Morgunblaðið - 18.11.1994, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Borgarstjóri um áskorun sjúkraliða
Launín koma úr ríkissjóði
en ekki frá borginni
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir borgarstjóri segir að rekstrarkostnaður
sjúkrastofnana sé greiddur úr ríkissjóði og því geti borgaryfirvöld ekki
tekið upp beina samninga við Sjúkraliðafélag íslands. Félagið hefur skor-
að á borgaryfírvöld að sýna frumkvæði og taka upp beinar viðræður við
samninganefnd um nýja kjarasamninga.
Fyrst og fremst ríkið
Borgarstjóri sagði það vera
ófremdarástand sem ríkti á Borgar-
spítalanum og allir vissu að bæði
sjúklingar og sjúkraliðar liðu fyrir
það. „Rekstrarkostnaður Borgar-
spítalans er greiddur af ríkinu, en
ekki af borginni," sagði Ingibjörg
Sólrún. „Þannig að ef ég færi að
vera eitthvað rausnarleg í þessum
kjaraviðræðum þá væri það tekið
úr vasa ríkisins. Þetta snýr fyrst
og fremst að ríkinu.“
Borgarstjóri sagði að borgin
hefði alltaf litið svo á að þegar
kæmi að sjúkrahúsunum og kjara-
samningum, ætti ríkið að hafa
frumkvæðið.
Sjúkraliðar mættu ekki
„Við getum lítið gert vegna þess
að við ætlum ekki að greiða rekstur
Borgarspítalans úr borgarsjóði,"
sagði hún. „Við lítum svo á að rík-
ið verði að hafa frumkvæðið og
forystu. Við getum illa farið að
semja á þess kostnað." Engir
sjúkraliðar mættu til vinnu á Rík-
isspítölunum í gær þrátt fýrir að
þeir hefðu fengið bréf frá forstjóra
Ríkisspítalanna þar sem skorað er
á þá að mæta til vinnu. Ágreining-
urinn um framkvæmd verkfallsins
er því óleystur. Vaxandi líkur eru
á að ágreiningnum verði vísað til
Félagsdóms.
Bréfíð, sem er undirritað af Dav-
íð Á. Gunnarssyni, forstjóra Ríkis-
spítalanna, var sent öllum sjúkralið-
um sem spítalinn telur að eigi að
vinna í verkfallinu, en hafa ekki
mætt vegna ágreinings um fram-
kvæmd verkfallsins.
-Kristín Á. Guðmundsdóttir, for-
maður Sjúkraliðafélagsins, segir að
bréfið feli í sér vissa hótun. Hún
segir að Sjúkraliðafélagið muni
senda sjúkraliðum bréf í dag í sam-
ráði við lögfræðing félagsins.
Nær öruggt er talið að mál sem
Hrafnista í Hafnarfírði og Sunnu-
hlíð í Kópavogi höfðuðu fyrir Fé-
lagsdómi vegna deilu um fram-
kvæmd verkfalls sjúkraliða verði
fellt niður. Stjómendur og lögfræð-
ingur Landakots skoðuðu alvarlega
þann möguleika að kæra til Hæsta-
réttar úrskurð Félagsdóms, sem
féll á þriðjudag í máli spítalans og
Sjúkraliðafélagsins. Fallið var frá
því. Mál Hrafnistu og Sunnuhlíðar
er sambærilegt Landakotsmálinu
og því er talið að niðurstaða Félags-
dóms verði sú sama og í máli Landa-
kots, sem Sjúkraliðafélagið vann.
■ Verkfall sjúkraliða/9
Evrópukeppni
taflfélaga
TRmætir
Ukraínu
TAFLFÉLAG Reykjavíkur mætir
úkraínsku meisturunum Donbass
Altsjevsk í fyrstu umferð Evrópu-
keppni taflfélaga 1994, sem tefld
er í Lyon í Frakklandi. í liði Úkra-
ínu eru Vassílí ívantsjúk á fyrsta
borði, einn sterkasti skákmaður
heims með 2.695 stig. ívantsjúk
mætir Helga Ólafssyni.
Auk þess mætast Vilnus, Lithá-
en, og Lyon, Frakklandi, Bosna
Sarajevo, lið Kasparovs, keppir við
Honved Búdapest og Beersheva,
ísrael, mætir Novosíbirsk, Rúss-
landi.
