Morgunblaðið - 18.11.1994, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1994 43
Málþing og kynning
á gjörgæsludeild
Landspítalans
UM ÞESSAR mundir á gjörgæslu-
deild Landspítalans 20 ára af-
mæli. Hún er elsta gjörgæsludeild
landsins og sú eina sem tekur til
meðferðar sjúklinga með meiri-
háttar brunaáverka svo og hjarta-
sjúklinga.
Á síðasta ári komu tæplega
1.400 sjúklingar á deildina.
Stærsti hluti sjúklinga á gjörgæslu
eru þeir sem gengist hafa undir
meiriháttar uppskurði, s.s. hjarta-
skurði eða líffæraflutninga.
í tilefni afmælisins standa
Landspítalinn og Siðfræðistofnun
Háskóla íslands fyrir málþingi á
Hótel Loftleiðum laugardaginn 19.
nóvember. Flutt verða stutt erindi
sem fjalla um starfsemi gjörgæslu-
deildar Landspítalans og þær sið-
ferðilegu spurningar sem sífellt
er verið að kljást við innan deildar-
innar. Fyrir framan fyrirlestrasal
verður auk þess kynning á starf-
semi gjörgæslu, m.a. með vegg-
spjöldum og tilbúinni sjúkrastofu.
Dagskrá hefst kl. 13 og stendur
til kl. rúmlega 17. Aðgangur er
500 krónur og eru allir velkomnir.
Ráðstefnustjóri er Sigurður Guð-
mundsson læknir.
Fyrirlestra flytja: Sigurður Guð-
mundsson læknir, Þorsteinn Sv.
Stefánsson læknir, Margrét Blön-
dal hjúkrunarfræðingur, Ástríður
Stefánsdóttir læknir, María Sigur-
jónsdóttir læknir, Ólafur Ólafsson
landlæknir og sr. Bragi Skúlason
sjúkrahúsprestur.
Þátt í pallborðsumræðum taka:
Sr. Bragi Skúlason sjúkrahús-
prestur, Jónas Magnússon læknir,
Lovísa Baldursdóttir hjúkrunar-
fræðingur, Ólafur Ólafsson land-
læknir, Ragnheiður Davíðsdóttir
forvarnafulltrúi og Þorsteinn Sv.
Stefánsson læknir.
Barnakór
Biskupstungna
í Kringlunni
BARNAKÓR Biskupstungna hef-
ur fjáröflun í Kringlunni föstudag-
inn 18. nóvember. Kórinn mun
koma fram á hálftíma fresti frá
hádegi með söng og hljóðfæraleik.
Börnin eru að safna fé til að
komast á alþjóðlega keppni barna-
og unglingakóra í Danmörku í
apríl nk.
Til sölu verða ýmsar vörur sem
börnin og foreldrar þeirra hafa
útbúið, t.d. jólakort með myndum
eftir börnin, heimabakaðar kökur,
heitt hverabraut, broddur,
þurrkaðir rósavendir og ýmislegt
fleira úr sveitinni. Stjórnandi
Barnakórs Biskupstungna er
Hilmar Örn Agnarsson sem jafn-
framt er dómorganisti við Skál-
holtskirkju.
-----» ♦ ♦----
Basar
kristni-
boðskvenna
HINN árlegi basar Kristniboðsfé-
lags kvenna í Reykjavík verður
haldinn laugardaginn 19. nóvem-
ber í Kristniboðssalnum, Háaleitis-
braut 58, og hefst kl. 14.
Á basarnum verður margt
muna, ódýrar jólagjafir og jóla-
skraut, einnig kökur o.fl. Jafn-
framt basarnum verður kaffisala.
Basarinn er fastur þáttur í fjár-
söfnum félagsins. Allur ágóði
rennur til starfsemi Kristniboðs-
sambandsins.
■ DREGIÐ hefur verið í happ-
drætti íþróttafélagsins Aspar.
