Morgunblaðið - 18.11.1994, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 18.11.1994, Blaðsíða 38
38 FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1994 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + í dag, 18. nóv- ember, eru liðin 100 ár frá fæðingu Unu Guðmundsdótt- ur, frá Sjólyst í Garði. Hún var fædd í Skúlhúsum í Gerðahreppi. Faðir hennar var Guð- mundur Jónsson, sjómaður, fæddur 1845, frá Brunna- stöðum á Vatns- leysuströnd. Hann drukknaði 28. mars 1899, þegar átta manna fari hvolfdi í lendingu í Gerðavör í fárviðri, á leið úr fiskiróðri. Móðir hennar hét Guðríður Þórðardóttir frá Syðri-Hömrum í Rangárvalla- sýslu, fædd 1853, látin í janúar 1895. Eftir lát Guðríðar tók að sér forstöðu heimilisins Sigur- laug Bjarnadóttir, ættuð frá Hjailanesi í Landsveit í Rangár- vallasýslu. Una og Sigurlaug voru síðan saman alla tið uns hús lést, 9. des. 1927, 82 ára að aldri. Þrjú systkini Unu dóu á barnsaldri, en þau sem upp kom- ust voru: Stefán sjómaður og járnsmiður, bjó lengst af í Reykjavík, ókvæntur. Æsa, hús- móðir, gjft Sigurði Þorkelssyni UNU Guðmundsdóttur verður varla betur lýst en Guðmundur A. Finn- bogason gerir í minningargrein um hana í Morgunblaðinu. Hin langa ævi hennar Unu er nú liðin tíð, sem verður vel í minnum höfð hjá öllum þeim fjölmörgu, nær og fjær er nutu þeirrar sönnu ánægju að kynn- ast henni og hennar æviferli. Hún Una var engin meðalmanneskja þótt líkamsstærð hennar væri tæp- ast í meðallagi. Það sem inni bjó var svo miklu stærra, var sannar- Iega stór kona. Hún Una hafði í ríkum mæli fengið í vöggugjöf marga af þeim bestu kostum sem mönnum eru gefnir. Mjög góða greind, frábært minni, dulræna hæfileika, dyggðuga lífshugsjón og hlýlegt hjartalag. Úr þessum guðsgjöfum vann hún Una með heiðri og sæmd, þann gilda þráð sem hún gerði að haldreipi þeirrar vináttu og þeirrar virðingar sem hún naut í svo ríkum mæli á sinni löngu lífsævi. Una var að eðlisfari mjög félags- lynd kona. Hún sóttist ekki eftir mannvirðingum á þeim vettvangi, en þeir sem þekktu hana hvöttu hana til þátttöku í félagsstörfum í Garðinum. Þeirra á meðal voru sæmdarhjónin Einar Magnússon og Matthildur Finnsdóttir, sem bæði önnuðust kennslu við Gerðaskóla og lögðu um langt skeið drjúgan í Efri-Sjólyst í Garði og Guðjón, sem drukknaði um tví- tugsaldur. Hálfsyst- ir Unu var Maren Guðmundsdóttir, bjó lengi á Framnes- vegi 7 í Reykjavík. Una ól upp Stefaniu Guðríði, f. í Reylqa- vík 26. júní 1926. Faðir hennar var Kristvin Þórðarson, járnsmiður, ættaður úr Garðinum. Móðir hennar hét Rann- veig Hannesdóttir frá Tandras- eli í Borgarfirði. Stefanía varð bráðkvödd 10. ágúst 1953. Una starfaði mikið að félagsmálum og stundaði kennslu um áratuga skeið, en þekktust var hún fyrir dulræna hæfileika sína, sem gerðu hana þjóðkunna. Um þá ritaði Gunnar M. Manúss bókina Völva Suðurnesja árið 1969, sem varð metsölubók. Una lést á Keflavíkurspítala 4. okt. 1978 og var jarðsungin frá Utskála- kirkju 13. okt. af séra Guð- mundi Guðmundssyni að við- stöddu miklu fjölmenni. Una var jarðsett við hlið Stefaníu fóstur- dóttur sinnar í Útskálakirkju- garði. skerf í menningar og félagslíf byggðarinnar. Þegar Einar svo hugðist láta af embætti sem gæslu- maður bamastúkunnar Siðsemdar, var leitað til Unu, sem ekki skorað- ist undan því að annast það hlut- verk, sem hún gegndi síðan sam- fleytt í tvo áratugi. Una, sem þá var nærri fertugu, gekk í stúkuna sama dag og hún tók við embætti gæslumanns, eða 26. okt. 1934, en lét af störfum 11. des. 1954. Þor- steinn Gíslason, þáverandi skóla- stjóri, frá Krókvöllum, og seinna skipstjóri, tók við starfi Unu og gegndi því í sjö ár, eða þar til hann flutti til Reykjavíkur, en allan þann tíma sat Una fundi í stúkunni sem annar gæslumaður og einnig í fimm ár eftir að Sigrún Oddsdóttir tók við _ gæslumannsembættinu. Á