Morgunblaðið - 18.11.1994, Síða 14
14 FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
SPURNING
Hvers vegna
HIGH DESERT
blómafrjókorn,
drottningarhunang
og Propolis?
HIGH DESERT blómafrjó-
korn eru lífrænt (organic)
(ekki verksmibjuframleiösla)
náttúruefni, sem fullnægja allri
vítamín/steinefna og annarri
bætiefnaþörf líkamans. HIGH
DESERT blómafrjókornin koma
til landsins reglulega meö flugi,
líkt og grænmeti og ávextir og
eru því ávallt fersk. Ath. 500
mg. dagskammtur af blómafrjó-
kornum kostar kr. 3,60.
HIGH DESERT drottningar-
hunang er fersk, óunnin, lífræn,
undursamleg fæöa. Sækið styrk
og kraft úr óspilltum efnum nátt-
úrunnar. Ahugið ómeðhöndlað
drottningarhunang skilar trúverö-
ugum árangri.
HIGH DESERT Propolis
er sóttvarnarefni úr lífríki nátt-
úrunnar. Sterkt varnarkerfi lík-
amans er lífsnauösynlegt mann-
inum. Propolis er náttúruvörn
gegn innrásum sýkla og gerla.
Upplýsingar og
pöntunarsímar:
91-668591 - 91-668593.
Útsölustabir:
Græni vagninn,
2. hæö Borgarkringlunni.
Blómaval, Sigtúni, Reykjavík.
Kornmarkaburinn, Reykjavík.
Kjöt & fiskur, Reykjavík.
Hrímgull, Reykjavík.
Heilsuhomib, Akureyri.
Holt & goft, Blönduósi.
Kaupfélag Amesinga, Selfossi.
Studio Dan, ísafiröi.
Skagaver, Akranesi.
Eyjakaup, Vestmannaeyjum.
VIÐSKIPTI
Félag löggiltra endurskoðenda vill að endurskoðendur láti til sín taka á fleiri sviðum
Endurskoð-
endur rann-
saki þrotabú
SAMKEPPNI milli endurskoðunar-
fyrirtækja hefur farið vaxandi og
verkefni þeirra dregist saman m.a.
vegna gjaldþrota og samruna fyrir-
tækja á undanfömum ámm. Þá hef-
ur kunnátta og þekking á reiknings-
skilum innan fyrirtækja almennt
aukist mjög mikið sem aftur hefur
dregið úr verkefnum endurskoð-
enda. Á sama tíma hefur orðið tals-
verð fjölgun innan stéttarinnar und-
anfarin ár og veruleg fjölgun fyrir-
sjáanleg á næstu ámm. Þetta er
m.a. til umræðu á ráðstefnu Félags
löggiltra endurskoðenda sem nú
stendur á Hótel Örk í Hveragerði.
Innan félagsins er nú rætt um að
þörf sé á aukinni kynningu á störfum
endurskoðenda og vemda þurfí bet-
ur starfsheiti þeirra. Þá geti löggilt-
ir endurskoðendur aflað verkefna á
fleiri sviðum t.d. í ráðgjöf við fjár-
hagslega endurskipulagningu, end-
urskoðun gjaldþrotabúa og í rann-
sóknum skattsvikamála fyrir skatt-
rannsóknarstjóra.
„Við horfum til þess að það hefði
mátt leita meira og fyrr til lögg-
iltra endurskoðenda í mörgum
málum,“ sagði Þorsteinn Haralds-
son, formaður Félags löggiltra
endurskoðenda í samtali við Morg-
unblaðið. „Kannski höfum við sjálf-
ir brugðist í því að láta vita af
okkur og því hvaða þjónustu við
veitum. Mjög margt af því sem
miður hefur farið og verið hefur í
umræðunni að undanförnu varð-
andi meðferð á opinberu fé og fjöl-
margt annað hefði mátt koma í veg
fyrir með því að endurskoðendur
hefðu fyrr og meir verið hafðir
með í ráðum."
