Morgunblaðið - 18.11.1994, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 1§. NÓVEMBER 1994 13
LANDiÐ
Stækkun í leikskól-
anum á Skagaströnd
Skagaströnd - Ný viðbygging við
leikskólann Barnaból hefur verið
tekin formlega í notkun. Ekki er
búið að fullgera viðbygginguna en
65 fm af henni voru teknir í notkun
að þessu sinni.
Grunnur viðbyggingarinnar var
steyptur 1988 en síðan lágu fram-
kvæmdir niðri til ársins 1992 er það
var gert fokhelt^ og ein leikstofa
tekin í gagnið. Á þessu ári hefur
síðan verið unnið að innréttingum
á þeim 65 fm sem nú voru opnað-
ir. Áfallinn kostnaður við bygging-
una er 14,1 milljón króna, en þar
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
ME á Egils-
stöðum opn-
ar kaffihús
Egilsstöðum - Listafélag
Menntaskólans á Egilsstððum
hefur opnað kaffihús í húsnæði
menntaskólans. Tilgangurinn er
að efla félagslíf innan veggja
skólans. Ætlunin er að hafa opið
eins mikið og mögulegt er á
morgnana og á kvöldin. I boði
er kaffi, kakó og te, vöfflur og
smákökur fyrir jólin, ásamt góðri
kaffihúsastemmningu, húsband-
ið leikur lifandi tónlist, stefnt er
að því að hafa ljóðakvöld og fleiri
uppákomur. Kaffihúsið er opið
öllum. Nemendur hafa innréttað
kaffihúsið, máluðu og saumuðu
gardínur, húsgögn lánaði skólinn
og Tómstundaiðjan lagði til
skreytingar.
Morgunblaðið/Ingibjörg Jóhannesdðttir
Oxfirðingar
fá hitaveitu
UM ÞESSAR mundir eru miklar
framkvæmdir á Kópaskeri og í
Öxarfirði í sambandi við hitaveitu.
Áætlað er að hún verði tekin í notk-
un haustið 1995. Á myndinni eru
Bernharð Grímsson og Jón Ingi-
mundarson, starfsmenn hitaveit-
unnar, að störfum.
af hefur verið framkvæmt fyrir 4,4
millj. króna á þessu ári. Byggingar-
framkvæmdir hafa frá upphafi ver-
ið umsjá Helga Gunnarssonar tré-
smíðameistara.
Foreldrum leikskólabarnanna var
boðið til opnunarinnar, en þar voru
Báru Þorvaldsdóttur, sem nú lætur
af störfum sem leikskólastjori,
þökkuð vel unnin störf á undanförn-
um árum og Svandís Hannesdóttir
boðin velkomin til starfa sem nýr
leikskólastjóri. Að því búnu var
gestum og starfsfólki boðnar kaffi-
veitingar.
HLUTI gestanna ásamt notendum hússins; börnunum.
Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson
NISSAN
Sunny
með öllu
tilheyrandi
á krónur
1.169.000.-
Nissan Sunny fiögurra dyra árgerö 1995
Aukahlutir á mynd: Álfelgur
Innifalið í verði:
• frítt þjónustuefiirlit
• íslensk ryðvörn og
hljóðeinangrun
• 6 ára ryðvarnarábyrgð
• 3 ára verksmiðjuábyrgð
Hlaðinn aukahlutum
• útvarþ og segulband,
4 hátalarar
• hituð sœti
• útihitamœlir
• og margt margtfleira
Opið allar helgar
jrákl. 14-17
að Sœvarhöfða 2
Ingvar
Helgason hf.
Sœvarhöfða 2
Sími674000
-- -. .-..-. ...- -.,- .¦¦-. .. ..