Þessi númer komu upp: Sjónvarp
28“ á nr. 1603 og 3941, mynd-
bandstæki á nr. 383 og 3214,
fjallareiðhjól á nr. 4540, 4576,
4797 og 1271, svigskíðabúnaður
á nr. 289 og 1395, gönguskíða-
búnaður á nr. 2773 og 3656 og
Ajungilak sængur á nr. 1656 og
1879. Handhafar vinningsnúmera
geta snúið sér til Kristínar í síma
73558 eða Karls í síma 889968.
Vinningsnúmer eru birt án
ábyrgðar.
Fræðsludagur á ári
fjölskyldunnar
í TILEFNI af ári fjölskyldunnar
heldur fagdeild barnahjúkrunar-
fræðinga og Umhyggja, félag til
stuðnings sjúkum börnum, al-
mennan fræðslufund laugardag-
inn 19. nóvember nk. í Eirbergi,
Eiríksgötu 34 (gamla Hjúkrunar-
skólanum). Fundurinn hefst kl. 13
og stendur til kl. 16.
Yfirskrift þessa fræðslufundar
er: Fræðsla til foreldra á ári fjöl-
skyldunnar. Á dagskrá fundarins
verður umræðuefnið kynfræðsla
til barna og unglinga og rannsókn-
ir á fjölskyldugerð. Fyrirlesarar:
Sóley Bender, formaður Kyn-
fræðslufélagsins og lektor við
námsbraut í hjúkrunarfræði: Hlut-
verk foreldra í kynfræðslu barna
og unglinga; Vilborg G. Guðna-
dóttir hjúkrunarfræðingur: Hlut-
verk skólans í kynfræðslu barna
og unglinga.
Hjúkrunarfræðingar sem út-
skrifuðust frá háskólanum sl. ár
kynna lokaverkefni: Áhrif föður-
leysis á líf og þroska barna; og
fjalla um fjölskyldugerð: Hefur
hún áhrif á grundvallaþarfið,
heilsu og þroska skólabarna.
Fundurinn er öllum opinn. Að-
gangseyrir er 300 kr. og eru kaffi-
veitingar innifaldar í verðinu.
FRÉTTIR
BÖRNIN fengu tækifæri til að hitta Georg í afmælisveislu íslandsbanka í Hafnarfirði.
ÚTIBÚ Iðnaðarbanka íslands í
Hafnarfirði hélt upp á 30 ára
starfsafmæli sitt 13. nóvember sl.
Útibúið er nú hluti af íslands-
banka hf. eftir sameiningu einka-
bankanna fjögurra árið 1990.
Þessara tímamóta var minnst í
útibúinu fyrir skömmu með því
að viðskiptavinum var boðið upp
á kaffi og meðlæti allan daginn
og börnin í Hafnarfirði fengu
tækifæri til að hitta Georg.
Útibúið var fyrst í leiguhúsnæði
á Strandgötu 34 og starfsmenn
voru aðeins þrír. Þar á meðal var
Valgerður Elsa Pétursdóttir sem
hefur starfað við útibúið meira
og minna síðan og gerir enn.
Fyrsti útibússtjórinn var Sig-
Jólabasar
Kvenfélags
Hallgríms-
kirkju
HINN árlegi jólabasar Kvenfélags
Hallgrímskirkju verður á morgun,
laugardaginn 19. nóvember, í safn-
aðarheimili kirkjunnar og hefst kl.
14.
Basarinn hefur um árabil verið
meginstoð íjáröflunar kvenfélags-
ins í þágu Hallgrímskirkju.
Bindindisdagur
fjölskyldunnar
24. nóvember
UNDANFARIN ár hafa bindindis-
sámtök í samvinnu við ýmis önnur
félagasamtök staðið að bindindis-
degi fjölskyldunnar. í ár verður
hann haldinn 24. nóvember.
Á bindindisdaginn verður birt
sameiginlegt ávarp og vakin með
ýmsu móti athygli á vímuefnavand-
anum. Aðstandendur dagsins
benda á að þessi mál varða alla
þjóðina og því hvetja þeir alla til
þátttöku til að gera daginn sem
áhrifamestan.
Útibú ís-
landsbanka í
Hafnarfirði
30 ára
mundur R. Helgason.