Fimm stórmeistarar
Donbass teflir fram fimm stór-
meisturum og einum alþjóðlegum
meistara, gegn þremur stórmeistur-
um og tveimur alþjóðlegum meist-
urum TR auk Benedikts Jónasson-
ar, sem er titillaus.
UMFÍ og umhverfisráðuneyti ráðast
í víðtækt umhverfisátak
Hreinsunarátak
á fjörum og sjó
UNGMENNAFÉLAG íslands hef-
ur að frumkvæði umhverfisráðu-
neytis ákveðið að leggja út í viðam-
ikið umhverfísátak á næsta sumri
sem miðast að því að vinna gegn
mengun í hafí, á fjörum og um-
hverfis vötn og ár hérlendis. Efnt
verður til hreinsunarátaks og
stefnt að því að hvetja fjölskyldur
og einstaklinga til dáða í því sam-
bandi. Ááætlaður kostnaður nemur
5 milljónum króna og leggur ráðu-
neytið fram 20% kostnaðar auk
faglegrar ráðgjafar.
Vonast eftir mikilli
þáttöku
Að sögn Sæmundar Runólfsson-
ar, framkvæmdastjóra UMFÍ,
standa nú yfír viðræður við önnur
landssamtök um samstarf og kost-
un. Skráðir félagar í UMFÍ séu
yfír 50 þúsund talsins, þótt ekki
séu allir virkir, en ljóst sé þó að
hreyfíngin sé stór og því góðrar
þátttöku að vænta. Sjálfboðavinna
verði gífurleg í gegnum UMFÍ og
aðrar hreyfingar.
Búið er að skipa fimm manna
verkefnisstjórn og ráða sérstakan
verkefnisstjóra, Önnu Margréti
Jóhannesdóttur. Hún stýrði einnig
lýðveldishlaupinu í sumar sem 25
þúsund manns tóku þátt í, og
kveðst Sæmundur vona að meng-
unarvamarátakið verði sambæri-
legt með tilliti til áhuga almenn-
ings.
„Við höfum aldrei haft eins
langan undirbúning og að þessu
verkefni og erum í viðræðum við
mjög sterka aðila um þátttöku,
þannig að ég á von á mikilli at-
hygli. Við viljum ekki síður vekja
fólk til umhugsunar um umgengni
við náttúruna, og þótt hún hafí
tekið stakkaskiptum á seinustu
tveimur áratugum, held ég að
umgengni við vötn, ár og sjó sé
því miður ekki nægilega góð. Við
teljum því þörf á hugarfarsbreyt-
ingu, ekki aðeins hjá sjófarendum
heldur almenningi öllum,“ segir
Sæmundur.
Morgunblaðið/Kristinn
Verkalýðsfé-
lög taki tillit
til aðstæðna
ATVINNUMÁLANEFND Mosfells-
bæjar sendi frá sér ályktun síðdegis
þar sem segir að nú stefni í að allt
að 100 fjölskyldur verði fyrir barðinu
á verkfalli FÍA.
- „Með samningum um hið Evr-
ópska efnahagssvæði skapast skil-
yrði fyrir einstaklinginn til að leita
sér atvinnu hvar sem er innan svæð-
isins og fyrirtæki í samkeppni leiti
leiða til þess að haga rekstri sínum
þannig að það leiði til bættrar sam-
keppnisstöðu. Atvinnumálanefnd
Mosfellsbæjar hvetur verkalýðs-
hreyfínguna til þess að endurskoða
núverandi skipulag með tilliti til
breyttra aðstæðna," segir í ályktun
nefndarinnar.
Þvegið
af krafti
KALT en þurrt veður hefur ríkt
á höfuðborgarsvæðinu upp á síð-
kastið og hefur borið á að óhrein-
indi ýmiskonar setjist á götur,
hús og bíla og fari á kreik um
Ieið og hvessir. Gluggaþvotta-
maður sem ljósmyndari Morgan-
blaðsins kom auga á í gær á
Hótel Sögu beið ekki eftir væt-
unni, heldur þvoði rykið af
glugganum af krafti.
