Morgunblaðið - 18.11.1994, Qupperneq 12
12 FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1994
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Rúnar Þór
ÓLI G. Jóhannsson og Jóhann Nói Ingimarsson spá í spilin fyrir opnun sýningar þeirra félaga og
Arnar sem er sonur Óla en yfirskrift sýningarinnar er Þrír á Þingi.
Þrír á
Þingi
„ÞRÍR á Þingi“ er yfirskrift
myndlistarsýningar sem verður
opnuð í Listhúsinu Þingi á morg-
un, laugardaginn 19. nóvember,
kl. 15. Félagarnir þrír sem sýna
eru Jóhann Nói Ingimarsson, Óli
G. Jóhannsson og Orn Ólason.
Örn er þeirra yngstur, fæddur
árið 1971 og sýnir nú í fyrsta
sirin en hann stundar nám í lista-
skólanum Emmily Carr í Vancou-
ver í Kanada. A sýningunni eru
17 teikningar eftir hann.
Málað á sjónum
Faðir hans, Óli G., sýnir líka
17 verk, málverk unnin á striga
eða pappír. Hann sýndi fyrst árið
1972 og með reglulegu millibil
síðan, m.a. á Kjarvalsstöðum, í
Norræna húsinu og Listasafni
alþýðu. Fimm ár eru frá því hann
sýndi hér í heimabænum síðast.
Nú sýnir hann verk sem hann
hefur unnið að á þessu ári og því
síðasta, auk þess eitt frá árinu
1992. „Ég hef verið sjómaður síð-
ustu misseri, á togurum Útgerð-
arfélags Akureyringa, Sléttbaki
og Sólbaki, og mikið af þessum
málverkum hef ég málað úti á
sjó,“ segir hann.
Nói er fæddur árið 1926, hann
er húsgagnahönnuður og fram-
kvæmdastjóri og hefur lengi ver-
ið viðloða listina, málverkið og
höggmyndir. Verk hans hafa af
og til sést á sýningum. Hann hef-
ur líka árum saman tengst hús-
gagnaiðnaði, var eigandi og
framkvæmdasljóri Valbjarkar,
rak húsgagnaverslunina Örkina
hans Nóa og hefur nýlega opnað
verslunina Ondvegi, ásamt Helgu
dóttur sinni. Nói sýnir 8 þrívídd-
arverk bæði utandyra og innan.
„Við höfum þekkst lengi,“
sagði Óli G. um ástæður þess að
þeir sýna saman þrír á Þingi.
„Þegar Nói kom á sínum tíma frá
Þórshöfn til Akureyrar leigði
hann kjallaraherbergi hjá afa og
ömmu og þá hófst okkar vinskap-
ur sem haldist hefur óslitið síð-
an,“ bætti hann við, en sem fyrr
segir eru þeir Örn feðgar.
Sýningin verður opin á virkum
dögum frá kl. 17-20, en um helg-
ar frá 15 til 20. Henni lýkur 27.
nóvember næstkomandi.
Bæjarráð Akureyrar samþykkir að styðja Menntasmiðju kvenna næsta ár
Verði tengt annarri starf-
semi fyrir atvinnulausa
BÆJARRÁÐ samþykkti í gær að
gefa fyrirheit um svipaðan stuðning
við Menntasmiðju kvenna á Akur-
eyri á næsta ári og verið hefur á
þessu ári og einnig að lögð verði
áhersla á að skoðuð verði samvinna
við aðra starfsemi á vegum bæjar-
ins_fyrir atvinnulaust fólk.
Á fundi bæjarráðs í gær var tek-
ið fyrir erindi jafnréttis- og fræðslu-
fulltrúa þar sem óskað er eftir að
ráðið taki afstöðu til áframhaldandi
stuðnings við verkefnið sem verið
hefur í gangi frá því síðsumars. Til-
gangur Menntasmiðjunnar er að
gefa atvinnulausum konum kost á
að sækja sér menntun án endur-
gjalds.
Menntamálaráðuneytið sem
styrkt hefur verkefnið ásamt Akur-
eyrarbæ og fleiri aðilum hefur lýst
yfír að um áhugavert þróunarverk-
efni sé að ræða og hefur ráðuneytið
ákveðið að veita á þessu ári einnar
milljónar króna styrk til þess án
frekari skuldbindinga um fjárveit-
ingar.
Jafnréttis- og fræðslufulltrúi hef-
ur boðað til fundar á Akureyri um
framtíð Menntasmiðjunnar með full-
trúum Akureyrarbæjar og félags-
mála- og menntamálaráðuneytum.
Miiyasafn þarf meira
Á fundi bæjarráðs var einnig
fjallað um erindi frá Minjasafninu
á Akureyri sem sótti um 1,2 millj-
óna króna aukaijárveitingu vegna
minni tekna og kostnaðarsamari
breytinga á sýningarsölum en áætl-
að var. Bæjarráð samþykkti að taka
upp fjárveitingu á næsta ári til að
mæta hluta Akureyrarbæjar af
umbeðinni upphæð, eða 720 þúsund
krónur.
Erindi Náttúrulækningafélags
Akureyrar um fjárstuðning frá
bænum á næsta ári vegna niður-
greiðslu á lánum vegna bygginga-
framkvæmda var vísað til gerðar
fjárhagsáætlunar fyrir næsta ár en
hagsýslustjóri lagði fram uppkast
að fjárhagsáætlun fyrir Bæjarsjóð
Akureyrar 1995 á fundinum. Hús-
næði félagsins, Kjarnalundur, er nú
leigt til hótelreksturs.