sama fundi og Una var vígð í embættið, gekk í barnastúkuna Steinunn Steinsdóttir frá Sólbakka. Tók hún að sér embætti annars gæslumanns. Steinunni var margt til lista lagt, var meðal annars góð- um tónlistargáfum gædd. Og ásamt því að taka virkan þátt í starfinu með Unu, annaðist hún söng og undirleik á fundunum. Einnig stofn- aði hún kvartetta og jafnvel kóra innan stúkunnar, sem lífgaði mjög upp á félagslífið. Samstarf hennar og Unu var einkar farsælt og bind- indishreyfingunni til mikillar efling- ar. Líkast til hefur merki Reglunnar aldrei risið hærra í Garðinum, en á meðan þeirra beggja naut við, sem varð því miður allt of stutt. Stein- unn lést í ársbyrjun 1944, langt um aldur fram og var öllum sem hana þekktu mikill harmdauði. Skarð hennar var um tíma ófyllt, sérstak- lega hvað söng og tónlist snerti, en maður kemur í manns stað. Auður Tryggvadóttir gekk til liðs við Unu og tók að sér þá hlið mála í barnastúkunni og gegndi því starfi yfir þijá áratugi, af einstakri alúð. Gáfur Unu og hæfileikar nutu sín mjög vel á meðal yngri kynslóð- arinnar í barnastúkunni: Henni er það öðrum fremur að þakka hvað margir bindindismenn eru í Garðin- um. Auk þess að þjóna markmiði reglunnar um að afneita tóbaki og áfengi, reyndi hún ávallt að laða fram það besta sem í hverri barns- sál bjó, bæði á stúkufundum og utan þeirra. Fundir voru mjög þétt yfir vetrarmánuðina og öllum jafn mikið tilhlökkunarefni. Una var glögg á hæfileika hvers og eins og reyndi að þroska þá og efla í barna- stúkunni. Dagskrá fundanna var því að jafnaði mjög fjölbreytt, með sjálfvöldu efni bamanna, upplestri, leikþáttum, söng og ýmsum þraut- um og leikjum. Allt vandlega æft og undirbúið, annaðhvort heima hjá flytjendum eða og oftast þá í Sjó- lystinni hjá Unu, en þangað voru allir velkomnir til skrafs, ráðagerða og æfinga. Una taldi aldrei eftir sér þær stundir sem fóm í að koma til móts við æsku byggðarlagsins. Stúkuafmælishátíðirnar voru há- punktur hins gróskumikla starfs. Þangað sóttust fullorðnir eftir að koma, ekki síður en börnin, enda var það mál manna að vandaðri dagskrár hafi sjaldan verið á sam- komum hér, en á meðan Una var gæslumaður bamastúkunnar. Mörgum hefur reynst erfítt að halda bömum við efnið þegar stór hópur er kominn saman, en þetta reyndist henni auðvelt, þótt fundina sæktu allt að því 70-80 börn og unglingar. Sterkur persónuleiki hennar og gott skipulag á fundum, þar sem alltaf var eitthvað fyrir stafni, hélt börnunum við efnið, al- veg óþvingað. Sá boðskapur sem hún flutti börnunum og efnið sem hún valdi var ávallt mannbætandi, sem og það efni, sem hún samdi sjálf, bæði sögur og leikþættir, en þar var framlag hennar meira en almennt er vitað. Þættirnir um Pét- ur litla, Daníel frænda og Salóme í bæ og sveit voru vel samdir og yngri kynslóðin kunni sannarlega að meta þá. Þótt Una hefði ekki verið lang- skólagengin, nam hún erlend tungumál sér til gagns. Hún þýddi sögur og sagnir úr dönsku, sem síðan var flutt á stúkufundunum. Leikþáttunum stjórnaði hún oftast sjálf og fyrir kom að hún brá sér á leiksviðið, en ekki nema því að- eins að mikið lægi við, eins og á Skilafrest- ur vegna minningar greina Eigi minningargrein að birtast á útfarardegi (eða í sunnu- dagsblaði ef útför er á mánu- degi), er skilafrestur sem hér segir: í sunnudags- og þriðju- dagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. í mið- vikudags-, fimmtudags-, föstudags- og laugardagsblað þarf greinin að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur er útrunn- inn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. 