Morgunblaðið - 18.11.1994, Page 1
96 SÍÐUR B/C/D
264. TBL. 82. ÁRG.
FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Húsleit og handtökur í Færeyjum vegna fjársvika við skipasmíðar
Fjórir kunnir lögmenn
eru meðal sakbominga
Morgunblaðið. Þórshöfn.
FÆREYSKA lögreglan hélt áfram í gær að leggja hald á skjöl vegna
meints mesta fjármálahneykslis í sögu Færeyja. Streymdu skjöl sem hald
var lagt á í húsleit í fyrrinótt inn á lögeglustöðina í Þórshöfn. Tólf menn
voru handteknir í aðgerðunum og alls 20 kærðir. Þeir eru grunaðir um
að hafa svikið fé m.a. út úr landstjórninni og Skipasmíðasjóði Danmerkur.
Reuter
Yngsti
ráðherrann
CLAUDIA Nolte, 28 ára kona,
var skipuð ráðherra í nýrri sijórn
Helmuts Kohls kanslara Þýska-
lands í gær. Er hún yngsti ráð-
herra þar í landi til þessa. Hún
fer með málefni kvenna, ungl-
inga, Jífeyrisþega og fjölskyldu-
mál. A myndinni sver hún emb-
ættiseið í Bonn.
Meðal lögmannanna 12 eru fjórir
af fremstu lögmönnum Færeyja,
Jógvan Páll Lassen, Halgir Winther
Poulsen, Poul Hansen og Magnus
S. Petersen, allir frá Þórshöfn.
Flæktur í mörg mál
Sá síðastnefndi er einnig meðal
sakborninga í stóra fjársvikamálinu
sem kennt er við togarann Haugadr-
ang. Hann hefur einnig verið bendl-
aður við umfangsmikil fjársvik
vegna smíði togarans Skálafjalls.
Báðir togararnir eru verksmiðju-
skip og voru smíðaðir í Skála-skipa-
smiðjunni í Færeyjum.
Færeyska landstjórnin gerir kröfu
um að þeir sem stofni til nýsmíða
leggi fram sem nemur 10% af eigin
fé. Lögregluyfirvöld telja nú að flest
skjöl um eigið fé útgerðarfyrirtækj-
anna, sem lögð voru fram vegna
smíði fjölda togara, hafí verið fölsuð.
Þannig hafa sönnur verið færðar
á skjalafölsun af þessu tagi vegna
smíði Haugadrangs og Skálafjalls.
Þeir sem kærðir voru fyrir aðild að
Haugadrangsmálinu voru þó sýkn-
aðir en efast er um að sama niður-
staða verði í Skálafjallsmálinu.
Fleiri togarar
Við rannsókn þessara mála hafa
þeir sem bendlaðir voru við þau ít-
rekað vísað til um 15 annarra skipa-
smíðaverkefna á níunda áratugnum.
Þar á meðal má nefna togarana
Stígarklett, Hádegisklett, Ocean
Prawn, Hvítanes og Sverra Ólason.
Meint svik eru í einstökum málum
sögð nema frá 200 milljónum króna
og upp í milljarð íslenskra.
Það er vegna þessara mála sem
gripið var til mestu lögregluaðgerða
í sögu Færeyja í fyrrinótt og gær-
dag. í þeim tóku um 100 lögreglu-
menn þátt, aðallega í Færeyjum en
einnig í Danmörku og Grænlandi.
„Við tókum vitnisburð sakborn-
inganna sem kærur og höfum nú
gripið tii aðgerða í framhaldi af því,“
sagði Magnus Moller, ríkissaksókn-
ari Færeyja, í gær.
Samkvæmt óstaðfestum fréttum
í Danmörku eru færeyskir lands-
þingmenn í hópi sakborninga.
Andstaða eykst
við ESB-aðild
Óákveðnir gætu
ráðið úrslitum
Ósló. Reutcr.
NÝJAR skoðanakannanir sem birt-
ar voru í Ósló í gær sýna að and-
stæðingar aðildar Noregs að Evr-
ópusambandinu (ESB) hafa sótt í
sig veðrið að undanförnu. Norð-
menn kjósa um aðild í þjóðarat-
kvæði 28. nóvember.
