Morgunblaðið - 18.11.1994, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1994 41
Flestir bestu skákmenn heims
í úrslitum EM taflfélaga
-vo«^ |U
Helgi Ólafsson Hannes Hlífar Jón L. Árnason
Stefánsson
Karl Þorsteins Helgi Áss Benedikt Jónasson
Grétarsson
SKAK
Úrslit Evrópukcppni
taflfclaga, Lyon í
Frakklandi,
18. —20. nóvembcr
HAUSTMÓTSKÁKFÉ- .
LAGSAKUREYRAR
ÚRSLIT í Evrópukeppni taflfélaga
1994 fara fram um helgina í Lyon í
Frakklandi. Taflfélag Reylgavíkur
er á meðal þátttakenda, en TR komst
í úrslitin með fremur óvæntum sigri
í undanrásariðli í Eupen í Belgíu í
október. Síðast þegar TR var með í
keppninni, árið 1989, komst liðið í
undanúrslit, en féll út á jafntefli við
þýska liðið Porz. Það er staðreynd
að TR hefur aldrei tapað viðureign
í Evrópukeppni, en tvívegis fallið út
á jafntefli vegna lakari stigaútreikn-
ings.
í LYON verður keppt með nokk-
urs konar útsláttarfyrirkomulagi.
Fyrsoðureignin á föstudagskvöld
ræður því hvaða fjögur lið keppa
um fjögur efstu sætin og hver bít-
ast um neðstu fjögur. Það skiptir
því sköpum að hafa heppnina með
sér þegar dregið er í fyrstu um-
ferð. Stórliðin Lyon Oyonnaix, nú-
verandi Evrópumeistarar, og
Bosna Sarajevo, með Kasparov á
fyrsta borði, eru greinilega mun
öflugri en TR, einnig væri við
ramman reip að draga gegn rússn-
esku og úkraínsku sveitunum, en
TR ætti að eiga ágæta möguleika
gegn hinum þremur.
Það eru margar stórstjörnur sem
sitja að tafli í Lyon um helgina.
Af þeim tæplega 50 sem tefla er
Benedikt Jónasson eini titillausi
skákmaðurinn. Það var þó Bene-
dikt sem fleytti TR áfram með
óvæntum sigri á þýskum stór-
meistara í undanrásunum. Við
skulum líta á uppstillingu liðanna.
Það ber að hafa í huga að hvert
lið má aðeins nota tvo útlendinga
í hverri umferð og eru þeir auð-
kenndir í upptalningunni:
Taflfélag Reykjavíkur
TR stillir upp sama liði og í
undanrásunum. Fararstjórar eru
Árni Á. Árnason og Hrannar Arn-
arson
Helgi Ólafsson SM 2.520
Hannes H. Stefánss SM 2.560
Jón L. Árnason SM 2.525
Karl Þorsteins AM 2.510
Helgi Á. Grétarsson SM 2.450
Benedikt Jónasson 2.805
Bosna Sarajevo
Það er Bosníumaður sem búsett-
ur er í Austurríki sem hefur lagt
stórfé til að setja saman gífurlega
sterkt lið:
Kasparov ÚTL SM 2.805
I. Sokolov SM 2.625
P. Nikolic SM 2.655
Azmajparasvíli ÚTL SM 2.625
Lpuljan ÚTL SM 2.590
Kurajica SM 2.565
Dizdarevic SM 2.495
Lyon Oyonnaix
Evrópumeistararnir freista þess
að veija titilinn á heimavelli. Það
háir þeim þó verulega að mega
aðeins nota tvo útlendinga í einu.
Lautier SM 2.645
Kramnik ÚTL SM 2.725
Anand ÚTL SM 2.720
Salov ÚTL SM 2.710
Barejev ÚTL SM 2.675
Dorfman SM 2.595
Vaiser SM 2.575
Kouatly SM 2.490
Novosíbirsk
Gífurlega jafnt og öflugt rúss-
neskt lið.
Drejev SM 2.650
Dolmatov SM 2.615
Goldin SM 2.590
Pigusov SM 2.575
Rúban SM 2.560
SerperÚTLSM 2.575
Donbass Altsjevsk
Úkraínska liðið er ekki alveg
eins grátt fyrir jámum og það rúss-
neska, en með sterkt fyrsta borð.
ívantsjúk SM 2.695
ShneiderSM 2.535
Savtsjenko SM 2.570
Frólov AM 2.540
Tímósjenko SM 2.550
Kúsmin SM 2.485
Kaise Vilnus
Liðið frá Litháen virðist álíka
sterkt og TR.
