Morgunblaðið - 01.11.1994, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 01.11.1994, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1994 41 IDAG Q/\ÁRA afmæli. í dag, í/vfl. nóvember, er ní- ræð Guðrún Ásmunds- dóttir, fv. kaupmaður, 1 Skagabraut 9, Akranesi. Hún tekur á móti gestum í sal Verkalýðsfélaganna, Kirkjubraut 40, Akranesi kl. 13.30 til 18, laugardag- inn 5. nóvember nk. BRIPS Umsjón GuAm. 1’ á 11 Arnarson ÍTALIR eru ötulustu móts- haldarar í Evrópu. í ágúst- mánuði efndu þeir til ein-- vígisleiks milli úrvalspara frá Evrópu annars vegar og Bandaríkjunum hins vegar. Spiluð voru 144 spil og vann Bandaríkjaúrvalið með 48 IMPa mun. Fyrir hönd Evrópu spiluðu: Leuf- kens-Westra (Hollandi), Forrester-Robson (Bret- landi), Helgemo-Heiness (Noregi) og Lauria-Versace (Italíu). Lið Bandaríkja- manna var þanúig skipað: Meckstroth-Rodwell, Levin- Weichsel, Wolff-Sontag og Zia-Cphen. Meckstroth og Rodwell komu langbest úr út Butler-samanburði par- anna og hér sjáum við hvers vegna: Norður gefur; NS á hættu. Norður ♦ 43 V G85 ♦ D8753 ♦ Á105 Vestur * 72 V Á9642 ♦ Á42 + D93 Austur ♦ KD10865 V K107 ♦ 1096 ♦ 2 Suður ♦ ÁG9 ▼ D3 ♦ KG ♦ KG8764 Vestur Norður Austur Suður Pass 2 tígtar* 2 gröud Pass 3 grönd Allir pass * Multi, þ.e. veikir tveir í hálit Utspil: hjartafjarki. Meckstroth hélt um stjórntaumana í suður. Hann fékk fyrsta slaginn á hjartadrottningu (austur lét tíuna) og spilaði strax tígul- gosa. Vestur skynjaði ekki hættuna og lét lítið í slag- inn. Þegar tígulslagurinn var í húsi var næsta verk- efnið að fínna laufdrottn- ingu. Það vafðist ekki fyrir Meckstroth. Hann vissi að austur átti sexlit í spaða og þrjú hjörtu. Það var því með líkum að gera ráð fyr- ir einspili í laufi á austur- hendinni. Meckstroth lagði niður laufkóng og svínaði svo tíunni. Níu slagir. Pennavmir BELGÍSKUR 32 ára karl- maður, safnar póstkortum með myndum frá borgum og bæjum: Luc Canbegin, Deschuyffeleerdreef 61, 178 Wemmel, Belgium Árnað heilla Barna- og Qölskylduljósmyndir BRÚÐKAUP. Gefin voru saman hinn 3. september í Garðakirkju af sr. Braga Friðrikssyni Sign'ður Gyða Halldórsdóttir og Hjálmar Diego Haðar- son. Heimili þeirra er í Flétturima 33, Reykjavík. Barna- og fjölskylduljósmyndir BRÚÐKAUP. Gefin voru saman hinn 13. ágúst í Búðstaðakirkju af séra Pálma Matthíassyni Haf- dís Steinarsdóttir og Ómar Geirsson. Heimili þeirra er á Oddabraut 24, Þorlákshöfn. LEIÐRÉTT Fæðingarár féll niður Fæðingarár Baldurs S. Pálssonar féll niður í upphafi formála minn- ingargreinar um hann á blaðsíðu 31 í Morgun- blaðinu á sunnudag. Birtist sá hluti formálans hér aftur: „Baldur S. Pálsson fæddist á Akureyri 21. apríl 1948. Hann lést á heimili sínu í Nivá í Danmörku 20. október síðastliðinn, en þar bjó hann undanfarin ellefu ár.“ Hlutaðeigendur eru innilega beðnir afsökunar á mistökunum. Jordan í Háskólabíói í VIÐTALI við Stanley Jordan gítarleikara í blað- inu sl. sunnudag var sagt að tc.nleikar hans yrðu á Hótel Sögu en hið rétta er Barna- og fjölskylduljósmyndir BRÚÐKAUP. Gefin voru saman hinn 27. ágúst í Brúðstaðakirkju af séra Vigfúsi Þór Árnasyni Hrefna Halldórsdóttir og Ómar Atlason. Heim- ili þeirra er í Gerðhömrum 38, Reykjavík. Bama- og fjölskylduljósmyndir BRÚÐKAUP. Gefin voru saman hinn 20. ágúst í Hjallakirkju af séra Krist- jáni Einari Þorvarðarsyni Vigdís Beck og Rúnar Kristinsson. Heimili þeirra er í Álfatúni 23, Kópavogi. að Jordan leikur í Háskóla- bíói í kvöld. Lambsdorff þáði ekki mútur ÓNÁKVÆMNI gætti í grein í blaðinu sl. sunnudag um ýmis pólitísk spillingar- mál í heiminum undanfarin ár. í greininni sagði að