Samkvæmt könnun Verdens
Gang, sem Scan-Fact-stofnunin
vann fyrir blaðið, eru 49% kjósenda
andvíg aðild að ESB en stuðnings-
menn aðildar 41%. Hefur andstæð-
ingum fjölgað um tvö prósentustig
frá könnun sem birt var í fyrradag.
Stuðningsmönnum aðildar hefur
sömuleiðis fækkað úr 43% í 41%,
samkvæmt könnun VG. Sem fyrr
kváðust 10% kjósenda vera óákveð-
in.
Könnun sem MMI-stofnunin
gerði fyrir blaðið Dagbladet, og birt
var í gær, sýnir hins vegar aukinn
stuðning við aðild eða úr 35 í 37%.
Samkvæmt þeirri könnun eru 48%
kjósenda andvíg ESB-aðild og nem-
ur aukningin 1%. Óákveðnum fækk-
aði hins vegar úr 18% í 15%.
Þá birti sjónvarpsstöðin TV2
könnun Gallup og samkvæmt henni
styðja 37% kjósenda aðild en 47%
eru andvíg og 15% eru óákveðin.
Reuter
Reynolds farinn frá
ALBERT Reynolds forsætisráðherra írlands baðst í gær lausnar
en ákvað að ijúfa ekki þing. Með því er þeim möguleika haldið
opnum að hægt verði að mynda nýja stjórn fráfarandi stjórnar-
flokka, Fianna Fail og Verkamannaflokksins. Á myndinni skýrir
Reynolds Mary Robinson forseta (t.v.) frá ákvörðun sinni.
„Topaz“
dæmdur
fyrir
landráð
ÞÝSKI njósnarinn Rainer Rupp,
sem gekk undir dulnefninu
„Topaz“ hjá yfirboðurum sinum í
Austur-Berlín, var dæmdur í 12
ára fangelsi í gær fyrir landráð.
Hann er 39 ára Vestur-Þjóðverji
og starfaði í hagdcild Atlantshafs-
bandalagsins (NATO) í Brussel.
Hann viðurkenndi að hafa á tím-
um kalda stríðsins, eða frá 1977
til 1989, látið austur-þýskum
stjórnvöldum í té þúsundir leyni-
skýrslna um hernaðarleyndarmál
Vestur-Þýskalands og NATO.
Þýskur sérfræðingur um varnar-
mál sagði að upplýsingarnar
hefðu verið Sovétríkjunum og lep-
príkjum þess það mikilvæg að þau
ein og sér hefðu getað kostað
NATO ósigur í stríði. Myndin var
tekin er Rupp ræddi við eiginkonu
sina, Ann-Christine, eftir að dóm-
ur hafði verið kveðinn upp í gær.
Dansk-færeyskar viðræður
Fallast á fram-
seljanlega kvóta
Kaupmannahöfn. Moi;gunbla(1ið.
FÆREYSK samninganefnd undir
forystu Edmunds Joensens lög-
manns sat í gær fund með Poul
Nyrup Rasmussen forsætisráð-
herra Dana og öðrum fulltrúum
dönsku stjórnarinnar. Fundurinn
var liður í viðleitni til að ná sam-
stöðu um áframhaldandi efnahags-
aðgerðir.
Fyrir skömmu birtist enn ein
svört skýrsla um efnahagsástand
Færeyja þar sem meðal annars er
gerð tillaga um 10 ára áætlun til
að vinda ofan af skuldum eyjanna.
Hjálp til að greiða lán
Færeysku fulltrúarnir féllust á
þá kröfu Dana í gær að draga úr
sókn í fiskistofna og taka upp fram-
seljanlegum kvóta.
I staðinn kröfðust Færeyingar
hjálpar til að greiða erlend lán sín.
Féllust Danir á að yfirtaka dýr
erlend lán Færeyinga upp á 10
milljarða króna og lána þeim á
móti á hagstæðum kjörum.
Hins vegar höfnuðu Danir að
bæta Færeyingum þá 25 milljarða
íslenskra króna, sem sagðir eru
hafa tapast vegna bankagjaldþrota
undanfarin ár.
Atvinnustofnun
Sem lið í atvinnuaukandi aðgerð-
um og til að sporna við fólksflótta
frá eyjunum ætla Danir að leggja
fram jafnvirði milljarða íslenskra
króna til að koma á fót atvinnu-
stofnun. Færeyingar leggja fram
sömu upphæð. Einnig verður Fær-
eyingum veittur aðgangur að at-
vinnuskapandi sjóðum í Danmörku.