Rozentalis SM 2.595
Malisauskas SM 2.510
Kveinys SM 2.510
Ruzele AM 2.495
Zagorskis AM 2.485
Zapolskis AM 2.375
Beersheva
ísraelska liðið er nærri einvörð-
ungu skipað Rússum. Júdasín SM 2.625
Greenfeld SM 2.600
Huzman ÚTL SM 2.575
Zeitlin AM 2.465
Mikhailevskí AM 2.530
Finkel AM 2.465
Honved Búdapest
Ungveijamir em líklega ekki
eins sterkir og þeir sýnast á papp-
ímum:
Z.AlmasiSM 2.620
PinterSM 2.550
Joszef Horvath SM 2.520
Tolnai SM 2.520
Csaba Horvath SM 2.540
Petran AM 2.480
Bikarmót TR
Árlegt bikarmót TR hefst
sunnudaginn 20. nóvember kl. 14
í félagsheimilinu, Faxafeni 12.
Mótið fer fram með útsláttarfyrir-
komulagi og falla keppendur út
eftir fimm töp. Teflt verður á
sunnudögum kl. 14 og miðvikudög-
um kl. 20, að jafnaði 3-4 umferð-
ir í senn. Ollum er heimil þátttaka.
Núverandi bikarmeistari er Páll
Agnar Þórarinsson.
Rúnar skákmeistari SA
Rúnar Sigurpálsson sigraði með
fullu húsi vinninga á Haustmóti
Skákfélags Akureyrar, vann alla
átta andstæðingana. Þetta er í
annað skipti sem Rúnar leikur
þennan leik, hann fékk einnig
hreint borð á mótinu árið 1991.
Siguijón Sigurbjörnsson varð í
öðru sæti og átti gott mót. Hann
fylgdi Rúnari eins og skugginn þar
til mættust í næstsíðustu umferð.
Röð efstu manna:
1. Rúnar Sigurpálsson 8 v.
2. Sigurjón Sigurbjörnsson 6V2 v.
3. Guðmundur Daðason 5V2 v.
4. Smári Ólafsson 4 v.
5. Gestur Einarsson 3V2 v. o.s.frv.
Rúnar sigraði einnig á haust-
hraðskákmótinu, en missti þar nið-
ur eitt jafntefli:
1. Rúnar Sigurpálsson 13V2 v.
af 14
2. Arnar Þorsteinsson IIV2 v. + 2
3. Gylfi Þórhallsson IIV2 v. + 0
4. Þórleifur Karlsson IOV2 v.
5. Jón Björgvinsson 9 v.
6. -7. Rúnar Berg 8V2 v.
6.-7. Siguijón Sigurbjömss. 8V2 v.
Keppni í yngri flokkunum á
haustmóti SA hefst laugardaginn
19. nóvember kK 13.30 í skákheim-
ilinu. Teflt er í tveimur flokkum,
13-15 ára og 12 ára og yngri.
Margeir Pétursson
Matur og matgerð
Hnetu- og
möndlutertur
Nú þegar líður að jólum fara margir að huga
helst grænmetisætur, sem borða
hnetur svo einhveiju nemi, en þær
eru mjög steinefna- og prótínríkar
og sumar t.d. furuhnetan er með
um 31% prótín enda er það einkum
prótínið sem grænmetisætur sækj-
ast efir. Hnetur vaxa á misstórum
tijám og runnum, en Brasilíuhnet-
an vex á háu tré inni í hnattlaga
trékenndum ávexti, sem getur orð-
ið mörg kíló á þyngd. Hann fellur
til jarðar fullþroskaðaur með bauki
og bramli, splundrast og í ljós koma
um 20 hnetur sem liggja þétt sam-
að jólabakstri. I þessum þætti gefur Kristín
Gestsdóttir okkur uppskrift að gómsætum tert
um, sem sóma sér alls staðar vel. Þær má frysta.
ALLTAF tengi ég hnetur
jólunum og hefi þá skál
fulla af hnetum í skel,
jafnvel þótt barnabörin
hafi gaman af að bijóta þær pg
hluti skeljanna lendi á gólfinu. Ég
læt það óátalið, en þegar minnstu
börnin reyna að troða heilum hnet-
um upp í sig, tekur amma í taum-
ana. Þegar ég var lítil hélt ég að
bara væru til möndlur, heslihnetur
og valhnetur, síðar komst ég að
því að til voru jarðhnetur (peanuts)
sem voru nokkrar saman í aflöng-
um belgjum. Þá vissi ég ekki að
þessar hnetur vaxa neðanjarðar
eins og kartöflur. Á stríðsárunum
smakkaði ég líka hnetusmjör í
fyrsta sinn og hafði með saltkexi
og þótt geysigott, en hnetusmjör
er búið til úr jarðhnetum. Við
þekkjum öll saltaðar jarðhnetur.
