Morgunblaðið - 01.11.1994, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1994 21
__________LISTIR_______
Boðvirki mannsins
MYNPUST
Listasaín Kópavogs
— Gcröarsafn
HÖGGMYNDIR
RAGNHILDUR STEFÁNS-
ÐÓTTIR
Opið alla daga (nema mánud.) kl.
12-18 til 6. nóvember.
Aðgangur ókeypis.
HÖGGMYNDALISTIN hefur ef til
vill meira en önnur svið myndlist-
arinnar þróast yfir á vettvang hug-
myndafræðinnar á síðustu áratug-
um, þannig að hin mannlega tilvera
hefur ekki verið ofarlega á baugi. í
staðinn hefur áherslan verið á notkun
ólíkra efna og formræna möguleika
þeirra, sem og á stöðu höggmyndar-
innar í umhverfinu, t.d. hvað varðar
innsetningar eða staðsetningar utan
alfaraleiða.
Ýmsir myndhöggvarar hafa þó
haldið manninum sem miðlægum
þætti í sinni listsköpun, og má þar
m.a. minna á verk Steinunnar Þórar-
insdóttur. Síðastliðið haust hélt
Ragnhildur Stefánsdóttir svo eftir-
tektarverða höggmyndasýningu i
Nýlistasafninu, þar sem hún tókst á
við mannlíkamann og ímynd þess
styrks og burðarkerfis sem hann
byggist á; mótun vöðva og beina í
verkum hennar þá varð mörgum
minnisstæð.
A sýningunni hér má segja að
Ragnhildur haldi áfram þar sem frá
var horfið. Enn er það maðurinn sem
er miðpunktur verkanna, en að þessu
sinni er listakonan að fást við það
sem býr innra með okkur — stjórn-
kerfi heila og hjarta, og þær boðleið-
ir skynjana sem hvíslast um allan
líkamann og ráða samhæfni hverrar
persónu.
Líkt og á sýningu síðasta árs vinn-
ur Ragnhildur hér mikið með gúmmí,
en einnig með gifs. Andstæð eðli
þessara efna — mýkt og harka, teygj-
anleiki og festa, litir og hlutleysi —
verða til þess að skapa skemmtilega
spennu í mörgum verkanna, sem vís-
ar aftur til þeirrar innri spennu, sem
er að finna í hveijum manni, þar sem
svipaðar andstæður takast stöðugt
á. Þetta kemur einkar vel fram í
verkum, þar sem mótvægi hins ytra
og hins innra er hvað skýrast, líkt og
í „Maður“ (nr. 8) og „Portrait" (nr.
9); mótun yfirborðsins nær ekki að
RAGNHILDUR Stefánsdóttir:
hylja þá ólgandi flóknu samþættingu,
sem á sér stað undir niðri.
Verkin hér verða listakonunni
einnig tilefni til íhugunar um lífið á
víðari grunni. Verkið „Þátíð, nútíð,
framtíð" (nr. 1) byggist á hjarta,
hnefa og heila, og um það segir lista-
konan: „Hjartað geymir þátíðina,
hnefinn nútíðina og heilinn framtíð-
ina.“ Eins mætti að sjálfsögðu benda
á að viðhorf mannanna til fortíðar-
innar stjómast æði oft af tilfinning-
unum, til að komast áfram í samtím-
anum þarf bæði áræði og orku, en
horfur mannsins til lengri tími byggj-
ast fyrst og fremst á skynsemi og
rökhugsun — sem því miður skortir
oft_ nokkuð á.
I næsta verki bendir Ragnhildur
hins vegar á, að tíminn er ekki sam-
fellt ferli, heldur safn ótengdra brota:
„Það eru aðeins til augnablik". Sam-
tenging þessara verk er vel unnin,
og leggur gmnninn að frekari sam-
þættingu verka sýningarinnar með
ólíkum hætti, eins og sést t.d. í „Boð“
(nr. 5) þar sem bent er á að þrátt
fyrir allt eru boðleiðir mannsins þætt-
Morgunblaðið/Þorkell
Ég er þú 1994 gifs og gúmmí.
ir í einni heild, sem nær með undra-
verðum hætti að gera flókna hluti
einfalda.
Fyrir utan samhljóm verkanna
innbyrðis hefur listakonan lagt mikla
áherslu á tengsl þeirra við sýningar-
rýmið (og þar með um leið bent á
mikilvægi tengsla mannsins við um-
hverfi sitt), svo jafnvel mætti tala
um innsetningu í salnum. Myndflekar
á veggjum eru vandlega staðsettir
til að tengjast ofanbirtunni, og sum-
ir þeirra endurspegla jafnvel bygg-
ingarlag salarins, t.d. „Líflína" (nr.
7); mest áberandi þáttur þessarar
tengingar er þó svörun verksins „Ég
er þú“ (nr. 3) við formi norðurglugga
salarins.
Hér er á ferðinni sérstæð sýning,
sem rétt er að benda listunnendum
á að láta ekki framhjá sér fara; með
efnistökum sínum og viðfangsefnum
hefur Ragnhildur örugglega skipað
sér í flokk athyglisverðari mynd-
höggvara okkar, og verður spenn-
andi að fylgjast með framþróun
hennar í höggmyndalistinni.
Eiríkur Þorláksson
KlWUUfis Ókeypis félags- og lögfræðileg ráðgjöf
fyrir konur. Opið þriðjudagskvöld
^kl. 20-22 og fimmtudaga kl. 14-16.
Símar 21500 og 996215
Þægilegastí hæglndastóll allra
tíma £æst aðeins í Húsgagnahöllinní.
Amerísku hægindastólarnir frá
Lazy-boy eru alltaf jafn vinsælir
vegna þess hve gott er að sitja
og liggja í þeim.
Lazy-boy stólarnir eru til í
mörgum gerðum og áklæðum
og svo fást þeir einnig í leðri.
Lazy-boy stóllinn fæst
með eða án ruggu og
með einu handtaki er
hægt að taka skemilinn
út og stilla stólinn í þá
stöðu sem manni líður
best í.
Komdu og prófaðu þennan frábæra stól
sem milljónir manna um allan heim elska
og fáðu upplýsingar um verð og hvers vegna
Lazy-boy stólarnir eru öðrum stólum fremri.
BÍLDSHÖFÐA 20 - 112 REYKJAVÍK - SÍMI 91-871199
„Þetta er bankaþjónusta eins og best
gerist eriendis og mér fínnst frábært
að hún skuli loksins vera komin hingað.
Guðný Bjarnadóttir, læknir
Heimilislína Búnaðarbankans er fjármálaþjónusta fyrir
einstaklinga og heimili — eins og hún gerist best.
vö/isi
BUNAÐARBANKI
ÍSLANDS
HEIMILISLINAN
- Einfaldarfjármálin
. »■