Milljarðar hafa tapast
Varðandi möguleika á að endur-
skoðendur verði oftar kallaðir til
við gjaldþrotaskipti benti Þorsteinn
á að milljarðar króna hefði tapast
í gjaldþrotum á undanförnum árum.
„Tap bankanna er aðeins hluti
vandans því tap annarra er oft mik-
ið meira t.d. hjá viðskiptamönnum.
Okkur grunar að oft tengist þessum
gjaldþrotum ýmiskonar efnahags-
brot sem er í raun ekki á færi ann-
arra að rannsaka en sérfróðra
manna eins og endurskoðenda. Það
er í raun ólíðandi að gjaldþrot séu
ekki betur rannsökuð en raun ber
vitni til að hægt sé að draga af því
lærdóma og komast að því hvort í
tengslum við þessi þrotamál hafi
átt sér stað einhver efnahagsbrot.“
Þorsteinn sagðist hafa heyrt af
því að jafnvel væri það eitt fyrsta
verk skiptastjóra að tæma allar
bókhaldsmöppur til að selja möpp-
urnar sjálfar. „í skjölunum leynast
oft upplýsingar um eitthvað sem
felur í séri verðmæti til skipta ef
grannt er skoðað. Hins vegar verða
menn að hafa þekkingu til að leita
að því og upplýsa um það.“
Prentiðnaður
Oddi hf.
kaupir 90% í
G.Ben-Eddu
PRENTSMIÐJAN Oddi hf. hefur keypt meirihluta hlutafjár í G.Ben-Eddu
prentstofu hf. Litlar breytingar verða á rekstri G.Ben-Eddu með eigenda-
skiptunum, að sögn Þorgeirs Baldurssonar, prentsmiðjustjóra hjá Odda,
en með þeim yrði auðveldara að ná fram hagræðingu í innkaupum og
nýtingu á vélakosti, sem ætti að styrkja fyrirtækin í samkeppni við erlend-
an prentiðnað, ekki síst á sviði bókagerðar.
Oddi keypti hlut Eignarhaldsfé-
lagsins Stoðar hf., Glitnis hf. og Iðn-
þróunarsjóðs í G.Ben-Eddu, en sam-
anlagt áttu þessir aðilar 91,45% hlut
í prentstofunni. Þeir áttu hlut að
sameiningu Prentsmiðjunnar Eddu
hf. og G.Ben prentstofu í ágúst síð-
astliðnum. Með þeirri sameiningu var
starfsemi hins nýja fyrirtækis flutt
á einn stað að Smiðjuvegi 3 og grip-
ið til annarra aðgerða til hagræðing-
ar, sem á að ljúka að mestu um ára-
mótin. Hinir gömlu eigendur Prent-
smiðjunnar Eddu eiga tæp 10%
hlutafjár í fyrirtækinu.
Samanlögð markaðshlutdeild
Odda og G.Ben-Eddu af almennu
prentverki á íslandi er nálægt 30%,
ef undanskilinn er stærstur hluti
dagblaðaprentunar og umbúðaprent-
unar og prentunar erlendis. Þar af
er hluti G.Ben-Eddu ef til vill um
5-6%, að sögn Þorgeirs.
Hann sagði að G.Ben-Edda yrði
áfram rekið sem sjálfstætt fyrirtæki
og prentsmiðjustjóri þess verður
áfram Sverrir D. Hauksson. Fram-
kvæmdastjóri verður fyrst um sinn
Jón Steingrímsson, en síðan yrði
væntanlega valinn nýr um áramótin,
að sögn Þorgeirs.
ODDI og G.Ben-Edda eru með um 30%
af almennu prentverki á Islandi.
Samsung sakað
um iðnnjósnir
Gæti hindrað áform um bílaframleiðslu
Seoul. Reuter.
Minni hagnaður
hjá Telegraph
London. Reuter.