Nú veit ég að margar tegundir eru
til af hnetum og fást
flestar hér á ís-
landi. Sem barn
braut ég sveskju-
steina með tönnunum
og borðaði hnetuna inni
í þeim, en hún liggur þar í sæt-
um vökva. Þær eru ekki nýttar
nema í „hallæri“, en á stríðs-
árunum braut móðir mín
sveskjusteina og nýtti þær. Frá
ómunatíð hafa menn borðað
hnetur. Heimildir benda til að
pistasíuhnetur og akörn voru borð-
uð um 10.000 árum fyrir Krists-
burð. Nú á dögum myndi enginn
Vesturlandabúi borða akörn nema
í neyð. Ekki eru allar hnetur notað-
ar til manneldis, úr sumum er búið
til lakk, öðrum hárolía og enn örð-
um sápa og mörg þekkjum við
möndluolíu, sem er mjög góð á
húðina. Á Vesturlöndum eru það
an. Erfitt er að ná þessum ávexti
af tijánum og erfitt er að ná hnet-
unni úr skelinni eins og við þekkj-
um. Börnin mín kölluðu þessar
hnetur Svertingjatær. í dag eru
uppskriftir af tveimur mjög góðum
tertum, sem tvær frænkur okkar
hjóna gáfu mér uppskrift af fyrir
langa löngu.
Möndlukaka Gunnu
Markúsar
250 g möndlur
250 g sykur
7 eggjahvítur
1. Malið möndlurnar fínt, blandið
saman við sykurinn.
2. Þeytið eggjahvíturnar og
blandið möndlublöndunni varlega
saman við (ekki í hrærivél). Smyrj-
ið springform um 23 sm íþver-
mál, setjið deigið í formið.
3. Hitið bakaraofn í 170oC, blást-
ursofn í 160°C, setjið í miðjan
ofninn og bakið í 40-45 mínútur.
Kremið:
7 eggjarauður
4 msk. flórsykur
100 g mjúktsmjör
_____1 msk. skyndikaffiduft_
1 msk. sjóðandi vatn
50 g suðusúkkulaði
1. Hrærið eggjarauður og flórsyk-
ur saman þar til það er Ijóst og
létt, hrærið síðan smjörið smám
saman út í.
2. Leysið kaffiduftið upp í sjóð-
andi vatni, kælið og hrærið út í.
Kælið kremið en smyrjið síðan
yfir kökuna.
3. Brytjið súkkulaðið gróft, setjið
yfir kökuna.
Valhnetukaka Lillu
frænku
____________3 egg___________
1 25 g sykur
30 g hveiti
30 g kartöflumjöl
__________1 tsk. lyftiduft________
1. Þeytið egg og sykur þar til það
er Ijóst og létt.
2. Sigtið saman hveiti, kartöflu-
mjöl og lyftiduft, setjið út í og
blandið varlega saman (ekki í
hrærivél).
3. Smyrjið springform um 20 sm
í þvermál, setjtð deigið í formið.
4. Hitið bakaraofn í 190oC, blást-
ursofn í 180°C, setjið neðarlega
í ofninn og bakið í um 20 mínút-
ur. Hvolfið forminu á grind um
leið og þið takið það úr ofninum
og látið kólna þannið. Losið síðan
úr forminu og skerið í þrennt.
Kremið:
1 peli rjómi
2 msk. flórsykur
50 g valhnetur
50 g suðusúkkulaði
1. Þeytið rjómann, blandið sman
við hann flórsykri.
2. Saxið hnetur og súkkulaði frek-
ar fínt, setjið varlega saman við
rjómann og leggið botnana sam-
an með þessu.
Ofan á kökuna:
lOOgflórsykur
1 tsk. skyndikaffi
2 msk. sjóðandi vatn
nokkrir fallegir hólfir
valhnetukjarnar
1. Leysið skyndikaffið upp í sjóð-
andi vatninu, smyrjið yfir kökuna.
Skreytið kökuna með hálfum val-
hnetukjörnum.