50 ára afmæli barnastúkunnar, þegar Sigurður Jóhannesson (seinna í Leikfélagi Kópavogs) veiktist daginn fyrir afmælið, en hann átti að leika litla Pétur. Nú voru góð ráð dýr, en Una gekk í hlutverkið við mikinn fögnuð hátíð- argesta. Lét meira að segja hafa sig í að syngja, sem var ekki henn- ar sterka hlið. Mér er líka ávallt minnisstæð ein vísan sem hún söng, en hún talar sínu máli um hvað hún gat ort skemmtilega, en með þá hæfileika fór hún fremur dult. Vís- an sem Pési litli söng var svona: Ég syng nú þetta litla ljóð og lag sem ég hef búið. Frissi, ég hef falleg hljóð, en fínnst þér lagið snúið. Þegar Una tók við gæslumanns- starfinu af Einari Magnússyni vakti ræða hennar mikla athygli. Fram til þess tíma hafði hún lítið látið að sér kveða í málflutningi á mannamótum, en þama flutti hún leiftrandi ræðu, sem hreif fundar- menn og það án þess að hafa einn staf skrifaðan til að styðjast við. Alla tíð talaði hún blaðalaust og alltaf var eftir orðum hennar tekið, enda sanngjörn og réttsýn, leitandi þess góða í þessum heimi. Mál hennar var meitlað, röddin mild og skýr. Aldrei hækkaði Una röddina, nema ef henni fannst á lítilmagnann hallað. Ekki vildi Una þakka sér þau ítök sem barnastúkan átti með- al ungdómsins í Garðinum, heldur væri æskan það góð að upplagi að vandalítið væri að starfa með henni. En bindindishreyfíngin var ekki eina félagið sem naut krafta Unu. Hún var ein af stofnendum kvenna- deildar slysavamafélagsins í Garð- inum og ritari þess í aldarfjórðung, eða frá stofndeginum 10. mars 1934 til 14. jan. 1959, að hún baðst undan endurkosningu. Fundargerð- irnar bera með sér fallega rithönd Unu og gott vald á móðurmálinu. Una vildi veg deildarinnar sem mestan svo að hún gæti forðað mönnum frá slysum og dauða. Una kvað mega rekja áhuga sinn til þess atviks sem gerðist í Gerðavör- inni þegar faðir hennar sem var á áraskipi, sem fórst þar í lendingu. Skipveijana rak fljótt á land, en enginn kunni þá neinar lífgunarað- ferðir, sem líklega hefðu getað bjargað þeim. Af öðrum félasstörfum Unu má nefna framlag hennar til leiklistar í byggðarlaginu. Auk þess sem áður er getið um starf hennar í barna- stúkunni stjórnaði hún hópi áhuga- fólks um leiklist, sem hún gaf nafn- ið Litla leikfélagið. Voru það ung- menni sem tekið höfðu ástfóstri við Thalíu í stúkunni, en vildu gjarnan halda áfram eftir að bemskudögun- um lauk. Hópurinn hélt saman í nokkur ár, eða þar til hann dreifð- ist, eftir því sem skyldur lífsins kölluðu menn vítt og breitt. Upp- færslumar báru með sér vandað yfírbragð enda var leiklist Unu mjög eðlislæg, eða öllu heldur með- fæddir hæfíleikar. Nafn félagsins sem starfað hefur allt fram undir þetta, Litla leikfélagið, er fengið frá Unu. Mest starfaði Una með Litla leikfélaginu efir .lát Stefaníu. Sjálf sagði Una að samneytið við unga fólkið hafi hjálpað henni mest við að yfirstíga harminn. Una var kona mjög víðlesin og bjó yfir miklum fróðleik, sem hún miðlaði öðmm af. Hún skildi gildi prentaðs máls og henni fannst stóm bókasafni sínu best borgið í eigu íbúanna og það er nú uppistaðan í bókasafni Gerðahrepps. En Una hafði haft fleiri bækur í návist sinni en sínar eigin. Bókasafn Ung- mennafélagsins Garðars var til húsa hjá Unu í marga áratugi, á risloft- inu. Það er nú liðin tíð. Eftir lát hennar stóð húsið autt um sinn. Menn vonuðu að það yrði varðveitt til minningar um hana og sem minj- ar um byggingarmáta Garðmanna um aldamótin. Ekki varð mönnum að þeirri ósk sinni, en þegar til stóð að rífa það, keypti Baldvin Njálsson húsið og heldur því að mestu í sinni gömlu mynd. Til handa var Una engu síðri en hugans. Gat saumað hvaða flík sem t Elskulegur eiginmaður minn og faðir okkar, BALDUR EIRÍKSSON frá Dvergsstöðum, lóst á hjúkrunarheimilinu Seli þann 16. nóvember. Jarðarförin verður auglýst síðar. Laufey Stefánsdóttir og börn. t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, MARGRÉT AGNES HELGADÓTTIR, Tjarnargötu 29, Keflavík, lést á heimili sínu fimmtudaginn 17. nóvember. Benedikt Jónsson, Jón Benediktsson, Bjarnhildur H. Lárusdóttir, Margrét Þóra Benediktsdóttir, Hermann