50% hlutabréfa ríkisins í Lyfjaversluninni ruku út á fyrsta söludegi
Símkerfi söluaðila
sprakk vegna álags
Lagt verdi til að sölu síöari hluta veröi flýtt
HELMINGSHLUTUR ríkisins í
LyQaverslun ríkisins að nafnvirði
150 milljónir króna seldist upp í
gær, sama dag og sala hófst, en
selja átti bréfín fram að áramótum.
Hlutabréfín voru á genginu 1,34
þannig að söluverð þeirra var alls
um 201 milljón króna. Kaupþing
varð að hætta sölu um klukkan
14.30 í gær þar sem hlutabréf voru
á þrotum, en þá hafði bæði sím-
kerfi fyrirtækisins og annarra selj-
enda sprungið vegna álags að sögn
Bjarna Ármannssonar, forstöðu-
manns markaðssviðs Kaupþings.
Hreinn Loftsson, formaður einka-
væðingamefndar, lýsti eindreginni
ánægju yfír sölunni þegar rætt var
við hann seint í gær. Hann sagði
að lagt yrði til að sölu síðari hluta
ríkisins í fyrirtækinu yrði flýtt.
Skilyrði voru um hámarkskaup
og mátti hver kaupandi eingöngu
kaupa hlutabréf að söluvirði 500
þúsund krónur. Ef keypt voru bréf
fyrir allt að 250 þúsund krónur
mátti greiða 80% kaupverðs með
vaxtalausu skuldabréfí með jöfnurn
greiðslum til tveggja ára.
„Við eigum eftir að fá söluyfirlit
frá öllum sölustöðunum áttatíu, en
okkur sýnist að meðalkaupin nemi
240 þúsund krónum og miðað við
söluverð, má áætla að hluthafar séu
nú 800-850 talsins í stað eins áð-
ur,“ segir Bjami. Bæði sé um lögað-
ila og einstaklinga að ræða og fyrir-
tæki séu í minnihluta kaupenda.
Viðbrögðin með ólíkindum
„Þetta er með ólíkindum. Við-
brögðin eru mun sterkari en við
áttum von á en sjálfsagt hefur lána-
fyrirgreiðslan hjálpað mikið.. Við-
tökurnar eru í nokkurri andstöðu
við það sem við höfum áður fundið
í tengslum við sölu ríkisfyrirtækja,
en þó er ljóst að þó nokkuð stór
hluti kaupanda nýtir sér sk.
skattfrádrátt vegna hlutabréfa-
kaupa, og þegar menn geta fengið
lánaðan hluta kaupverðsins gerir
það afsláttinn hagstæðari því að
menn fá hann ekki greiddan út fyrr
en í fysta lagi átta mánuðum eftir
að kaupin fara fram. Þetta gerir
fjárfestinguna í heild arðbærari og
fyrirtækið nýtur þess umfram önn-
ur hlutafélög. Fyrirtæki í lyfjageir-
anum sem horfir eðli málsins sam-
kvæmt fram á vaxandi markað, er
kannski einnig fýsilegri kostur í
augum kaupanda en t.d. sjávarút-
vegsfyrirtæki,“ segir Bjarni.
Hann kveðst ekki telja neitt óeðli-
legt við góð lánskjör á kaupverði,
enda sé slíkt sölufyrirkomulag al-
gengt í einkavæðingu erlendis og
svipað hafi verið gert með einka-
væðingu SR-mjöls, þar sem kaup-
endur fengu ákveðna lánafyrir-
greiðslu. Slíkt sé eðlilegt þegar sala
á jafn stórum hlut fari fram, einkum
til þess að hindra rót á markaðinum
þar sem menn losi ekki 200 milljón-
ir króna án nokkurs fyrirvara.
Afgangnrinn seldur í janúar
Fjármálaráðherra óskar eftir
heimild til að selja hinn hluta ríkis-
ins í Lyfjaverslun ríkisins í fjárlaga-
frumvarpinu sem nú liggur fyrir
Alþingi, og er hugmyndin, að sögn
Bjarna, að sú sala hefjist í janúar
nk. fáist samþykki Alþingis.
Nýir hluthafar munu væntanlega
koma saman á aðalfundi í mars eða
apríl á næsta ári.