Otto von Lambsdorff, fyrrum efnahagsmálaráðherra Þýskalands, hefði verið dæmdur fyrir að þiggja mútur af Flick-samsteyp- unni. Þetta er rangt. Hið rétta er að dómstóll í Þýskalandi sýknaði Lambsdorff árið 1987 af ákæru um mútuþægni og spillingu. Hann var hins vegar fundinn sekur um að hafa svikið eða aðstoðað við að svíkja undan skatti 1,5 milijónir marka, sem Flick greiddi til flokks hans, Fijálsa demókrataflokks- ins. HÖGNIHREKKVÍ SI STJÖRJMUSPÁ cftir Frances Drakc SPORÐDREKI Afmælisbarn dagsins: Þú ferð eigin leiðir og treyst- ir á eigin getu til að ná settu marki. Hrútur ■ (21. mars - 19. aprfl) Haltu þér við efnið í dag og hikaðu ekki við að taka ákvörðun á eigin spýtur. Hagsmunamál ástvina nær fram að ganga. Naut (20. apríl - 20. maí) Þér verður betur ágengt heima en á vinnustað við lausn verkefnis í dag. Láttu ekkert hindra þig í að ná árangri. Tvíburar (21. maí - 20. júní) Æ* Sláðu ekki slöku við í vinn- unni í dag. Þú ættir ekki að taka börnin með í innkaupin. Slakaðu á heima í kvöld. Krabbi (21. júnf — 22. júll) Hí!8 Fjölskyldumálin hafa for- gang í dag. Nú er ekki heppi- legt að bjóða heim gestum. Horfur í fjármálum fara batnandi. Ljón (23. júlí — 22. ágúst) *et Gættu þess að standa við loforð sem þú gafst ættingja. Þegar kvöldar vinnur þú að því að koma heimilisbókhald- inu í lag. Meyja (23. ágúst - 22. september) & Þú leitar leiða til að leysa vandamál vinar í dag. Hafðu augun opin fyrir nýjum tæki- færum til að bæta fjárhag- inn. Vog (23. sept. - 22. október) > Þú kaupir eitthvað fallegt til eigin nota í dag. í kvöld gefst þér tækifæri til að fara út að skemmta þér með vina- fólki. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóvember) Góðar fréttir berast frá vini sem þú hefur ekki séð lengi. Þú þarft á þolinmæði að halda í leit að lausn á erfiðu verkefni. Bogmadur (22. nóv. - 21. desember) «0 Þú ert að undirbúa komandi helgi, en vinur á erfitt með að ákveða sig. í kvöld eru fjölskyldumálin efst á dag- skránni. Steingeit (22. des. - 19. janúar) m Láttu ekki aðgerðarleysi spilla góðum viðskiptum í dag. Það er óþarfi ,að vera með áhyggjur þótt eitthvað fari úrskeiðis. Vatnsberi (20.janúar-18. febrúar) Það gengur á ýmsu í við- skiptum í dag, og þér miðar hægt áfram. En einhugur ríkir hjá ástvinum sem eiga saman góðar stundir. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) S* Þú hikar við að fara að ráð- um vinar varðandi fjárfest- ingu. En þú ert á réttri leið í vinnunni og færist nær settu marki. Stjörnuspána á að lesa sem dœgradvöl. Sþár af þessu tagi byggjast ekki á traustum grunni visindalegra staðreynda. SKEMMUR TIL SÖLU ! Vegna mikillar eftirspurnar höfum viö fengitb nokkrar skemmur í viöbót frá Electrolux sem við getum boðið á mjög hagstæðu verði. Allar eru klæddar sterkum PVC dúk, með gráum hliðum og hvítum himni, og eru í góðu ástandi. Stórar dyr á öðrum gafli. H-hall Vegghæð 3 m, hæð í mæni 4,5 m, dyr 3 x 3 m. Stærð 9 x 18 m. verð kr. 686.000,- (án vsk). Möguleiki á öðrum lengdum. A-hall Braggalöguð, hæð í mæni 4,15 m, dyr 3 x 3 m. Stærð 8,7 x 30 m. Verð kr. 987.000,- (án vsk). Möguleiki á öðrum lendum K-hall Vegghæð 2,57 m og hæð í mæni 4,38 m. Dyr 3 x 3 m og stærð 10,9 x 15,24 eða 30 m. verð frá kr. 682.000,- (án vsk). L-hall Vegghæð 4,03 m, hæð í mæni 5,64 m og 6,04. Dyr 4 x 4 m og stærð 12 x 20 og 15 x 20 m. Verð frá kr. 1.554.000,- (án vsk). ■Nónari upplýsingar í síma 625030. TJALDALEIGA KOLAPORTSINS Garðarstræti 6, sími 91-625030, myndriti 91-625099 Afgreiðslufrestur er 10 - 14 dagar. Greiðslukjör koma til greina.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.