Lék boccia í sólarhring til að afla fjár
Varð aldrei leið-
ur á leiknum
„ÞETTA gekk ágætlega en auðvitað
var þetta svolítið þreytandi," sagði
Valdimar Sigurðsson sem lék boccia
í einn sólarhring á dögupum og safn-
aði áheitum í leiðinni. Valdimar er
með bandvefssjúkdóm og var til-
gangur maraþonboccialeiksins sá að
safna fé til að unnt væri að hefja
rannsóknir á þessum sérstæða sjúk-
dómi hér á landi. Með þessum hætti
safnaði hann á annað hundrað þús-
und krónum sem hann sagði að væri
góð byijun.
„Það erfiðasta í þessu var að halda
sér vakandi, en ég hafði búið mig
vel undir þetta í nokkum tíma, hafði
hjólað mikið og reynt að auka þrek
og útha!d,“ sagði Valdimar. „Ég
varð aldrei leiður á leiknum, en væri
nú ekki til í að gera þetta strax aft-
ur. Einhvem tíma seinna kannski,
en ekki strax.“
50 ára afmæli ÍBA
Valdimar lék boccia á sama tíma
og efnt var til 50 ára afmælissýning-
ar íþróttabandalags Akureyrar, ÍBA,
í íþróttahöllinni. Hermann Sigtryggs-
son íþróttafulltrúi Akureyrarbæjar
hefur tekið saman sögulegt yfírlit ÍBA
þar sem sagt er frá stofnun banda-
lagsins og brot úr sögu þess birt auk
þess sem saga þeirra íþróttafélaga
sem eru innan vébanda ÍBA er rakin
stuttlega. Þá er einnig yfirlit yfir öll
íþróttamannvirki á Akureyri. Marg-
víslegar kynningar voru í gangi og
eitt af því sem vakti athygli sýningar-
gesta var umfjöllun um íþróttameiðsl
og viðbrögð við þeim.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
VALDIMAR sem er lengst til hægri á myndinni lék boccia í
sólarhring til að afla fjár til rannsókna á bandvefssjúkdómi sem
hann er haldinn. Við hlið hans er Aðalsteinn Friðjónsson dóm-
ari og meðspilarinni Kolbrún Sigurðardóttir lengst til vinstri.
Fyrsta
einka-
sýning
Öddu
AÐALBJÖRG María Ólafsdótt-
ir, Adda opnar fyrstu einkasýn-
ingu sína í Deiglunni á morg-
un, laugardaginn 19. nóvember
kl. 14. Sýningin stendur til 27.
nóvember og
er opin dag-
lega frá kl.
14.00 til
18.00.
Það er Me-
nor, Menn-
ingarsamtök
Norðlendinga
sem kynna
listakonuna
og verða
myndir hennar einnig til sýnis
á Súlnabergi og Byggðastofn-
un á Akureyri eins og áður á
slíkum listkynningum samtak-
anna.
Adda stundaði nám við
Myndlistaskólann á Akureyri og
uppeldis- og kennslufræði við
Kennaraháskóla íslands. Hún
hefur starfað við myndlista-
kennslu frá 1986. Hún hefur
tekið þátt í samsýningu norð-
lenskra kvenna og í Listkynn-
ingu Alþýðubankans. Þetta er
fyrsta einkasýning Öddu.
Heimir syng-
ur fyrir
Eyfirðinga
KARLAKÓRINN Heimir í
Skagafirði heldur tónleika í
Akureyrarkirkju á morgun,
laugardag kl. 17.00 og í Frey-
vangi kl. 21.00 á laugardags-
kvöld.
Söngstjóri er Stefán R.
Gíslason, undirleikarar eru
Tomas Higgerson og Jón R.
Gíslason. Söngskráin er fjöl-
breytt, lög eftir innlenda og
erlenda höfunda. Söngvarar í
kórnum eru um 60, einsöngv-
arar eru Einar Halldórsson og
Pétur Pétursson og þá verður
einnig þrísöngur.
. Kórinn var í söngferðalagi í
Búðardal og Stykkishólmi um
síðustu helgi og fékk þar mjög
góðar viðtökur og aðsókn.
Landið sýnt
á Dalvík
Dalvík. Morgunblaðið.
LEIKFÉLAG Dalvíkur hefur
nú hafið sýningar að nýju á
Land míns föður eftir Kjartan
Ragnarson eftir tíu daga hlé
sem gera varð vegna utanferða
leikara. Fyrirhugað er að sýna
fram í miðjan desember og taka
síðan upp sýningar milli jóla
og nýjárs.
íslandsrúta
í Eyjafirði
ÍSLANDSRÚTA Alþýðubanda-
lagsins verður á Akureyri í
dag, föstudaginn 18. nóvem-
ber. Af því tilefni verður efnt
til opin stjórnmálafundar í Al-
þýðuhúsinu við Skipagötu á
Akureyri kl. 20.30 í kvöld.
Framsögumenn á fundinum eru
alþingismennirnir Ólafur
Ragnar Grímsson og Svavar
Gestsson en einnig munu fleiri
þingmenn vera á staðnum.
Ferð íslandsrútunnar um
Eyjafjörð lýkur á morgun,
laugardag þegar farið verður
um Eyjafjarðarsveit, Sval-
barðseyri og Grenivík.