Th. Ólafsson, Svanhildur Sigurgeirsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. UNA GUÐMUNDSDÓTTIR var. Handbragð hennar bar ávallt vitni um mikla lagni. Hún átti hár- klippur og snyrti margan kollinn á meðan ferðir til löggiltra hárskera voru fáfarnar. Hún bjó iðulega um sár manna í læknisleysinu. Fáir báru meiri virðingu fyrir öllu lífi en Una. Börn og unglingar komu oft með særða fugla til hennar. Hún hlúði að þeim og hjúkraði, oftast með þeim árangri að eftir fáa daga flugu þeir alheilbrigðir út í náttúr- una. Það var gleðileg sjón fyrir Unu og ekki laust við að tár blikuðu á hvörmum hennar. Una var góðum námsgáfum gædd og hún var aðeins 16 ára, þegar hún fór að kenna börnum, einkum þeim sem voru undir skóla- skyldualdri, sem þá var miðaður við 10 ár. Auk þess var komið með til hennar börn sem áttu bágt með að læra í skólanum. Þennan sérskóla annaðist hún í 20 ár. Una stundaði einnig algenga vinnu, heyskap, fískþurrkun og pökkun á meðan henni entust kraftar. Hún gekk þó aldrei heil til skógar eftir byltu sem hún fékk barn að aldri, - féll úr rólu og meiddist illa í baki. „Þekkirðu manneskju í Garðinum sem Una heitir?“ spurði læknir einn undirritaðan. Varlega var farið í svarið, því ekki var gott að greina hveiju læknirinn var að leita eftir. „Þetta er mjög merkileg mann- eskja,“ bætti hann við „því til mín hefur komið fólk frá henni með sjúkdómsgreiningar og þær hafa aldrei brugðist. Síðan hef ég skoðað mín fræði í nýju ljósi og afneita því ekki lengur með öllu sem nefnt er huldulækningar“. Við þessa setn- ingu losnaði svolítið um málbeinið á þeim sem spurður var, enda verið heimagangur hjá Unu frá blautu bamsbeini og efaðist ekki um dul- ræna hæfileika hennar, því sannari og fölskvalausari persóna væri vandfundin. Síðan voru rakin nokk- ur atvik og þar á meðal eitt sem tengdist 75 ára afmæli hennar. Nokkrum dögum fyrir það var handriti að viðtali við Unu skilað heim til Jóns Birgis Péturssonar, fréttastjóra Vísis, þar sem hann lá í rúminu og gat sig lítið hreyft vegna bakveiki. Eftir að hafa lesið handritið sagði hann: „Hvernig væri að hún reyndi að hjálpa mér?“ Höfundur handrits fór rakleitt til Unu, sem bað um nafn og heimilis- fang og lofaði að gera sitt besta. Um morguninn þegar hringt var til Jóns, var hann farinn í vinnuna, stálsleginn. Kvalirnar hurfu allt í einu um nóttina og bakveiki hefur ekki þjáð hann síðan, að því best er vitað. Fleiri dæmi mætti nefna, en þessi þáttur í persónuleika Unu, sá dul- ræni, er sá merkasti, eins og reynd- ar má lesa í bókinni Völva Suður- nesja, sem Gunnar M. Magnúss rit- aði. Einnig geta þau hundruð manna sem Una veitti hjálp, vitnað um hæfíleika hennar á þessu sviði. Þess vegna var oft gestkvæmt á heimili hennar, sérstaklega hin seinni ár og oft hringdi síminn. Hún lét það ekki á sig fá.' Reyndi að hjálpa öllum með aðstoð framandi afla. Hjá Unu var ekkert kynslóða- bil. I hús hennar voru allir jafn velkomnir, - háir sem lágir. Segja má að eitt mesta lán hennar hafi verið góðir nágrannar, sem oft voru henni innan handar þegar á þurfti að halda og hún sagðist aldrei geta fullþakkað þeim fyrir alla aðstoðina og tiltók þá Erling Eyland og Guð- rúnu Gísladóttur, Finnboga Bjarna- son og Málmfríði Jóhannsdóttur, og Hrein Guðbjartsson og Margréti Sæbjörnsdóttur. Una vann sér traust og virðingu allra þeirra sem henni kynntust og ævilanga vináttu sýndu henni böm- in sem störfuðu með henni í barna- stúkunni. Segja má að um tíma hafí öll börn í Garðinum frá 7-14 ára verið börn hennar, á meðan hún var gæslumaður stúkunnar. Hin seinni ár hijáði sykursýki Unu og dvaldi hún því oft á sjúkrahúsum. Um sinn dvaldist hún á Garðvangi eða þar til hún lést. Una markaði djúp spor í menningarlíf Gerða- hrepps, sem seint mun fenna í. Magnús Gíslason.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.