í október 1968 flutti útibúið að
Strandgötu 1 og hefur verið þar
síðan. Fyrir fjórum árum var úti-
búið á Reykjavíkurvegi sameinað
útibúinu á Strandgötu og eru þau
nú rekin undir sameiginlegri yfir-
Alþjóðlegur
„kveðjudagur“
á mánudag
NÆSTKOMANDI mánudag verð-
ur alþjóðlegur „kveðjudagur“,
World Hello Day, en þetta er í 22.
sinn sem þessi árlegi dagur er hald-
inn. Þeir sem vilja taka þátt kasta
þá kveðju á tíu manneskjur í sam-
ræmi við siði í hverju landi í þeim
tilgangi að leggja áherslu á nauð-
syn mannlegra samskipta til að
viðhalda friði. Til þessa hefur fólk
í 171 landi tekið þátt í alþjóðlega
kveðjudeginum.
Skipuleggjendur World Hello
Day eru tveir bandarískir bræður,
Brian og Michael McCormack. 25
Nóbelsverðlaunahafar eru meðal
þeirra sem hafa skrifað þeim, og
lýst ánægju sinni með þetta tæki-
færi til að viðhalda friði og skapa
möguleika fyrir hvern og einn ein-
stakling til að leggja sitt af mörkum
til að koma á friði.
Fólk um allan heim notar tæki-
færið á alþjóðlega kveðjudeginum
til að koma á framfæri þeim vilja
að friður ríki í samfélagi þeirra.
Markmiðið er að þátttaka fólks leiði
til bættari samskipta manna á milli
og jafnframt að koma þeim skila-
boðum til stjórnvalda að nota
mannleg samskipti í stað aflsmunar
til að gera út um deilumál.
stjórn og með sama bankanúmeri.
Einnig er starfrækt afgreiðsla á
Hrafnistu. Eini hraðbankinn sem
starfræktur hefur verið í Hafnar-
firði er í útibúinu á Reylgavíkur-
vegi. í síðasta mánuði var gamla
hraðbankanum skipt út fyrir nýj-
an og mun fullkomnari banka.
Síðasta hálfan annan áratug
hefur útibú Islandsbanka í Hafn-
arfirði vaxið mjög ört og er mark-
aðshlutdeild þess í innlánum bæj-
arbúa nú orðin 27%.
Núverandi útibússtjóri útibús-
ins á Strandgötu er Albert Sveins-
son og útibússtjóri á Reykjavíkur-
vegi er Einvarður Jónsson. Starfs-
menn útibúanna eru alls 36 talsins
i 32 stöðugildum.
Fyrirlestur
um leikræna
tjáningu sem
uppeldis-
aðferð
SÓLSTÖÐUHÓPURINN heldur fyr-
irlestur um fjölskylduna, hinn annan
í röðinni, laugardaginn 19. nóvem-
ber.
Fyrirlesturinn hefst kl. 14 í Nor-
ræna húsinu og ber yfirskriftina:
Lífsins leikur - Leikræn tjáning sem
uppeldisaðferð. Fyrirlesari verður
Ása Helga Ragnarsdóttir leikari.
Fjallað verður um hvenig hægt er
að nýta leikræna tjáningu sem upp-
eldistæki á heimilunum. Geta gleði,
ánægja og leikur verið uppeldistæki?
Umræður og fyrirspurnir verða
að fyrirlestri loknum. Fyrirlesturinn
er opinn almenningi og aðgangseyrir
er 500 krónur.
Morgunblaðið/Emilía
Sotheby’s og
barnaspítalinn
SOTHEBY’S í tengslum við Café
Óperu gekkst fyrir hátíðarkvöldverði
í síðasta mánuði þar sem David
Battie, kunnur sjónvarpsmaður í
Bretlandi, fjallaði um listaverkamark-
aðinn og Sotheby’s og Sveinn Einars-
son var veislustjóri. Eitt þúsund kr.
af hveijum seldum miða fór til Barn-
aspítala Hringsins. Húsfyllir var. Á
myndinni færir Sigríður Ingvadóttir,
fulltrúi Sotheby’s á íslandi, Elísabetu
Hermannsdóttur, formanni Hrings-
ins, ijárhæðina sem safnaðist.