Morgunblaðið - 01.11.1994, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1994 7
FRÉTTIR
Laumufarþeganum
veitt frelsi á ný
Borgarnesi. Morgunblaðið.
ÞREYTTUR smyrill settist á
flutningaskipið ms. Isnes er það
var um 200 sjómílur suður af
Islandi og þáði far aftur til Is-
lands. Skipið var að koma frá
Viveró á Spáni með grjótí Járn-
blendiverksmiðjuna á Grundart-
anga.
Að sögn Guðmundar Guð-
brandssonar bátsmanns tóku
skipverjar fyrst eftir smyrlinum
er hann var að flögra um skipið.
Hann var greinilega aðframkom-
inn og var létt verk að handsama
hann. Kvaðst Guðmundur hafa
útbúið búr úr plastkassa og
pappa og sett fuglinn í það og
haft hann hjá sér í káetunni.
Smyrillinn hafi farið að éta hrátt
kjöt á öðrum degi og unað sér
vel um borð, meðal annars hafi
þeir horft saman á sjónvarpið.
Kvaðst Guðmundur hafa beðið
tollverðina sem komu um borð á
Grundartanga um að taka fugl-
inn og sleppa honum á góðum
stað.
Hesthúsaði lambshjarta
Smyrillinn var í sólarhring
heima hjá tollverðinum í Borgar-
nesi og hesthúsaði þar heilt
lambshjarta. Hann var hinn
sprækasti daginn eftir, þegar
honum var sleppt skammt ofan
við Borgarnes. Tveimur dögum
Fjölgun sljórnunar-
staða á Borgarspítala
Alltaf ljóst
að spítal-
inn bæri
kostnaðinn
JÓHANNES Pálmason fram-
kvæmdastjóri Borgarspítalans
segir að frá því samþykkt var
breytt stjórnskipulag Borgarspítal-
ans í upphafi árs 1993 hafi alla
tíð legið fyrir að spítalinn yrði að
bera kostnað vegna fjölgunar
stjórnunarstaða á lækningasviði.
Sighvatur Björgvinsson heil-
brigðisráðherra sagði í viðtali sem
birtist í Morgunblaðinu sl. sunnu-
dag að Borgarspítalinn bæri
ábyrgð á innanhússsamningum
sem gerðir hefðu verið án sam-
þykkis heilbrigðisráðuneytisins og
fjármálayfirvalda, en spítalinn
hefði í heimildarleysi stofnað for-
stöðulæknastöður, fjölgað stjórn-
unarstöðum á hjúkrunarsviði
o.s.frv.
Að sögn Jóhannesar gerir hið
breytta stjórnskipulag ráð fyrir því
að stjórnunarstöðum á lækninga-
sviði verði fjölgað til að auka
ábyrgð faglegra stjórnenda þannig
að saman fari fjárhagsleg og fag-
leg ábyrgð.
Kostnaður 10-15 milljónir
„Það var ljóst að af því varð lít-
ilsháttar útgjaldaauki, sem við telj-
um að skili sér aftur með markviss-
ari stjórnun þar sem læknar eru
virkari þátttakendur í íjármála-
legri ákvarðanatöku en áður. Það
var alltaf ljóst að útgjöld af þessu
yrðu örlftil, en myndu skila sér síð-
ar. Það stóð aldrei til að sækja
sérstaklega um fjárveitingu út af
þessu, enda var alltaf ljóst að Borg-
arspítalinn yrði að bera það sjálfur
og aldrei neinn ágreiningur um
það. Ætli heildarkostnaðurinn við
þessar breytingar sé ekki á bilinu
10-15 milljónir króna af 3,3 millj-
arða króna rekst.ri," sagði Jóhann-
es.
síðar sást til smyrilsins þar sem
hann klófesti smáfugl i húsa-
garði í Borgarnesi og afgreiddi
hann eldsnöggt á viðeigandi hátt.
Samkvæmt fuglabókum eru
smyrlar farfuglarað mestu og
fljúga aðallega til Irlands, Bret-
landseyja og meginlands Evrópu
á haustin, en sumir þreyja þó
veturinn hér heima. Trúlega hef-
ur þessi smyrill verið á leið til
írlands er hann millilenti á flutn-
ingaskipinu ms. Isnesi.
Morgunblaðið/Theodór
SMYRILLINN rífur í sig hrámetið hjá tollverðinum.
BJÖRN Þorbjörnsson toll-
vörður með laumufarþegann.
m öc© oc® dc© öc© öc© eic© eic© ec© ec© ec© ec® ec© ec© ecs m
s j. h'T Þ
Vgjv,/ V
h
4 nætur í Edinborg
Höfuðborg Skotlands,
Edinborg, nýtur einstakrar
hylli hjá farþegum Urvals-
Útsýnar sem sótt hafa
borgina heim undanfarin ár.
Margir taka hreinlega ekki í
mál annað en að skreppa í
skemmtilega helgarrispu til
Edinborgar, borgarinnar
sem sameinar á svo
einstakan hátt kosti
heimsborgar; menningu,
listir og innkaup annars
vegar og hlýleika, þægindi
og vinalegt viðmót smá-
bœjarins hins vegar.
VISA og Úrval Útsýn bjóða
greiðslukjör í allt að 10 mánuði á
Edinborgarferðum
6., 13. og 20. nóvember.
Með Farareyris-innborgunarseðli
VISA lækkarðu ferðakostnað
um 2.000 kr.
Pantaðu strax því aðeins eru 120
sæti í boði á þessum einstöku
kjörum.
2.975
á mánuði
URVALUTSYN
Tryggmgfyrir gœðum!
VISA
*Á mann m.v. farareyri og raðgreiðslur VISA í 10 mánuði. Innifalið: Beint flug og gisting í 4
nætur í tvíbýli á Mount Royal Hotel eða King James Thistle, morgunverður, akstur til og frá
flugvelli erlendis, íslensk fararstjórn og flugvallaskattar.
Urval Utsýn Lagmula 4: simi 699 300 • Hafnarfirði: simi 65 23 66 • Keflavik: simi 11353 • Selfossi: simi 216 66 • Akureyri: simt: 2 50 00
m ©)íí> ©)q> 0)<í> 0)Cí> 0)CO 0)q> ©)qc> 0)R> 0)í> 0)SÍ> ©)<0 0)^0 0)*í %