagði að þetta væri líklega það sem hann hefði mátt búast við. „Ég eyddi engu i próf- kjörsbaráttuna og tapa ekki stórt í því ljósi. Og það mætti alveg eins segja að ég hafi orðið i öðru sæti, á eftir Davíð, miðað við atkvæði á krónu- fjölda.“ Guðmundur sagðist helst hafa orðið fyrir vonbrigðum með það að enginn af yngri frambjóðendunum skyldi hafa náð inn í tíu efstu sætin. Það gerði listann einsleitari en vera þyrfti. Hann sagði að prófkjörsbaráttan hefði verið róleg og hann hefði bara haft gaman af henni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.