Morgunblaðið - 18.11.1994, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 18.11.1994, Blaðsíða 44
«*r i 44 FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1994 Dýraglens ít Grettir Ljóska Ferdinand MORGUNBLAÐIÐ BRÉF HL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reylgavik • Sími 691100 • Símbréf 691329 Samhengi sögunnar Frá Örnólfi Thorlacius: ÞORSTEINN Guðjónsson víkur í bréfi til blaðs yðar 4. nóvember að grein minni sem þar birtist 19. október. í bréfi hans stendur: „Það er furðulegt að nokkur skuli íeyfa sér að kalla það „kynþátta- hatur“ að skýra frá staðreyndum. Furðulegast þó að menntaskóla- rektor skuli taka þátt í að magna upp múgæsingu gegn „nasistum og kynþáttahöturum“, eins og þeir eru titlaðir sem leyfa sér að hugleiða þessi mál í sagnfræði- legu samhengi." Þar sem orðið „kynþáttahatur" og „kynþáttahatarar" eru til- greind innan tilvitunarmerkja hlýtur lesandi að álykta að sá menntaskólarektor sem í er vitnað og undir þetta bréf ritar hafi not- að þau í grein sinni - og það til að magna upp múgæsingu gegn unnendum sagnfræðilegra sann- inda eins og Þorsteini Guðjóns- syni. Orðin sjást þó hvergi í grein minni. Blettur á sögu mannkyns Of mikið hefur birst af fréttum og myndum af útrýmingarbúðum nasista til að fordómalitlir menn geti afgreitt þær sem blekkingu, uppdiktaða af sigurvegurum í lok síðari heimsstyrjaldar. Vera má að tala fórnarlamba hafí í upp- hafi verið ýkt en það breytir engu um það að gasklefarnir voru til og eru blettur á sögu mannkyns. Það sæmir ekki mönnum sem „hugleiða þessi mál í sagnfræði- legu samþengi" að „beina hugan- um þar frá, að geðfelldari við- fangsefnum", eins og Þorsteinn játar að hafa gert þangað til skoð- anabræður hans fóru að útbreiða þá staðhæfingu að allt tal um gasklefana væri uppspuni. Svo mikið um hið sagnfræðilega sam- hengið. Vissulega hefur enginn hlotið dóm fyrir stríðsglæpi sem framdir voru á íbúum Dresden og Hiróshima og engin von er á slíkum dómi, öðrum en dómi sög- unnar. En;á að þegja um atferli allra misindismanna á meðan ein- hverjir eru ódæmdir? í löndum þar sem margir eiga um sárt að binda vegna helfarar nasista - í Þýskalandi og sumum fylkjum Bandaríkjanna og ef til vill víðar - varðar við lög að ýfa sár þessara þegna með því að afneita óhæfuverkunum sem unn- in voru í Auschwitz, Belzec, Chelmo, Majdanek, Sobibor, Tre- blinka og víðar. Ætla verður að svona lög séu ekki sett í réttar- ríkjum nema áður hafi rækilega verið hraktar þær ásakanir sem refsiverðar eru taldar. „Sérfræðingur Bandaríkjastjórnar" Ég spurðist hjá Menningar- stofnun Bandaríkjanna fyrir um Fred Leuchter, sem Þorsteinn kallar „sérfræðing Bandaríkja- stjórnar um gasklefa". Fékk ég þau svör að Leuchter þessi væri Bandaríkjastjórn með öllu óvið- komandi. Hann er framleiðandi og sölumaður gasklefa, rafmags- stóla, eitursprautubúnaðar og gálga og sagður „sjálfskipaður sérfræðingur í aftökum“. Sumar- ið 1991 var hann dæmdur skil- orðsbundið í tveggja ára fangelsi fyrir að titla sjálfan sig ranglega verkfræðing og starfa sem slíkur. Leuchter hefur verið gagnrýndur, m.a. í Newsweek og The Econom- ist, fyrir ósmekklega kynning- arbæklinga um söluvarning sinn og fleira. Mér sýnist að fáir að- hyllist kenningar „sérfræðings- ins“ um afdrif fanga í búðum nasista. (Hvernig er hægt að af- sanna notkun rokgjarnra gasteg- unda af jarðvegssýnum sem tekin eru hálfri öld síðar?) Getur Þor- steinn ekki leitt fram trúverðugra vitni máli sínu til stuðnings en dæmdan falsara? Kjarni máls míns Grein mín 19. október gengur út á það að ekki séu erfðafræði- legar forsendur fyrir því að skipta mannkyninu í kynþætti, að arf- geng fjölbreytni innan hvers þeirra sé mun meiri en sá munur sem aðgreinir þá. Þorsteinn Guðjónsson gerir enga tilraun til að andmæla þess- um erfðafræðilegu rökum, sem eru þó kjarni máls míns. Þegar hann brigslar mér um að magna upp múgæsingu gegn sér og öðr- um sem „hugleiða þessi mál í sagnfræðilegu samhengi“ sé ég ekki að hann geti átt við annað í grein minni en þetta, sem ég fer fram á að Morgunblaðið endur- birti: „I upphafi greinar, sem þessi pistill er sóttur í, er rifjuð upp ófögur saga Þriðja ríkisins þýska, að því er hún snerti þessi mál, saga sem hófst nieð svæsnum falskenningum um kynþáttamun og endaði í gasklefunum í Ausc- hwitz. Hugmyndasmiðir nasista hugð- ust losa ríkið við „erfðasjúka af- komendur". Síðar þróaðist þessi hugmynd yfir í að hafna „þjóðfé- lagslega óhæfum og miður æski- legum afbrigðum“ og „lífi sem ekki er vert að lifa“. Kynþátta- hreinsararnir gengu allir út frá yfirburðum hins aríska kyn- stofns.“ Vilji Þorsteinn Guðjónsson skipa sér í þann fríða flokk er það hans mál. Ég hef ekki valið hon- um þar sess. ÖRNÓLFUR THORLACIUS, Bjarmalandi 7, Reykjavík. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt ( upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það- an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.