SAMSUNG Heavy, skipasmíða- og
þungavéladeild Samsung-sam-
steypunnar í Suður-Kóreu, sætir
harðri gagnrýni vegna ásakana um
iðnnjósnir, sem kuniia að koma í-
veg fyrir að fyrirtekið geti snúið
sér að bílaframleiðslu.
Ríkisfyrirtækið Korea Heavy
Industries & Construction Co Ltd
(KHIC) lagði fram kæru gegn
Samsung Heavy í borginni
Changwon í suðausturhluta lands-
ins þegar upp komst að fjórir verk-
fræðingar Samsung voru að ljós-
mynda framleiðslutæki KHIC.
Ljósmyndimar eru sagðar sýna
að Samsung hafi viljað kynnast
framleiðslu, uppsetningu og starf-
rækslu Golíats-krana KHIC.
Samsung Heavy vísaði kærunni
á bug og sagði að kraninn væri
svo gamall að að ekkert væri á
því að græða að læra á hann. En
sérfræðingar telja málið svo mik-
inn álitshnekki fyrir Samsung að
það muni gera að engu tveggja
ára tilraunir fyrirtækisins til þess
að fá leyfí stjórnvalda til að helja
bifreiðaframleiðslu vegna almenns
trausts sem það njóti.
Stjómvöld segja að Samsung
hafi ekki tekizt að færa rök fyrir
því að bifreiðaframleiðsla á vegum
fyrirtækisins væri í þjóðarþágu.
Fyrir era þrír bifreiðaframleið-
endur í Suður-Kóreru og talið er
hætta á offramleiðslu ef Samsung
bætist í hópinn.
ÞRIGGJA mánaða verðstríð vönduðu
blaðanna í Bretlandi hefur dregið úr
hagnaði Telegraph-útgáfunnar, en
hún gerir lítið úr áhrifunum og
kveðst þola þrýstinginn.
Hagnaður útgáfunnar fyrir skatta
nam 33.9 milljónum punda fyrstu
níu mánuði ársins miðað við 45.2
milljóna hagnað á sama tíma í fyrra.
Hins vegar varð 2.6 milljóna punda
tap á rekstrinum í Bretlandi, það er
á útgáfu Daily Telegraph og Sunday
Telegraph, miðað við 7.6 milljóna
hagnað á sama tíma 1993.
Hlutabréf í Telegraph lækkuðu um
6 pens í 336.
Murdoch hóf stríðið
Blað Ruperts Murdochs, The Tim-
es hóf verðstríðið í september 1993
og veruleg harka hljóp í það í júnílok
þegar söluhæsta vandaða blaðið,
Daily Telegraph, ákvað einnig að
lækka sitt verfl þar sem dregið hafði
úr sölu.
The Times lækkaði þá verðið í 20
pens og varð ódýrasta yandaða blað-
ið á markaðnum. Daily Telegraph
er selt á 30 pens.
Framkvæmdastjóri Telegraph,
Stephen Grabiner, sagði í samtali að
salan hefði aukizt aftur í yfír eina
milljón eintaka síðan verðið var lækk-
að.
Conrad Black stjórnarformaður
sagði í Melboume að Telegraph
mundi ekki bugast og Murdoch gæti
ekki unnið verðstríðið.
Að sögn Grabiners er ekki búizt
við að verðstríðinu ljúki í ár, en hann
sagði að tekjur af auglýsingúm hefðu
greinilega aukizt og fjárfestingar
handan hafsins kæmu í veg fyrir
hættuástand - einkum ástralska út-
gáfufyrirtækið John Fairfax Holdings
Ltd.
í jafnvægi
Hann sagði að salan á Daily Te-
legraph og The Times virtist vera
að komast í jafnvægi - um 1.08 miilj-
ónir og 608,000 eintaka á dag. Salan
á Telegraph var komin í 990,000
áður en verðið var lækkað.
Grabiner sagði að auglýsingatekj-
ur hefðu aukizt í 32.7 milljónir punda
á þriðja ársfjórðungi úr 29.6 milljón-
um. Rekstrarkostnaður jókst að mun,
en hann vildi ekki nefna tölur.